Morgunblaðið - 23.02.1990, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1990
23
Hyómsveitin Rikshaw.
■ HUÓMS VEITIN Rikshaw,
heldur sína árlegu styrktartónleika
í tónleikasal Lækjartungls laugar-
dagskvöldið 24. febrúar kl. 23.
Hljómveitina skipa nú þeir; Sigfus
Ottarsson, Sigurður Gröndal,
Ingólfur Guðjónsson, Björn Jr.
Friðbjörnsson og síðast en ekki
síst, Richard Scobie.
■ ANNAÐ vetrarmót hestmanna-
félagsins Geysis í Rangárvalla-
sýslu, verður haldið á Hellu á laug-
ardaginn, og hefst klukkan 14.
Mótið er stigamót, en alls verða
haldin fimm mót í vetur, og það
hross, sem fær flest stig í töltkeppn-
inni á öllum mótunum, telst sigur-
vegari.
Vésteiim Ólason heldur
fyrirlestur í Skólabæ
VÉSTEINN Ólason prófessor í islenskum fræðum við háskólann í
Osló heldur fyrirlestur þjá Félagi íslenskra fræða í Skólabæ í kvöld,
fóstudagskvöldið 23. febrúar kl. 20:30. En Félag islenskra fræða er
nú að fara af stað með dagskrá eftir áramót.
„Vésteinn er búinn að vera úti í
nokkur ár og hefur okkur þótt sjón-
arsviptir af honum. Það var því
ákveðið að bjóða honum að koma
og halda fyrirlestur," sagði Gísli
Sigurðsson formaður Félags
íslenskra fræða í samtali við Morg-
unblaðið. Yfírskrift fyrirlestrar Vé-
steins er „Þótt konunugur sjá sé
góður maður“ með undirtitlinum
„Um afstöðu Snorra Sturlusonar til
konunga".
Eftir þennan fyrirlestur Vésteins
verður haldið áfram með miðviku-
dagsfundi félagsins og er gert ráð
fyrir þremur fyrirlestrum fram á
vorið að sögn Gísla. „Þorvaldur
Friðriksson fornleifafræðingur ætl-
ar að tala um „Fornminjar á Vest-
urlandi frá elstu tíð“ í lok marz,
en Þorvaldur hefur unnið að upp-
greftri á Vesturlandi og rannsakað
tengsl við byggðina á Grænlandi.
I apríl mun Svanhildur Óskars-
dóttir halda fyrirlestur um Guð-
mund góða, en hún er nýkomin
heim frá Toronto, þar sem hún
stundaði nám í miðaldafræðum við
Rannsóknarmiðstöð Páfagarðs.
Hún hefur lagt sig eftir að rann-
saka tengsl latneskra miðalda-
mennta við íslenska menningu.
Hjalti Hugason rektor við Kenn-
araháskólann og kirkjusagnfræð-
ingur ætlar síðan að tala um „Að-
ferðafræði og kirkjusagnaritun“, en
nú blasir við að kirkjusagnfræðing-
ar Jjurfi að skrifa sögu kristninnar
á Islandi fyrir árið 2000, en þá á
að minnast 1000 ára afmælis
kristnitökunnar.
Starfsemi vetrarins lýkur síðan
með rannsóknaræfingu í Viðey í
maí byijun þar sem Einar Már Jóns-
son verður hátíðargestur. Hann er
ekki enn búinn að tilkynna hvað
hann ætlar að tala um, en Einar
hefur meðal annars rannsakað
tengsl Konungsskuggsjár við gild
rit í Evrópu.“
Gítardúett í Kristskirkju
LAUGARDAGINN 24. febrúar
kl. 16 munu sænski gítarleikar-
inn Torvald Nilsson og Símon
Ivarsson halda tónleika í Landa-
kotskirkju. A efhisskránni eru
verk frá fimm ólíkum tímabilum,
frá endurreisnartimanum og allt
fram til vorra daga.
Þeir leika ýmist dúetta eða ein-
leik. Meðal þess sem þeir flytja er
verk sem aldrei hefur heyrst hér á
landi áður, eftir B. Sjunnesson frá
Svíþjóð. Önnur verk eru m.a. eftir
J.S. Bach, J. Dowland, C.G. Scheidl-
er, E. Granados og Barrios. Tónleik-
ar þessir eru þáttur í samvinnu
þeirra Símonar og Torvalds, en
þeir munu spila átta tónleika í
Svíþjóð í sumar.
Torvald Nilsson er kennari í
klassískum gítarleik við Sunds-
gárdens Folkhögskola, við Tónlist-
arskólann í Helsingborg og við Tón-
listarháskólann í Malmö, auk tón-
leikahalds og fjölþættra annarra
tónlistarstarfa. Símon ívarsson lauk
burtfararprófi frá Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar árið 1975.
Sama ár hóf hann nám í einleikara-
Símon ívarsson, gítarleikari.
hann einnig kennslufræði. Árið
1987 gaf hann út hljómplötu ásamt
dr. Orthulf Prunner orgelleikara.
Símon hefur að undanfömu verið
að vinna að annarri hljómplötu með
dr. Orthulf Prunner, að þessu sinni
er samsetningin gítar og klavikord.
Torvald Nilsson, gítarleikari.
deild próf. Karls Scheit við Tónlist-
arháskólann í Vínarborg og lauk
þar námi vorið 1980. Símon starf-
aði í eitt ár sem gítarkennari við
Tónlistarskólann í Luzern, Sviss,
en starfar nú sem gítarkennari við
Tónskóla Sigursveins, þar kennir
Verðlaunhafar DV. F.v. Hörður Áskelsson, Vigdís Grimsdóttir, Þráinn Bertelsson, Jónas Hallgrimsson
(fyrir Kristínu ísleifsdóttur), Ingimundur Sveinsson, Kristján Guðmundsson og Grétar Reynisson.
DV-mynd: GVA.
FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM
22. febrúar.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 84,00 76,00 81,89 39,573 3.240.576
Þorskur(óst) 80,00 77,00 78,92 8,289 654.157
Ýsa 120,00 76,00 110,87 11,792 1.307.339
Ýsa(ósl.) 88,00 68,00 82,07 2,079 170.622
Steinbítur 42,00 42,00 42,00 1,500 63.000
Steinbítur(óst) 36,00 31,00 34,43 17,122 589.579 '
Keila 35,00 35,00 35,00 1,150 40.250
Tindaskata 2,00 2,00 2,00 1,674 3.348
Kinnar 70,00 70,00 70,00 0,022 1.540
Lifur 15,00 15,00 15,00 0,130 1.950
Hrogn 190,00 160,00 168,87 0,460 77.680
Hnísa 10,00 10,00 10,00 0,062 620
Samtals 72,98 85,904 6.269.543
í dag veröa meðal annars seld 60-80 tonn af þorski, 10 tonn af ýsu, 12
tonn af ufsa og 15 tonn af steinbít úr bátum.
FAXAMARKAÐU R hf. í Reykjavík
Þorskur 80,00 '65,00 74,10 6,022 446.255
Þorskur(óst) 80,00 58,00 76,39 26,635 2.034.712
Ýsa 100,00 39,00 91,22 6,569 599.213
Ýsa(óst) 114,00 50,00 77,24 10,289 794.726
Karfi 40,00 30,00 38,14 74,123 2.827.091
Ufsi 53,00 38,00 48,88 18,675 912.818
Hlýri+steinb. 54,00 39,00 44,89 5,078 227.938
Langa+blál. 55,00 51,00 51,71 2,697 139.442
Grálúða 70,00 70,00 70,00 0,708 49.560
Keila 26,00 26,00 26,00 1,261 32.786
Rauðmagi 145,00 145,00 145,00 0,061 8.845
Hrogn 170,00 60,00 95,14 0,346 32.920
Samtals 53,24 154,189 8.208.561
I dag verða meöal annars seld 50 tonn af þorski, 8 tonn af karfa, 35 tonn
af ufsa og 8 tonn af steinbít úr ýmsum bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 104,00 59,00 79,44 92,306 7.333.164
Ýsa 119,00 61,00 87,36 16,018 1.399.395
Karfi 40,00 40,00 40,00 1,246 49.840
Ufsi 46,00 18,00 41,05 13,067 536.336
Steinbitur 45,00 28,00 32,90 13,232 435.290
Langa 48,00 46,00 47,43 0,699 33.154
Lúða 600,00 300,00 370,63 0,264 97.845
Keila 28,50 25,50 28,09 0,926 26.014
Rauðmagi 92,00 83,00 84,55 0,093 7.863
Hrogn 198,00 198,00 198,00 0,050 9.900
Skarkoli 35,00 35,00 35,00 0,414 14.490
Samtals 71,25 140,694 10.024.775
Selt var úr dagróörabátum. í dag veröur selt úr dagróðrabátum.
Menningarverðlaun DV
Menningarverðlaun DV fyrir árið
verðarboði í Þingholti, Hótel Holti.
launin eru veitt.
Að þessu sinni hlutu verðlaunin
Vigdís Grímsdóttir,_ rithöfyndur,
fyrir skáldsögu sína Eg heiti ísbjörg
Eg er ljón (Iðunn); Kristján Guð-
mundsson, myndlistarmaður, fyrir
framlag sitt til íslenskrar myndlist-
ar, með sérstakri tilvísun til sýning-
ar hans á Kjarvalsstöðum; Hörður
Áskelsson kórstjóri og orgelleikari
fyrir framlag sitt til íslenskrar tón-
listarmenningar á síðustu árum;
Grétar Reynisson, myndlistarmaður
og leikmyndahöfundur, fyrir ný-
sköpun í leikmyndagerð og þá eink-
um leikmyndina við „Ljós heimsíns"
■ SÝNINGU í Hafnarborg,
menningar- og listastofnunar Hafti-
arfjarðar á hluta listaverkagjafar
Eiriks Smith, listmálara til Hafn-
arborgar lykur sunnudaginn 25.
febrúar næstkomandi.
■ FÉLAG áhugamanna um bók-
menntir heldur fund um rímur
laugardaginn 24. febrúar. Fundur-
inn er haldinn í stofu 101 í Lög-
bergi, Háskóla íslands, og hefst
kl. 15.15. Á dagskrá eru Vésteinn
Ólason með rimnaspjall. Um sögu
rímna frá miðöldum til Bólu-
Hjálmars og Þórarinn Eld(járn:
Andar líkið? Einnig verður reynt
að fá söngfólk til að kveða rímur á
fundinum.
1989 voru afhent í dag í hádegis-
Er þetta í tólfta sinn sem verð-
í Borgarleikhúsinu; Þráinn Bertels-
son, kvikmyndagerðarmaður, fyrir
handrit og leikstjóm myndar sinnar
„Magnús"; Ingimundur Sveinsson,
arkitekt, fyrir Kringluna 5, hús
Sjóvá-Almennra hf. og Kaupþings
hf.; og Kristín ísleifsdóttir,
keramikhönnuður, fyrir framlag sitt
til íslenskrar listhönnunar.
Sem endranær skipaði DV
þriggja manna dómnefnd fyrir
hveija listgrein, og tilnefndu þær
listafólk til verðlauna. Verðlauna-
gripina smíðaði Pétur Bjamason,
myndhöggvari.
Lokað
vegna jarðarfarar frá kl. 14.30 í dag.
Fjölritunarstofa Daníels Halldórssonar
Skeifunni 6 og Ránargötu 19
Lokað
Lokum í dag á hádegi vegna jarðarfarar
HAFSTEINS JÚLÍUSSONAR.
SJ-Frost hf.,
Auðbrekku 19.
Lokað
í dag vegna jarðarfarar MAGNÚSAR ÞÓRS
MEKKINÓSSONAR.
Verslunin Baldursgötu 11.