Morgunblaðið - 23.02.1990, Qupperneq 30
30
MORGUNBjAÐIÐ KÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR ,1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú átt einstaklega auðvelt með
að koma skoðunum þínum á
framfæri núna, en af því að að-
stæður eru viðkvæmar gæti risið
misklið milli þín og vinar þíns
vegna peningamála. Njðttu þess
að taka þátt í hópstarfí í dag.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur ánægju af að tala við
samstarfsmann í dag, en þér
finnst þú mæta óheiðarlegri sam-
keppni. Stilltu strengi þína sam-
an við strengi samferðarmann-
anna.
Tviburar
(21. maí - 20. júní)
Þér finnst þér ganga illa með
eitthvert verkefni í vinnunni í
dag þó að jTú gleðjist yfir ýmsu
sem gerist. Þú hrífur einhvern
sem þú hefur skipti við.
Krabbi
(21. júní - 22. júil)
Vertu á varðbergi gagnvart þeim
sem gera sér rómantíkina að leik.
Hjónum kemur ágætlega saman
um hvemig þau eiga að veq'a
sameiginlegum sjóðum. Það er
fyllilega timabært fyrir þig að
ijárfesta núna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú gleðst yfir að geta verið sam-
vistum við maka þinn í dag, en
einhver ættingja þinna er erfiður
í taumi. Leitaðu ráða hjá fleiri
en einum aðila ef þú ætlar að
ráðast í endurbætur heima fyrir.
Farðu varlega í fjármálum.
Meyja
(23. ágúst - 22. septfember) <»■+
Þó að dómgreind þín sé í lagi
getur verið að erfitt reynist að
ljúka einhveiju verkefni núna.
Það eru ekki allir hreinskilnir
sem þú hefur samband við í dag.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú nýtur þess að taka þátt í
frístundaviðfangsefni sem örvar
þig andlega. Mundu að ekki er
allt gull sem glóir. Varaðu þig á
skrumurum. Haltu þig víðs fjarri
hvers kyns veðmálastarfsemi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Tortryggnin getur orðið þér ijöt-
ur um fót í dag. Varastu órök-
studdar ásakanir. Viljastyrkur
þinn kann að daprast. Rökfestan
færir þér ávinning.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Þú hittir naglann á höfuðið í
dag. Leyfðu engum að gera lítið
úr starfi þínu. Sinntu mikilvægu
símtali, bréfaskriftum og skap-
andi verkefnum.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) m
Þú ert glöggur á fjármálin í dag.
Kaup og sala ganga vel. Kunn-
ingjasamband kemur þér að liði
á bak við tjöldin.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þó að þú sért hrífandi, mælskan
holdi klædd og sannfærandi að
auki kemstu lítið áleiðis með fólk
nú um stundir.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) iS*
Það er hagstæðara að halda
áfram vinnu við verkefni en
kynna það fyrir öðrum strax. Þú
færð góðar hugmyndir og ein-
beiting þín er frábær.
AFMÆ LISBARNIÐ er bæði inn-
hverft og úthverft. Það á gott
með að umgangast annað fólk,
en er alltaf öðrum þræði einfari.
Það er ævinlega til í að reyna
eitt.hvað nýtt, en lærir loks að
takamarka sig. Góð menntun
kemur því að góðu haldi við að
nýta hæfíleika sína sem best.
Áhugi þess á öðru fólki kann að
laða það að ráðgjafarstörfum.
Stjörnusþána á aó lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staóreynda.
DÝRAGLENS
TOMMI OG JENNI
LJÓSKA
EINHVeKÖA GbpA AF5ÖK-
. iki cr\voic» Ker <rci l ? f
SMÁFÓLK
Ábendingar um eldamennsku.
When mixing doq food
ina bowl.thewater
can either be put in
first or added last.
Þegar blanda á hundamat í skál,
er hægt að setja vatnið út í fyrst
eða síðast.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Jafnvel þótt skiptingin komi
snemma í ljós er ekki auðvelt
að koma auga á bestu spila-
mennskuna.
Austur gefur, allir á hættu.
Norður
♦ D1084
V 10543
♦ Á7
♦ 864
Vestur Austur
4093 „iiii ♦“
¥K92 VD87
♦ 2 ♦ KG109653
♦ ÁKG1095 ♦ D32
Suður
♦ ÁK7652
¥ÁG6
♦ D84
♦ 7
Vestur Norður Austur Suður
— — 3 tíglar 3 spaðar
Pass 4 spaðar Pass Pass
Pass
Utspil: laufás.
Suður trompar laufkónginn í
öðrum slag og leggur niður
spaðaás. Tekur tromp tvisvar í
viðbót og trompar síðasta lauf
blinds. Miðað við að austur eigi
sjö tígla fyrir opnun sinni , á
hættunni, ætti skipting hans að
vera 0-3-7-3. Og þá er það
spurningin: hvernig á að verka
hjartað?
íferðin _er óvenjuleg: lítið
hjarta frá ÁGx! Ekki má vestur
rjúka upp með kónginn, því þá
verður hægt að svína fyrir
drottninguna. Hann lætur því
lítið og austur drepur tíu blinds
með drottningu. Og spilar aftur
hjarta. Þá stingur suður upp ás,
tekur tígulás og spilar sig út á
hjarta.
Vestur lendir inni og neyðist
til að spila laufi út í tvöfalda
eyðu. Þannig hverfur tíguitap-
slagurinn úr blindum og síðan
má henda einum tígli niður í
fríhjarta.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á Hastings-mótinu um áramót-
in kom þessi staða upp í skák
tveggja þekktra stórmeistara.
Jonathan Speelman (2.615),
Englandi, hafði hvítt og átti leik,
en Boris Gulko (2.605), Banda-
ríkjunum, svart. Svartur lék síðast
23. - d5-d4, en
24. h6! — gxh6 (24. — dxe3 gekk
ekki vegna 25. hxg7+ — Kxg7,
26. Dg2+ - Kh8, 27. Hdgl -
De7, 28. Dg8+ - Hxg8, 29.
hxg8=D tvískák og mát!) 25. Dg2
— Rb4, 26. Hdgl — Rxd3+, 27.
Kbl! og svartur gafst upp, því
eftir 27. — De7, 28. Hxh6 á hann
enga vörn við hótuninni 29. Dg8+.
Urslit í Hastings urðu þessi:
1. Dolmatov, Sovétr., 8'A v. af
14 mögulegum, 2.-3. Spraggett,
Kanada, og P. Nikolic, Júgóslaviu,
7‘/z v. 4. Speelman 7 v. 5.-7.
Chandler, Englandi, Jusupov, Sov-
étr. og Gulko 6 ’/z v. 8. Adams 6
v. í áskorendaflokki sigi’aði enski
alþjóðameistarinn Tony Kosten.