Morgunblaðið - 23.02.1990, Page 39
39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1990
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Einar verður með
gegn Hollendingum
EINAR Þorvarðarson, landsliðsmark-
vörður, er tilbúínn í slaginn. Hann
mun leika með landsliðinu gegn Hol-
lendingum í Laugardalshöllinni í
kvöld og verður það fyrsti landsleikur
hans eftir að hann fór í
nýrnasteinaaðgerð í Osló á dögun-
um.
Einar hefur náð að æfa á fullum krafti *
síðustu daga og er ánægjulegt að
hann sé aftur kominn á ferðina. Aftur á
móti mun Alfreð Gíslason ekki leika gegn
Hollendingum. Hann er meiddur á vísi-
fingri vinstri handar, sem fór úr lið í fyrra-
dag. Fingurinn er enn bólginn.
Islensku landsliðsmennimir sem halda
til Tékkóslóvakíu á sunnudaginn, leika tvo
landsleiki gegn Hollendingum. í kvöld kl.
20 og á morgun kl. 17. Landsliðið fer til
London á sunnudaginn og síðan verður
flogið til Prag á mánudag.
Þjóðsöngvar sungnir
Þess má geta til gamans að þjóðsöngv-
ar íslands og Hollands verða sungnir fyr-
ir leikinn í kvöld. Kór Landsbanka íslands
syngur, en kórinn æfði í Laugardalshöll-
inni í gær.
KORFUKNATTLEIKUR
Létt hjá toppliðum
Keflvíkingar unnu Reynismenn með 47
stiga mun, 130:83 í Keflavík í gær-
kvöldi og hefði sá sigur hæglega getað orð-
in enn stærri. í hálfleik var staðan 60:39.
Það sem kom mest á óvart
Björn var ágæt byrjun Sandgerð-
Blöndal inga sem höfðu frumkvæðið
skrifar fram undir miðjan fyrri hálf-
leik. En þá settu Keflvíkingar
á fulla ferð og rúlluðu yfir nágranna sínu í
orðsins fyllstu merkingu.
Bandaríkjamaðurinn Sandy Anderson sat
á bekknum allan fyrri hálfleikinn, en hann
bætti ijarveru sína upp í þeim síðari - skor-
aði grimmt og margar körfur hans voru
gerðar með miklum tilþrifum sem áhorfend-
ur kunnu að meta. Einnig var Magnús Guð-
finnsson góður og er nú að leika sitt besta
tímabíl.
órsarar náðu aldrei að veita KR-ingum
keppni á Seltjamamesi. KR-ingar tóku
Akureyringa strax í kennslustund, en þegar
staðan var orðin 49:14 slökuðu þeir á og
ungu leikmenn liðsins fengu
Guðmundur að spreyta sig. KR-ingar léku
Jóhannsson geysilegan starkan varnar-
skrifar leik í byijun leiksins og áttu
Þórsarar í miklum erfiðleik-
um að komast í gegnum „hakkavél" þeirra.
ÚRSUT
Körfuknattleikur
KR-Þór 105:70
íþróttahúsið á Seltjamanesi. Úrvalsdeildin
í körfuknattleik, fimmtud. 22. febrúar 1990.
Gangxir leiksins: 7:0, 13:2, 24:10, 40:14,
49:14, 53:25, 53:29. 56:37, 67:44, 83:48,
101:61, 105:70.
Stig KR: Birgir Mikaelsson 24, Anatoiíj
Kovtoúm 16, Lárus Árnason 16, Böðvar
Guðjónsson 12, Guðni Guðnason 10, Gauti
Gunnarsson 10, Páll Kolbeinsson 7, Axel
Nikulásson 6, Matthías Einarsson 2, Þor-
bjöm Njálsson 2.
Stig Þórs: Dan Kennard 23, Konráð
Óskarsson 15, Eiríkur Sigurðsson 13, Jó-
hann Sigurðsson 5, Jón Örn Guðmundsson
4, Davíð Hreiðarsson 3, Björn Sveinsson
2, Ágúst Guðmundsson 2.
Áhorfendur: Um 50.
Dómarar: Bergur Steingrimsson og Kristj-
án Möller.
ÍBK - Reynir 130:83
íþróttahúsið í Keflavík, íslandsmótið í
körfuknattleik, fimmtud. 22. febrúar 1990.
Gangur leiksins: 0:2, 4:8, 15:19, 28:19,
37:24, 47:27, 54:36, 60:39, 67:43, 78:45,
88:52, 101:55, 107:61, 118:69, 124:77,
130:83.
Stig ÍBK: Magnús Guðfinnsson 25, Guðjón
Skúlason 23, Sandy Anderson 18, Nökkvi
M. Jónsson 17, Falur Jóhann Harðarson
15, Sigurður Ingimundarson 14, Albert
Óskarsson 8, Skúli Skúlason 6, Hjörtur
Amarson 2, Ingólfur Haraldsson 2.
Stig Reynis: David Grissom 19, Jón Ben
Einarsson 17, Ellert Magnússon 14, Einar
Þór Skarphéðinsson 13, Sigurþór Þórarins-
son 6, Anthony Stissi 5, Helgi Sigurðsson
4, Jón Guðbrandsson 3, Sveinn Hans Gísla-
son 2.
Áhorfendur: Um 100.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Guðmundur
Stefán Mariasson.
Birgir Mikaelsson, KR. Magnús Guðfinns-
son og Sandy Anderson, ÍBK.
Anatolíj Kovtoúm og Lárus Ámason, KR.
Dan Kennard, Þór. Guðjón Skúlason, Falur
Jóhann Harðarson, Sigurður Ingimundar-
son og Nökkvi M. Jónsson, ÍBK. David
Grissom og Jón Ben Einarsson, Reyni.
NBA-DEILDIN
Leikir í NBA-deildinni á miðvikudagskvöld:
Cleveiand - Portland.............121:109
Detroit Pistons - Orlando........140:109
Indiana - Atlanta Hawks..........123: 96
Seattle - Miami Heat............. 92: 85
NewJersey-Minnesota.............. 95: 93
LA Lakers - Denver...............113:111
Utah Jazz - Boston...............116:103
Philadelphia - Golden State... 96: 95
BADMINTON / HM
„AIKmjög
skemmti-
legir leikir"
- sagði Friðrik Þór Halldórs-
son fararstjóri eftirtap gegn
Dönum. Sovétmenn lögðu
íslendinga einnig að velli
ÍSLENSKA landsliðið í badminton tapaði fyrir
Dönum og Sovétmönnum í 16-liða úrslitum
heimsmeistaramótsins í gær. Báðum viðureign-
unum lauk 0:5, en Friðrik Þór Halldórsson, farar-
stjóri, var þó að mörgu leyti ánægður.
Fyrri leikurinn í gær var gegn Dönum. Broddi Kristj-
ánsson mætti besta badmintonspilara heims, Morten
Frost, í einliðaleik og tapaði 7:15, 6:15. „Broddi komst
í 5:1 í fyrri lotunni, sem var mjög vel leikin og skemmti-
leg. Lotan var löng og mikið spil í henni,“ sagði Friðrik
Þór í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Frost er stigahæsti badmintonspilari heims í dag og
sagði Friðrik það því mjög góðan árangur að ná svo
mörgum stigum gegn honum.
Þorsteinn Páll Hængsson mætti Poul-Erik Hoyer Lars-
en. Þorsteinn tapaði fyrri lotunni 12:15, eftir að hafa
verið yfir 10:6. Síðari lotunni tapaði hann svo 6:15, eftir
að hafa verið 5:1 yfír. „Þetta var líka mjög skemmtileg-
ur leikur,“ sagði Friðrik Þor.
í þriðja einliðaleiknum keppti Guðmundur Adolfsson
við Jens Peter Nierhoff. Guðmundur náði oddalotu; tap-
aði fyrst 5:15, en aðra lotu vann hann 18:16. Jafnt var
9:9, Guðmundur komst í 13:10 en Nierhof jafnaði 13:13.
Guðmundur hækkaði þá í 18 og vann 18:16. Nierhoff
þessi varð Evrópumeistari 1982 og er nú danskur meist-
ari í tvíliðaleik. „Það var frábært hjá Guðmundi að ná
oddalotunni, þessi maður er á lista yfir tíu bestu badm-
intonmenn í heiminum. Við verðum að átta okkur á því
að liðið sem Danir tefldu fram í dag yrði líka byrjunar-
lið þeirra ef Danmörk kæmist í úrslit heimsmeistarmóts-
ins!“ sagði Friðrik Þór. Hann sagði Guðmund hafa verið
orðinn geysilega þreyttan eftir sigurlotuna, og þeirri
síðustu tapaði hann 3:15.
í tvíliðaleik lutu þeir Þorsteinn Páll Hængsson og
Broddi Kristjánsson í lægra haldi gegn Mark Christians-
en og Michael Kjeldsen. Töpuðu fyrri lotunni 13:15 —
eftir að hafa komst 6:2 yfir og síðar 13:12, en Danir
Broddi Kristjánsson stóð sig vel gegn Morten Frost
í gær en tapaði þó eins og búist var við, enda við besta
badmintonmann heims að eiga.
jöfnuðu 13:13 og tryggðu sér sigur. „Strákarnir voru
óheppnir að vinna ekki fyrri lotuna. Sú síðari tapaðist
10:15, eftir að jafnt hafði verið alveg upp í 10:10,“ sagði
Friðrik Þór.
Árni Þór Hallgrímsson og Ármann Þorvaldsson kepptu
einnig 5 tvíliðaleik; töpuðu fyrir Thomas Lund og Max
Gandrup 4:15, 4:15. „Strákarnir náðu sér aldrei á strik
í þessum leik,“ sagði fararstjórinn, og bætti við: „Leikim-
ir voru allir mjög skemmtilegir. Okkur tókst að halda
Dönum í þijá tíma á vellinum í leikjunum fimm, sem er
mjög góður árangur. Að mínu mati var hér var spilað
badminton eins og það gerist einna best.“
Eftir tveggja klukkustunda hlé hóf íslenska liðið svo
keppni við Sovétmenn. Broddi tapaði fyrir þeirra sterk-
asta manni, Andrei Antropov, 4:15, 4:15, Þorsteinn Páll
tapaði fyrir Igor Dímítríev 8:15, 8:15 og Guðmundur
Adolfsson tapaði fyrir Vítaly Shmakov 3:15, 7:15.
í tvíliðaleik töpuðu Þorsteinn Páll og Broddi fyrir
Antropov og Sergei Sevríukov 4:15, 8:15.
Árni Þór Hallgrímsson og Ármann Þorvaldsson náðu
síðan oddalotu í seinni tvíliðaleiknum; töpuðu fyrir Vitaly
Shmakov og Nikolai Zvev 12:15, 18:16, 15:2. „Það er
ágætis árangur. Þeir voru óheppnir að vinna ekki þennan
tvíliðaleik," sagði Friðrik Þór.
íslenska liðið lýkur keppni á heimsmeistaramótinu í
Austurríki í dag er það mætir Finnum.
KNATTSPYRNAl
Forest
ekkitil
landsins
Ekkert verður af því að enska
félagið Nottingham Forest
komi hingað til lands næsta
sumar, eins og ákveðið hafði
verið. Gengið var frá því um
leið og Þorvaldur Örlygsson
gerði samning við félagið, og
átti Forest einmitt að koma
hingað á vegum íslandsmeistara
KA, í beinu framhaldi af ferð
til Svíþjóðar. í Degi kemur hins
vegar fram að nú hafi verið
ákveðið að félagið taki þátt í
fjögurra liða móti strax eftir
Svíþjóðarferðina og komist því
ekki til íslands.
■ KÚBUMENN, sem eru með
íslendingum í riðli á HM í hand-
knattleik, sem hefst í næstu viku,
eiga að vera komnir til Evrópu og
leika tvívegis við landslið Rúmeníu
um helgina. Litlar upplýsingar hafa
borist um Kúbumenn — en skv. því
sem Morgunblaðið heyrði erlendis
frá í gær hafa níu leikmenn í 16
manna hópi Kúbu spilað í landslið-
inu í tólf ár og léku t.d. á Ólympíu-
leikunum í Moskvu 1980. Liðið
hlýtur því að búa yfir mikilli
reynslu.
■ JÚGÓSLAVAR sigruðu Aust-
urríkismenn í síðari vináttuleik
þjóðanna í handbolta í fyrrakvöld,
30:16, eftir að staðan í leikhléi var
14:8. Þetta var síðasti leikur heims-
meistara Júgóslava fyrir HM.
Markahæstir þeirra í leiknum voru
Saracevic, Smailagic og Kliacic,
sem allir gerðu 4 mörk.
■ ETVG/JVIVlandsliðsmaður Júgó-
slavíu sem verður á HM hefur náð
því að leika 200 landsleiki. Fyrirliði
liðsins, homamaðurinn frábæri
Mile Isakovic, á flesta landsleiki
að baki, 192 — getur þ.a.l. aðeins
náð 199. leik sínum í keppninni.
Hann hefur gert 743 mörk í lands-
leikjum og er markahæstur í júgó-
slavneska hópnum sem verður í
Tékkóslóvakíu.
I ÞEIR sextán leikmenn Júgó-
slaviu sem verða á HM eiga sam-
tals að baki 1.482 landsleiki, en
íslendingar hins vegar 2.243 eins
og fram kom í blaðinu í gær. Sú
tala hækkar örlítið eftir leikina tvo
Segn Hollendingum.
I MIRKO Bacic, markvörður
Júgóslava, er næst leikjahæstur
landsliðsmannanna, á 179 lands-
leiki að baki og í þriðja sæti er stór-
skyttan Veselin Viýovic. Hann
hefur spilað 170 landsleiki og skor-
að 696 mörk í þeim.
I BESTI leikmaður Júgóslava í
HM-keppninni fær nýja Mazda bif-
reið í verðlaun. Þessir japönsku
bifreiðaframleiðendur eru styrktar-
aðilar júgóslavneska handboltasam-
bandsins á HM, og greiða því væna
fúlgu ef liðið nær verðlaunasæti.
■ NOKKRIR landsliðsmanna ís-
lands, með Þorgils Óttar Mathies-
en fyrirliða í broddi fylkingar, verða
í dag í íþróttavöruversluninni
Spörtu á Laugavegi milli kl. 15.30
og 17. Þar dreifa þeir dagskrá
heimsmeistarakeppninnar, sem
hægt verður að færa úrslitin inn á
þegar þar að kemur, og einnig ætla
þeir að gefa eiginhandaráritanir.