Morgunblaðið - 19.04.1990, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR Í9. APRÍL 1990
9
Það margborgar sig
að lesa þessa auglýsingu
mm m
m
FERMNGARBARNA
:: Til hamingju með ferminguna. Þú ert í óða si
önn að búa þig undir lífið. Eitt af því, sem full-
orðnir verða að kunna á en unglingar á þínum
aldri koma yfirleitt ekki nálægt, eru fjármál. Það ti;
er eðlilegt að fullorðnir taki lán til þess að eign-
ast íbúð, bíl eða heimilistæki. En það er mikil-
vægt að þú lærir að búa þig undir slíkar fjárfest-
ingar með því að spara í dag og eiga þegar þar |
að kemur fyrir t.d. bílprófi, langskólanámi eða
II jafnvel íbúð. Með skynsamlegum spamaði lætur j|
Iþú vextina vinna fyrir þig, en þarft ekki að vinna
fyrir vöxtunum, sem gerist ef þú tekur lán til 1
þessara hluta. 1
Hugmyndin að baki EININGABRÉFUNUM
er sú að margir smáir sparifjáreigendur leggi í
pott og sameinist um það að kaupa skuldabréf,
sem hver og einn ræður ekki við en gefa mjög
góða ávöxtun. Einingarnar og þar með verðbréfa-
eignin hækka síðan daglega vegna verðbólgu og 1
vaxta. Á þennan hátt fær sparifjáreigandinn háa
vexti á sparifé sitt. Einingabréfin er hægt að kaupa
fyrir hvaða upphæð sem er, alveg niður í nokkur
Íþúsund krónur.
Þú hefur eflaust heyrt af vandræðum fullorð-
‘ inna, sem steypt hafa sér í skuldir af kappi frekar
en forsjá. HUGLEIDDU HVORT EKKI SÉ
SKYNSAMLEGRA AÐ SPARA FYRST OG
KAUPA SVO OG EIGA ÞANNIG ÁHYGGJU-
MINNI ÆVI.
Líttu við hjá okkur í Kringlunni 5
og f áðu aUar frekari upplýsingar
um sparnaðarmöguleika.
Sölugengi verðbréfa 19. apríl 1990:
EININGABRÉF 1 4.819
EININGABRÉF 2 2.638
EININGABRÉF 3 3.171
SKAMMTÍMABRÉF 1.637
1 Tillaga Davíðs OddssonaF samþykkt samhjjóða i borgarráði:
I Tiilaga 1
iRekstri Áburðarverk-
bmiðjunnar verði hætt
t
Óþörf áhætta
Deila er risin milli Reykjavíkurborgar og ríkis-
stjórnar um framtíð Aburðarverksmiðju ríkis-
ins í Gufunesi. Eins og kunnugt er sam-
þykkti bo.rgarráð samhljóða tillögu Davíðs
Oddssonar borgarstjóra, þar sem þess er
krafist að ríkisstjórnin taki strax ákvörðun um
að leggja verksmiðjuna niður. Steingrímur J.
Sigfússon landbúnaðarráðherra og Halldór
Ásgrímsson, starfandi forsætisráðherra, hafa
snúist gegn þessari samþykkt. Borgarstjóri
telur, að ekki sé verjandi fyrir ríkisstjórnina
að taka þá áhættu sem verið sé að taka með
því að halda rekstri verksmiðjunnar áfram.
Er staldrað við þetta mál í Staksteinum í dag.
Tankurinn bil-
aði ekki
I Morgunblaðinu í gær
vísar HalUlór Asgríms-
son, stariandi forsætís-
ráðherra, til þess að 1988
hafi niðurstaða athugun-
ar á vegum ríkisvaldsins
orðið sú, að tryggja ætti
öryggi við áburðarverk-
smiðjuna með því að
reisa þar nýjan tank und-
ir ammoníak. Siðan segir
Halldór:
„Nú er það svo að
smíði þessa tanks hefur
því miður tekið lengri
tíma en upphaficga var
gert ráð fyrir og m.a.
þess vegna áttí þessi at-
burður á páskadag sér
stað. Ríkisstjórnin hefur
ekki fengið neinar nýjar
upplýsingar um málið en
mun væntanlega fá þær
á næstunni, eftír að rami-
sókn hefur farið Iram.
Að mínu mati er ekki
ástæða tíl þess að breyta
um þá stefnu sem mörk-
uð var í upphafi árs 1988,
fyrr en lrekari upplýsing-
ar liggja fyrir.“
Þegar köiuiuð eru at-
vik óhappsins á páskadag
blasir allt annað við en
starlandi forsætísráð-
herra segir i hmum tíl-
vitnuðu orðum, hafði
málið þó verið rætt á
fúndi ríkisstjómarinnar á
grundvelli gi-einargerðar
frá Vinnueftírlití rikisins.
í þeirri gremargerð kem-
ur einmitt fram, að
óhappið gat gerst við
hvaða tank sem er, því
að um það var að ræða,
að starfsmenn höfðu
„gripið tíl þess ráðs að
hleypa gasinu beint út í
andrúmsloftíð frá geym-
inum um loka þaim sem
eldurinn kviknaði við“.
Vegna stíflu í barka var
þetta eldfima gas ekki
sent um borð í skip, er
lá við bryggju verksmiðj-
unnar. Það virðist því
hreinn misskilningur hjá
stariandi forsætísráð-
herra, að nýr tankur
hefði breytt þessari at-
burðarás. Kannski kemst
ráðherrann að atmarri
niðurstöðu um framtíð
verksmiðjunnar, þegar
liann áttar sig á því, sem
raunverulega gerðist í
henni síðdegis á páska-
dag.
Frá því hefur skýrt að
íbúasamtök Grafarvogs
ætli að efiia til opins
borgarafúndar á laugar-
dag um áburðarverk-
smiðjuna og hafi borgar-
sfjóra, borgarstjórn, al-
þingismönnum og emb-
ættísmönnum verið boðið
þangað. Fer vel á því að
kalla á allt þetta fólk til
fundar um þetta alvar-
lega mál, en mestu skipt-
ir auðvitað fyrir íbúana
að fa ráðherra á fúnd til
sín og þá sérstaklega
Steingrím J. Sigfusson
landbúnaðarráðherra
sem ber pólitíska ábyrgð
á starfrækslu áburðar-
verksmiðjiumar. Um-
mæli starfandi forsætís-
ráðherra um óhappið á
páskadag bera með sér,
að einnig væri gott að fá
hann á vettvang, svo að
hann áttaði sig sem best
á því um hvað málið
snýst.
Hræðsluáróð-
ur
Umræður um hættuna
af áburðarverksmiðjuimi
snúaíst um raunverulega
atburði sem hafa gerst í
nágrenni þéttbýlasta
staðar á landinu, á þeim
stað þar sem mesta hætta
getur orðið í landinu að
matí lögreglunnar. Við
slíkum atburðum verða
stjóriunálamenn að sjálf-
sögðu að bregðast eftír
þeirri ábyrgðartílfinn-
ingu, sem þeir hafa hver
og einn. Þeir verða að
meta stöðuna í heild og
taka tillit tíl fleiri þátta
en fjárhagslegra. Guðjón
Petersen, forstjóri Al-
mannavaraa rikisins,
minnist á einn þessara
þátta, hræðsluna og ótt-
ann, í Morgunblaðinu í
gær, þegar hami segir,
að hættuboð frá al-
mamiavöraum getí jafin-
vel valdið íbúum meiri
hættu en sú vá sem yfir-
vofandi er. „Búast hefði
mátt við því að allt að
800 manns hefðu sturlast
úr hræðslu, og það má
ætla að 5-10% af íbúunum
hefðu brugðist við af
skelfingu og til dæmis
hlaupið út og hafið leit
að böraum sinum. Þama
er því verið að tala um
gífúrlegan fjölda fólks
sem hefði átt um mjög
sárt að binda í langan
tíma á eftír, auk þeirrar
slysahættu sem skapast
hefði.“
Ekki munaði nema fá-
einum minútum að þetta
ástand skapaðist á höftið-
borgarsvæðinu, sem lýst
er hér að ofan. Tilvist
áburðarverksmiðjunnar í
Gufúnesi veldur því, að
það kann að skapast að
nýju. A að taka slíka
áhættu?
Af þeim þingmönnum
sem nú sitja á Alþingi
Islendinga hafa fáir lagt
sig meira fram um að
stunda hræðsluáróður en
Steingrímur J. Sigfússon,
núverandi landbúnaðar-
ráðherra. Hefur hann
einmitt sérhæft sig í
slíkum áróðri vegna
mannvirkja og er þar
sérstaklega visað tíl rat-
sjárstöðva og varaflug-
vallar er gætí þjónað
flugvélum varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli. Við-
búnaðúr liðsins og þátt-
taka íslands í varaarsam-
starfinu innan Atlants-
hafsbandalagsins miðar
einmitt að því að koma í
veg fyrir að hættuástand
skapist, til þess er til
dæmis eftírlitið úr rat-
sjárstöðvunum.
Steingrímur J. Sigfússon
hefúr hins vegar lagst
alfarið gegn þeim á þeirri
forsendu, að þær kalli
sérstaka hættu fyrir íbúa
í nágrenni við þær og
landið allt og þjóðina. Þá
hefúr hann verið ómyrk-
ur í máli um hættur
vegna vamarliðsins og
líkur á kjarnorkuárás á
landið. Vegna þessa alls
hefúr hann viljað að
landið verði vamarlaust.
og síst af öllu mátt heyra
mhmst á starfeöryggi eða
fjárhagslegar ástæður í
umræðum um þau mál
öll.
Þegar þessi sami þing-
maður og núverandi ráð-
herra stendur frammi
fyrir úrlausnarefiii á
verksviði sínu, þar sem
við blasa raunveralegar
likur á gífúrlegri hættu,
telur hann ástæðulaust
að fiira að óskum þeirra,
sem vilja ekki taka neina
áhættu og tryggja öryggi
borgaramia sem best. Ef
tíl vill lítur Steingrimur
J. Sigfiússon aðcins þaim-
ig á, að hami sé sjálfum
sér samkvæmur, það er
að kröfúmar um varaar-
leysi lands og þjóðar og
að áhætta sé tekin með
áburðarverksmiðju í
þéttbýli séu í eðli sínu
skyldar.
FEKMINGARGJÖFIN í ÁR
Ertu í vandræðum með að finna réttu fermingargjöfina handa
ungri stúlku, sem langar ekki í hljómtækjasamstæðu, tölvu,
hest eða utanlandsferð, þá gæti saumavél verið svarið.
Nytsöm og eiguleg framtíðarfjárfesting.
I Við bjóðum upp á
margar tegundir af
4Ú1M3 saumavélum.
Þar á meðal €223SI
1047 Tiptronic á aðeins
kr. 49.965,- stgr.
(Verð áður kr. 63.900,-)
PFAFF
Borgartúni 20 og Kringlunni
S: 26788 S:689150