Morgunblaðið - 19.04.1990, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRIL 1990
Grétar Snær Hjartarson og Herdís Þorgeirsdóttir í hlutverkum sínum,
Stakfell
Faste<gnasaia Suöu'lanasbraut 6
687633 rf
Logtræðingur
borhilOur SananoH
Solumenn
Gish Sigurbiomssvn
Sigurbiorn po'bergssc
Gleðilegt sumar
Versl.- og skrifsthúsn.
LÁGMÚLI
400 fm skrifsthúsn. á 2. hæð og 5-600
fm verslhúsn. í sama húsi.
Einbýlishús
KLYFJASEL
Nýl. 240 fm timburh. á steyptum kj.
(Siglufjhús). Góð eign m/4 svefnherb.
og innb. bílskúr.
HÖRGATÚN - GBÆ
127 fm timburh. á steyptum kj. Stórar
stofur, stórt eldhús.
VATNSSTÍGUR
Fallegt, uppgert, gamalt einbhús. Fal-
legur garöur. Sér bílast. Verö 8,2 millj.
NJÁLSGATA
Einbýlish. hæð og kj. 82 fm nettó. Mik-
iö endurn. hús. Nýjar raf- og hitalagnir.
Raðhús
KAMBASEL
Fallegt 180 fm raðh. á tveimur hæöum.
4 svefnherb. Góöar innr. Laust 1. júlí.
Verö 11,1 millj.
Hæðir
VIÐ SJÓMANNASKÓL-
ANN
Góö neðri sérh. við Vatnsholt 135,4 fm
nettó. Bílsk. 24,5 fm. Vönduð eign.
Getur losnað fljótl. Verð 11,5 millj.
MIÐBRAUT - SELTJN.
Falleg efri sérh. í þríbhúsi um 130 fm.
34 fm bílsk. Verð 10,1 millj.
STÓRHOLT
Efri hæð og ris 120-130 fm. Á hæöinni
er gullfalleg og endurn. 3ja-4ra herb.
íb. í risi sem er viðarklætt er 2ja herb.
íb. Verð 9,5 millj.
4ra herb.
FLÚÐASEL
Mjög falleg endaíb. á 1. hæð. Vandaðar
innr. Aukaherb. í kj. íb. getur losnað
mjög fljótt. Verð 6,5 millj.
DALSEL
■ LEIKFÉLAG Mosfellsbæjar
frumsýndi föstudaginn 6. apríl leik-
ritið „Þið munið hann Jörund“ eftir
Jónas Arnason. Leikstjóri er
Bjarni Steingrímsson. Leikritið
var frumflutt í Iðnó fyrir 20 árum
og hefur notið mikilla vinsælda
síðan og verið sýnt víða um land.
Þetta er léttur söngleikur sem fram
fer á hinni frægu Lundúnakrá „Jo-
kers and Kings“. Hlégarður hefur
verið færður í nýjan búning til að
skapa rétta stemmingu, og sitja því
kráargestir við borð meðan á sýn-
ingu stendur. Miða- og borðapant-
anir eru á Héraðsbókasafninu.
Leikarar eru 18 en auk þeirra eru
það skemmtikraftarnir á kránni
„Tríóið" sem segir okkur sögu Jör-
undar hundadagakonungs. Eins og
höfundur segir í handriti er þetta
ósögulegt leikhúsverk og fer Jónas
því sínar eigin leiðir í að segja sögu
þessa. Flestar persónur áttu sér
stað í veruleikanum aðrar eru hug-
arfóstur Jónasar. Helgi R. Einars-
son hefur útsett lögin og æft þau
en Helgi var sjálfur í tríóinu „Þijú
á paili“ sem söng forðum daga í
uppfærslunni í Iðnó. Það eru sem
sagt írskar ballöður með frábærum
textum Jónasar sem skapa létta
stemmningu á kránni „Jokers and
Kings“ í Hlégarði þessa dagana.
Leikritið hefur verið sýnt 4 sinnum
fyrir fullu húsi. Sýningar verða út
aprílmánuð.
■ HVERFISHÁ TÍÐ verður í
Grafarvogi í dag, sumardaginn
fyrsta. Gengið verður í skrúðgöngu
frá Hamraskóla í Hamrahverfi
kl. 14 og gengið að Fjörgyn í
Foldaskóla. Síðan verður boðið upp
á skemmtun bæði utandyra sem
innan. Leiktæki verða á skólalóð-
inni en tóniist og veitingar innan-
dyra. Allir Grafarvogsbúar vel-
komnir.
SÖNGTÓNLEIKAR
_________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Kathryn Stanton og Magnús
Baldvinsson héldu söngtónleika í
íslensku óperunni fyrir páska.
Þetta er í annað sinn sem Magnús
heldur sjálfstæða tónleika en
líklega frumraun hjá Kathryn
Stanton. Á efnisskránni voru verk
eftir Verdi, Mozart, Saint-Sáens,
Puccini, Offenbach og Bellini, auk
þess sem Magnús söng í dag eft-
ir Sigfús Halldórsson og Kathryn
Stanton tvö lög eftir Sigfús Ein-
arsson, Draumalandið og Sofnar
lóa. Undirleikari var Ólafur Vign-
ir Albertsson sem lék hélt þessum
tónleikum saman með ágætum
leik sínum.
Magnús hóf tónleikana með
aríu úr Simone Boccanegra eftir
Verdi og gerði það vel. Kathryn
Stanton er ung og efnileg söng-
kona en of skammt á veg komin
í námi til að fást við svo erfið
verkefni sem hér átti sér stað.
Cavatinan Porgi, amor, úr Brúð-
kaupinu eftir Mozart var þokkaleg
en ekki meir. Íslensku lögin voru
sömuleiðis all vel sungin og fram-
burður íslenskunnar góður.
Benedictus dúettinn, eftir Sa-
int-Sáens, var ekki í jafnvægi og
varla fullæfður. Besta lagið var
Dormiro sol úr Don Carlos eftir
Verdi, sem Majgnús söng mjög
vel, sömuleiðis I dag eftir Sigfús
Halldórsson. Dúettamir eftir Off-
enbach (Ástarnóttin) og Mozart
(Lá ci darem la mano) vom líflaus-
ir og óöruggir eins og gerist hjá
nemendum. Sama má segja um
aríuna Vissi d’arte úr Tosca, eftir
Puccini, sem söngkonan hefði sem
best átt að sleppa, því þar gat að
heyra hversu enn vantar á þá
söngþjálfun sem góðum söngvara
er nauðsynleg í átökum við slík
verkefni. Kathryn Stanton er efni-
leg söngkona en á enn of mikið
ólært til að geta haldið tónleika,
hvað sem síðar kann að verða.
Magnús er feikna mikill radd-
maður en vantar enn þá ögun í
tónlist til að drottna að fullu yfir
verkefnum sínum. Þar sem hann
á allskostar við verkefni sitt, eins
og í Old mans river (sungið sem
aukalag), var söngur hans glæsi-
legur. Þetta vald yfir söngnum
Kathryn Stanton
fæst ekki aðeins með því að kunna
lagferlið og tónmyndunina. Það
er hin tónræna upplifun sem
söngvarinn verður að skila til
áheyrenda og þar sem Magnúsi
tókst best upp, sýndi hann að
hann á þetta til. Þarna er enn
verk að vinna, sem bæði vinnst á
tíma og í samvinnu við góða sam-
Kammerrnúsikklúbburinn stóð
fyrir tónleikum laugardaginn fyrir
páska í Bústaðakirkju. Þar kom
fram Márkl-kvartettinn og flutti
verk eftir Haydn, Kempff og Beet-
hoven.
Fyrsta verkefnið var ópus 74,
nr. 3, eftir Haydn. Skemmtilegt
verk sem var mjög vel leikið og
sérstaklega annar þátturinn,
Largo assai, þar sem Haydn leik-
ur með ýmis þau „dramatísku"
blæbrigði og tónhugmyndir, sem
síðar blómstruðu á hægu þáttun-
um í fyrstu verkum Beethovens.
Annað verkið er samið af píanó-
snillingnum Wilhelm Kempff og
tileinkað öðrum slíkum, nefnilega
Alfred Cortot. Fyrsti og annar
þátturinn voru ágæt tónlist en sá
seinni, scherso í „þjóðdansastiT,
var sérlega vel ieikinn. Þriðji þátt-
urinn var eins konar tilbrigði um
sálmalag og eins og út á þekju
og tilbrigði um „Au clair de la
lune“ var sérkennilega lítilijörleg-
Magnús Baldvinsson
starfsmenn í tónlist. Kunnáttan
er vegvísir til ferðar sem er sein-
farin og endalaus. Sérhver áfangi
á þeirri ferð næst aðeins með þrot-
lausri árvekni en árangurinn tap-
ast jafn fljótt sem sandur úr greip
ef hvílt er um stund. Listin getur
leikið mönnum í hendi en verður
aldrei eign þeirra.
ur samsetningur, sem ágætur
leikur kvartettsins bjargaði ekki.
Síðasta verkið var ópus 59, nr.
1, eftir Beethoven, sá fyrsti af
þremur kvartettum sem kenndir
eru við Razumovsky greifa. í
þessum kvartettum fitjar Beetho-
ven upp á ýmsum nýjungum og
er annar þátturinn, Allegro vivace
e sempre scherzando og sá þriðji,
Adagio molto e mesto, sérlega
eftirtektarverðar tónsmíðar, sem
kvartettinn lék snilldarlega vel.
Þar sem Razumovsky var áhuga
sellisti, var hlutverk þessa hljóð-
færis haft viðameira en venja var
og þessa naut sellisti kvartettsins,
Guido Schiefen, sem vakti athygli
fyrir frábæran leik, sérstaklega í
hæga þættinum. Áðrir meðlimir
kvartettsins eru allir góðir tónlist-
armenn og þar fer fyrir aldursfor-
setinn Josef Márkl en aðrir voru
Key-Thomas Márkl og Rúdiger
Debus.
Kammertónlist
Góð og falleg rúml. 100 fm endaíb. á
1. hæð. Þvottaherb. í íb. Bílskýli fylgir.
Laus 1.4. Verð 6,6 millj.
KRUMMAHÓLAR
Góð 4ra herb. endaíb. á 1. hæð um 100
fm. Verð án bflsk. 5,6 millj. Með rúmg.
bílsk. Verð 6,1 millj. íb. getur losnað fljótl.
3ja herb.
REYNIMELUR
Falleg 3ja herb. íb. á 2. hæð. Suöursv.
íb. losnar 1. júní. Verð 6,2 millj.
ÞVERHOLT (Egilsborgir)
Ný og glæsil. íb. á 1. hæð 82 fm nettó
rúml. tilb. u. trév. Til afh. strax.
MOSGERÐI
Um 100 fm íb. á neöri hæð í tvíbhúsi.
Stór stofa og 2 svefnherb. Allt sér.
Verö 5,8 millj.
VESTURBERG
Falleg íb. á 6. hæð í lyftuh. 73 fm. Suð-
vestursv. Verð 5,2 millj.
GRÆNAHLÍÐ
Mjög falleg 3ja herb. íb. á jarðh. m/sér-
inng. Parket og nýjarinnr. íeldh. Þvotta-
herb. í íb. Verö 6,5 millj.
AUSTURBERG
Góö 3ja herb. íb. á 1. hæð 73 fm. Sér-
garður. Getur losnað fljótl. Verð 4,5 millj.
2ja herb.
VINDÁS
Góö einstaklíb. á 3. hæð m/fallegum
innr., flísum og parketi. Laus strax.
Áhv. byggsj. 1300 þús. Verð 3,4 millj.
AUSTURBRÚN
Falleg einstaklingsíb. á 11. hæð í lyftuh.
56.3 fm skv. fasteignamati. Ný eld-
hinnr. Nýmáluð íb. Verð 4,5 millj.
ARAHÓLAR
Góð 2ja herb. íb. á 4. hæð í lyftuh. 58
fm nettó. Glæsil. útsýni. Laus fljótl. Áhv.
hússtjl. 2,2 millj. Verð 5 millj.
RAUÐARÁRSTÍGUR
2ja herb. kjíb. Laus nú þegar.
MARBAKKABRAUT
Kjib. í þríbhúsi 57 fm. Verð 2,9 millj.
Gleðilegt sumar
■ HÉRAÐSSKÓGAR: Fram hef-
ur verið lagt frumvarp um héraðs-
skóga, sem fjallar um „sjálfstætt
skógræktarverkefni um ræktun
nytjaskóga á bújörðum á Fljótsdals-
héraði, samkvæmt sérstakri áæti-
un“.
Opið í dag kl. 10.00-16.00.
Opið á laugard. á sama tíma.
Kynnið ykkur laugardagsaugl.
■ OPINBER RÉTTARAÐ-
STOÐ: Stjórnarfrumvarp um opin-
bera réttaraðstoð sameinar „ákvæði
um lögfræðilega aðstoð við almenn-
ing, aðstoð við brotaþola og ákvæði
um gjafsókn og gjafvörn í einum
lagabálki“.
AIMENNA
FASTEIGHASAl AN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Ein mynda Helgu Sigurðardóttur
í Ljósmyndasafhi Reykjavíkur.
Myndefnið er um innri og æðri
veruleika mannsins.
■ HELGA Sigurðardóttir frá
Egilsstöðum opnar myndlistarsýn-
ingu í dag, sumardaginn fyrsta, í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur,
Borgartúni 1. Myndimar eru unn-
ar með olíukrít og þurrkrít og eru
í björtum litum. Myndefnið er um
innri og æðri veruleika mannsins
og fylgir texti hverri mynd. Mynd-
imar eru unnar á þessu ári og
síðasta ári. Þetta er önnur einka-
sýning Helgu, en hún hefur einnig
tekið þátt í samsýningum á Akur-
eyri og Egilsstöðum. Sýningin er
opin 19.-22. apríl kl. 14-22. Allir
eru velkomnir á sýninguna.
21150-21370
LARUS Þ, VALDIMARSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI
EINAR ÞÓRISSON LONG, SÖLUMAÐUR
KRISTINN SIGURJÓNSS0N, HRL. LÖGGILTUR FASTEIGNASALI
Til sölu á fasteignamarkaðinn er að koma:
Nýtt og glæsilegt einbýlishús
á vinsælum stað í Garðabse með 5 herb. íb. 121 fm á hæð. Ennfrem-
ur mjög góður íbúðakj. Úrvals frágangur á öllu. Tvöf. bílskúr 49 fm.
Ræktuð lóð 844 fm. Útsýni. Góð lán fylgja.
Úrvalsíbúð - öll eins og ný
Við Dvergabakka 2ja herb. íb. á 2. hæð tæpir 60 fm nettó. Nýtt park-
et o.fl. Ný endurbætt sameign. Tvennar svalir. Útsýni. Laus strax.
Ný og glæsileg við Bárugranda
3ja herb. íb. 86,1 fm á 2. hæð í nýju húsi. Sólsvalir. Fullgerð sameign.
Stæði í bílhýsi. Húsnæðislán kr. 4,1 millj. Útsýni.
Rétt við MR
góð einstaklingsíb. á 1. hæð í reisulegu steinh. Nýlega nokkuð endur-
bætt. Danfosskerfi. Geymsla i kj. Laus 15. maí. Verð aðeins kr. 2,8 millj.
Þurfum að útvega fjárst. kaupendum:
2ja herb. íb. á 1. hæð t.d. Álftamýri eða nágr. Kr. 3 m. við kaupsamn.
4ra—5 herb. íb. helst í Fossvogi eða nágr. Laus í haust.
Sérhæð 140-160 fm í borginni. Mikil útborgun.
3ja herb. íb. í lyftuhúsi t.d. við Þangbakka gegn útborgun.
Gleðilegt sumar með þökk fyrir veturinn
■ NORRÆNT félag um átt-
hagarækt heldur kynningarfund í
Norræna húsinu föstudaginn 20.
apríl kl. 17.15. Allir sem áhuga
hafa á byggðasögu, mynjavernd,
ættfræði, heimilisiðnaði, náttúru-
vernd, ömefnaskráningu, fomleifa-
fræði og öðru er við kemur heima-
byggðinni eru velkomnir. Fulltrúar
„Nordiska förbundet för hemm-
bygdsarbete“, þeir Rune Ruhnbro
og Rune Engström frá Svíþjóð
og Marko Tanner frá Finnlandi
koma á fundinn og kynna samtökin.
-T”
Sigríður Candi opnar sýningu á
málverkum í sýningarsal FIM.
■ SIGRÍÐUR Candi opnar sýn-
ingu á málverkum í sýningarsal
FIM, Garðastræti 6, fimmtudag-
inn 19. apríl. Þetta er þriðja einka-
sýning hennar auk þess sem hún
hefur tekið þátt í fjölda samsýninga
hér heima og erlendis. Sýningin er
opin daglega kl. 14—18 og stendur
til 6. maí. »