Morgunblaðið - 19.04.1990, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1990
■ EFTIR að hafa gert könnun á
meðal flokksmanna, hefur uppstill-
inganefnd kjördæmisráðs
Reykjavíkur ákveðið framboðslista
Flokks mannsins í komandi borg-
arstjómarkosningum þann 26. maí
nk. Fyrstu 15 sæti listans skipa
eftirtaldir: 1. Ashildur Jónsdóttir,
markaðsstjóri. 2. Sigríður Hulda
Richards, verslunarmaður. 3.
Halldóra Pálsdóttir, sölumaður.
4. Friðrik Valgeir Guðmundsson,
málmiðnaðarmaður. 5. Einar Leo
Erlingsson, nemi. 6. Sigurður
Sveinsson, leigubílsstjóri. 7. Þórir
Karl Jónasson, verkamaður. 8.
Svanhildur Óskarsdóttir, fóstra.
9. Guðmundur Sigurðsson, bréf-
beri. 10. Aslaug Ó. Harðardóttir,
kennari. 11. Steinunn Pétursdótt-
ir, húsmóðir. 12. Stígrún Asta
Asmundsdóttir, fiskverkunarkona.
13. Brynjar Ágústsson, nuddari.
14. Ásbjörn Sveinbjörnsson,
bókagerðarmaður. 15. Guð-
mundína Ingadóttir, .verslunar-
stjóri.
■ SERSTÖK trúboðssamkoma og
kvöldvaka verður á Hjálpræðis-
hernum, Kirkjustræti 2,
Reykjavík í kvöld, kl. 20.30. Trú-
boðinn kafteinn Miriam Óskars-
dóttir sem hefur starfað í Panama
í rúm fimm ár, mun ásamt herkon-
unni Karinu Aparicio frá Panama
syngja og tala á spænsku og
íslensku. Sérstök trúboðsfórn verð-
ur tekin til starfsihs í Panama. 011-
um er heimill aðgangur.
HÆTTID
AD
BOGRA
VID
ÞRIFIN!
Hú fást vagnar með nýrri vindu
par sem moppan er undin með
éinu handtaki án þess að taka
þurfi hana afskaftinu. Moppan fer
alveg inn i horn og auðveldlega
undir húsgögn. Einnig er hún
tilvalin í veggjahreingerningar.
Þetta þýðir auðveldari og betri þrif.
IBESTAI
Nýbýlavegi 18
Sími 641988
Tölvulist
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Eðlilega hafa menn velt fyrir
sér möguleikum tölvunnar og
þeirrar tækni, er henni tengist til
listsköpunar.
Löngu er vitað að töivan getur
verið til mikiliar hjálpar í hvers
konar útreikningum, sem tengjast
skapandi hlutum og auðveldað
listamönnum eða þeim, er útfæra
listaverk fyrir listamenn, störf sín
á marga lund.
En sem listmiðill í sjálfu sér
er tölvan ennþá lítt kannaður
heimur, en menn eru þó sem óð-
ast að rannsaka þetta svið, svo
sem menn hafa einnig mætt ann-
arri nýtækni á svipaðan hátt t.d.
offsettæknina er hún kom fram á
sínum tíma, svo eitthvað sé nefnt.
Ég vel offsettæknina til saman-
burðar, vegna þess að hún gerði
tæknina nákvæmari, en um leið
blóðlausari og það er einnig hin
mikla hætta við tölvutæknina.
Andstæðan var t.d. hið náttúru-
lega steinþryk'k, en allt sem
tengdist því hafði með þróun
lífsins að gera eða ailt frá kalk-
steininum til hins fljótandi
gúmmís (gumi arabicum), sem er
náttúruefni og notað hefur verið
lengi í lyfjaiðnaði.
Eftir að alls konar nýtækni
hafði t.d. tröllriðið grafík-heimin-
um um árabil, leituðu listamenn-
imir aftur til náttúruefnanna, því
Darcy Gerbarg
að geviefnin gerðust fljótlega
leiðigjörn og grafík-verkin þannig
eitthvað svo undarlega blóðlítil,
er frá leið.
En hvort þetta eigi við tölvuna
veit ég ekki fullkomlega, því að
svo langt nær þekking mín ekki,
enda um svo nýjan miðil að ræða,
en ástæða er tii fyllsta varkárni
og spá á hvorugan veginn.
En rannsóknir á möguleikum
tölvunnar sem tjámiðli eru vita-
skuld af hinu góða, og því fagnar
maður sýnishorni listar Darcy
Gerbarg í Menningarstofnun
Bandaríkjanna við Nesveg þessa
dagana og hvetur listamenn til
að leggja leið sína þangað og
kynna sér nýtæknina.
Gerbarg er forstöðumaður
töfvulistadeildar Myndlistarskól-
ans í New York (School of Visual
Art) og mun hafa haft ómæld
áhrif á fyrstu kynslóð bandarískra
listamanna sem hafa nýtt sér þá
möguleika sem tölvugrafík býður
upp á.
Þá er og einnig ástæða til að
hvetja sem flesta listamenn til að
lesa stórfróðlegt viðtal við lista-
konuna í Menningarblaði blaðsins
frá 11. apríl. Það eru nefnilega
einmitt slík milliliðalaus, lifandi
og efnisrík viðtöl, sem skapa list-
umræðu, en síður hástemmdar
ritgerðir listsögufræðinga eða
starfandi listrýna, og því vil ég
sérstaklega vísa til ritsmíðarinn-
ar, sem gerir allar langar útlistan-
ir á þessum atriðum óþarfar hjá
mér. Það er svo margt athyglis-
vert og hárrétt, sem fram kemur
í viðtalinu um ótrúlega möguleika
tölvunnar og einnig tii annarra
þarfa en beinnar listsköpunar.
Það er t.d. heilmikið sagt í einni
setningu er Gerbarg lýsir því yfir
„að tölvan sé rissblokk sín með
innbyggðum litum“.
Sjálfur á ég Machintosh II tölv-
una og ýmis þau forrit, sem lista-
konan kom með og þekki því dá-
lítið til mála, en kunnátta mín í
meðferð þeirra er ennþá af skorn-
um skammti.
Það sem máli skiptir, er að sem
flestir kynni sér þessa tækni og
þótt sýningin sé ekki stór og
myndirnar sannfæri þá kannski
ekki fyllilega, þá eru það mögu-
leikarnir, sem máli skipta og þeir
eru sannarlega fyrir hendi.
Ber að þakka fyrir þessa ágætu
heimsókn og framtak Menningar-
stofnunarinnar.
Kolteikningar
Myndlistarkonan Ragnheiður
Jónsdóttir sýnir um þessar mund-
ir þrettán stórar kolteikningar í
kjallarasölum Norræna hússins.
Ragnheiður er þekktust fyrir
málmgrafíkmyndir sínar, sem
víða hafa farið og hafa borið hróð-
ur hennar og íslenzkrar listar vítt
um lönd.
Jafnan hafa myndir hennar
verið í stærri kantinum, því að
hún hefur tilhneigingu til slíkra
vinnubragða frekar en að vilja
vera með í þróuninni, en eins og
kunnugt er virðast myndlistarverk
stöðugt verða stærri og stærri í
heiminum í dag og jafnframt
þyngri um leið. Þessar kolteikn-
ingar Ragnheiðar, sem marka
nýjan kafla í myndsköpun henn-
ar, eru þó mun stærri grafíkverk-
unum, en útfærsla þeirra er þess
eðlis, að þær njóta sín mun betur
í þessari stærð en væru þær
minni, svo að segja má, að Ragn-
heiður hafí hér hitt á réttu stærð-
ina.
Eins og fyrri daginn þá gengur
listakonan hreint og umsvifalaust
til verks, en byggir þó myndir
sínar upp á afmarkaðri tækni, sem
hún vinnur úr á ýmsan veg.
Á stundum er líkast því sem
sjálf náttúruöflin séu á ferð, og
hér sé verið að vísa til hinna
ýmsu veðrabrigða og tilbrigða, er
þau skapa í lofti og .gróandi. Þá
er líkast sem fíðrildasveimur sé
að ólmast um í sumum myndanna
og þá kannski í misvindasömum
Ragnheiður Jónsdóttir
veðurham.
Enginn litur er í myndunum
og það er styrkur þeirra, þótt þær
virki eitthvað hrárri fyrir vikið,
en það held ég að komi minna
að sök, þar sem þær eru einar á
vegg en margar saman, í að litur
í slíkum teikningum getur verið
mjög viðsjárverður nema í hönd-
um þeirra, er kunna rétt með að
fara og þeir eru fáir.
Það er þó alls ekki tilfellið, að
Ragnheiður hafi snúið bakinu við
málmgrafíkinni, heldur er hér um
útvíkkun tæknisviðsins að ræða
og nauðsynlega hvíld frá þeim
vanavinnubrögðum, sem grafíkin
býður upp á. Það er hárrétt af-
staða og trúa mín er sú, að lista-
konan hafi dijúgan ávinning af.
Þetta er heildstæð og hrifmikil
sýning, sem listakonan Ragnheið-
ur Jónsdóttir hefur mikinn sóma
af og ánægjulegt er að sækja
heim.
Aukatónleikar Sinfónmhljómsveitarinnar;
Amerísk söng-
leikjatónlist
TÓNLIST úr amerískum söngleikjum verður viðfangsefhi Sinfóníu-
hijómsveitar íslands á aukatónleikum hljómsveitarinnr nk. fóstudag,
20. apríl, í Háskólabíói. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30.
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
RUTLAND
Jf J| ÞÉTTIEFNI
Á ÞÖK - VEGGI - GÚLF
ÁRMÚLA 29, SÍMI 38640
Flutt verða verk eftir John Will-
iams, Aaron Copland, Leonard
Bemstein, Lerner og Lowe, Eric
Knight, Roger og Hammerstein,
Cole Porter og Leigh og Hayman.
Meðal annars verður flutt verk úr
My Fair Lady, Kiss me Kate, Gigi,
f Carouselle og The Cowboys.
Einsöngvarar verða bandarísku
söngvararnir Ann Gresham, sópran
og James Javore, baritón. Þau hafa
bæði getið sér gott orð sem söngv-
arar f Bandaríkjunum. Javore býr
í New York, en syngur í flestum
tónleikahúsum á austurströnd
Bandaríkjanna. Hann er jafnframt
ejnsöngvari dómkirkju heilags Pat-
j-eks i New York. Ann Gresham
hefur hiotið margháttaða viður-
kenningu fyrir söng sinn. Hún þyk-
ir jafnvíg á nútímatónlist sem
klassíska. Hljómsveitarstjórinn
Murry Sidlin stjórnaði á tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar íslands í Há-
skólabíói í fyrra, þar sem einnig var
flutt amerísk söngleikjatónlist. Sidl-
in er tónlistarstjóri sinfóníuhljóm-
sveita New Haven og Long Beach
og hefur hlotið lof fyrir listrænan
metnað fyrir hönd þessara hljóm-
sveita og góðan árangur.
Miðar á tónleikana verða seldir
í Gimli við Lækjargötu á föstudag
og í Háskólabíói við upphaf tónleik-
anna.
(Úr fréttatilkynningu)
■ FÉLAGSSTARF aldraðra hjá
Reykjavíkurborg fagnar komanda
sumri á sumardaginn fyrsta, 19.
apríl í félagsmiðstöðinni Glym í
ftýóddinni. Fjölbreytt dagskrá
verður á hátíðinni og má þar nefna
kórsöng, danssýningu, upplestur og
tískusýningu ásamt kaffiveitingum.
I lok hátíðarinnar verður stiginn
dans. Nánari upplýsingar er unnt
að fá á öllum níu félagsmiðstöðvun-
um sem Reykjavíkurborg rekur í
höfuðborginni. Hátíðin hefst kl. 14
og munu flestar félagsmiðstöðvarn-
ar bjóða upp á akstur fram og til
baka fyrir vægt gjald.
■ Á S UMARDA GINN fyrsta
mun Skátafélagið Kópar sjá um
sumarhátíð í Kópavogi. Hátíðin
hefst kl. 13.30 með skrúðgöngu frá
Menntaskólanum oggengið verður
að íþróttahúsinu við Digranes. Þar
verður inniskemmtun og hefst hún
kl. 14. Meðal skemmtiatriða verða
fimleikasýningar frá Gerplu, dans-
atriði frá dansskóla Sigurðar Há-
konarsonar, Virgill kemur ásamt
félögum sínumí Leikfélagi Kópa-
vogs, hljómsveitin Upplyfting leik-
ur fyrir dansi o.fl. Hlutavelta og
apdlitsmálning verður á staðnum.
í íélasheimili Kópavogs, 1. hæð,
verður boðið upp á kaffiveitingar.
■ SUMARDAGURINN fyrsti í
Ilafnarfirði verður með hefð-
bundnum hætti. Skrúðganga verður
frá Skátaheimilinu kl. 10 og kl.
11 hefst skátamessa í Víðistaða-
kirkju. Prestur er séra Sigurður
H. Guðmundsson. Víðavangshlaup
Hafnarfjarðar hefst kl. 13. Skrán-
ing fer fram í anddyri Bæjarbíós.
Félagsmiðstöðin Vitinn heldur
sumarfagnað fyrir alla fjölskylduna
á sumardaginn fyrsta kl. 14—16.
Margt verður til gamans gert. Uti
verður boðið upp á margvísleg
skemmtiatriði, svo sem dans og
söng. Oskar og Emma koma í
heimsókn, Unglingaleikhúsið sýn-
ir atriði úr leikriti, Hjálparsveit
skáta verður með sýningu á hluta
tækjabúnaðar síns og óvænta uppá-
komu um kl. 15 og margt fleira.
Inni í félagsmiðstöðinni verður líka
Ijölbreytt dagskrá því þar verður
kynning á starfsemi Vitans, fóstra
verður með föndurhorn fyrir litlu
börnin, ýmis fyrirtæki kynna starf-
semi sína o.fl. Og auðvitað er
mömmu og pabba boðið upp á mola-
kaffi og kátir krakkar fá popp.
Byggðasafnið og Sjóminjasafnið
eru opin frá kl. 14—18. Kaffistofan
í Hafnarborg er opin.