Morgunblaðið - 19.04.1990, Síða 16

Morgunblaðið - 19.04.1990, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRIL 1990 Húsavík: Nýr snjó- troðari Húsavík. NÝR snjótroðari af gcrðinni Leitner hóf ferðir sínar um skíðasvæði Húsvíkinga síðast- liðinn laugardag. Bjarni Þór Einarsson, bæjar- stjóri, afhenti skíðaráði tækið til afnota, og síðan var troðarinn ausinn snjó og skírður nafninu Glanni. Ung skíðadama, Anna María Héðinsdóttir, flutti þakkir frá skíðafólkinu og afhenti bæjar- Morgunblaðið/Silli Anna María Héðinsdóttir afhenti bæjarstjóra Húsvíkinga, Bjarna Þór Einarssyni, þakkarávarp til bæjarstjórnar fyrir snjótróðar- ann. stjóra þakkarávarp til bæjar- taldi verða til eflingar skíðaíþrótt- stjórnar fyrir þetta tæki, sem hún mni. _ Fréttaritari Yilji er allt sem þarf eftir Kristján Pálsson Umræðan um húshitunar- og orkumál á landsbyggðinni hefur ekki farið hátt síðustu mánuði og engu líkara en sættir hafi náðst um þann mikla aukaskatt sem svo margir utan höfuðborgarsvæðisins þurfa að greiða, bæði fyrirtæki og einstaklingar. Ef til vill er það svo að mun fleiri en tjáðu sig í könnun Hús- næðisstofnunar ríkisins í vetur telji dvöl sína úti á landi til bráðabirgða og því taki því ekki að standa í sífelldu rausi vegna þessa. Ég vona að þetta sé ekki raunin og stormurinn sé í nánd, það er svo sannarlega verk að vinna á þessu sviði á landsbyggðinni ef jöfnuður á að nást við Reykjavíkursvæðið. I þessari grein vil ég rifja upp tvö mál, orkukostnað fiskvinnslufyrir- tækja og húshitunarkostnað. FYRIRTÆKI OG STOFNANIR GoldStar Tclocommunication Co„ Ltd Símvirkinn hf. er samstarfsaðili Kristals hf. Hér eru á ferð þrautreyndir símvirkjar, sem munu tryggja notendum Gold Star símkerfa vandaða uppsetningu og forritun og snögga og fagmannlega þjónustu. GSX 33 hnappa handfrjáls sími. GSX 33 hnappa handfrjáls skjásími. GSX 21 hnappa handfrjáls skjásími. FULLKOMIN SÍMKERFI Á ÓTRÚLEGU VERÐI Gold Star GSX símkerfin eru tækniundur, sem eru sér- hönnuð til þess að vera auðveld og þægileg í notkun auk þess að hafa fjölbreyttustu valmöguleika sem bjóðast. Vegna áhuga Gold Star Telecommunication Co., Ltd. á Evróþumarkaði og þeinna samninga okkar við verksmiðj- urnar getum við nú boðið símkerfi fyrir allar stæröir fyrirtækja á einstöku tilboðsverði. GSX 8 hnappa sími. Hafir þú metnað fyrir hönd fyrirtækisins að auka tímasþarnað, öryggi og sjálfvirkni í samskiptum innan fyrirtækisins og við þá, sem þurfa að hafa samskipti við þitt fyrirtæki, þá hafðu samband við okkur strax og við munum færa þér ánægjulegar fréttir. HRISTALL SÍMI 685750 FAX 685159 SKEIFAN 11B • 108 REYKJAVÍK GSX 4 hnappa sími. Gold Star Telecommunication Co., Ltd. er í dag einn af risunum í hátækniiðnaði í heiminum. Á Ólympíuleikunum í Seoul 1988 var þeim falin öll ábyrgð á flóknum samskiptabún- aði innan leikanna og við umheiminn. Frábær frammistaða þeirra vakti heimsathygli. Sigurganga þeirra hefur verið óslitin og er t.d. staða þeirra á Bandaríkjamarkaði gífurlega sterk eftir að mörg þarlend stór- fyrirtæki, þar á meðal A.T.&T. hafa gengið til samstarfs við þá. ÍSLAND LYKILUNN AÐ EVRÓPUMARKAÐI Gold Star Telecommunication Co., Ltd. vinnur nú að undirbúningi stórfeldrar markaðssetningar á símabúnaði fyrir Evrópumarkað. ísiand varð fyrir valinu sem tilraunamarkaður í þeirri áætlun. Fyrir milligöngu Kristals hf. hefur fyrirtækið gengið í einu og öllu að kröfum Pósts og síma um gæðastaðal fyrir íslenskt samskiptaumhverfi. GSX 21 hnappa handfrjáls sími. GULLIÐ TÆKIFÆRI - EINSTAKT TILBOÐ BYLTING í SAMSKIPTABÚNAÐI Á ÍSLANDI! Fiskvinnslan í könnun sem gerð var fyrir fáum árum á orkukaupum fiskvinnslufyr- irtækja annarsvegar á orkusvæði Rariks og hinsvegar á orkusvæði Rafmagnsveitu Reykjavíkur kom í ljós að fyrýrtækin á Rarik-svæðinu greiddu 50% hærri raforkureikning en sambærileg fyrirtæki á svæði RR. Samkvæmt nýrri úrtaksathug- un hefur þessi munur ekki breyst verulega. A sl. ári voru raforkukaup meðalfrystihúss á landsbyggðinni um 8 millj. kr., sambærilegt hús á RR-svæðinu greiddi um 5,3 millj. kr. í raforku, mismunur því 2,7 milljónir kr. yfir árið, sem ég vil kalla aukaskatt á landsbyggðarfyr- irtækið. Vinnuveitendasamband íslands á að mínu mati að beijast fyrri jöfnun orkukostnaðar til fyrirtækja óháð staðsetningu þeirra og leggjast þungt á árina í stað þess að eyða kröftum sínum í að gera álagningu aðstöðugjalda sveitarfélaga tor- tryggilega. Atvinnurekendur vita mæta vel að mörg sveitarfélög hafa lagt sig í mikla hættu við að tryggja rekstur staðarfyrirtækja, þeir skattar sem sveitarfélögin taka af útgerð og fiskvinnslu eru óveruleg- ir. Húshitunarmálið Annað sláandi dæmi um lífskjaramun milli landsbyggðarinn- ar og Reykjavíkursvæðisins er hús- hitunarkostnaðurinn og hefur þar ekkert breyst frá í fyrra. Þessi munur er enn um 150% hvað dýr- ara er að kynda með rafmagni á Rarik-svæðinu en með heitu vatni á svæði Hitaveitu Reykjavíkur. Þetta samsvarar því, að fjölskylda á Rarik-svæðinu þurfi að þéna 96.000 kr. meira á ári en sambæri- leg fjölskylda í Reykjavík til að halda hita á sér og sínu þegar tek- ið er tillit til skatta. Til fróðleiks þá samsvarar þetta því að Ólafsvík- ingar þurfi að þéna um 30 milljön- um krónum meira á ári en ef þeir byggju á svæði Hitaveitu Reykja- víkur. Ef öll rafhitunarsvæði eru tekin þá þurfa íbúarnir á þeim svæðum að þéna 1,3 milljarði króna hærri upphæð en ef þeir byggju á svæði Hitaveitu Reykjavíkur og er þá miðað við tölur, sem lagðar voru fram af Landsvirkjun á ársfundin- um í fyrra. Ráðamenn þjóðarinnar eru flestir búsettir á svæði Hitaveitu Reykja- víkur og því komnir úr tengslum við fólkið, þeir skilja þetta ekki. ÚTIHURÐIR Mlkið úrval. Sýningarhurðir á staðnum. Tré-x búðin, Smiðjuvegi 30, s. 670777, Brúnás, Ármúla 17, Rvík, s. 84585 og 84461, Tré-x, Iðavöllum 6, Keflavík, s. 92-14700, Trésmiðjan Börkur, Frosta- götu 2, Akureyri, s. 96-21909.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.