Morgunblaðið - 19.04.1990, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1990
Niðurstaða Hæstarétt-
ar forsenda vanskila?
eftirHálfdán
Kristjánsson
Það. vakti nokkra athygli þegar
hreppsnefnd Súðavíkurhrepps
hafði uppi tilburði til að hnekkja
sölu meirihluta stjórnar Frosta hf.
í Súðavík á meirihluta hlutabréfa
í fyrirtækinu til Togs hf. en meiri-
hluti stjórnar Frosta hf. var ásamt
framkvæmdastjóra Frosta hf.
meirihluti í hinu nýstofnaða
pappírsfyrirtæki Togi hf. Taldi
hreppsnefndin að hér hefðu fyrr-
greindir aðilar verið báðum megin
við samningsborðið og því um auð-
sætt vanhæfi að ræða eða eins og
sagt var: „Þeir seldu sjálfum sér.“
Það sem hreppsnefnd þótti sér-
staklega ámælisvert fyrir utan það
að vera báðum megin samnings-
borðsins var að ekki voru gerðar
neinar kröfur um tryggingar gagn-
vart hugsanlegum vanefndum
samningsins en þar er lagt til
grundvallar það viðhorf „við
treystum sjálfum okkur“ eins og
einn stjórnarmaðurinn sagði í
vitnaleiðslunum. Hæstiréttur sagði
já amen eftir efninu og taldi ekk-
ert aðfinnsluvert við þennan við-
skiptamáta þrátt- fyrir að sýnt hafi
verið fram á að verulegar vanefnd-
ir hefðu verið á greiðslum sam-
kvæmt samkomulagi milli annars
vegar framkvæmdastjóra Frosta
hf. en hann er jafnframt fram-
kvæmdastjóri Togs hf. og hins
vegar stjórnarformanns Togs hf.
en það þótti ekki og þykir víst
ekki enn ástæða til að leggja sam-
komulagið fyrir stjórn Frosta hf.
til umijöllunar. En hvert er nú til-
efni þessara skrifa?
Er Tog hf. í raun gjaldþrota?
Þegar Hæstiréttur felldi úrskurð
sinn var skuldabréf sem „félagarn-
ir“ áttu að gefa út um kaupin í
raun gjaldfallið því þá voru van-
skil komin á annan mánuð. Skulda-
bréfið sem á að vera að nafnvirði
liðlega 31 mkr. og greiðast með
Byggingakrani
Óska eftir að kaupa byggingakrana og
vinnuskúr. Lengd bómu ca. 35 m.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
24. apríl merkt: „B - 14142“.
FYRRI LÍF
Hallveigarstöðum.Túngötu 14,
sunnudaginn 22. apríl kl. 10 til 18
NÁMSKEIÐ Nýtt námskeið sem gerir þér kleift að rannsaka og upp-
lifa fyrri æfiskeið. Stuðst er við Kristos-tæknina, sem sýnd var í sjón-
varpinu 16. apríl sl. Þessi tækni er ásamt dáleiðslu ein öruggasta og
viðurkenndasta aðferðin í dag.
EINKATÍMAR Einnig er boðið uppá einkatíma í upplifun fyrri lífa fyrir
þá sem vilja persónulega leiðsögn og reynslu undir handleiðslu leiðbein-
enda námskeiðsins.
Leiðbeinendur eru Garðar Garðarsson og Leifur Leópoldsson.
Skráning og nánari upplýsingar fást í símum 17230 og 623211.
jöfnum sex mánaða greiðslum er
nú framreiknað tæplega 62,5 mkr.
Þegar tæpur mánuður er í þriðja
gjalddagann hefur ekki einu sinni
verið önglað inn fyrir fyrsta gjald-
daganum.
Vanskilin skipta því milljónum
m.v. aðeins það sem gjaldfallið er.
Það er í sjálfu sér ekki að undra
vegna „við treystum sjálfum okk-
ur“ viðhorfínu. Annað væri nú
ekki viðeigandi í hörðum heimi.
Ef ekki er litið til þess að bréfið
ætti í raun allt að vera gjaldfallið
samkvæmt eðlilegum viðskiptum
þá eru vanskil nú þegar þau hafa
verið lækkuð sem nemur arði
samkv. ákvörðun síðasta aðalfund-
ar á milli 5 og 6 milljónir króna
og eftirstöðvar þá í skilum miðað
við að greitt hefði verið reglulega
af hinu óútgefna bréfi tæpar 50
milljónir króna. Greiðslufjárhæð
næsta gjalddaga sem er 1. maí er
um 4,5 milljónir. Ef litið er til
reynslu liðins tíma þá verður ekki
hirt um að greiða þá íjárhæð á
réttum tíma og þá verða vanskilin
á um tug milljóna króna. Ef rifjuð
er upp staða Togs hf. eins og hún
var við dómsuppkvaðningu Hæsta-
réttar eru staðreyndir málsins
þessar;
1. Hlutafé Togs hf. er 22 og V2-
milljón króna. Samkvæmt áreiðan-
legum upplýsingum hefur Tog hf.
ekkert innheimt af hlutafénu í
beinhörðum peningum heldur hafa
einstaklingarnir sem að því standa
aðeins skrifað upp á pappíra. Tog
hf. tók lán hjá ákveðnum lána-
stofnunum fyrir útborguninni sem
var um 31 mkr. að nafnverði sam-
kvæmt áðumefndu „innbyrðis“
samkomulagi félaganna sjálfra.
2. Einu tekjur Togs hf. sam-
kvæmt samþykktum félagsins eru
arður og hugsanlega vaxtatekjur
enda er eini tilgangur Togs hf. að
eiga hlutabréf í Frosta hf. Miðað
við skuldastöðu Togs hf. er ljóst
að slíkum vaxtatekjum er ekki fyr-
ir að fara. Þegar á þetta er litið
er ljóst að einu tekjur Togs hf. eru
hugsanlegar arðstekjur og þær
hrökkva engan veginn til greiðslu
vaxta hvað þá til greiðslu höfuð-
stóls skuldarinnar.
Hálfdán Kristjánsson
„Þegar þetta er skoðað
er þá að undra að spurt
sé hvort Tog hf. sé í
raun gjaldþrota.“
3. Samkvæmt áreiðanlegum
upplýsingum eru engar hugmyndir
uppi um að auka hlutafé Togs hf.
til að bæta greiðslustöðu fyrirtæk-
isins.
Þegar þetta er skoðað er þá að
undra að spurt sé hvort Tog hf. sé
í raun gjaldþrota.
Af hverju er ekki knúið á með
greiðsluefndir?
Ástæður þess að slíkt er ekki
gert hljóta að byggjast á í fyrsta
lagi að greiðslustaða Frosta hf. sé
svo góð að ekki sé ástæða til að
innheimta þessa smáaura hjá Togi
hf. enda greiða þeir vafalítið góða
vexti af fyrirgreiðslunni og trygg-
ingar séu góðar samanber „við
treystum sjálfum okkur“ yfirlýs-
ingu eins Togs — hluthafans í
vitnaleiðslunum. í öðru lagi getur
verið að ekkert sé að innheimta
hjá Togi hf. því fyrirtækið eigi
enga peninga og ekki hafa þeir
skrifað upp á fleiri skuldaviður-
kenningar það best er vitað auk
þess að það kann að vera lítils virði
þegar til þess er litið að pappírar
seljast ekki á hinum raunverulega
markaði nema í samræmi við raun-
verulegt virði þeirra. Og í þriðja
lagi kann ástæðan að vera sú að
Tog hf. á meirihluta í Frosta hf.
og ræður því hvað þar er gert sem
og í dótturfyrirtækjunum tveimur,
Álftfirðingi hf. og Þorgrími hf., en
Álftfirðingur hf. á hið nýja og
glæsilega skip Bessa IS-410.
Líklegt þykir þó að um hvort-
tveggja sé að ræða, auraleysi og
örugg yfirráð.
Komast Togsmenn upp með að
standa ekki við skuldbindingar
sínar?
Þegar stórt er spurt er oft fátt
um svör og svo er því einnig farið
hér. Ef velt er fyrir sér hvað geti
gerst til að Tog hf. þurfi ekki að
standa við skuldbindingar sínar er
ekki margt sem kemur til greina.
Það sem helst mætti búast við af
„félögunum" er að reyna að fá
samþykki allra hluthafa á hlut-
hafafundi til að samþykkja eftir-
gjöf skuldarinnar eða mjög þægi-
lega greiðsluskilmála. Slíkt er nátt-
úrlega hið versta mál því Súðavík-
urhreppur er mjög stór eignaraðili
og eins og hreppsnefnd er skipuð
nú er ljóst að slíkt yrði aldrei sam-
þykkt. Hinsvegar eru hreppsnefnd-
ir ekki alltaf skipaðar sömu mönn-
um og því ef til vill hægt að fá
„velviljaða“ menn til að gefa kost
á sér þó ekki væri nema í eitt
kjörtímabil meðan afgreiðsla
skuldaeftirgjafarinnar ætti sér
stað. Þessi leið er líklega illfær
enda er fullyrt hér að meirihluti
þorpsbúa sé fremur á móti en með
nýjum „valdamönnum“ í Frosta hf.
en þar sem þetta er nú eini atvinnu-
veitandinn sem eitthavð kveður að
er kannski eins gott að vera ekki
með neitt múður enda ekki svo
auðvelt að flytja sig um set þegar
fasteignamarkaðurinn er skoðað-
ur.
Annað sem kemur til greina er
að fá fjársterka aðila inn í Tog hf.
Slíkt er einnig erfitt mál því slíkur
aðili gerði væntanlega kröfu um
að hluthafarnir sem eru fyrir legðu
einnig fram raunverulega peninga
en þá má spyija geta „venjulegir
launamenn" staðið undir greiðslum
eins og hér er verið að ræða um?
Kaupverð bréfanna framreiknað
er liðlega 110 milljónir króna.
Vextir af slíkri fjárhæð era aldrei
undir 7-8 milljónum króna á ári
og þá er ekkert höggvið í höfuð-
stólinn sem hækkar með verðbólg-
unni. En svona er það nú og víst
er að kaupin gerast ekki alls stað-
ar eins á eyrinni og ef til vill eiga
allir landshlutar sitt „Hafskips-
mál“.
Höfundur er í hreppsnefhd
Súðavíkurhrepps og
stjórnarmaður í Frosta hf.