Morgunblaðið - 19.04.1990, Side 19

Morgunblaðið - 19.04.1990, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1990 19 Af mál-efiium lækna eftir Finnboga O. Karlsson Það hefur verið nokkuð tíðrætt í fjölmiðlum um ýmis mál er snerta læknastéttina undanfarið misseri. Flest hefur það dæmt sig sjálft. Ein gegnumgangandi hugmynd virðist sterk í viðhorfum til þessar- ar stéttar og lýtur að efnahag. Flestum læknum landsins og ýms- um fleirum ofbauð þó nýverið fá- tækleg þekking ráðherra fjármála á efnahagsmálum læknastéttar- innar þegar hann við ákvörðun á leyfisgjöldum til lækna studdist við sleggjudóma og líklega kjaftasög- ur ásamt hugsanlega örfá undan- tekningatilvik um launaveltu lækna. Ráðherra taldi leyfisveit- ingar vera ávísun á gull og ætti að greiða sem slíkar. Allnokkur skrif urðu um þessi mál og varð sýnt að flestir læknar komast ekki í gullkistuna né stefna nokkurn tíma þangað. Laun lækna án yfirvinnu eru nú við útskrift úr læknadeild Háskóla Islands og næstu ár á eftir 80 til 90 þúsund á mánuði. Þetta eru laun greidd frá ríkinu og tengd lengd háskólanáms. Vinnutími sumra lækna verður stundum til þess að heildarlaun hækka í tvö- þrefalda þessa upphæð, það er þegar yfirvinnutímar verða 100 til 200 á mánuði. Þetta á þó eingöngu við um ákveðnar stöður og er skipulagt og krafist af vinnuveit- endum, en beiðnum lækna um að dregið verði úr slíku vinnutímaá- lagi hefur ekki verið hægt að sinna. Læknar eru í dag ekki almennt taldir fullmennta nema til komi frekari þjálfun en fæst á þeim 7 árum sem þarf til að geta sótt um almennt lækningaleyfi. Sérnám tekur frá 4 til 7 árum eftir greinum og því hvar það er stundað. Allt sérnám hefur þurft til skamms tíma að sækja út fyrir landsteina. Nú er mjór vísir að sérnámi í heil- sugæslulækningum kominn hér á landi. Þegar læknir fer utan til fram- haldsnáms eru honum gerðir nokkrir örðugleikar umfram aðrar stéttir. í fýrsta lagi fást ekki skattalegar ívilanir samanber ann- að nám erlendis þar sem ríkisskatt- stjóri lítur svo á að við séum í starfi en ekki námi. í öðru lagi þar „Vertu nokkuð viss um að læknisstarfið höfði vel til þín áður en þú leggur út á þann ólgu- sjó, í átt að gulli ráð- herra ljármála.“ sem við erum ekki í námi fáum við að ferðast úr landi á viðskiptaf- argjaldi en ekki námsmannafar- gjaldi (um 50% þess fyrrnefnda). I þriðja lagi lítur Lánasjóður íslenskra námsmanna svo á að við höfum lokið okkar námi þó að við séum í framhaldsnámi og þar af leiðandi greiðum við af okkar námslánum þegar þó við séum enn við nám. Þessi síðasttaldi þáttur er sérílagi írónískur þar sem fram- lag eða laun stofnana þeirra sem við stundum framhaldsnámið við er yfirleitt lægri en reiknaður framfærslukostnaður lánasjóðsins fyrir aðra námsmenn á sömu slóð- um. Brautin að gulli ráðherra er því orðin ströng, en fleira kemur þó til áður en komið er á enda brautar- innar. Ef ályktað er útfrá þeim reglum sem gilda á fyrsta hluta brautarinnar er niðurstaðan: Allir vita að læknar hafa ofur- laun. Þar af leiðir að þeim ber frá því að þeir útskrifast frá Háskóla íslands að: 1) Greiða hæstu þóknun þar sem því er við komið. 2) Búa við aðrar reglur en aðrir, m.t.t. búferlafiutninga, end- urgreiðslu námslána og skatta þegar þeir ætla að Ijúka menntun sinni. Ef dæmið er einfaldað enn frek- ar og skoðað til enda, þá lítur leið- in að gulli ráðherra svo út: a) Skólaganga að tvítugu til að fá inngöngu í Háskóla íslands. b) Sex ára nám við læknadeild, til að geta' hafið cins árs starf í ákveðnum störfum, en að því loknu má sækja um almennt lækningaleyfi á kr. 50.000, mánaðarlaun um 85.000. c) Reynt að starfa í eitt til nokkur ár hér heima til að afia fjár til að kosta framhaldsmenntun. d) Sparifé áranna eftir útskrift úr læknadeild notað til að hefja framhaldsnám. e) Lifað af framlagi framhalds- menntunarstofnana í 5 til 7 ár. Þetta framlag er oftast lægra en reiknaður framfærslukostn- aður lánasjóðs eins og fyrr seg- ir en þó fáum við að njóta þess að endurgreiða lánasjóði af þessu framlagi. f) Líður að lokum framhaldsnáms- ins, farið er að svipast um eftir starfi hér heima mislengi, oft í nokkur ár til viðbótar. Og nú þarf orðið að greiða 75 til 150 þúsund kr. fyrir sérfræðileyfi áður en sótt er um starf á Is- landi. g) Niðurstaða: 35 til 40 ára ein- staklingur sem notið hefur sér- kjara um nokkurra ára skeið getur hugsanlega komið heim aftur til starfa. Örlítill hluti þess hóps hefur há laun eða veltu. h) Endanleg niðurstaða: Vertu nokkuð viss um að læknisstarf- ið höfði vel til þín áður en þú leggur út á þann ólgusjó, í átt að gulli ráðherra fjármála. Höfundur er læknir, starfandi á heilsugæslustöd ogsjúkrahúsi Hvammstanga. Jónína Erna Arnardóttir, píanó- leikari. ■ TÓNLISTARSKÓLINN í Reykjavík heldur tónleika í sal skólans, Skipholti 33, laugardag- inn 21. apríl nk. og hefjast þeir kl. 17. Tónleikar þessir eru burtfarar- próf Jónínu Ernu Arnardóttur, píanóleikara, frá skólanum, en hún lýkur einnig píanókennaraprófi á þessu vori. A efnisskrá tónleikanna eru verk eftir Rachmaninofl, Scho- enberg, Schumann, J.S. Bach, Chopin og Beethoven. Jónína Erna hefur stundað nám við Tón- listarskólann frá__ 1983 og hefur notið leiðsagnar Onnu Þorgríms- dóttur, píanóleikara. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. ■ FUNDUR í stjórn og varastjórn Sjómannafélagsins Jötuns í Vest- mannaeyjum, haldinn laugardag- inn 14. apríl sl., lýsir yfir stuðningi við framkomnar tillögur frá ein- staka þingmönnum, svo og sam- þykkt stjórnar Farmanna og fiski- mannasambandi íslands frá 6. apríl sl. um frestun á frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða, til 1. sept. 1991. Fundurinn ályktar að svo mikill ágreiningur sé um frum- varpsdrögin, bæði innan hagsmuna- samtakanna og mikils þorra al- mennings að ekki sé stætt á því að knýja frumvarpið í gegn á Al- þingi, án breytinga og víðtækara samkomulags. í fyrstu grein frum- varpsdraganna stendur orðrétt, nytjastofnar á íslandsmiðum eru- sameign íslensku þjóðarinnar, því varðar þetta alla landsmenn. Fund- urinn skorar á sjávarútvegsráð- berra og alla þingmenn á Alþingi íslendinga að taka höndum saman um að finna lausn á þessu svo umdeilda-málf.------------------- F áðu sendan bækling V eraldar um málaskóla erlendis og veldu skólann sem þér hentar best Ferðamiðstöðin Veröld hefur nú gefið út sér- stakan bækling með upplýsingum um mála- skóla um víða Veröld. Á einum stað getur þú nú fundið allar upplýsingar um marga þekktustu málaskóla heims, valda skóla í mismunandi löndum og ýmsar tegundir námskeiða, allt eftir því hvert áhugasviðið er. Börn og unglingar Margir skólar bjóða námskeið fyrir börn og unglinga allt frá 7 ára aldri. Full ábyrgð er tekin á velferð og aðbúnaði barnanna, sem búa á einkaheimilum. Fjölskyldu- og íþróttanómskeið Foreldrar og böm geta valið nám- skeið, þar sem börnin eru jafnhliða við nám og leik og foreldrarnir geta aukið kunnáttu sína og notið lífsins með fjölskyldunni. Viðskipti og þjónusta „Intensive Couses“ samþjöppuð námskeið, eru mjög vinsæl meðal fólks í viðskiptum og þjónustu. Völ er á námskeiðum í ýmsum greinum viðskiptalífsins. AUSTURSTRÆTl 17,101REYKJAVÍK. SÍMI: (91)622011 &622200. IffríÆTiljffifti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.