Morgunblaðið - 19.04.1990, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRIL 1990
SUMARKOMA
Hér áður fyrr var sumardagurinn fyrsti einn mesti hátíðisdagur, sem haldinn var á Is-
landi. Hann var ekki minni hátíð en jólin, og er það raunar ekkert undarlegt. íslending-
ar hafa oft búið við harðan vetur og fagnað sumarkomu mjög. En þótt undarlegt sé,
Hefúr þessi hátíðisdagur mikið til fallið í gleymsku. Hann er að vísu Iögboðinn frídagur,
en fæstir halda hátíð. Þegar ég var lítil, hélt gamalt fólk mikið upp á sumardaginn fyrsta og gaf
sumargjafir. Ég hefi alltaf gefið börnum minum og maka einhverja smásumargjöf. Við setjumst
að morgunverðarborði kl. 10 og fógnum komu sumars með heitu súkkulaði og kleinum og þá eru
þessar gjafir við hvern disk. Mér vitanlega eiga engar þjóðir aðrar en íslendingar sumardaginn
fyrsta. Þetta er séríslenskur siður og við skulum halda í hann. Sumarið virðist ætla að láta standa á
sér nú eins og svo oft áður. Á annan páskadag gengum við hjónin um Öskjuhlíðina. Þrestirnir sungu
óð til sumarsins og einmana hrossagaukur flaug yfir. Þótt ýmsir farfúglar séu komnir til landsins,
verða þeir líklega jafnt og mannanna börn að sætta sig við að seint sumri. í þessum þætti er að
sjálfsögðu uppskrift af sumarkleinum mínum, en af því að við erum farin að fá fyrsta sumargræn-
metið, þ.e.a.s. gúrkurnar og þær hafa meira að segja lækkað í verði, er við hæfi að gefa uppskrift
að gúrkusalati og heitum gúrkurétti.
Gleðilegt sumar.
Kleinur
1 kg hveiti
200 g sykur
200 g smjörlíki
4 egg
3 tsk. lyftiduft
1 tsk. hjartasalt
5 dl súrmjólk
matarolía og plöntufeiti til
helminga.
1. Bræðið smjörlíkið, kælið
örlítið, en hrærið þá með sykrin-
um.
2. Setjið eitt egg í senn útí og
hrærið á milli.
3. Setjið hveiti, lyftiduft og
hjartasalt út í ásamt súrmjólk-
inni. Hugsanlega er. þetta heldur
mikil súrmjólk, en hún er mis-
þykk. Notið hana samkvæmt því.
4. Hnoðið saman. Fletjið þykkt
út með kökukefli og skerið með
kleinuhjóli eða hníf. Skerið rifur
í hverja kleinu og snúið upp á.
5. Hitið plöntufeiti og matarolíu
saman í potti. Feitin þarf að vera
vel heit. Setjið smábita af kleinu-
deigi ofan í til að.aðgæta hitann.
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Snúið kleinunum við í pottinum
og bakið báðum megin. Hæfilegt
er að baka 6-8 kleinur í einu.
6. Setjið kleinurnar á eldhús-
pappír sem soga feitina í sig.
Athugið: Plöntufeiti er mjög
hörð feiti og ekki holl, því er betra
að nota matarolíu með henni. Það
gefur svolítið annað bragð, en
aðferðin er sú sama.
Báðar gúrkuuppskriftirnar eru
úr bók minni „Minna mittismál".
Gúrkuréttur
1 meðalstór gúrka
1 dl fljótsoðin hrísgijón
2 dl veikt. saltvatn
'A lítil paprika, græn eða rauð
1 egg
’/< tsk. salt saman við eggið
nýmalaður pipar
10 sm biti pepperonipylsa (mjó
áleggspylsa).
1. Þvoið gúrkuna, kljúfið að
endilöngu, skafið síðan nokkuð
af gúrkukjötinu úr með teskeið.
Geymið það sem þið tókuð úr
gúrkunni. Það er gott ofan á ost
eða með kotasælu.
2. Afhýðið laukinn, saxið
smátt. Setjið saltvatn í pott og
látið sjóða. Setjið lauk og
hrísgijón út í og sjóðið skv. leið-
beiningum á pakkanum. Látið
síðan standa í lokuðum potti í 5
mínútur að suðu lokinni.
3. Takið steina úr paprikunni,
takið af henni legginn og skerið
hana í litla bita. Setjið saman við
gijónin.
4. Setjið eggið í skál og setjið
salt og pipar út í. Hrærið út í
gijónin.
5. Kljúfið pylsuna að endilöngu,
skerið síðan í örþunnar sneiðar
og setjið saman við gijónin.
6. Setjið gijónin í rifuna á
gúrkuhelmingunum. Þrýstið vel
niður svo að það tolli vel á.
8. Hitið bakaraofn í 190°C,
blástursofn í 170°C, setjið í miðj-
an ofninn og bakið í 20 mínútur.
í örbylgjuofni í u.þ.b. 5-6 mínút-
ur, enn þá verður gúrkan ekki
mjúk.
Radísu/gúrkusalat
1 dós hrein jógúrt
1 msk. sítrónusafi
safi úr ‘A appelsínu
20 radísur
1 meðalstór gúrka
3 græn epli
1. Setjið jógúrtina í skál, hræ-
rið sítrónusafa og appelsínusafa
út í.
2. Þvoið radísurnar, skerið af
þeim rót og kál. Skerið síðan í
örþunnar sneiðar með ostaskera.
3. Þvoið gúrkuna, skerið sömu-
leiðis í örþunnar sneiðar með osta-
skera.
4. Afhýðið eplin, skerið í 4 bita,
takið úr þeim kjarnann, skerið
þvert í þunnar sneiðar.
5. Blandið ávöxtum og græn-
meti í skál, hellið jógúrtsósunni
yfir og blandið saman með tveim-
ur göfflum.
6. Leggið filmu eða disk yfir
skálina, látið standa í kæliskáp í
1 klst. en berið þá fram með kjöti
eða fiski.
OPNUNAli ifJATTO
SUMARDAGINN FVRSTA - FÖSTUDAG - LAUGARDAG - SUNNUDAG
OITÐ FRÁ KL. 10 - 17 ALLA DAGANA
COMBICAMP
TJALDVAGNAR
I tilefni opnunar TÍTAN HF. er 4% afsláttur af
Combi Camp tjaldvögnum á meðan hátíðin stendur.
HbJeanneau
seglshútur
sillinger
gúmmíbátar
GLEÐILEGT
SIIMAR
TÍTANhf
LÁGMÚLA 7
SIMI 84077
£
snehkjur