Morgunblaðið - 19.04.1990, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRIL 1990
25
að horfa á barnaefni og sjónvarps-
kvöld af og til með íjölskyldunni eru
ágæt og oft á tíðum geta þau verið
nijög gefandi. En þegar börn eru
farin að veija stórum hluta frítíma
síns fyrir framan skjáinn í stað þess
að hafast eitthvað annað að hlýtur
það að hafa áhrif.
Með tiikomu myndbandamiðilsins
hefur valfrelsi aukist aðeins hvað
varðar hvað á að horfa á og hve-
nær. Rannsóknir benda á að fullorðn-
ir nota þennan miðil meira til að
koma tii móts við þarfir þeirra varð-
andi hvenær á að horfa á ákveðið
efni. Börn aftur á móti nota þennan
miðil mest til að horfa á ævintýra-
og ofbeldismyndir. Það sem hefur
svo verið í boði á þessum markaði
hefur ekki aukið á valfrelsið.
Möguleg áhrif ofbeldis
á skjánum
Rannsóknir og athuganir á áhrif-
um ofbeldis í sjónvarpi á börn byggj-
ast eiginlega á fjórum spurningum:
1. Herma böm eftir því ofbeldi
sem þau upplifa á sjónvarpsskjánum?
2. Verða börn ofbeldishneigðari
af því að horfa á ofbeldi í sjónvarpi?
3. Venjast börn ofbeldi af því að
upplifa reglulegt ofbeldi á skjánum
og verða þar með sljórri gagnvart
notkun ofbeldis?
4. Hvers konar mynd af raunveru-
leikanum fá þau börn sem upplifa
mikið ofbeldi í sjónvarpi?
Rannsóknir síðustu 15 til 20 ára
sýna fram á að ákveðin börn geta
orðið ofbeldishneigðari af því að
horfa upp á of mikið ofbeldi í sjón-
varpi. Bent er á að þau börn sem
verða þar fyrir hvað mestum áhrifum
séu börn sem eru ofbeldishneigð fyr-
ir, börn sem búa við öryggisleysi
heima fyrir og börn sem ekki eru í
góðu sambandi við foreldra sína eða
félaga. En um leið eru það oft þessi,
börn sem hvað mestan áhuga hafa
á ofbeldi í sjónvarpi. Hvort börn venj-
ast því ofbeldi sem borið er á borð
fyrir þau og verði þar með sljó gagn-
vart því hefur verið kannað og talið
líklegt. Það er ekki síst þetta atriði
sem margir telja nauðsynlegt að
staldra við og líta alvarlegum augum.
í fjórða lagi er spurt um hvers konar
mynd af raunveruleikanum þau börn
fá sem upplifa mikið ofbeldi í sjón-
varpi. Hér eru til haldbærar rann-
sóknir sem benda á að ákveðin börn
trúa því að þegar þau yfírgefa nán-
asta umhverfi sitt eða heimilið verði
þau fyrir ofbeldi. Þau yfirfæra sjón-
varpsofbeldið yfir á þjóðfélagið.
Þetta sjónvarpsofbeldi getur svo ver-
ið margs konar. Hér getur verið um
að ræða ofbeldi meðal ósköp venju-
legs fólks eða ofbeldi þar sem ofbeld-
ið er borið á borð sem röð af óskiljan-
legum ofbeldisatriðum.
Börn og unglingar á íslandi í dag
eru myndbandakynslóð. Það þýðir
ekki lengur að líta fram hjá þeirri
staðreynd að hópur barna og ungl-
inga hér á landi notar tímann eftir
að skóla lýkur til að horfa á kvik-
myndir í myndbandstækjum heimil-
anna, og sú horfun bætist oftast ofan
á það efni sem þessi hópur fær úr
dagskrá sjónvarpsrásanna. Þessi
miðill þarf ekki að vera ógnun sem
jafnvel stendur í vegi fyrir því að
börn og unglingar taki þátt í skap-
andi menningu — en eins og flestir
þeir sem fjalla um þessi mál benda
á þá er nauðsynlegt að fylgjast með,
vera á verði, kynna sér það sem
þessi hópur er að horfa á og fara
eftir reglum þar sem þær er að finna.
Brímborg
býður til sumarveislu
á sumardaginn fyrsta
Við bjóðum allri fjölskyldunni að þiggja hressandi
veitingar í opnu húsi hjó okkur í tilefni dagsins.
Við efnum einnig til bílaveislu þar sem við sýnum
rjómann í bílakaupum sumarsins.
Veisluseðill:
Veitingar Bílar
• eflfméss' • Daihatsu
.rjómaís - Curoe
MS skafís - rjóminn í ísnum - Charade
[slýr - Charade Sedan
• - að sjálfsögðu - Applause — Feroza
- frískandi sumardrykkir — Rocky
• Frá Berqdal hf. • Volvo
- Hob nobs skúkkulaðikex - 240 GL
frá McVITIE'S - 440 GLT
- Frazermint konfekt |s|ýr — 740 GLTi
- KP salthnetur - 760 GLE
Veislutilboð:
Veittur verður 20% afsláttur af V IRELLÍ fólksbíladekkjum
meðan birgðir endast.
Verið velkomin í veisluna hjá okkur
frá kl. 10:00-16:00
volvo Brimborg hf. daihatsu
- bifreið sem þú getur treyst Faxafeni 8 — draumur að aka
Höfundur er tjölmiðhifræðingur
og skoðunnrmaður hj;í
Kvikmyndaeftirliti ríkisins.
REYNSLA - RÁÐGJÖF - ÞJÓNUSTA
iteiai
BJÓÐUM ÚRVALS ÚTSÆÐI - GULLAUGA, RAUÐAR ÍSLENSKAR, PREMIER,
ÁBURÐ, KALK, YFIRBREIÐSLUR OG ÖLL VERKFÆRI SEM TIL ÞARF
BINTJE OG HELGA
SÖLUFÉLAG
GARDYRKJUMANNA
SMIÐJUVEGI 5. 200 KÓPAVOGUR. SlMI 43211