Morgunblaðið - 19.04.1990, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1990
29
Þýsku ríkin:
Sameiningarviðræður hafiiar
Gert ráð fyrir samningi um myntbandalag í byrjun maí
Bonn. Reuter.
VIÐRÆÐUR hófust í gær milli Austur- og Vestur-Þjóðverja um
sameiningu ríkja þeirra. Á dagskránni eru allar mögulegar hliðar
sameiningar, allt frá myntbandalagi til lestaráætlana.
Viðræðurnar hófust með því að
innanríkisráðherrar beggja
ríkjanna ræddu samstarf á sviði
löggæslu. Jafnvel er búist við því
að viðræður um myntbandalag
heijist á morgun. En gert er ráð
fyrir að í lok mánaðarins hafi allir
ráðherrar ríkjanna hist á slíkum
vinnufundum. Helmut Kohl kansl-
ari Vestur-Þýskalands og Lothar
de Maiziere, forsætisráðherra
Austur-Þýskalands, hittast að öll-
um líkindum í næstu viku. Það var
stefna vestur-þýsku ríkisstjórnar-
innar allt frá því veldi kommúnista
riðaði til falls í Austur-Þýskalandi
síðastliðið haust að einungis lýð-
ræðislega kjörin stjórn þar i landi
Nepal:
Bhattarai
myndar nýja
ríkisstjórn
Katmandú. Reuter.
KRISHNA Prasad Bhattarai,
sem útnefndur var forsætis-
ráðherra Nepals í fyrradag,
myndaði í gær nýja ríkis-
stjórn. I henni sitja menn sem
setið hafa í fangelsi að undan-
förnu vegna baráttu sinnar
fyrir mannréttindum.
Bhattarai skipaði átta ráð-
herra en samkvæmt samkomu-
lagi sem Birendra konungur
gerði við stjórnarandstöðuna
skömmu fyrir páska mun kon-
ungur skipa tvo ráðherra í
stjórnina.
Bhattarai fól þremur flokks-
mönnum sínum úr Kongress-
flokki Nepals ráðherrastarf,
þremur úr flokki kommúnista
og tveimur óháðum mönnum,
sem verið hafa í forystu fyrir
nepölsku mannréttindasamtök-
unum. Báðum hefur að undan-
förnu verið stungið í fangelsi
fyrir að mótmæla mannréttinda-
brotum fyrri stjórnar sem m.a.
lét herinn skjóta á mótmæla-
göngur fólks sem krafðist lýð-
ræðisumbóta.
hefði umboð til sameiningarvið-
ræðna.
Dieter Vogel, talsmaður
vestur-þýsku ríkisstjórnarinnar,
sagði í gær að ríkjasamningur um
myntbandalag hefði þegar verið
ræddur óformlega og búist væri
við að raunverulegar samningavið-
æður gengju hratt fyrir sig. Væri
takmarkið að samngingur um
myntbandalag yrði tilbúinn í byij-
un maí.
Reuter
Peter-Michael Diestel, innanríkisráðherra Austur-Þýskalands (t.v.),
og starfsbróðir hans frá Vestur-Þýskalandi, Wolfgang Scháuble, við
upphaf saineiningarviðræðna í gær.
Atli Heimir Sveinsson.
unarhátt, sem blossi upp í texta
Thors Vilhjálmssonar. Allt sé þetta
torráðið en þó sjálfu sér sam-
kvæmt sem draumur — ekki að-
eins draumur íslensks skálds, held-
ur draumur, sem við sjálf getum
látið okkur dreyma, því að öll séum
við hluti af þeim veruleika, sem
hann sýni.
' M
og íbúðarkanp
Frá og með 15. maí 1990 stendur húsbréfakerfið
öllum opið við kaup og sölu notaðra íbúða.
Húsbréf eru skuldabréf sem seljandi íbúðar fær hjá húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar ríkisins, í skiptum fyrir fasteignaveðbréf, sem
kaupandi íbúðarinnar gefur út.
Hvemig fam íbúðarkaup fram?
|/ /Greiðslumat.
Tilvonandi kaupandi verður að
sækja um mat á greiðslugetu sinni til ráðgjafastöðvar
Húsnæðisstofnunar.
Skrifleg umsögn.
k Að fenginni skriflegri umsögn
ráðgjafastöðvarinnar, þar sem m.a. er tilgreint
hugsanlegt kaupverð íbúðar, er tímabært að skoða
sig um á fasteignamarkaðnum.
\ íbúð fundin - gert kauptilboð.
V_—A Þegar seljandi hefur gengið að
tilboði, sækir tilvonandi kaupandi um skuldabréfa-
skipti við húsbréfadeildina, þ.e. að skipt verði á
fasteignaveðbréfi, útgefnu af kaupanda og
húsbréfum, sem verða eign seljanda. Fasteigna-
veðbréfið getur numið allt að 65% af kaupverði
íbúðarinnar.
/\ (v \Afgreiðsla húsbréfadeildarinnar.
___\ Húsbréfadeild metur veðhæfni
íbúðarinnar og matsverð og athugar greiðslugetu
væntanlegs íbúðarkaupanda með tilliti tii kaupverðs.
Samþykki hún kaupin sendir hún væntanlegum
kaupanda fasteignaveðbréfið til undirritunar, útgefið
á nafni seljanda.
/\ ^ \ Kaupandinn lætur þinglýsa
kaupsamningnum.
^j/\Seljandi lætur þinglýsa
fasteignaveðbréfinu.
\ Kaupsamningur undirritaður -
- - fasteignaveðbréf afhent
//^ X^Seljandi skiptir á fasteigna-
veðbréfi fyrir húsbréf.
seljanda.
íbúðarkaupandi og íbúðarseljandi gera með sér
kaupsamning og seljandinn fær afhent fasteigna-
veðbréfið.
Fram að 15. maí 1990 eiga þeir einir aðgang að
húsbréfakerfinu sem sóttu um húsnæðislán hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins fyrir 15. mars 1989
og hafa lánsrétt.
SAMÞYKKI HÚSNÆÐISSTOFNUNAR ER SKILYRÐI.
Það er skilyrði fyrir skuldabréfaskiptum, að
greiðslugeta hlutaðeigandi íbúðarkaupanda og
veðhæfni íbúðar hafi verið athuguð áður en
íbúðarkaup eiga sér stað og að húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar samþykki íbúðarkaupin.
Æ, Cý\Greiðslur kaupanda hefjast.
\__\ Húsnæðisstofnun innheimtir
afborganir af fasteignaveðbréfinu af kaupandanum.
Þær hefjast á 2. almennum gjalddaga frá útgáfudegi
fasteignaveðbréfsins, en gjalddagar eru 4 á ári.
i j i j 1 j 1 í I
HÚSNÆÐISSTOFNUN
RÍKISINS
HÚSBREFAOEiLÐ
SUÐURLANDSBRAUT 24 -108 REYKJAVÍK SÍMI -696900