Morgunblaðið - 19.04.1990, Qupperneq 30
30
'MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRIL 1990
Reuter
Sjálfstæðisafmæli íZimbabwe
íbúar Zimbabwe fögnuðu í gær og minntust þess að tíu ár eru liðin
frá því landið hlaut sjálfstæði. Robert Mugabe forseti, sem hér sést
ásamt Daniel Arap Moi forseta Kenýu, hét landsmönnum efnahags-
legum framförum á næsta áratug. Nú falla einnig úr gildi ákvæði
í stjórnarskrá landsins sem kváðu á um að eining þyrfti að ríkja til
að afnema fjölflokkakerfi í landinu. Nú nægir að tveir þriðju þing-
manna samþykki það og hjálpi Mugabe þannig til að ná takmarki
sínu sem er einsflokkskerfi.
Útgöngnbann dregur
úr róstum í Kashmír
Síðastliðið sumar hófum við sölu áTRIOFARM heybaggafilmu.
Þessi filma, sem er frá TRIOPLAST, reyndist frábærlega vel.
Nú bjóöum viö nýja filmu TRIOWRAP, sem TRIOPLAST hefur þróaö
í samvinnu við Rannsóknarstofnun landbúnaöarins í Uppsala í
Svíðþjóð.
TRIOFARM filman var góö, en TRIOWRAP er enn betri:
* Hún er.CO-EXTRUDERUÐ" þriggja laga og þar af leiðandi sterkari.
* Þykktarmunur er innan við +2% og því minni hætta á götum.
* Viðloðun er meiri og losnar því ekki viö geymslu.
* Aukin vernd gegn útfjólubláum geislum sólar (uv-stabilator) og því
veðrunarþolnara.
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NQTA ÞAÐ BE£TA ÞEGAR
ÞÚ GENGUR FRA HEYINU ÞINU.
POæsöos Ift^
KRÓKHÁLSI 6 SfMI 67 7900 P .
Að minnsta kosti 11 skólabörn og kennarar þeirra brunnu til bana þegar skólabíllinn þeirra varð fyrir
skothríð í Austur-Beirut í gær. Varð bíllinn á milli tveggja elda í átökum kristinna herflokka og breyttist
á samri stundu í logandi víti. Óbreyttir borgarar hafa grátbeðið stríðsmennina að hætta morðæðinu en við
því hefur verið daufheyrst hingað til. Ástandið í Líbanon er nú þannig, að kristnir menn vega kristna og
múslimaflokkarnir reyna að uppræta hver annan.
St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Breta, lýsti því yfír um helg-
ina, að ekki væri ástæða til að kreljast prófa í öllum kennslugrein-
um; sem hefðu námsskrá.
A þessu kjörtímabili hefur
Thatcher-stjórnin staðið fyrir
víðtækum breytingum í skólamál-
um. Róttækust hefur breytingin
verið í því, að samræmd skuli
kennsla í níu kennslugreinum í öli-
um skólum Englands og Wales með
námsskrá. Einnig var búið að
ákveða að hafa stöðluð próf fyrir
öll böm í grunnskólum við 7 ára
aldurinn, 9 ára, 11 ára og 14 ára.
Undantekningarlaust höfðu
menn skilið það svo, að próf ættu
að vera í öllum níu greinunum.
Kennarar höfðu ítrekað mótmælt
þessum áformum, vegna þess að
þetta krefðist miklu meiri vinnu en
núverandi fyrirkomulag og væri
allt of viðamikið.
Nýleg skýrsla um sögukennslu
hefur valdið miklum umræðum um
tillögur stjórnarinnar í kennslumál-
um. John McGregor, menntamála-
ráðherra, hafði fyrir nokkru lýst
þvi yfir, að ekki yrðu almenn próf
í sögu við 7 og 9 ára aldurinn að
minnsta kosti.
Um síðustu helgi sagði Margaret
Thatcher í viðtali við The Sunday
Telegraph, að skýrslan um sögu-
kennsluna væri mun ítarlegri, en
sig hefði nokkurn tímann órað fyr-
ir. Hún segir, að einungis verði al-
menn próf í þremur kjarnagreinum,
ensku, reikningi og vísindum. Hún
segir, að það hafi verið vitað, að
saga yrði erfið viðureignar, ekki
sízt vegna þess að stjórnvöld hafi
ekki verið búin að gera það upp við
sig, hvort saga og landafræði væru
kjarnagreinar.
Hún bendir einnig á, að ekki sé
skynsamlegt að skipuleggja náms-
skrá í slíkum smáatriðum, að frum-
kvæði kennara verði lítið sem ekk-
ert. Það sé einmitt sérstaklega eftir-
sóknarvert, að kennarar leggi
áherzlu á svið innan sinna greina,
sem sé þeim sérstaklega hugleíkið.
Þannig verði kennsla oft bezt.
Talsmenn samtaka kennara hafa
tekið þessari yfirlýsingu forsætis-
ráðherrans vel og segjast vonast til
að hún taki meira tillit til sjónar-
miða kennara í framtíðinni.
Brunnu inni ískólabíl
Nýju Delhí. Daily Telegraph.
ÞINGMENN frá Kashmír gengu af þingfundi á þriðjudag í mótmæla-
skyni við útgöngubann í héraðinu. Þeir sögðu að stjórn V. P. Singhs,
forsætisráðherra Indlands, væri á góðri leið með að svelta umbjóðend-
ur sína í hel og kröfðust þess að útgöngubanninu yrði aflétt.
Fulltrúi stjórnarinnar í Nýju Delhí til Kashmír en fregnir þaðan herma
hélt því fram að mikill árangur hefði
orðið af útgöngubanninu sem staðið
hefði í 11 daga. Ofbeldisverk lægju
að mestu niðri og fjöldi hryðjuverka-
manna úr sveitum aðskilnaðarsinna
hefði verið handtekinn.
Útgöngubann hefur verið í gildi
allan sólarhringinn í Kashmír en á
mánudag var því aflétt í tvær
klukkustundir til þess að fólk gæti
birgt sig upp af matvælum. Erlendir
blaðamenn hafa ekki fengið að fara
að dregið hafí úr róstum í héraðinu.
Um 500 manns eru sagðir hafa týnt
lífi í átökum undanfamar vikur í
Kashmír.
Stjórn Singhs hefur látið loka rit-
stjórnum og pressum þriggja blaða
í eigu múslima í Kashmír vegna
„and-þjóðernislegs áróðurs" eins og
sagt var af hálfu stjómarinnar. Singh
hefur verið gagnrýndur úr ýmsum
áttum fyrir það hvernig hann hefur
tekið á málum aðskilnaðarsinna sem
Bandaríkin:
Minni viðskiptahalli
Washington. Reuter.
HALLINN á viðskiptum Banda-
ríkjamanna við útlönd minnkaði
um 30,4% í febrúar og var þá 6,49
milljarðar dollara, sá minnsti í sex
ár. Er batinn aðallega þakkaður
lægra olíuverði.
I janúar sl. var viðskiptahallinn
9,32 milljarðar dollara og hallinn í
febrúar hefur ekki verið minni síðan
í desember 1983 þegar hann var 5,68
milljarðar. í janúar var innflutningur
til Bandaríkjanna 41,26 milljarðar
dollara en 38,12 milljarðar í febrúar
eða 7,6% minni. í þessum sömu
mánuðum var olíuinnflutningurinn
5,86 og 4,71 milljarður dollara. Út-
flutningur var hins vegar 1% minni
í febrúar en janúar eða 31,63 millj-
arðar dollara.
Á árinu 1989 var viðskiptahallinn
vestra 108,99 milljarðar dollara á
móti 118,53 milljörðum árið áður en
sérfræðingar segja, að erfitt verði
að koma honum neðar nema um
hægist í efnahagslífinu og ásóknina
í erlenda vöru minnki.
Bretland:
Ríkisstjórnin slakar á
klónni í kennslumálum
IAST
barist hafa gegn indverskum yfirráð-
um í Kashmír. Er hann sagður hafa
reynt að draga athyglina frá vandan-
um sem þar er við að etja með því
saka Pakistana um að kynda undir
ófrið. Hefur hann haldið því fram
að skæruliðum aðskilnaðarsinna hafi
verið leyft að setja upp bækistöðvar
í Pakistan. Stjómvöld í Islamabad,
höfuðborg Pakistans, hafa hins vegar
neitað þessum ásökunum og vísa því
alfarið á bug að þau hafi skotið
skjólshúsi yfir skæmliða.
Singh hefur að undanförnu sakað
Pakistani um stríðsundirbúning og
af þeim sökum hefur indverski herinn
verið í viðbragðsstöðu. Margt þykir
þó benda til þess að báðir aðilar séu
tilbúnir að slíðra sverðin. Til að
mynda hélt Benazir Bhutto, forsætis-
ráðherra Pakistans, í fyrradag í
pílagrímsför til Mekka, hinnar helgu
borgar múslima, í Saudi-Arabíu. Var
það talið til marks um að hún óttað-
ist ekki að stríð milli Indvetja og
Pakistana væri yfirvofandi. Þá hefur
fyrirhuguðum krikket-leik þjóðanna
í næstu viku ekki verið aflýst og
ráðgerður er fundur utanríkisráð-
herra ríkjanna í New York í næstu
viku í sambandi við ráðherrafund
óháðra ríkja.
ooo