Morgunblaðið - 19.04.1990, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRIL 1990
31
„Dagur jarðarinnar“ á sunnudag:
Milljónir manna skera
upp herör gegn meng-
un og náttúrueyðingu
igj
HÚSNÆÐISSTOFNUN
RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD
SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK SÍMI 696900
San Francisco. Reuter.
„DAGUR jarðarinnar" er á
sunnudag og ætla þá náttúruunn-
endur víða um heim að taka til
hendinni, safna saman rusli,
planta út trjám og syngja móður
náttúru lof og dýrð. Segja banda-
rískir skipuleggjendur dagsins,
að margir þátttakenda, allt að
100 milljónir manna, ætli að
skilja bílana eftir heima til að
draga úr mengun og í París ætl-
ar umhverfísverndarsinnað fólk
að fara um borgina á reiðhjólum
og hjólaskautum.
Við Sigurbogann í París, þar sem
ókunni hermaðurinn hvílir, verður
athöfn til minningar um alla þá, sem
látið hafa lífið í náttúruslysum af
mannavöldum, og í Japan hafa ver-
ið skipulagðir 100 einstakir atburð-
ir. Þá vonast hópur sovéskra,
kínverskra og bandarískra fjall-
göngumanna til að komast upp á
Everest, hæsta fjall í heimi, og til
hvers? Jú, til að taka til á toppnum
og flytja burt ruslið, sem aðrir hafa
skilið eftir.
Efnt var til fyrsta „Jarðardags-
ins“ fyrir 20 árum og þá með því
að taka blikkbelju gröf og sóða út
á skrifstofum þekktra stórfyrir-
tækja. Þá var öfgafull róttækni í
fyrirrúmi en nú einkennist baráttan
af hófsemi en jafnframt miklu meiri
þunga en fyrr.
A sunnudag hafa verið skipu-
lagðar aðgerðir í 140 löndum alls
og má sem dæmi nefna, að í Saar-
briicken í Vestur-Þýskalandi ætla
menn að mótmæla því, að járn-
brautarnetið þar verði aflagt að
hluta til að rýma fyrir eiturspúandi
bifreiðum og á Bretlandi hafa
kvennasamtök skorið upp herör
gegn „umbúðafárinu". Segja þær
raunar, að umbúðirnar séu oft og
tíðum ekki aðeins umhverfisspillir,
heldur einnig skálkaskjól fyrir hvers
kyns okur og hvetja fólk til að rífa
ónauðsynlegar umbúðir utan af
vörunni og skilja eftir í verslunum.
í Kína ætlar Li Peng forsætisráð-
herra að flytja ávarp til þjóðarinnar
um umhverfismál og í Brazilíu, þar
Það sem helst
hann var-
ast vann...
Vestur-Berlín. dpa.
HEINZ Ernst, yfirmaður
umferðarlögreglunnar í
Vestur-Berlín, hefur verið
rekinn úr starfi fyrir að
þverbijóta umferðarlögin
með glæfralegum akstri.
Aðstoðarlögreglustjórinn í
Vestur-Berlín, Dieter Schenk,
sagði að lögreglumenn hefðu
stöðvað Ernst, yfirmann sinn,
í febrúar síðastliðnum en þá
var hann á 117 km hraða á
vegi þar sem hámarkshraðinn
var aðeins 60 km á klukku-
stund. Málsbætur átti hann sér
engar og því var ekki um ann-
að að ræða en vísa honum úr
starfi. Heinz Ernst er 59 að
aldri og hefði farið á eftirlaun
næsta haust.
Frá og með 15. maí 1990 stendur húsbréfakerfið
öllum opið við kaup og sölu notaðra íbúða.
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
sem þriðjungur allra regnskóganna
grær, ætla skólabörn að planta út
tijám í Amazonlandinu. I Banda-
ríkjunum verður auk annars efnt
til funda og hljómleika og Times-
torgið í New York verður lokað bif-
reiðaumferð fram eftir degi. Baráttan fyrir náttúrunni er baráttan fyrir lífinu: Skógur, sem súrt regn hefur drepið.
og sala íbúðar
Húsbréf eru skuldabréf sem seljandi íbúðar getur fengið
hjá húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins, í skiptum fyrir
fasteignaveðbréf, sem kaupandi íbúðarinnar gefur út.
Húsbréf eru verðtryggð og gefin út með föstum vöxtum til 25 ára.
Húsbréf eru með ríkisábyrgð og undanþegin skatti.
\Umsögn ráðgjafastöðvar er
skilyrði fyrir tilboði.
Allir kaupendur í húsbréfakerfinu verða að hafa í
höndum skriflega umsögn ráðgjafastöðvar
Húsnæðisstofnunar um greiðslugetu sína og
kaupverð íbúðar, áður en þeir geta gert seljanda
kauptilboð.
Hvemig fer sala íbúðar fram?
m
Seljandi fær kauptilboð.
Tilvonandi kaupandi sýnir seljanda
umsögn ráðgjafastöðvar og gerir honum kauptilboð
með tilliti til greiðslugetu sinnar skv. umsögninni.
/\ XTilboði tekið með fyrirvara um
^ \ skuldabréfaskipti.
Þegar samkomulag hefur náðst um kaupverð,
samþykkir seljandi kauptilboðið með fyrirvara um
skuldabréfaskipti við húsbréfadeild Húsnæðisstofn-
unar. Allt að 65% af kaupverði íbúðarinnar getur
verið fasteignaveðbréf sem kaupandinn gefur út og
seljandinn fær skipt fyrir húsbréf. Fasteignaveðbréfin
geta verið tvö, ef seljandi þarf að aflétta skuldum
sem kaupandi tekur ekki við, frumbréf og viðauka-
bréf.
Undirbúningur að skuldabréfa-
\ skiptum. Þegar seljandi hefur
gengið að tilboði, fer tilvonandi kaupandi fram á
skuldabréfaskipti við húsbréfadeildina.
Afgreiðsla húsbréfadeildar.
\ Húsbréfadeild metur veðhæfni
íbúðar og matsverð og athugar greiðslugetu
væntanlegs kaupanda. Samþykki hún kaupin,
sendir hún væntanlegum kaupanda fasteignaveð-
bréfið, útgefið á nafni seljanda.
Kaupsamningur undirritaður -
fasteignaveðbréf afhent
seljanda. íbúðarkaupandi og íbúðarseljandi gera
með sér kaupsamning og kaupandi afhendir
seljanda fasteignaveðbréfið.
Z\T
Kaupandi lætur þinglýsa
\ kaupsamningnum.
Seljandi lætur þinglýsa
fasteignaveðbréfinu.
Fram að 1S. maí 1990 eiga þeir einir aðgang að
húsbréfakerfinu sem sóttu um húsnæðislán hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins fyrir 15. mars 1989
og hafa lánsrétt.
Seljandi skiptir á fasteigna-
. veðbréfi fyrir húsbréf.
Óski seljandi eftir því að fá húsbréf, fær hann
þau afhent hjá húsbréfadeildinni í skiptum fyrir
fasteignaveðbréfið.
Húsnæðisstofnun annast inn-
l\ heimtu fasteigrL.v'ðbréfsins
af kaupanda, enda orðinn eigandi pess, þegar hér er
komið.
Seljandi ráðstafar húsbréfunum
k að vild. Seljandi getur átt bréfin,
notað þau við íbúðarkaup eða leyst þau út.