Morgunblaðið - 19.04.1990, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1990
Skíðavaktin - hlutí I
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Regnboginn:
Skíðavaktin — „Ski Patrol“
Aðalleikendur Roger Rose,
T.K. Carter, Ray Walston.
Nokkuð hefui borið á vissri
gerð mynda á síðasta áratug sem
rekast illa með öðrum. Ekki er
fjarri lagi að kenna þær við aula-
fyndni, ekki flokkast þær undir
farsa, til þess eru þær einu sinni
oí fáfengilegar og vitlausar.
Frægastar í hópnum eru
tvímælalaust Lögregluskóla-
myndirnar og þessi er sannan-
lega niðji þeirra þar sem hér eru
sömu framleiðendur á ferð, nú
skal blóðmjólka hugmyndina
með því að reka mannskapinn
til fjalla.
Á meðan afleitur leikhópur
þarf ekki að opna á sér munninn
til að tala er myndin slarkfær
skemmtun — á fyrrnefndu hálf-
vitahnyttniplani — en fer í verra
er hann þarf að tjá sig með orð-
um, til þess eru þessi ljósrit af
kjarnakonum og kamelkörlum
illfær og ekki hjálpar textinn
uppá sakimar. En stundum lukk-
ast fíflagangurinn, einkum í vel
útfærðum glæfraatriðum á
skíðum og skemmtilega vitlaus-
um dansatriðum og urgaði þá í
salnum af magahlátursrokum
kröfulítilla unglinga, þeirra er
gamanið. Við skulum búa okkur
undir næsta kafla.
41
Bessi Bjarnason, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Sigurður Skúlason í
hlutverkum sínum.
■ LEIKÞÁ TTURINN „Karlar
óskast í kór“ hefur nú verið sýnd-
ur 25 sinnum á höfuðborgarsvæð-
inu og nágrenni. Frumsýning fór
fram um miðjan nóvember í Álver-
inu í Straumsvík, en síðan hefur
verið sýnt víða bæði í fyrirtækjum,
stofnunum og hjá verkalýðsfélög-
um. Leikþátturinn fjallar um jafn-
réttismál og er athyglinni beint að
stöðu kai-lmannsins í nútímaþjóðfé-
lagi. Hlín Agnarsdóttir skrifaði
leikþáttinn, en leikaramir Bessi
Bjarnason, Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir og Sigurður Skúlason fara
með Iilutverk í leiknum. Sýningar
hafa legið niðri nú um nokkurt skeið
vegna anna, en nú gefst kostur á
að sýna leikþáttinn nokkrum sinn-
um. Það eru Jafnréttisráð og
Menningar- og fræðslusamband
alþýðu sem standa að uppsetningu
sýningarinnar, og eru allar upplýs-
ingar veittar á skrifstofu MFA.
SJÁLFSTIEDISFLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
Reykjanes
Aðalfundur kjördæmissamtaka
ungra sjálfstæðismanna
verður haldinn föstudaginn 20. april kl. 20.30 í Garðatorgi 1 í miðbæ
Garðabæjar. Kjördæmisráðsfulltrúar og stjórnir félaganna eru boöað-
ar á fundinn.
SAMBAND UNCRA
SIÁLFSTADISMANNA
FUS Baldur,
FUS Heimir,
FUS Huginn,
FUS Njarðvikum,
FUS Stefnir,
FUS Týr,
FUS Viiji,-
Viðtalstími
Davíðs Oddssonar
íValhöll
Davíð Oddsson, borgarstjóri, verður til við-
tals í Sjálfstæðishúsinu Valhöll, Háaleitis-
braut 1, II. hæð, milli kl. 10.00 og 14.00
laugardaginn 21. apríl.
Þeir, sem áhuga hafa á að hitta borgar-
stjóra að máli þennan dag, vinsamlega
panti tima i síma 82900.
Skrifstofa Sjálfstæðisflokksins.
Akranes
Fundur um bæjar-
málefni verður hald-
inn í Sjálfstæðishús-
inu við Heiðargerði
sunnudaginn 22.
apríl kl. 10.30. Bæj-
arfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins
mæta á fundinn. All-
ir velkomnir.
Sjálfstæðisfélögin á Akranesi.
- bæjarmálefni
Sjálfstæðisfólk ísafirði
Fundur i Sjálfstæðishúsinu 2. hæð sunnudaginn 22. april kl. 10.00
fh. Komum saman og ræðum málin um komandi kosningar. Heitt á
könnunni.
Frambjóðendur.
Spjallfundur um
málefni launþega
Málfundafélagið Óðinn efnir til spjallfundar
um málefni launþega í Óðinsherberginu í
Sjálfstæðishúsinu Valhöll, laugardaginn 21.
apríl milli kl. 10 og 12.
Gestur fundarins verður Magnús L. Sveins-
son, formaður Verslunarmannafélags
Reykjavikur.
Kaffi á könnunni. Allir velkomnir.
Stjórnin.
¥é.lagslíf
I.O.O.F. 12 = 1714208'A = Fjsk.
kv.
Góðtemplarahúsið
í Hafnarfirði
Félagsvist i kvöld, fimmtudag
19. apríl.
Verið öll velkomin og fjölmennið.
Frá Félagi eldri borgara
Gönguhrólfar hittast nk. laugar-
dag kl. 11.00 í Nóatúni 17.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Theódór Peterson frá
Færeyjum talar og syngur.
Allir hjartanlega velkomnir.
KFUK
KFUM
KFUM og KFUK
Almenn samkoma verður föstu-
daginn 24/4 kl. 20.30 í Suðurhól-
um 35 með „nýjum söng". Fögn-
um sumri með lofgjörð, bæn og
miklum söng. Allir hjartanlega
velkomnir.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Sumardaginn fyrsta 19. april kl.
20.30. Trúboðssamkoma. Kapt-
einn Miriam Óskarsdóttir og
Karina Aparicio frá Panama tala
og syngja. Trúboðsfórn tekin til
starfs Miriam i Panama. Veiting-
ar. Velkomin. Gleðilegt sumar.
Seltjarnarneskirkja
Samkoma á vegum Seltjarnar-
neskirkju og Ungs fólks með
hlutverk i kvöld kl. 20.30.
Léttur söngur og fyrirbænir í
umsjá Þorvaldar Halldórssonar
og félaga. Allir velkomnir.
Skipholt 50b, 2 hæð
Gleðilegt sumar! Almenn sam-
koma í kvöld kl. 20.30. Þú ert
velkomin(n).
auglýsingar
Útivistardagur
fjölskyldunnar
19/4 Gengið frá Brautarholti nið-
ur í Gullkistuvik. Falleg sandvík.
Létt ganga við allra hæfi. Pylsu-
veisla fyrir börnin. Brottför frá
BSÍ, bensinsölu kl. 13. Stansað
við Árbæjarsafn. Verð kr. 1.000.
Fritt fyrir börn að 12 ára aldri í
fylgd fullorðinna. Sími/símsvari
14606. Sjáumst!
Útivist.
HN
Aðalsafnaðarfundur
Nessóknar í Reykjavík
verður haldinn sunnudaginn 22.
apríl kl. 15 í Safnaðarheimilinu.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundar-
Störf.
Sóknarnefnd.
í kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma i Þríbúðum, félagsmiðstöð
Samhjálpar, Hverfisgötu 42.
Fjölbreytt dagskrá með miklum
söng og vitnisburðum. Sam-
hjálparkórinn tekur lagið. Ræðu-
menn verða Brynjólfur Ólason
og Þórir Haraldsson.
Allir velkomnir. Gleðilegt sumar.
Samhjálp.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
Myndakvöld fimmtud.
25. apríl.
Hvitá frá upptökum til ósa
Hjálmar R. Bárðarson mun sýna
myndir úr hinni miklu Hvítárbók
sinni. Myndasýningin tengist vel
ferðaáætlun Ferðafélagsins
m.a. þeim slóðum sem siðari
hluti afmælisgöngunnar liggur
um, einnig gönguleiðinni frá
Hvítárnesi til Hveravalla og ótal
fleiri athyglisverðum stöðum frá
Kili og afréttunum austan Hvítár
sbr. sumarleyfisferð nr. 18.
Myndasýningin hefst kl. 20.30.
Kaffiveitingar i umsjá félags-
manna í hléi. Mjög áhugavert
myndefni sem enginn ætti að
rinissa af.
Ferðir 28. aprfl. -1. maí:
1. Skaftafell-Öræfasveit.
2. Öræfajökull á gönguskíðum.
Ferðafélag Islands.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
Sunnudagur 22. aprfl kl.
13.00 (Dagur jarðar).
Afmælisgangan 1990,
l.ferð, Reykjavík-Rauða-
vatn
Mæting við Mörkina 6 þar sem
hús Fi á að rísa. Það er í Soga-
mýrinni, v/Suðurlandsbraut,
austan Skeiðarvogar. (Ath. ágæt
bílastæði eru vestan v/Skeiðar-
vog, strætisvagnar nr. 2 og 8
stansa í nágr.) Frá Mörkinni 6
er gengið inn í Elliðaárdal, um
Elliðaárhólma, með Elliðaánum
og siðan um Rofabæ að Skóg-
ræktinni við Rauðavatn. Mætið
vel skóuð eða i stigvélum. Hafið
nesti með. Tilvalin ferð fyrir unga
sem aldna. Rútuferð (með Vest-
fjarðaleið) frá Rauðavatni kl.
16.00 til baka að Mörkinni. Ekk-
ert þátttökugjald. Tilvalið að
halda upp á „Dag jarðar" með
þátttöku í afmælisgöngunni.
Góð fararstjórn. Afmælisgangan
er i tilefni 60 ára afmælis Hvítár-
nesskála, elsta sæluhúss Ferða-
félagsins og gengið verður í 12
áföngum frá Reykjavik um Mos-
fellsheiði, Þingvelli, Konungs-
veg, Geysi og Bláfellsháls að
Hvítárnesskála á Kili. Verið með
í ölium ferðunum. Ferðagetraun
í hverri ferð og happdrætti. Þeir
sem fara flesta áfangana eða
alla fá sérstaka viðurkenningu.
Spurning ferðagetraunar 1. ferð-
ar: Við hvaða forna fjallveg er
Hvitárnesskáli? (Svarseðlar eru
afhentir í ferðinni.)
Ferðafélag islands.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3S 11798 19533
Dagsferðir
sumardaginn fyrsta
Fimmtudagur 19. apríl.
Kl. 10.30 Bláfjöll - Kleifarvatn,
skiðaganga. Við setjum þessa
bráðskemmtilegu gönguskiðaleið
aftur á dagskrá. Verð 1.000 kr.
Kl. 13.00 Fjall mánaðarins:
Fjallið eina - Hrútagjá. Fjall-
ganga við allra hæfi. Einnig
hægt að sleppa sjálfri fjall-
göngunni og halda sig við undir-
lendið. Það er ekki ökufært á
Höskuldarvelli og því frestast
gönguferðin á Grænudyngju.
Verð 800 kr. frítt f. börn m. full-
orðnum. Brottför frá Umferðar-
miðstöðinni, austanmegin. Far-
þegar teknir á leiðinni, m.a. við
kirkjug. Hafnarfj. Fagnið sumri i
Ferðafélagsferð. Verið velkomin!
Munið fyrstu afmælisgönguna
22. april kl. 13 frá Mörkinni 6.
Nánar auglýst siðar.