Morgunblaðið - 19.04.1990, Page 50

Morgunblaðið - 19.04.1990, Page 50
50 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRIL 1990 t SIGURGEIR GUÐBJARNASON frá Jafnaskarði, nú Bólstaðahlið 45, er látinn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Aðstandendur. t Elsku sonur okkar og bróðir, EINAR ATLI JÓNSSON, lést þriðjudaginn 10. apríl. Útför hans fer fram frá kirkjugarðskapellu Hafnarfjarðar þriðjudag- inn 24. apríl kl. 10.30. Elín Markan, Jón Ólafsson, Páll Þorgeir Pálsson. t Föðursystir mín, RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR fyrrverandi sölustjóri, Fálkagötu 24, Reykjavík, andaðist á Sólvangi, Hafnarfirði, mánudaginn 16. apríl. Fyrir hönd ættingja, Ragnheiður S. ísaksdóttir. Margrét Bjamadóttir HaSmrfírði - Minning Fædd 14. janúar 1916 Dáin 5. apríl 1990 Eg vil með fáum orðum kveðja' vinkonu rnína og flokkssystur. Margrét fæddist á Hólabrekku á Mýrum í Hornafjarðarsveit, dóttir hjónanna Bjarna Eyjólfssonar og Margrétar Benediktsdóttur. Þau hjón eignuðust 15 börn en 11 kom- ust til fullorðinsára. Magga eins og hún var kölluð var 6. í röðinni en fimm eru enn á lífi af þessum hóp. Það má nærri geta að mikil vinna var að koma þessum hóp til manns og allir urðu að vera samtaka að vinna í sig og á þannig kynntist Magga vinnunni og lífskjörum al- þýðufólks og mótaði það skoðanir hennar til ýmissa málefna. 16 ára yfirgaf hún heimili foreldra sinna og ræðst í vist til sæmdarhjónanna Gísla Bergsveinssonar og Eyleifar Jónsdóttur í Neskaupstað. Þar gekk hún jafnt í hússtörf, heyskap, beit- ingar og fiskvinnu. Það var mikil + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORGERÐUR GUÐRÚN SVEINSDÓTTIR húsmóðir, Vatnsdal, Fljótshlíð, er lést í Borgarspítalanum aðfaranótt 10. þ.m., verður jarðsungin frá Breiðabólstaðarkirkju laugardaginn 21. apríl kl. 14.00. Elfar Andrésson, Kjartan Andrésson, Magnús Andrésson, Sveinn Andrésson, Sigurður Andrésson, Ólafur Andrésson, Sigurleif Andrésdóttir, Guðríður Andrésdóttir, Matthildur Andrésdóttir, Elísabet Andrésdóttir, Þormar Andrésson, barnabörn og barnabarnabörn. Auður Karlsdóttir, Svanhvít Guðmundsdóttir, Ólafía Sveinsdóttir, Sigurður Gíslason, Eiríkur Ágústsson, Dofri Eysteinsson, Tryggvi Ingólfsson, Sigurlín Óskarsdóttir, + ÞÓRDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR, Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, lést í sjúkrahúsi Akraness 13. apríl. Jarðarförin fer fram frá Borgarneskirkju laugardaginn 21. apríl kl. 14.00. Húbert Ólafsson, Guðrún Húbertsdóttir, Þorkell Þórðarson, Dagný Drífa og Þórey Þorkelsdætur. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLL SCHEVING, Vestmannaeyjum, verður jarðsetturfrá Landakirkju, laugardaginn 21. apríl kl. 14.00. Margrét Scheving, Þorvaldur Halldórsson, Sigurgeir Scheving, Helga Rósa Scheving, barnabörn og barnabarnabörn. + Við þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför GUTTORMS BERG, Akureyri. Þórlaug Baldvinsdóttir Elín Berg, Bryndís Friðriksdóttir, Róbert Friðriksson, Kjartan Friðriksson. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTRÚNAR JÓHANNESDÓTTUR, Seyðisfirði. Þorsteinn Guðjónsson, Jóhanna Þorsteinsdóttir, Eiríkur Sigurðsson, Anna Þorsteinsdóttir, Óskar Guðjónsson, Ásta Þorsteinsdóttir, Ari Bogason, barnabörn og barnabarnabörn. ' + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, CECIL BENDER, Kóngsbakka14, verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn 20. apríl kl. 13.30. Þorlákur Bender, Sólrún Andrésdóttir, Bryndfs Bender, Hildur Bender, Árni Þórðarson og barnabörn. + Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, BERGMUNDAR GUÐLAUGSSONAR fyrrverandi tollfulltrúa, Bogahlíð 12, fer fram frá Háteigskirkju, föstudaginn 20. apríl kl. 15.00. Rannveig Jónsdóttir, Guðlaugur Bergmundsson, María K. Jónsdóttir, Jón Bergmundsson, Guðrún Þórunn Ingimundardóttir, Hlöðver Bergmundsson, Jóhanna Óskarsdóttir, Ingibjörg Bergmundsdóttir, Harald B. Alfredsson, Katrín Björk Bergmundsdóttir, Egili Grímsson, Sigrún B. Bergmundsdóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, fóstur- móður, tengdamóður og ömmu, ÍDU NIKULÁSDÓTTUR, Smárahvammi 13, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við heimahjúkrunarfólki, læknum og hjúkr- unarfólki krabbameinsdeildar 21-A, á Landspítalanum fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Karl Finnbogason, Elísabet Karlsdóttir, Magnús Gunnarsson, Hrund Magnúsdóttir, GunnarMagnússon, Þröstur Magnússon, Richard Magnús Elliott, Elísabet Ásta Magnúsdóttir. Lokað Vegna jarðarfarar CECILS H. BENDER verður bensínafgreiðsla Hreyfils í Fellsmúla lokuð frá kl. 12.00-16.00 og skrifstofan frá kl. 13.00-15.00 á morgun föstudaginn 20. apríl. Hreyfill sf. vinna fyrir ungling en henni leið vel og minntist hún oft með hlýhug þeirra hjóna. 1935 kynntist hún til- vonandi manni sínum Sigurði Sig- urðssyni frá Borgarfírði eystra en hann var sjómaður hjá Gísla Berg- sveinssyni, þau þóttu ákaflega glæsilegt par. Þau giftust 1941 og eignuðust fímm börn. Þau eru: Guðný, búsett á Neskaupstað, Sig- urður Bjarni, en hann dó á fyrsta ári, Margrét Bjarnheiður býr í Kópavogi, Anna Sigurbjörg, drukknaði 5 ára og Helga býr í Hafnarfirði. Barnabörnin eru orðin 14 og barnabarnabörnin eru 7. Magga og Sigurður hófu búskap í Neskaup- stað en 1963 flytja þau til Hafnar- fjarðar og þar lést Sigurður 1974. Þau hjón unnu alla tíð sjómennsku og fiskvinnu. Bæði voru þau alþýðu- flokksfólk og unnu þar gagn sem þau gátu. Margrét var hjartahlý og hrein- skilin kona og áttum við margt spjallið saman. Einu sinni á kosn- ingadag sátum við yfir kaffibolla að til okkar kemur formaður flokks- ins, Jón Baldvin, að spjalla við okk- ur. Þá sagði Magga, aldrei verður þú eins glæsilegur og hann faðir þinn. Nei svaraði Jón Baldvin, það er ekki von, gamli maðurinn varð að deila glæsileikanum í svo marga parta því við erum svo mörg systk- inin en ég vona að það bitni ekki á flokknum, og var mikið hlegið. Ég vil með þessum fáu orðum þakka samfylgdina, vináttuna og hlýhuginn sem ég naut frá Möggu og óska henni góðrar heimkomu í ríki þess óþekkta. Ég votta aðstand- endum samúð mína. Albert Magnússon ■ HÁTÍÐAHÖLD sumardagsins fyrsta nk. verða með hefðbundnum hætti. Skátamessa verður í Garða- kirkju kl. 11 og verður þar meðal annars vígsla nýrra meðlima og afhentar viðurkenningar fyrir gott starf innan félagsins. Skrúðgangan hefst svo eins og venjan er kl. 14. Gengið verður frá mótum Karla- brautar og Hofstaðabrautar til skátaheimilisins að Hraunhólum 12. Þar verður fánahylling og að henni lokinni verður margt um dýrðir. Skátaheimilið verður opið og hægt að tylla sér niður og fá sér kaffibolla eða skoða þær fram- kvæmdir sem skátarnir verða með fyrir utan. Þar er ætlunin að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. ■ AÐALFUNDUR Félags íslenskra gullsmiða var haldinn 24. marz síðastliðinn og var kosið í nýja stjórn félagsins. Formaður var kosinn Stefán B. Stefánsson, varaformaður Einar H. Esrason, ritari Lára Magnúsdóttir, gjald- keri Hilmar Einarsson og með- stjórnandi Leifúr Jónsson. 74 gull- smiðir eru i félaginu og var það stofnað 19. október 1924 ogverður því 66 ára á þessu ári. Félagið gef- ur út fagblað og stendur fyrir sýn- ingum á verkum félagsmanna ann- að slagið til að sýna og kynna fyrir almenningi hvað um er að vera í gullsmiðastéttinni og að ekki sé ein- göngu um skartgripasmíði að ræða heldur einnig hina ýmsu listmuni úr silfri og gulli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.