Morgunblaðið - 19.04.1990, Síða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1990
KÖRFUKNATTLEIKUR
Jón Kr. tekur
við liði ÍBK
Leikur David Grissom með liðinu næsta vetur?
Jón Kr. Gíslason mun taka við
þjájfun og leika með úrvalsdeild-
arliði IBK á næsta keppnistímabili.
Jón lék með danska liðinu SISU í
vetur og varð bikarmeistari með
jtr liðinu. Hann er, ekki ókunnur ÍBK
því hann stýrði liðinu til sigurs á
Islandsmótinu í fyrsta sinn í fyrra.
„Við erum búnir að ganga munn-
lega frá samkomulagi við Jón Kr.,
um að hann taki að sér þjálfun liðs-
ins næsta keppnistímabil," sagði
Gunnar Jóhannsson, formaður
körfuknattleiksdeildar ÍBK í sam-
tali við Morgunblaðið.
Gunnar sagði að það væri ákveð-
ið að Bandaríkjamaðurinn Sandy
Anderson, sem lék með liðinu í vet-
ur, verður ekki með liðinu næsta
tímabil. „Það er mikill áhugi fyrir
því innan stjórnarinnar að fá David
Grissom, sem lék með Reyni í vet-
ur, til að leika með liðinu næsta
vetur. Það er þó ekki frágengið
enn,“ sagði Gunnar.
Keflvíkingar verða líklega að sjá
á eftir þremur leikmönnum næsta
vetur. Þeir eru Guðjón Skúlason,
Nökkvi Már Jónsson og Magnús
Guðfinnsson sem allir hafa hug á
því að fara til Bandaríkjana í nám
jafnframt því að leika körfuknatt-
leik.
SKÍÐI
IMyberg hættir sem
landsliðsþjálfari
SKÍÐASAMBAND íslands
hefur sagt upp samningi við
Kajsu Nyberg, landsliðsþjálf-
ara í alpagreinum. Nyberg var
ráðin þjálfari til tveggja ára
1. maí í fyrra, en samningur-
inn var uppsegjanlegur að
beggja hálfu eftir eitt ár.
Að sögn Sigurðar Einarsson-
ar, formanns Skíðasam-
bands ísiands,-er það fyrst og
fremst vegna fjárhagsörðugleika
að þjálfaranum er sagt upp. „Hún
hefur staðið sig vel í starfi, en
það er sambandinu ofviða að hafa
þjálfara á heilsárs launum. Við
ætlum í framtíðinni að reyna að
samnýta þjálfarana, sem eru í
starfi hjá hinum ýmsu héruðum,
og fá þá til að taka að sér sérstök
verkefni fyrir sambandið," sagði
Sigurður.
Nýberg verður í starfi hjá SKÍ
út næsta mánuð og verður síðasta
verkefni hennar að sjá um sér-
stakt þjálfunarnámskeið fyrir
stúlkur. Hún fær sænskan þjálf-
ara til liðs við sig og verður nám-
skeiðið í Bláfjöllum og hefst á
mánudaginn.
HANDKNATTLEIKUR
Sigurður til Dormagen?
Sigurður Sveinsson
Sigurður Sveinsson, landsliðs-
maður í handknattleik, hefur
fengið tilboð frá vestur-þýska úr-
valsdeildarliðinu Bayer Dormagen.
Sigurður, sem leikur með Dortmund
í 1. deildinni vestur-þýsku, segir
tilboðið mjög freistandi en hann
muni velja milli þess að fara til
Dormagen eða aftur til Vals.
„Þetta er mjög freistandi tilboð
og mun þetra en ég hafði hjá Dort-
mund. Eg er hinsvegar alls ekki
ákveðinn og mun nýta þann frest
sem ég hef til að hugsa málin,“
sagði Sigurður.
Dormagen hefur yfirleitt verið
um miðja deild en liðið hefur sett
markið hátt fyrir næsta vetur. Liðið
hefur fengið Hans-Dieter Schmitz,
þjálfara Essen, til að taka við liðinu
og leitar að sterkum leikmönnum.
Sigurði er ætlað að taka sæti Norð-
mannsins Oysten Havang sem er á
förum frá liðinu í vor.
„Þeir buðu mér tveggja ára
samning og mér líst vel á liðið. Það
er með góðan þjálfara og ætti að
geta náð langt næsta vetur,“ sagði
Sigurður.
HANDKNATTLEIKUR
HANDBOLTI / FRAKKLAND
Opið bréf til Brynjars Harðarsonar:
Árásir og dómgæsla
Júlíus Jónasson
áfram í París
Vegna skrifa þinna í opnu bréfi
til Skúla Unnars Sveinssonar
í Morgunblaðinu 12. apríl sl. sé ég
mér ekki annað fært en að koma
með nokkrar athugasemdir.
Menn hafa rætt mikið undanfarið
það sem gerðist í og eftir leik FH
og Vals nú á dögunum, og e.t.v.
sérstaklega það atvik er Jakob Sig-
urðsson fór inn úr horninu á loka-
mínútum leiksins.
Það er engum blöðum um það
að fletta, að dómarinn (RE) dæmdi
réttu liði boltann, þ.e.a.s. FH. Þú
ert með boltann og gefur hann til
Jakobs, án þess að þú sért hindrað-
ur í því á neinn hátt, og það gerir
þú á fullkomlega löglegan hátt. En
hvað gerist svo? Jú, þú heldur áfram
inn í teig FH og gerir enga tilraun
til að komast út úr honum aftur,
heldur stendur þar og hindrar and-
stæðingana í að komast á móti Jak-
obi. Það er því réttur dómur að
dæma FH boltann. Aftur á móti
ýtir einn ieikmanna FH í bak þér
inni í teignum, og þú lendir í vegi
fyrir Jakobi. Það er hægt að rök-
ræða um það hvort dómarinn hefði
átt að vísa þeim leikmanni FH útáf
í 2 mín. því það er matsatriði, en
það er engin spurning að þú ett
brotlegur á undan.
Ég get vel skilið að Jakob skuli
reiðast þegar umrætt atvik átti sér
stað, en Rögnvald vísar honum
réttilega af leikvelli fyrir mótmæli.
Það skal sagt Jakobi til hróss, að
strax að leik loknum kom hann til
dómaranna og þakkaði fyrir leikinn,
auk þess sem hann gerði það sem
í hans valdi stóð eftir Ieik, að hindra
vandræði á milli leikmanna og dóm-
ara. Það sést greinilega á mynd-
bandi, að hann í a.m.k. tvígang
gengur á milli þín og dómara. Þar
er Jakob að skila fyrirliðahlutverki
sínu „110%“, eins og sumir telja
sig leika.
Dómgæsla þeirra Stefáns og
Rögnvalds í umræddum leik var góð
allan leikinn. Það eina sem ég hef
út á hana að setja er, að þeir tóku
ekki nógu vel á tuði og röfli ykkar
Valsmanna, en greinilegt var á
köflum að þið eydduð kröftum ykk-
ar meira í að tuða í dómurunum
en að leika handbolta.
Hvað varðar það sem gerðist eft-
ir leik, þá er framkoma nokkurra
leikmanna Vals fyrir neðan allar
hellur að mínu mati. I fyrsta lagi
sést á myndbandi að Rögnvald
stjakar þér frá sér með annarri
hendi en „rífur ekki í skyrtu þína
og kastar þér burtu“ eins og þú
segir í bréfi þínu til Skúla. Það
kemur ekki fram í grein þinni sem
gerðist á bak við tjöldin inni við
búningsklefa, en vitni hafa sagt.
mér að framkoma ákveðinna leik-
manna Vals hafi ekki verið þar til
fyrirmyndar. Þá sést ennfremur á
myndbandinu að Jón Kristjánsson
ýtir á bak Rögnvalds auk þess sem
einn áhorfandi, sem ég kann ekki
skil á, ýtir hressilega á bak hans.
Nánast allir sem ég hef rætt við
um dómgæslu í vetur eru sammála
um að dómgæslan hafi verið betri
í heildipa nú í vetur en stundum
áður. Ég er hins vegar sammála
þér þegar þú segir að dómarar geri
mistök. Það hefur alltaf verið þann-
ig og verður væntanlega ailtaf. Það
er hins vegar engin hemja að rjúka
að dómurum strax að leik loknum
og byrja að rífast, jafnvel áður en
þeir komast að ritaraborðinu til
þess að ganga frá leikskýrslu.
Ég verð að segja að eftir næstum
25 ára starfsferil sem dómari held
ég að ég hafi alltaf verið tilbúinn
til að ræða við leikmenn í róiegheit-
um eftir leik, og ég held að ég
geti fullyrt að svo sé um flesta
dómara. Við hljótum að vera sam-
mála því, að allir geri sitt besta á
leikvelli hverju sinni, en tekst mis-
jafnlega, en heiðarleg umræða og
eðlileg skoðanaskipti eru aðeins af
hinu góða.
Kjartan K. Steinbach
Þar sem ég hef heyrt haft eftir
Valsmönnum að dómararnir hafi
„kært“ 3 leikmenn Vals eftir leikinn
vil ég taka fram, að dómararnir
„kæra engan“ heldur skila þeir
skýrslu til aganefndar, eins og þeim
ber, og aganefnd dæmir síðan menn
í leikbann ef reglur mæla svo fyrir.
Að lokum vil ég segja það, að
þessar línur eru ekki settar á blað
til þess að sverta þig á einn eða
annan hátt, enda held ég að þú
hafir a.m.k. oftast verið til fyrir-
myndar á leikvelli hvað varðar
framkomu gagnvart dómurum.
Ég vona áðeins að slíkir hlutir
sem gerðust í Hafnarfirði endurtaki
sig ekki. og menn taki frekar hönd-
um saman um að bæta jafnt leik
sem dómgæslu enda veitir ekki af
í keppni okkar ágætu íþróttar gegn
ýmsu sem dregur menn í aðrar áttir.
Með kærri kveðju og ósk um
gott sumar.
Kjartan K. Steinbach
formaður dómaranefndar.
Júlíus Jónasson verður að öllum
líkindum áfram hjá franska lið-
inu Racing Asnieres í París. Fé-
lagið hefur boðið honum tveggja
ára samning og segist Júlíus hafa
mikinn hug á að vera áfram.
„Ég hef fengið mjög gott tilboð
og vil vera áfram. Spurningin er
hinsvegar hvort ég skrifi undir
eins eða tveggja ára samning,"
SKÍÐAMÓT íslands var sett
formlega í íþróttamiðstöðinni í
Laugardal í gærkvöldi. Alls eru
75 keppendur skráðir til leiks
og fer mótið fram í Skáiafelli
og Bláfjöllum.
Skíðamót íslands yar fyrst hald-
ið á Siglufirði 1938 og er nú
haldið í 50. sinn. Mótið féll niður
1941 og 1959 vegna snjóleysis.
Keppendur að þessu sinni er færri
en oft áður, eða 75 að tölu. Þeir
koma frá Akureyri, Dalvík, Siglu-
firði, Ólafsfirði, ísafirði og
Reykjavík.
Keppnin í dag fer fram í Skála-
sagði Júlíus. „Þetta er ekki frá-
gengið en mér líst vel á tilboðið
og reikna með að slá til.“
Asnieres er nú í efsta sæti í
2. deild og svo gott sem öruggt
með sæti í 1. deild næsta vetur.
Júlíus hefur leikið stórt hlutverk
með liðinu og er markahæstur,
hefur gert tíu mörk í leik að með-
altali.
felli. K. 11.00 hefst keppni í stór-
svigi kvenna og kl. 11.3d í stórsvigi
karla. Kl. 12.00 hefst keppni í 30
km göngu fullorðinna og 15 km
göngu pilta 17-19 ára.
Á morgun, föstudag verður keppt
í stökki í Bláfjöllum kl. 12.00 og
síðan í göngu í norrænni tvíkeppni
kl. 15.00.
Á laugardag verður svig kvenna
og karla í Bláfjöllum kl. 10.30 og
í göngu karla og pilta kl. 12.00.
Mótin lýkur á sunnudag í Bláfjöllum
með keppni í samhliðasvigi karla
og kvenna kl. 13.00 og boðgöngu
karla 3x10 km kl. 12.00.
75. VIÐAVANGSHLAUP IR
Búist við góðri þátttöku
75. Víðavangshlaup ÍR fer fram í dag í Hljómskálagarðinum. Hefst
hlaupið kl. 14. Síðustu forvöð til að láta skrá sig til keppni eru milli
kl. 12.30 og 13.30 í Miðbæjarskólanum (Tjarnarskóla) þar sem aðstaða
verður til fataskipþa og baða. Margir hafa tilkynnt þátttöku, m.a. 9 úr
UMSB og 28 úr ÍR, en reynslan er sú að fjöldi keppenda skráir sig á
lokadeginum. Hlaupið fer að þessu sinni fram að öllu leyti innan Hljóm-
skálagarðsins og geta áhorfendur fylgst með hlaupurunum nær allan
tímann.
SKIÐI / SKIÐAMOT ÍSLANDS
Keppt í Skálafelli í dag