Morgunblaðið - 19.04.1990, Síða 64
FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Góðblá-
löngnveiði
•hjá fiysti-
tognrunum
GÓÐ blálönguveiði var hjá frysti-
togurum fyrir páskana.
Hólmadrangur ST kom að landi
rétt fyrir páska með 23 tonn af
blálöng'uflökúm og Margrét EA
frysti á sama tíma tæp 20 tonn.
Blálönguflökin eru seld til Frakk-
lands fyrir viðunandi verð að mati
útgerða þessara skipa. Veiðar á
blálöngu hafa nánast ekkert verið
stundaðar hér við land. Þær eru
utan kvóta en með minnkandi kvóta
fc»,ækja skipin að auknum krafti í
tegundir utan hans.
Skærasta
halastjarna
í fjögur ár
—«ést á himni
BJARTASTA halastjarna frá því
að Haileys-halastjarnan var á
ferð 1986 er nú sjáanleg berum
augum. Þar er á ferð Austin-
halastjarnan sem að sögn Þor-
steins Sæmundssonar stjarn-
fræðings ætti þessa dagana að
sjást í um 13° hæð í norðnorð-
vestur við myrkur en í um 19°
hæð í norðaustri við sólarupprás.
Að sögn Þorsteins er halastjarn-
an nálægt stjörnunni Beta í And-
romedu og er best að koma auga
á hana um það bil klukkustund
fyrir sólarupprás.
Af greinum í erlendum tímaritum
má ráða að vonir hafi verið bundn-
"^ar við að þessi halastjarna yrði
mjög björt og tilkomumikil á himni
en að sögn Þorsteins Sæmundsson-
ar hefur hún reynst vera daufari
en vonir stóðu til og ekkert í líkingu
við West-halastjörnuna 1976. Hann
sagði að stjarnan færi fljótlega að
dofna og um þessar mundir væru
mestar líkur á að greina hana ber-
um augum. Þó kæmi að sök á þess-
um árstíma hér á landi hve bjart
væri orðið og ekki unnt að tala um
eiginlegt myrkur. Samt sem áður
ætti að vera unnt að greina hala-
stjörnuna með sjónauka og jafnvel
berum augum á réttum tíma dags-
ins á heiðum himni.
Morgunblaðið/Bjami
*
Asta Sigríður kjörin Fegurðardrottning
Ásta Sigríður Einarsdóttir, 18 áraGarðbæingur,
var í gærkvöldi kjörin Fegurðardrottning íslands
1990 úr hópi tuttugu ogtveggja stúlkna. Úrslitin
voru tilkynnt um miðnættið á Hótel íslandi; þar
sem lokakeppnin fór fram. I öðru sæti varð Þordís
Steinsdóttir, tvítug Reykjavíkurmær og í þriðja
sæti Sigríður Stefándóttir, 21 ársgömulúr
Reykjavík. Hún var jafnframt kjörin besta ljós-
myndafyrirsætan. Keppendurnir kusu íris
Eggertsdóttur, 17 ára Keflvíking, vinsælustu
stúlkuna. „Ég var alls ekki búin undir það, að
verða kjörin Fegurðardrottning íslands, þótt ég
vonaðist til þess innst inni. Ég er í prófum núna
og hef ekki skipulagt framtíðina með tillititil tit-
ilsins," sagði nýkjörin Fegurðardrottning íslands,
Ásta Sigríður Éinarsdóttir.
Skikkanlegt
veður á fyrstu
dögum sumars
GOMUL Irú segir að ef frjósi sam-
an vetur og sumar, verði sumarið
fijósamt eða það sem kailað er
góð málnyta þegar ær og kýr
mjólka vel.
Páll Bergþórsson veðurstofustjóri
sagði að sér virtist sem veðrið fyrstu
sumardagana yrði skikkanlegt. Ef
til vill heldur vætusamara á Suður-
og Vesturlandi en þurrara og betra
veður fyrir norðan og austán. Hiti
milli fimm og sex stig að deginum
en svalara um nætur.
„Vetur og sumar gætu því frosið
saman,“ sagði Páll. „Til að ganga
úr skugga um næturfrost settu menn
út trog með vatni og átti ijóminn sem
settist á mjólkina að verða jafn þykk-
ur yfir sumarið og ísinn í troginu."
15 mánaða
fangelsi fyr-
ir nauðgun
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt 25
ára gamlan mann í fimmtán mán-
aða fangelsi fyrir að nauðga konu.
Honum er gert að greiða henni
300 þúsund króna skaðabætur.
Atburðurinn varð í apríl 1988 á
heimili mannsins. Honum og konunni
bar ekki saman um aðdragandann
og neitaði hann ásökun um nauðgun.
Með hliðsjón af fyrstu lögreglu-
skýrslum og niðurstöðum læknis,
serri skoðaði konuna, var framburður
hennar lagður til grundvallar. Mann-
inum hafði áður verið dæmd sama
refsing í sakadómi Reykjavíkur.
The Erkins Seafood Letter:
Spáð blómaskeiði í sölu
sjávarafiirða vestan liafs
Reiknað með verðhækkun á fiskblokk en stöðugu verði og sölu á flökum
SALA sjávai-afúrða í Bandaríkjun-
um varð mun meiri fyrsta ijórðung
þessa árs, en síðari hluta síðasta
árs. Salan nú er þó ívið slakari
en sama tímabil síðustu þrjú ár.
Fréttabréfið The Erkins Seafood
Letter í Bandaríkjunum getur
þess að síðastliðin ár hafi salan
fallið á vormánuðum og í lok
síðasta árs hafi hún verið minni
en nokkru sinni árum saman. Hins
vegar bendi nú allt til þess að sjáv-
arafurðasalan dragist ekki saman
er líður á árið.
Arnarflug:
Flugmálastj óri vill stöðva
reksturinn vegna vanskila
FLUGMÁLASTJÖRI heftir leitað liðsinnis lögreglustjóra til að stöðva
rekstur Arnarfiugs þar sem félagið hafi ekki gert skil á innheimtum
ílugvallarskatti sem liggja átti fyrir 15. mars og 15. apríl síðastliðinn.
Lögreglustjóri hefur veitt félaginu lokafrest tii 30. þessa mánaðar til
'að greiða skattinn, sem að sögn Péturs Einarssonar flugmálastjóra
nemur 1,6 milljónum króna fyrir fyrra tímabilið og álíka fyrir það
seinna. Kristinn Sigtryggsson framkvæmdastjóri Arnarfiugs segir félag-
ið munu greiða fyrir lok frestsins.
Flugmálastjóri sagði í samtali við
Morgunblaðið að um fiugvallarskatt
ætti sama við og um söluskatt að
sá sem innheimti hann hefði enga
heimild til að ráðstafa honum annað
*en til ríkissjóðs. Ákvæði í lögum
gerðu ráð fyrir að rekstur yrði stöðv-
aður kaémi til vanskila, - -
Kristinn Sigtryggsson fram-
kvæmdastjóri Arnarflugs sagði í
samtali við Morgunblaðið að enginn
vafi léki á að félagið gæti staðið skil
á skattinum fyrir lok frestsins. Að
sögn hans hefur aðeins verið rætt
um að til lokunar komi verði ekki
gerð skil á 1,6 milljónum króna.
„Þetta eru tiltölulega smáar fjárhæð-
ir í okkar dæmi,“ sagði hann. Að-
spurður um flugvélamál félagsins
sagði hann að ágreiningur Arnar-
flugs við bandaríska flugfélagið
Carnival Airlines um greiðslufyrir-
komulag vegna leigusamnings væri
í aðalatriðum leystur en viðræður
yrðu í dag og á morgun þar sem
málið yrði væntanlega endanlega til
lykta leitt. Hann sagði enga óvissu
ríkja um að félagið hefði vélina til
ráðstöfunar til loka mánaðarins en
ekki lengur enda hefði slíkt ekki stað-
ið til.
Hvað framtíðina til iengri tíma
varðar telur fréttabréfið að fram til
aldamóta verði mikið blómaskeið í
fisksölu vestan hafs. Ekki er beinlín-
is reiknað með verðhækkunum á
næstunni nema á blokk, sem er af
skornum skammti, en verð á flökum
haldist stöðugt en sala aukist.
Fréttabréfið telur ástæður þess að
sala sjávarafurða haldist góð út árið
séu, að dregið hafi úr neikvæðum
fréttum um sjávarafurðir, kynning á
afurðunum sé bæði mikil og jákvæð,
úrval sé ijölbreytt frá öllum heims
hornum, sala í matvælaverzlunum
aukist, verð sé stöðugt og eftirspurn
aukist.
í bréfinu er spáð mikilli aukingu
á sölu sjávarafurða meðai annars
vegna aukinnar markaðsvitundar
framleiðenda sjávarafurða og að iðn-
aðurinn muni í auknum mæli leggja
áherzlu á sölu til eldra fólks, sem
hafi áhuga á heilsusamlegu fæði og
hafi efni á því að greiða fyrir gæða-
vöru. Talið er að aukinni eftirspurn
verði meðal annars mætt með veiðum
á vinsælum fisktegundum, veiðum á
vannýttum tegundum, fiskeldi og
framleiðslu afurða svo sem surimi.
Birgðir á fiskblokk halda áfram
að minnka vestan hafs. Nú eru þær
" Jii.en á sama tíma í fyrra
% minni en í febrúar. Talið
er að verð hækki vegna veiðitak-
markana og aukinnar eftirspurnar í
Evrópu. Birgðir af þorskblokk eru
50% minni en á sama tíma í fyrra
og hafa minnkað um 15% síðan í
febrúar. Verð á blokkinni er nú 1,75
dollarar, en talið er mögulegt að það
hækki í 1,80 til 1,85. Sala flaka og
sérskorinna stykkja var góð á föst-
unni. Markaður fyrir þorskflök er
talinn sterkur, þar sem framboð og
eftirspurn séu í nokkru jafnvægi.
Þorskflakabirgðir eru þó enn 85%
meiri en á sama tíma í fyrra, en
hafa minnkað um 14% frá því í febrú-
ar.
'i
Víðavangs-
hlaup í dag
75. Víðavangshlaup ÍR fer
fram í dag í Hljómskálagarð-
inum.
Hlaupið hefst klukkan 14, en
síðustu forvöð til að skrá sig
til keppni eru milli kl. 12.30 og
13.30 í Miðbæjarskólanum.
Búist er við góðri þátttöku, en
reynslan sýnir að margir skrá
sig á síðasta degi.
Sjá frétt á 62.
111