Morgunblaðið - 21.04.1990, Side 19

Morgunblaðið - 21.04.1990, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRIL 1990 19 Robyn Koh Ilróðmar I. Sig- semballeikari urbjörnsson tónskáld ■ SEMBALLEIKARINN Robyn Koh heldur tónleika í Laugarnes- kirkju nk. mánudagskvöld kl. 20.30. Þar leikur hún m.a. verk eftir Bach, Hándel, Scarlatti, Ligeti og frum- flytur 3 prelúdíur eftir Hróðmar I. Sigurbjörnsson. Robyn Kohn fæddist í Malaysíu árið 1964. Hún hóf píanónám 6 ára að aldri og kom fyrst fram opinberlega ári seinna. Hún fluttist til Englands 1976, þar sem hún stundaði nám við Cheth- am’s School of Music, sem er sér- skóli fyrir börn gædd tónlistarhæfi- leikum. Hún stundaði framhalds- nám í Royal Academy of Music í London og Royal Northern College of Music í Manchester og hefur komið fram víða, vestanhafs og í Evrópu, m.a. kom hún fyrst fram sem einleikari með hljómsveit í Moskvu 1981. Robyn Koh starfar nú í London og sækir mánaðarlega tíma hjá Kenneth Gilbert í Moz- arteum skólanum í Salzburg. Hún leikur reglulega með breska óbó- leikaranum Robin Canter og í jan- úar nk. kemur hún fram í Purcell Room í London. Hulda Braga- Anna Kristín dóttir píanó- Einarsdóttir leikari. flautuleikari. ■ TVENNIR tónleikar verða haldnir á vegum Tónlistarskólans í Reykjavík eftir helgina. Fyrstu tón- leikarnir eru í Norræna húsinu mánudaginn 23. apríl kl. 20.30 og eru þeir síðari hluti einleikaraprófs Önnu Kristínar Einarsdóttur flautuleikara frá skólanum. Anna Kristín flytur verk eftir Handel, Enesco, Villa-Lobos, Dutilleux, John Speight og Pál P. Pálsson. David Knowles leikur með á píanó og sembal og Asdís Arnardóttir á selló. Anna Kristín hefur stundað nám við Tónlistarskólann frá 1984 og hefur notið leiðsagnar Bern- harðar Wilkinsonar flautuleikara. Síðari tónleikarnir eru í Bústaða- kirkju þriðjudaginn 24. apríl kl. 20.30 o g eru þeir síðari hluti einleik- araprófs Huldu Bragadóttur píanóleikara frá skólanum, en hún lýkur jafnframt kennaraprofi frá skólanum á þessu vori. A efnis- skránni eru verk eftir Scarlatti, Beethoven, Debussy og Chopin. Hulda hefur stundað nám við Tón- listarskólann frá 1986 og hefur Halldór Haraldsson píanóleikari verið kennari hennar. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. ■ GUNNAR Ásgeir Hjaltason opnar sýningu í Hafnarborg laug- ardaginn 21. mars nk. Sýningin er opin daglega kl. 14.00-19.00 nema þriðjudaginn 24. apríl. Sýningin stendur til 6. nraí. A sýningunni verða myndverk unnin í pastel og akrýl, vatnslitamyndir, teikningar, grafík og ýmsir smíðisgripir. Þ.ÞORGRlMSSON&CO ua RUTLAND aU ÞÉTTIEFNI Á ÞÖK - VEGGI - GÚLF ÁRMÚLA 29, SÍMI 38640 GERA MORGUNMUNINN! Kúfaður diskur af stökkum Cheerios hafrahringjum með svellkaldri mjólk. Ferskur og lystilegur morgunverður, þar sem hollustan er ótvíræð. Uppistaðan í Cheerios eru hafrar, bætiefnarík korntegund og einn besti trefjagjafi sem völ er á. Cheerios er því fyrirtaksfæða, fyrir alla fjölskylduna. Hafðu hollt hendi næst! cg^

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.