Morgunblaðið - 21.04.1990, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.04.1990, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRIL 1990 Ný skýrsla um færeysk efinahagsmál: Eiga langt í land með að losna úr skuldakröggimum Lögrnaður Færevja telur skýrsluna ósanngjama Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. LANGUR tími á enn eftir að líða áður en Færeyingar verða í stakk búnir að taka fyrir erlendar lántökur og þá fyrst verður um það að ræða að hefjast handa við að grynnka á skuldasúpunni, segir í áliti sem ráðgjafarnefhd dönsku stjórnarinnar um málefhi Færeyja sendi nýlega frá sér. Jogvan Sundstein, lögmaður Færeyinga, segir að skýrslan hafi valdið sér vonbrigðum. Reuter Contra-skæruliðar í búðum sínum í flallaþorpi um 100 kílómetra austur af Managua, höfuðborg Nic- aragua. Samningur um vopnahlé tekur gildi í Nicaragua Managua. Reuter. VOPNAHLÉI hefúr verið komið á í Mið-Ameríkuríkinu Nicaragua. Samkomulagið var undirritað á fimmtudag en að auki var gerður sérstakur sáttmáli er kveður á um að sveitir contra-skæruliða, sem notið hafa stuðnings Bandaríkjamanna, verði leystar upp. í skýrslunni kemur fram að nefndin telur nauðsynlegt að þegar i stað sé dregið stórlega úr styrkj- um til færeysks sjávarútvegs, jafn- vel þótt það kunni að hafa í för með sér afdrifaríkar afleiðingar eins og gjaldþrot og atvinnuleysi. Látnar eru í ljós áhyggjur af þróun efnahagslífsins í Færeyjum. í skýrslu nefndarinnar í fyrravor gætti hóflegrar bjartsýni vegna efnahagsráðstafana sem nýja land- stjómin hafði þá gripið til, en nú kveður við annan og dimmari tón. Samkvæmt skýrslunni hefur vöruskiptajöfnuðurinn batnað um- talsvert á árinu 1989 og greiðslu- jöfnuðurinn álíka mikið, en nefnd- armenn benda á að enn sé hallinn svo mikill miðað við efnahags- stærðir í Færeyjum að nauðsyn sé á að grípa í taumana. Erlendar skuldir á hvern íbúa í Færeyjum eru þrisvar sinnum hærri en á hvern íbúa í Danmörku. Nefndin telur knýjandi nauðsyn að eriendum lántökum verði hætt sem allra fyrst. Nefndin telur að í fjárlögum landssjóðs Færeyinga fyrir árið 1990 séu útgjöld vanmetin en tekj- ur ofmetnar, en algjör forsenda fyrir viðreisn efnahagslífsins sé að greiðsluerfiðleikar landssjóðsins verði leystir. Nefndin telur nauðsynlegt að styrkir til sjávarútvegsins verði skornir niður í sama mæli og annað í fjárlögunum. Nefndin telur útilokað að Færey- inar geti komist út úr vandanum í krafti landsframleiðslunnar þar sem grundvöllur atvinnulífsins sé svo veikur. Fiskstofnarnir við Fær- eyjar séu þegar ofnýttir og það muni kosta bæði tíma og samdrátt í útflutningi að rétta stofnana við. Auk þess sé lítið svigrúm til að fá veiðiréttindi annars staðar eða að- keypt hráefni til vinnslu. Bent er á að lítiil möguleiki sé að auka umfang fiskeldis. Því valdi mengunarvandamál og gífurleg samkeppni. Jogvan Sundstein lögmaður sagði í samtali við danska ríkisút- varpið að lítillar sanngirni gæti í skýrslunni og hún hafi valdið sér miklum vonbrigðum. Hann gagn- rýnir nefndarmenn fyrir að þekkja lítið inn á færeyskt samfélag. Vopnahléið gekk í gildi á hádegi að staðartíma (18 að ísl. tíma) á fimmtudag en fulltrúar skæruliða og þeir Humberto Ortega, varnar- málaráðherra í fráfarandi stjórn bróður síns, Daniels Ortega, og Miguel Obando y Bravo, kardínáli, höfðu undirritað samkomulagið nokki-um klukkustundum áður. Um 500 manns úr friðargæslu- sveitum Sameinuðu þjóðanna koma til Nicaragua á morgun, sunnudag, en að auki munu fulltrú- ar Samtaka Ameríkuríkja (OAS) fylgjast með framkvæmd vopna- hlésins. Fulltrúar fylkinganna tveggja fögnuðu þessum tímamót- um í sögu Nicargua og hétu því Á þessu ári hafa þegar verið framin 133 manndráp í Washing- ton, sem jafnast niður i 1,3 morð á dag, að meðaltali yfir árið. Á sl. ári var sambærileg meðaltala fyrir allt árið 1,2 morð á dag. Á aðalsjúkrahúsi Washington- borgar hafa 23% af börnum, sem þar hafa fæðst frá áramótum, bo- rið fíkniefnaauðkenni, langflest þeirra sökum „krakk“-neyslu mæðranna. Sambærilegt hlutfall á sama tíma sl. ár var 20-22 prósent. Fangelsi borgarinnar eru yfir- full sem fyrr, alls eru þar 9.863 fangar. Hefur þeim fjölgað um 1.200 fanga frá sama tíma sl. ár og tíu sinnum fleiri fangar en voru í fangelsum Washingtonborgar fyrir 10 árum. Jafnvel sjálfur borgarstjóri að halda friðinni. Talið er að um 30.000 manns hafi fallið frá því contra-skæruliðar tóku upp vopn- aða baráttu gegn stjórn sandinista árið 1979. Jafnframt var undirritað sérs- takt samkomulag er kveður á um að sveitir skæruliða verði leystar upp en leiðtogar þeirra segjast hafa um 14.000 manns undir vopn- um. Með sáttmála þessum skuld- bundu skæruliðar sig til að láta vopn sín af hendi og munu fulltrú- ar Samtaka Ameríkurikja, Samein- uðu þjóðanna og katólsku kirkj- unnar taka við þeim. Þessi liður áætlunarinnar hefst á miðvikudag er frú Violeta Chamorro sver emb- Washingtonborgar, Marion Bany, liggur undir ákæru fyrir fíknaefna- notkun. Hann var kærður þann 18. janúar sl., er leynilögreglumenn tóku kvikmyndir af honum í hótel- herbergi, þar sem hann var með vinkonu sinni að nejda kókaíns. Barry ber þó á móti þeirri ásökun að hann hafi lengi verið háður fíkniefnum, en viðurkennir að hann hafi verið alkóhólisti og hefir hann nú lengst af frá því að hann var kærður verið í „afvötnun“ undir læknahöndum. Barry borgarstjóri og stuðnings- menn hans telja að kæran á hend- ur honum fyrir fíkniefnaneyslu sé pólitískur áróður og kynþáttaof- sókn. Hann segist ákveðinn í að fara aftur í framboð til borgar- stjóra í kosningum á þessu ári. ættiseið forseta Nicaragua. Kveðið er á um að skæruliðum beri að láta öll vopn sín af hendi fyrir 10 júní. Á fimmtudag hófst brottflutn- ingur stjórnarhermanna frá fimm skilgreindum „öryggissvæðum“ en þar munu liðsmenn contra-sveit- anna setjast að. Stjórnin hefur á hinn bóginn heitið því að heraflinn muni halda sig í 19 kílómetra fjar- lægð frá svæðunum, hið minnsta auk þess sem bannað verður að fljúga herþyrlum og flugvélum þar yfir. ■ STOKKHÓLMUR - Sænsk stjórnvöld ætla að greiða Christer Pettersson, sem sakaður var um að hafa myrt Olof Palme forsætis- ráðherra, um eina milljón ísl. kr. í bætur hið minnsta. Það var sak- sóknari sænska ríkisins, sem fór fram á, að þessar bætur yrðu greiddar og hefur ríkisstjórnin fall- ist á það. Pettersson var haridtek- inn í desember 1988 og í júlí í fyrra var hann dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á Palme þann 28. febr- úar 1986. Fyrir áfrýjunardómstól var hann hins vegar sýknaður vegna skorts á sönnunargögnum. ■ BONN - Vestur-þýska stjórnin hefur mótmælt þeirri kröfu tyrk- nesku stjórnarinnar, að átta vestur-þýskir stjórnarerindrekar verði kallaðir heim frá Ankara. Hefur mótmælunum verið komið á framfæri við tyrkneska sendiher- rann í Bonn og látið að þvf liggja, að verði kröfunni haldið fram muni það stórskaða samskipti ríkjanna. Vestur-Þjóðveijar fóru nýlega fram á, að 15 tyrkneskir sendimenn yrðu kvaddir heim en þeir hafa verið sakaðir um að njósna um tyrkneska stjórnarandstæðinga, sem dvelja í Vestur-Þýskalandi. Þess vilja Tyrkir hefna með gagnkröfunni. ■ STOKKHÓLMI - Greta Garbo átti frænda á lífi í Svíþjóð og þykir ekki ólíkiegt, að hann muni erfa helming eigna kvik- myndastjörnunnar látnu. Hinn helmingurinn mun þá koma í hlut frænku hennar, Gray Reisfield, sem býr í New Jersey í Banda- ríkjunum, en talið er, að eignir Garbo nemi hundruðum milljóna dollara. Frændinn í Svíþjóð heitir Áke Fredriksson og er hálfbróðir Grays, óskilgetinn sonur Svens, eldri bróður Garbo. Króatar ganga að kjörborðinu: Lýkur alræði komm- únista á sunnudag? Zagreb. Reuter. ALRÆÐISVALDI kommúnista kynni að Ijúka í Króatíu á sunnudag þegar gengið verður til fyrstu frjálsu kosninganna í hálfa öld í þessu næst stærsta ríki Júgóslavíu. Kosningabarátt- an hefur einkennst af kröfúm um að Króatar segi sig úr júgó- slavneska ríkjasambandinu og stjórnarerindrekar segja að ef kommúnistar bíða ósigur í kosningunum aukist líkurnar á því að rikjasambandið riði tii falls. Um 3,5 milljónir manna hafa kosningarétt og kjömir verða 375 fulltrúar á þing ríkisins, sem fær síðan það hlutverk að mynda nýja stjórn. í nágrannaríkinu Slóveníu verða einnig mikilvægar kosning- ar á sunnudag, því þá kjósa Sló- venar forseta ríkisins. Tveir menn eru þar í framboði: Umbótasinn- inn Milan Kucan fyrir kommún- ista og Joze Pucnik, leiðtogi sam- steypu sex hægri- og miðflokka, sem báru sigur úr býtum í kosn- ingum til þings ríkisins 8. aprfl. Meiri vestrænna áhrifa þykir gæta í Krótaíu og Slóveníu en í öðrum ríkjum Júgóslavíu. Króatar og Slóvenar eiga í deilum við leið- toga Serba, fjölmennustu þjóðar Júgóslavíu, sem leggjast gegn umbótastefnu þeirra og kröfum um aukna sjálfstjóm ríkjanna. Stjórnarerindrekar segja að ef kommúnistar bíða ósigur í Króa- tíu verði það enn eitt áfallið fyrir þá en þeir eiga þegar í miklum erfiðleikum með að halda völdum í Júgóslavíu vegna efnahags- kreppu og þjóðaólgu. Erfitt er að spá um úrslit kosninganna þar sem engar áreiðanlegar skoðana- kannanir hafa verið gerðar. Leið- togar Kommúnistaflokks Króatíu, sem hefur sagt skilið við móður- flokkinn í Belgrað, segjast bjart- sýnir á að flokkurinn beri sigur úr býtum í kosningunum. Þjóðern- issinninn Franjo Tudjman, leiðtogi hægrimanna í Króatíska lýðræðis- sambandinu, spáir því hins vegar að flokkur sinn fái 60 af hundr- aði atkvæða. Einnig er talið að Samtök um þjóðarsátt, kosninga- bandalag níu flokka, fái talsvert fylgi í kosningunum. Stjórnarerindrekar telja að kosningarnar leiði að öllum líkind- um til þess Króatar krefjist auk- innar sjálstjómar og að samskipti þeirra við Serba, sem vilja halda í miðstýringuna frá Belgrað, versni enn frekar. „Við emm allir sammála um að stefna beri að sjálfstjóm Króatíu, jafnvel komm- únistar em þessarar skoðunar," segir Antun Vujic, leiðtogi Só- síal-demókrataflokksins, sem á aðild að Króatíska lýðræðissam- bandinu. Kjósa þarf að nýju, líklega 6. maí, í þeim kjördæmum þar sem enginn frambjóðandi fær meiri- hluta atkvæða. Orðrómur hefur verið á kreiki í Króatíu um að júgóslavnesk stjórnvöld ætii að senda herinn til ríkisins bíði kommúnistar ósigur. Króatísk kjörnefnd sá ástæðu til þess að hvetja kjósendur til að láta ekki slíkar vangaveltur hafa áhrif á sig, heldur kjósa þá frambjóðend- ur sem þeir teldu hæfasta. Bandaríkin; Lítill árangur í bar- áttu við fíkniefiim Washington. Frá fvari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. RÉTT ár er nú liðið fi"á því að George Bush forseti skipaði William J. Bennett með mikil völd til að berjast gegn fíkniefnaneyslu í Washington, höfúðborg Bandaríkjanna. Á sl. ári voru alls framin 437 morð í Washington og 127 morð til viðbótar í næsta umhverfi borgarinnar. Svo að segja öll morðin voru að einhverju eða öllu leyti í sambandi við fíknielúanotkun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.