Morgunblaðið - 13.09.1990, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1990
Gríptu tækifærið!
GoldStar síminn
m/símsvara á aöeins
kr. 9.952
(stgr..m/vsk).
• Sími og símsvari í einu tæki
• Fjarstýranlegurán aukatækja
úr öllum tónvalssímum
- hvaöan sem er
• 10 númera skammvalsminni
• Fullkomnar leiðbeiningar á
íslensku
• 15 mánaöa ábyrgö
• Póstsendum.
KRISTALL HF.
SKEIFAN 11B - SÍMI 685750
Minnum á GoldStar
tölvurnar og símkerfin
MÁLA-
SKÓLINN
MÍMIR
HEFUR ÁRATUGA
REYNSLU í TUNGU-
MÁLAKENNSLU Á
ÍSLANDI
ENSKA
ÞÝSKA
SPÆNSKA
FRANSKA
ÍTALSKA
ÍSLENSKA
F. ÚTLENDINGA
ENSKA FYRIR
BÖRN
JAPANSKA
SÆNSKA
O.FL.
INNRITUN
STENDUR YFIR
©
10 004
216 55
Málaskólinn
Mímir
STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS
ER EIGANDI MÁLA5KÓLANS MlMIS
I ÞINGHLEI______________________ ____________STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Varnir gegn mengun hafsins
*
Islenzkt frumkvæði að samstarfí Norður-Atlantshafsþjóðanna
1988-89. - 1058 ár trá stófnun Alþingis.
lil. lögginfarþing. - 505. mál.
Sb \ 1081. Fyrírspum
,il fórsx.isráöherra nm ráðs.efnu um varnir gegn mengun hafsins við ísland.
Frá Friðriki Sophussyni.
^^^ÓÓKlþió^ályktar aðhvetja^iJt^SiS^ð^ehi^verði^iljáðst^iu^Tér^á^andi^m^anii^ge^
mengunviðlslandogannarsslaðar svæði er búin vegna mengunar frá
geislavírltóin1 efnum^FAhm Alþin^ rfdsstjórninrd að yinna að framgangi málsins.“
1 lok greina.geröar með ^.^“^SSdíngar hafi frumkvmðið að þvi að
„Af þessum sokum er Það fylldega tmmbaer. itW J ^ rædd verði n
mó^nth”n,ðaÓ ~unui við ísland og hnnur nágrannarfki steðjar, ekk, sís, |
‘i^tóntHs^var^tónd ‘forsaetisráöuneytinu 10. a^98T
Hafið geymir þær auðlindir
sem gera ísland byggilegt.
Lífskjör þjóðarinnar og efna-
hagslegt fullveldi hennar eru
að stærstum hluta sótt í lífríki
sjávar. Það vár því ekki vonum
fyrr þegar Alþingi fól ríkis-
stjórninni (þingsályktun í
marzmánuði árið 1987) að
vinna að „ráðstefnu hér á
landi um varnir gegn mengun
við ísland og annars staðar í
Norðaustur-Atlantshafi, þar
sem sérstaklega verði fjallað
um þá hættu sem fiskistofnum
og mannvist á þessu svæði er
búin vegna mengunar frá
geislavirkum efnum“.
I
Þingsályktun þessi var reist á
tiilögu um sama efni sem flutt
var af nokkrum þingmönnum
Sjálfstæðisflokksins.
í aprílmánuði 1987 er forsæt-
isráðuneytinu send framan-
greind tilmæli [þingsályktun]
Alþingis með formlegum hætti.
í maímánuði 1989 — tveimur
árum síðar — verður ráðuneytið
sér úti um umsögn Siglingamála-
stofnunar ríkisins um ályktun-
ina. Þar segir m.a.:
„Að mati Siglingamálastofn-
unar ríkisins væri bæði eðlilegt
og sjálfsagt, með hliðsjón af vax-
andi mengun sjávarins og hags-
muna íslands varðandi verndun
hafsins, að íslenzk stjómvöld
hefðu frumkvæði að því að halda
hér ráðstefnu sem fjallaði um
varnir gegn mengun sjávar í
Norðaustur-Atlantshafi. Mark-
mið slíkrar ráðstefnu ætti að
vera fyrst og fremst að afla
gagna til stefnumótunar og til-
löguflutnings á alþjóðvettvangi
um auknar vamir gegn mengun
hafsins.“
Siglingamálastofnun var hins
vegar þeirrar skoðunar að það
myndi takmarka áhuga á og
þátttöku í slíkri ráðstefnu, „ef
hún fjallaði eingöngu um geisla-
virk efni, því staðreynd er, að
það eru fjölmörg önnur vanda-
mál sem við blasa og sum e.t.v.
enn alvarlegri, eins og t.d. meng-
um af völdum lífrænna þrávirkra
klórsambanda, svo sem PCB,
DDT og DIOXXIN, þó ekki sé á
neinn hátt dregið úr hættunni
sem fylgir losun geislavirkra
efna í sjó“.
II
Siglingamálstofnun taldi
tvenns konar ráðstefnur koma
til greina:
Annars vegar ályktunarhæfa
ráðstefnu þar sem saman kæmu
ráðherrar, embættismenn og
vísindamenn þeirra þjóða, sem
hagsmuna eiga að gæta á Norð-
austur-Atlantshafi. Tilgangur
hennar væri þá að móta sameig-
inlega stefnu gagnvart alþjóð-
legu samstarfi.
Hins vegar „hreina faglega
ráðstefnu vísindamanna“ þar
sem leitast yrði við að varpa ljósi
á ástand mála á þessu hafsvæði
með áherzlu á áhrif mengunar-
efna á lífríki hafsins. Slík ráð-
stefna ætti „að renna stoðum
undir nauðsyn þess að tekin verði
upp öflug sönnunarbyrði vegna
losunar efna í hafíð, sem ætti
að vera kappsmál fiskveiðiþjóð-
anna við Norður-Atlantshaf, því
enn eru mörg ríki, þar á meðal
meðalstór iðnríki, þeirrar skoð-
unar, að nota skuli hafið til förg-
unar úrgangs eins lengi og ekki
er sýnt fram á að það valdi
mengun sjávar".
III
íslendingar hafa að sjálfsögðu
leitað eftir auknu samstarfi þjóða
um varnir gegn sjávarmengum.
Fjölþjóðaráðstefnur hafa og ver-
ið haldnar um sjávarmengun (s.s.
Alþjóðleg þingmannaráðstefna í
Danmörku 1989 og Norðursjáv-
arráðstefna í Hollandi 1990).
Ráðstefna hér landi af því tagi,
sem þingsályktunin frá 1987
gerir ráð fyrir, bíður hins vegar
enn síns tíma.
Friðrik Sophusson (S-Rv)
beindi formlegri fyrirspum til
forsætisráðherra sl. vor um þetta
efni, þ.e. um framkvæmd á þeim
þingvilja, sem þingsályktunin
felur í sér. Ráðherra sagði ráð-
stefnu sem þessa kalla á viðam-
ikinn undirbúning. Það „sýnist
ekki skynsamlegt", sagði hann,
„að stefna að því nú að halda
slíka ráðstefnu fyrr en í fyrsta
lagi seinni hluta árs 1990 eða
fyrri hluta árs 1991“.
Tíminn er fugl sem flýgur
hratt, stendur einhvers staðar.
Spurning er, hvort tími þeirrar
ríkisstjórnár, sem enn situr að
nafninu til, flýgur úr höndum
hennar áður en frumkvæði
íslenzkra stjórnvalda að ráð-
stefnu um varnir gegn sjávarm-
engun á Norðaustur-Atlantshafi
fer í þann farveg sem vilji Al-
þingis stendur til.
« W
Metsölublað á hverjum degi!
« Skrifstofutækni
* Nútímanám
5 hjá traustum aðila
| Tölvuskóli íslands
L - - élmmrn Í - - - - -
SKIPA PLÖTUR - INNRÉTTINGAR
SKIPAPLÖTUR i LESTAR
BORÐ-SERVANT PLÖTUR
IWCHÓLP ME0HURÐ
iJ BAÐHERBERGISÞIUUR
LAMETT Á GÓLF - BORÐPIÖTUR
N0RSK VIÐUfíKENND HÁGÆÐA VARA
Þ.ÞORGBÍMSSON &G0
Ármúla 29 - Múlatorgi - s. 38640
ptofptttfrlit&tfr
QXtfíT M ÐFOTfFF TTiT T M12
S^JMbmbrJLiJmmJmmJL JL Ir JSiJLtJLJmw JL JmmJmm
XA Gabriele 100
Vel útbúinn vinnuhestur fyrir
námsmanninn sem velur gæði og gott verð.
VERÐ AÐEfNS KR. 21.755,-staögr.
Komdu við hjá okkur eða hringdu og
fáðu frekari upplýsingar, það borgarsig örugglega.
Einar J. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 686933
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT