Morgunblaðið - 13.09.1990, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1990
37
Um kvennaguð fræði
eftir Jón Habets
Hvað er kvennaguðfræði? Fjallar
hún ekki um hlutverk kvenna í þess-
um heimi? Og hvert er það? Pjallar
ekki Bilblían uni það? I. Mósebók
2,18: „Eigi er þ_að gott, að maðurinn
sé einsamall. Ég vil gjöra honum
meðhjálp við hans hæfi.“ I. Kor.
11,3 segir: „Maðurinn er höfuð kon-
unnar og Guð höfuð Krists“ og einn-
ig í Efesusbr. 5,21-28: „Verið hver
öðmm undirgefnir í ótta Krists. Kon-
urnar eiginmönnum sínum eins og
Drottni, því að maðurinn er höfuð
konunnar, eins og Kristur höfuð
kirkjunnar . .. eiginmennirnir skulu
elska konur sínar eins og eigin
líkami. Sá sem elskar konu sína el-
skar sjálfan sig. Enginn hefur nokkru
sinni hatað eigið hold, heldur elur
hann það og ánnast.“
Nú bar svo við, að í síðasta
„Kirkjuriti" er mjög fjallað um
„kvennaguðfræði" og eins og vænta
mátti eru það m.a. konur, sem_ skrifa
þar um kvennaguðfræði. Ég vii
gjarnan vita eitthvað um þessa guð-
fræði og las því framangreint efni.
Kannski má ég segja hvernig mér
leist á? Höfundar greinanna vekja
athygli á því að konur séu helmingur
mannkynsins. Og þá vaknar spurn-
ingin hvort þær hafi nægileg áhrif á
sögu heimsins? Það virðist ekki erfitt
að játa: Nei, ekki nóg.
Ér ekki mikill hluti af sögu heims-
ins saga styijalda, þ.e.a.s. sagan um
það, hvenig óteljandi eiginmenn og
börn týna lífi? Er það rétt, að hér
hafi konur og mæður í rauninni eng-
an atkvæðisrétt?
Sálarlíf konu er öðru vísi en sál-
arlíf karlmanns og þess vegna geta
áherslur hennar verið allt aðrar. Hún
á því að vera „meðhjálp" eins og
Biblían segir. Nú er það því miður
ekki'bara þannig, að konur hafi ekki
næg áhrif. Þær eru oft — sérstaklega
í hjónabandi — kúgaðar af eigin-
mönnum sínum. Um það skrifar Sól-
veig Anna Bóasdóttir í greininni
„Ofbeldi gegn konum“ (bls.42).’Við
vitum aðeins um lítinn hluta af þessu
af því að almennt dylja konur þján-
ingu sína. Þetta þyrfti þó að vera á
sem flestra vitorði ýmsum eigin-
mönnum til háðungar og skammar.
Það gæti sjálfsagt breytt hegðun
margra þeirra. Sólveig vitnar til bók-
ar, „I Herrens vold“. Það er Eva
Lundgren, höfundur bókarinnar, sem
rannsakaði í tvö ár ofbeldi eigin-
manna, sem þeir reyndu engu að
síður að réttlæta með kristnum kenn-
ingum. Eva Lundgren talaði við 75
konur og heyrum þá eitthvað af sögu
einnar þeirra:
„Ég er 28 ára og á tvö börn.
Maður minn heitir Dagfinnur. Ég
hitti hann í Ungdomsförbundet. Við
vorum ekki lengi saman áður. en við
giftum okkur. En þá byijaði hann
að verða dálítið harðhentur. það er
vegna þess að ég er ekki nógu góð
og dugleg. Hann segir að ég sé
heimsk, að ég sé ekki móttækileg
■ fyrir hans og Guðs orði. og svo slær
hann mig. Ég kvíði alltaf þegar hann
kemur heim. Hvorugt okkar hefur
nokkra ánægju af kynlífinu, það er
af því að ég er setin af djöflinum,
segir Dagfinnur. Og svo slær hann
mig. Einu sinni pissaði hann á mig
til að „aga mig“. Ég er full örvænt-
ingar. Hann fór með mig upp til
samfélags, þar sem náðargáfurnar
eru lifandi. Hann er nú orðinn mun
„í stuttu máli má segja
að íjölskylda; maður,
kona og barn, séu eftir-
mynd Heilagrar Þrenn-
ingar“
meiri leiðtogi, Hann talar tungum.
Hann hefur fengið nýtt eðli. Hann
vitnar í texta í Biblíunni: „Ef þér
færist undan því og þverskallist, þá
skuluð þér verða sverði bitnir"
(Jes.1,20), og svo slær hann mig.
Mig langar til að fara frá honum en
ég get ekki yfirgefið börnin mín. Ég
ætti að vera þakklát fyrir að Dag-
finnur vilji að ég frelsist. Hann er
fulltrúi Guðs. Það stendur greinilega
í Biblíunni, að hann sé höfuð konunn-
ar, segir hann. Hann lokar mig oft
inni í skáp sem er undir stiganum.
Ég er mjög myrkfælin og það er svo
dimmt þarna. Ég er alltaf hrædd
þegar við eigum að sofa saman, bið
til Guðs um að ég muni lifa það af.
Hann er svo ruddalegur. Maginn
minn varð eins og ísklumpur, ef hann
horfði á mig bara svolitla stund. Ég
vildi helst deyja, ef ég hefði ekki átt
börnin."
Þessi dapurlega saga er auðvitað
afskræming þess sem hjónabandið á
að vera. Og það, að skírskota til
Biblíunnar eins og þessi maður gerði,
er gagnstætt áfonni Guðs eins og
það birtist bæði í Gamla og Nýja
testamentinu. Má ég útskýra, hvern-
ig þetta horfir við mér,þótt það sé
dálítið hugspekilegt (,,spekulativt“).
í stuttu máli má segja að fjölskylda;
maður, kona og barn, séu eftirmynd
Heilagrar Þrenningar: Guðs Föður-
ins, Guðs Sonarins og Heilags Anda.
Hvernig reyna guðfræðingar að út-
skýra Heilaga Þrenningu? Við köllum
Guðs son Orð Guðs, áf því að hann
er eftirmynd Guðs Föðurins. Hann
er getinn af Föðurnum. Og fyrir ást-
arandblæ Guðs Föðurins og Guðs
Sonarins kemur fram Heilagur Andi,
sem þriðja persóna Heilagrar Þrenn-
ingar. Það er því auðveldt að sjá í
fjölskyldunni eftirlíkingu Heilagrar
Þrenningar.
I sköpunarsögu Adams og Evu
segir Biblían (I. Mós. 1,27): „Og Guð
skapaði manninn eftir sinni mynd,
hann skapaði hann eftir Guðs mynd,
hann skapaði þau karl og konu“.
Við sjáum að bæði eru sköpuð eftir
Guðs mynd, þ.e. eftir mynd Heilagr-
ar Þrenningar, því að í Adam má sjá
Föðurinn. Og eins og Sonurinn kem-
ur frá Guði Föðurnum, þannig kemur
Eva frá Adam. Biblían segir: Frá
einu af rifjum hans. Og Adam sagði:
„Þetta er bein af mínum beinum.
Hún skal karlynja kallast af því að
hún er frá karlmanni tekin." Og eins
og Heilagur Andi er persónulegur
ástarandblær Guðs Föðurins og Son-
arins, þannig er þá barnið ávöxtur
mannsins og konunnar.
Hvað kemur nú kvennaguðfræði
þessi líkingu við? í líkingunni er Eva
kona í sömu stöðu gagnvart Adam
eins og Jesús er gagnvart Föðurnum.
Jesús er þá sú fyrirmynd sem táknar
konu.
Biblían sýnir okkur að Jesús, get-
inn af Föðurnum, elskar hann og
Faðirinn elskar Jesúm: „Þessi er
minn elskaði sonur, sem ég hef vel-
þóknun á“ (Mt. 3,17).
Þannig á þá kona, „frá karlmanni
tekin“, að elska eiginmann sinn. Jes-
Hraðlestrarnámskeið...með ábyrgð!
Vilt þú margfalda lestrarhraða þinn?
Vilt þú auðvelda þér námið með auknum lestrarhraða
og bættri námstækni?
Vilt þú lesa meira af fagurbókmenntum?
Vilt þú hafa þetri tíma til að sinna áhugamálunum?
Svarir þú játandi, skaltu skrá þig á hraðlestrarnám-
skeið. Næsta námskeið hefst mánudaginn 17. septem-
ber. Skráning alla daga í síma 641091.
Hraðlestrarskólinn
H RAÐLESTR ARSKOLINN
rE 10 ÁRA u
ús kennir líka, að elska þýði að þjóna,
fórna: „Ég er ekki kominn til að láta
þjóna mér, heldur til að þjóna og
gefa líf mitt til lausnargjalds fyrir
marga“ (Mt. 20,28).
Er ég hér að „ýta undir þrælkun
og kúgun kvenna"? Verður kona,
sem elskar og þjónar „án nokkurs
gildis fyrir sjálfa sig, náunga sinn
ogjafnvel. . . fyrirGuð“? (bls. 33).
Jesús svarar þvert á móti: „Ef
hveitikornið ekki deyr verður það
áfram eitt“ og svo „án nokkurs gild-
is“. Er ég þá ekki að ýta undir þrælk-
un? Nei. Vér megum og eigum að
áfellast og ákæra kúgun manna, eins
og ég gerði, vitnandi til greinar Sól-
veigar um „Ofbeldi gegn konum“.
Þá ákærum við líka kæleiksskort-
inn og eigingirni mannanna.
En ef Jesús má ekki vera fyrir-
mynd kvenna og þær, undir nafni
sjálfstæðis leysa sig frá manni og
barni (fóstureyðing), þá verður kona
jafnvel verri en þessi „Dagfinnur",
sérstaklega gegn eigin barni. Sé fjöl-
skyldan skv. áformi Guðs eftirlíking
Heilagrar Þrenningar, þá er Jesús
fyrirmynd konunnar.
Líka má benda á Móður Jesú:
„Sjá ambátt Drottins" og hún fór
með Jesú upp til Hauskúpustaðar og
stóð hjá krossinum Hans.
Prédikar Biblían þá ekki réttlæti
og kærleika? Jú, hún gerir það. En
getur þú lagfært ástand heimsins
með réttlæti án kærleikans? Nei,
kommúnisminn reyndi það, en hon-
um mistókst.
Ég held, að kona, sem eiginkona
og móðir, eigi að vera ennþá meiri
en maðurinn; ímynd þess kærleika,
sem leiðir til hamingju mannkynsins.
Ég segi þess vegna með orðum
Kirkjuritsins: Faðir, send oss slíkar
konur.“
\ía i o5302Y- on0 va^s'
. A* 6*7 *5°
rtðÉl
m
Höfundur er kaþólskur prestur í
Stykkishólmi.
Leitið til okkar:
SMITH &NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
ÆFIN G ABEKKIR
HREYFINGAR
(áður Flott form - Engjateigi 1)
Leiðbeinandi:
Sigrún Jónatansdóttir
Mittisbekkur Lærabekkur
Er 7 bekkja æfingakerlið lyrir big?
Reynslan hefur sýnt að þetta æfingakerfi hentar sérlega vel fólki á öllum
aldri sem ekki hefur stundað einhverja líkamsþjálfun í langan tíma.
Æfingakerfið er einnig gott fyrir fólk sem ekki stundar almenna leikfimi
vegna stífra vöðva o.fl.
7 bekkja æfingakerfið liðkar, styrkir og eykur blóðstreymi til vöðva þann-
ig að rúmmál þeirra minnkar. Einnig gefur það gott nudd og slökun.
Getur eldra fólk notiö góðs af bessum bekkjum?
Já, þessi leið við að hreyfa líkamann er þægileg, liðkar og gefur góða
slökun. Og er þess vegna kjörin fyrir eldra fólk.
Innritun íra kl. 11-15 í síma 30460.
Frír kynningartími.
Slökunarbekkur
HREYFING
Ármúla 24
Sími 680677