Morgunblaðið - 20.10.1990, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.10.1990, Blaðsíða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1990 Laugarneskirkja það starf hefur hann unnið með konu sinni Jónu H. Bolladóttur guðfræði- nema og ijölda sjálfboðaliða. Það eru miklar vonir bundnar við starf að- stoðarprestsins og bjóðum við hann innilega velkominn til starfa. Sr. Bjarni var vígður til starfsins sunnu- daginn 7. október sl. A 50 ára afmæli Laugarnessóknar horfum við bjartsýn fram á veginn. Starfið hefur vaxið jafnt og þétt og verður nú í vetur boðið upp á fjöl- breyttara starf en nokkru sinni fyrr. Kirkjusókn hefur farið mjög vaxandi á síðustu árum og er það uppörvandi fyrir alla sem standa að starfinu. Carl P. Stefánsson er núverandi formaður sóknarnefndar og Ástráður Sigursteindórsson er safnaðarfull- trúi. Góður guð hefur farið fyrir starf- inu hér öll þessi ár, þess vegna lofum við hann fyrir allt það sem við höfum fengið að njóta í helgihaldi og félags- starfi kirkjunnar. „Ef Drottinn byggir ekki hús, erf- iða smiðirnir til ónýtis." Jón Dalbú Hróbjartsson, sóknarprestur. SINFÓNÍU- TÓNLEIKAR Tónlist____________ Jón Ásgeirsson Aðrir tónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar íslands á þessum vetri, voru haldnir sh fimmtudagskvöld í Háskólabíói. Á efnisskránni voru verk eftir Pál ísólfsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Seint-Saens og Rakhmanínov. Einleikari var sel- lósnillingurinn Erling Blöndal Bengtsson og stjómandi Petri Sakari. Fyrsta verkið var Lofsöngur úr Alþingishátíðarkantötu Páls ísólfssonar og söng Langholtskór- inn, sem Jón Stefánsson stjórnar, þetta ágæta verk vel og satt best að segja, ánægjulegt að heyra það svo vel flutt sem raun varð í þetta sinn. Annað verkið var frumflutningur á sinfónísku verki eftir Þorkel Sigurbjörnsson, sem hann nefnir Trífóníu. Þetta verk Þorkels er sérlega tónalt í gerð og lagrænt. Aðalstefið minnir á lýdískan tónhátt en á móti leikur Þorkell með slagverkshrynstef og káotlskt tónferli (eins konar tón- þyrpingar) oftast í blásurum, sem tekur á sig ýmsar myndir I sam- spili við aðalstefið. Vinnsla og mótun stefjanna er skýr og verkið í heild mjög áheyrilegt, á köflum áhrifamikið og>var ágætiega flutt. Síðasta verkið fyrir hlé var fyrsti sellókonsert Seint-Saens og lék meistari Erlingur Blöndal Bengtsson á sellóið. Þessi konsert er meðal vinsælustu verka Saint- Saens og á margan hátt skemmti- lega unnið. Bengtsson lék það frábærlega vel og launaði ánægð- um áheyrendum með meistara- lega vel leikinni Gavottu eftir Bach. Síðast á efnisskránni var önnur sinfónía Rakhmanínovs, sem er langt og erfitt verk í flutningi. Fyrsti kaflinn ber sterk einkenni af sinfóníum Tsjaikovskís, einkum þeirra sjöttu, enda áttu báðir við þunglyndi að stríða. Rakhmanínov hefur þurft að búa við það að kvikmyndatónskáld, einkum bandarísk, hafa sótt í smiðju hans, sérstaklega er varðar hljóm- sveitarrithátt og þar með ofgert eyrum manna með hástemmdum „flæðihljómum“ og ísmeygilegum laglínum í fiðlum og Waldhornum, sem rísa til skiptis upp úr þessu þétta tónaflóði. Þá er ekki síður að snöggar áherslur hafa nýst til að skerpa áhrifamikil og óvænt atriði kvikmyndanna og hefur allt þetta snúist svo, að tónlist þessa sérkennilega listamanns minnir á kvikmyndir fyrri ára og nýtur því ekki sannmælis fyrir bragðið. í heild var leikur hljómsveitar- innar mjög góður og áttu einstaka meðlimir sveitarinnar ágætar ein- leiksstófur, eins og t.d. Einar Jó- hannesson klarinettuleikari í þriðja þætti sinfóníunnar. Það var auðheyrt að Sakari lætur vej að stjórn Rakhmanínov og náði oft að laða fram skemmtilegan leik hjá hljómsveitinni, sem nú er á förum til Finnlands og á inni hjá öllum ósk um góða ferð og far- sæla heimkomu. KJÓSENDUR í prófkjöri sjálfstæðismanna Hef opnað kosningaskrifstofu með stuðningsmönnum mínum, þarsem verður starfað fram á kjördag og við fögnum öllum sem vilja leggja okkur lið. Ég óska eftir stuðningi í 3.-5. sæti listans. Skrifstofan er á Laugavegi 170 (eldra Hekluhúsinu), 1. hæð og er opin frá kl. 14-21 á virkum dögum en 10-18 um helgar. Símar: 25820 og 25821. Björn Bjarnason. NÚERAÐ HTTTAÁ RÉITU KÚWRNAR. Efþú hiMrfœrðu milljónir Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511. SAMEINAÐA/SlA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.