Morgunblaðið - 20.10.1990, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 20.10.1990, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1990 IÞROTTAMAL Nauðsynlegt að sam- eina ÍSÍ og UMFÍ eftirÁgúst Ásgeirsson A rúmlega ári höfum við orðið vitni að ótrúlegum breytingum á skipu- lagi þjóða í Evrópu austan járn- tjalds. Ríkjandi þjóðskipulag þröng- sýni og forneskju hefur hrunið til grunna. Úr rústunum eru tekin að rísa samfélög sem byggja á frelsi og lýðræði. Enginn sá þessar breyt- ingar fyrir og fyrir nokkrum árum hefðu þær verið taldar óhugsandi. En flestir eru sammála um að þær séu eina leiðin til hagsældar og' aukinnar velferðar viðkomandi þjóða. Á sáma tíma eiga sér stað miklar breytingar á skipulagi og starfsemi íþróttasamtaka þessara ríkja. Aðal- breytingin er í því fólgin að þau verða ekki lengur deild í viðkom- andi alræðisflokki hugmyndafræði hans til framdráttar, heldur byggð upp sem frjáls og óháð félagasam- tök. Lúta því ekki lengur beinni pólitískri forsjá. En meðan þessir stórsögulegu atburðir eiga sér stað búa íslending- ar við nánast sama íþróttaskipulag og fyrir stríð þar sem tvenn megin samtök takast á um áhrif og for- ystu; íþróttasamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag íslands (UMFÍ). «Eina megin breytingin frá stofnun þessara samtaka (UMFÍ 1907 og ISÍ 1912) er tilkoma sérsambanda ÍSÍ sem fara með yfirstjórn sér: greinamála í landinu fyrir hönd ÍSÍ og viðkomandi alþjóðasambanda. Formlega er æðsta stjórn íþrótta- mála óumdeilanlega hjá ÍSÍ og sér- samböndum þess. Samkvæmt eigin skilgreiningu er UMFÍ almenn æskulýðssamtök sem láta sig ýmis mál varða og eru íþróttir ekki í efstu sætum viðfangsefnalistans. Félagið er fyrst og fremst stofnað sem þjóðernishreyfing í byijun ald- arinnar þegar sjálfstæðismálin brunnu hvað mest í hugum lands- manna og baráttan fyrir eigin þjóð- fána var í algleymingi. Það spratt úr jarðvegi sem er afar framandi þeim sem eru undir sextugu í dag. Bera lög félagsins greinileg merki uppruna þess. I seinni ’tíð hefur UMFÍ hins veg- ar fyrst og síðast látið íþróttir til sín taka. Fyrir vikið er að ýmsu leyti um tvíverknað í stjórnunarmál- um héraðssambanda og íþróttafél- aga að ræða þar sem þau eru all flest innan beggja íþróttasamtak- anna. Sömu menn sækja sækja þing og fundi beggja auk ársþinga sér- sambanda, héraðssambanda og ein- stakra félaga. Þeir fjalla því um svo til sömu málin á fundi eftir fundi, þingi eftir þingi. í þetta fer vita- skuld dijúgur tími sem er því ekki til ráðstöfunar í starfið heimafyrir; grasrótarstarfið sem hreyfingin stendur og fellur með. Því miður auðnaðist ungmenna- og íþróttafélögunum ekki að sam- einast í öndverðu og vinna saman í anda Guðbrands Magnússonar fyrrum sambandsstjóra UMFI sem hvatti þau öll fyrir rúmum 75 árum til að ganga í ÍSÍ til þess að hinar litlu lindir íþróttauppsrettunnar víðsvegar um Iandið næðu að kom- ast sem fyrst í réttan farveg, eins og hann komst að orði. íþróttirnar voru neðarlega á stefnuskrá ung- mennafélaganna og einstök félög misjafnlega virk á þeim vettvangi. Sambandsstjórninni ofbauð reyndar íþróttastarfsemin í landinu um 1930 og taldi hana komna út í öfgar og hvatti ungmennafélögin til þess að taka ekki þátt í mótum hjá félögum sem stæðu utan við UMFÍ. Tel ég það afar brýnt að íþrótta- hreyfingin sameinist í einum sam- tökum og þar sem UMFÍ sinnir fyrst og fremst íþróttastarfi en hef- ur enga “lögsögu“ í þeim efnum, ef svo mætti að orði komast, liggur beinast við að félagið renni saman við ÍSÍ. Ætla verður að öðrum bar- áttumálum félagsins sé rækilega sinnt á vettvangi samtaka og félaga sem helgað hafa sig viðkomandi viðfangsefni eingöngu. Skógrækt- armálum er t.a.m. vel fyrir komið hjá skógræktarfélögunum, hags- munasamtök iðnaðarins og bænda- samtökin láta ekki deigan síga í áróðri fyrir neyslu og notkun inn- lendrar framleiðslu, góðtemplarar halda áfram að beijast gegn áfeng- isneyslu, o.s.frv.. Vonandi geta menn svo verið sammála um að andi íþróttanna rúmi að einhveiju leyti hugsjónir ungmennafélags- hreyfingarinnar um ræktun lýðs og lands og iðkun þeirra hjálpi æsku- lýðnum til þegnlegs þroska. Nauðsynlegt er að fyrir íþrótta- starfinu fari ein samhent forystu- sveit, m.a. gagnvart ríkisvaldinu því ég er sannfærður um að hin tvískipta forysta eigi mestan þátt í því hve hlutfallslega lítið framlag hins opinbera er til þessa fijálsa félagastarfs sem allir viðurkenna að hefur ótvírætt þjóðfélagslegt gildi. T.a.m. fá stjórnmálaflokkarn- ir einir margfalt hærri upphæðir af skattfé almennings til ráðstöfun- ar í eigin þágu. Það liggur vonandi í augum uppi að hreyfingin er veik- ari í augum valdhafanna þegar for- ingjar hennar koma á þeirra fund sitt í hveiju lagi hver með sinn málstað. Samningsstaðan er þá ekki eins sterk og menn eiga ekki annarra kosta völ en þiggja sem að þeim er rétt. Með því að sameina kraftana í einum farvegi vinnst margt: í fyrsta lagi yrðu komin til sög- unnar voldug samtök sem, að áunn- um ákveðnum trúverðugleik, yrði að taka mark á í samfélaginu, eins og glöggt má sjá í löndunum um- hverfis. Samtök sem væru betur í stakk búin til að ná fram ýmsum hagsbótum í þágu heildarinnar. I öðru lagi einhópa forysta sem hefði mun betri samningsstöðu • gagnvart ríkisvaldi og bæjar- og sveitarstjórnum hvað varðar öll að- stöðumál almennings- og keppnis- íþrótta. Forysta sem þyrfti ekki að ganga fyrir valdhafana eins og beiningamenn heldur til þess að reka hnefann í borðið, ef þess þyrfti með, og krefjast sanngirnis þegar á þætti hallað. I þriðja lagi losnuðu menn við ýmiss konar tvíverknað og fengju þar með meiri tíma til starfsins heima fyrir. Það mundi styrkja stöðu hreyfingarinnar í bæjum og byggðum landsins. Meiri festu vant- ar í grasrótarstarfið en það hefur alltof lengi staðið og fallið með þeim einstaklingum sem verið hafa i forystu hjá félögunum og áhuga þeirra. Það segir sig sjálft að hann dofnar þegar dreifa þarf kröftunum í marga staði. I- fjórða lagi gæfist tækifæri með því að sameina skrifstofur samtak- anna tveggja tii að gera alla þjón- ustu höfuðstöðvanna skilvirkari og starf samtakanna yrði allt mark- vissara. Ekki býst ég við því að allir séu Ágúst Ásgeirsson „Því miður auðnaðist ungmenna- og íþróttafélögunum ekki að sameinast í önd- verðu og vinna saman fanda Guðbrands Magnússonar fyrrum sambandsstjóra UM- FÍ sem hvatti þau öll fyrir rúmum 75 árum til að ganga í ÍSÍ til þess að hinar litlu lindir íþróttauppsret- tunnar víðsvegar um landið næðu að kom- ast sem fyrst í réttan farveg, eins og hann komst að orði.“ mér sammála og fyrir ýmsa yrði það ugglaust sársaukafullt að sjá ISÍ og UMFÍ renna saman. En oí mikil tilfinningasemi má ekki standa íþróttunum fyrir þrifum. Framtíð þeirra er í veði. Forystu- mönnum þessara samtaka er engin vorkunn að setjast niður og semja um samruna þeirra. Sameining þeirra verður að eiga sér stað fyrr en seinna. Óttast ég að ímynd íþróttanna versni ef hreyfingunni auðnast ekki að sameinast undir einum hatti. Á undanförnum árum hefur illu heilli gætt aukinnar til- hneigingar til að ala á ríg milli höfuðborgarsvæðisins og dreifbýlis innan íþróttasamtakanna. í tvíarma hreyfingu er auðveldara að finna áráttu af þessu tagi farveg en besta leiðin til að koma í veg fyrir að hún valdi óbætanlegu tjóni er að hreyf- ingin sameinist og bundið verði þannig um skipulagshnúta að hags- munir heildarinnar verði hafðir í öndvegi. Nú um helgina verður íþróttaþing haldið í Kópavogi en það fer með æðsta vald íslenskra íþrótta. Voii- andi koma þessi mál þar til umræðu en það er vænlegast til árangurs að áhuginn fyrir breytingum vakni í hreyfingunni sjálfri en komi ekki utan frá. Að lokum vil ég taka fram að tveir mikilhæfir menn veita bæði ÍSÍ og UMFÍ forystu og þekki ég þá ekki að öðru en vilja hag íþrótt- anna sem mestan. Þeim er fyllilega treystandi til að sameina hina tvístruðu krafta. Höfundur er blaðamaður og fyrrverandi formaður Frjálsíþróttasambands íslands. VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS Momunverðarfundur í Átthagasal Hótels Sögu, míðvíkudaginn 24. októher 1990, kl. 9-9.30 VERÐUM VIÐ C-ÞJÚÐ í LÍFSKJÖRUM ÞEGAR ÁRIU 2000 GEHGUR í GARÐ? Tilefni fundarins eru staðhæfingar um sföðnun í íslensku efnahagslífi og ýmsar hrakspór um þróunina á næstu árum. Þarf að faka upp nýja siði, árangursríkari stjórnun og finna þjóðfélaginu íraustari efnahagsgrundvöll? Hver er staðan oq hvaða kosti er um að ræða? Ómar Þ. Ragnarsson, fréttamaður á Stöð 2. Morgunverðarhlaðborð í Atthagasalnum frá klukkan 7.50. Þátttökugjald (morgunverður innifatinn) kr. 500. Vinsamiega tilkynniö iiátttöku fyrirfram í síma 678910. Framsögumenn: Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Verslunarráðsins. Ari Skúlason, hagfræðingur Alþýðusambandsins. Mm FOLK H SÆBJÖRN Guðmundsson, fyrrum landsliðsmaður og leikmað- ur 1. deildar liðs KR, hefur verið ráðinn þjálfari 4. deildar liðs Gróttu í knattspyrnu. Sæbjörn mun einnig leika með liðinu. I MARTEINN Geirsson var í gær endurráðinn sem þjálfari 2. deildar liðs Fylkis í knattspyrnu. Marteinn hefur verið með liðið undanfarin fimm ár, en er að auki þjálfari U-21 landsliðsins. ■ EYJÓLFUR Ólafsson dæmir leik írlands og Skotlands í EM U-21, sem fram fer 6. nóvember. Línuverðir verða Bragi Bergmann og Egill Már Markússon. ■ GUÐMUNDUR Haraldsson verður eftirlitsdómari á Evrópuleik Fram og Barcelona á Laugar- dalsvellinum á þriðjudag. ■ ÞORSTEINN Karlsson, sem varð Noregsmeistari í sjómanni fyrir skömmu, tekur þátt í Heims- meistarakeppninni, sem fram fer í Boston í Bandaríkjunum um miðj- an nóvember. Þorsteinn, sem hefur búið í Noregi í sex ár, keppir sem Norðmaður. Um helgina HANDBOLTI Laugardagur 1. deild karla: Höll, Fram-KR ......16:30 Kaplakriki, FH-ÍR....16:30 Selfoss, Selfoss-Haukar 16:30 Seltj.nes., Grótta-ÍBV ...16:30 Valsh., Valur-Stjarnan ..16:30 2. deiid karla: Digranes, HK-ÍBK.......14 Digranes, UBK-Þór Ak.. 15:15 Sunnudagur: Höll, Ármann-Þór Ak. ...14:15 Njarðvík, UMFN-UMFA ....14 Strandgata, ÍH-ÍS......14 KÖRFUBOLTI Sunnudagur Urvalsdeijd: Hlíðarendi, Valur-ÍBK..20 Njarðvík, UMFN-Snæfell ...20 Sauðárkrókur, UMFT-Þór.,16 Seljaskóli, ÍR-Haukar..16 BLAK Laugardagur Karlar: Hagask., Fram-Þrót. N.. 16:15 Konur: Hagask., Vík.-Þrót. N..15 Sunnudagur Digranes, HK-UBK....21:15 TORFÆRUHLAUP Hið árlega torfæruhlaup á Hellu fer fram í sandgryfjun- um suðaustan við Hellu í dag og hefst kl. 14, en keppnin er flokkaskipt. Búningsað- staða við sundlaugina á Hellu. Skráning á staðnum. BORÐTENNIS Borðtennismót Víkings og Café Operu verður haldið í TBR-húsinu á morgun og verður keppt í punktakeppni. Kl. 13 hefst keppni í 2. fl. karla, kl. 14 í mfl. og 1. fl. kvenna og kl. 16 í mfl. og 1. fl. karla. FÉLAGSMÁL_ íþróttaþing ÍSÍ 60. íþróttaþing ÍSÍ verður haldið í dag og á morgun í félagshefmili Kópavogs, Fannborg 2. Þingið verður sett kl. 10 í dag, en rétt til þingsetu eiga yfir 200 kjörnir fulltrúar með atkvæðisrétt auk margra með málfrelsi og tillögurétt. Uppskeruhátíð Þróttar Uppskeruhátíð knattspyrnu- deildar Þróttar verður í Glæsibæ á morgun og hefst kl. 14. Allir velunnarar deild- arinnar eru velkomnir. SJÓNVARP Úrslitaleikur Evrópubanda- lagsi'ns í tennis verður í beinni útsendingu hjá Sjónvarpinu og hefst útsendingin kl. 14 á morgun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.