Morgunblaðið - 20.10.1990, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTOBER 1990
19
Opið alla daga frá kl. 9-21. Sími 689070.
Blindur og fatlað-
ur orgelleikari
heldur tónleika
FRANSKUR orgelleikari, Louis Thiry, er staddur iiérlendis um þess-
ar mundir og mun á næstu dögum halda tónleika í Reykjavík og á
Akureyri. Orgelleikarinn, sem er kominn hingað á vegum söngmála-
stjóra Þjóðkirkjunnar, er bæði blindur og fatlaður.
Thiry varð fyrir slysi sem barn
er sprengja sprakk í höndum hans.
Við það missti hann sjón og baugf-
ingur vinstri handar auk þess sem
hann missti framan af þeim fjórum
fingrum vinstri handar sem eftir
voru. Þrátt fyrir þetta hóf hann
orgelnám og er nú virtur einleik-
ari, auk þess að vera þátttakandi í
kammertónlist bæði með hljóðfæra-
leikurum og söngvurum og enn-
fremur heiðursorgelleikari við kap-
ellu í Rouen í Frakklandi.
Fyrstu tónleikar Louis Thiry
verða laugardaginn 20. október kl.
17.00 í Akureyrarkirkju en þriðju-
daginn 23. október kl.21.00 heldur
hann tónleika í Fríkirkjunni í
Reykjavík. Þriðju tónleikar Thiry
verða í Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 26. október kl.21.00.
A efnisskrá tónleikanna verða
verk eftir César Franck, Mozart og
Olivier Messiaen.
<5^
Aðstandendur Brúðubílsins.
Brúðuleikhúsið
í Gerðubergi
Brúðuleikhúshátíðin „Dagar
leikbrúðunnar" verður haldin í
Gerðubergi 20. október og 25.
nóvember.
Hátíðin verður opnuð kl. 15.00
í Gerðurbergi í dag, laugardag.
Sýning íslenska brúðuleikhússins
(leikhúss Jóns E. Guðmundsson-
ar) á Rauðhettu er kl. 15.00 og
sýning Brúðubílsins (leikhúss
Helgu Steffensen) á leikritinu Bíbí
og blaka er kl. 16.00. Sama dag-
skrá verður sunndaginn 21. októ-
ber.
Malverkasýning i Listhúsinu
Björg Þorsteinsdóttir við tvö verka sinna.
Morgunblaðið/Sverrir
Björg sýnir í Listasafni ASÍ
SYNING á verkum Bjargar Þor-
steinsdóttur verður opnuð laug-
ardaginn 20. október kl. 14.00 í
Listasafni ASÍ. Uppistaða sýn-
ingarinnar eru stórar olíukrítar-
myndir 120x150 cm. Þá eru einn-
ig minni krítarmyndir og vatns-
litamyndir á sýningunni.
Myndirnar eru allar unnar á
þessu ári, en þá naut Björg sex
mánaða starsflauna frá íslenska
ríkinu. Björg stundaði myndlistar-
nám í Reykjavík, Stuttgart og
París. Þetta er 15. einkasýning
hennar. Sýningin ster.dur til 4. nóv-
ember og verður opin frá kl. 14.00-
19.00 daglega. Listasafn ASÍ er við
Grensásveg 16 í Reykjavík, gengið
inn frá Fellsmúla.
EINAR Þorláksson listmálari,
opnar málverkasýningu í List-
húsinu, Vesturgötu 17, laugar-
daginn 20. október.
Einar nam málaralist í Laren í
Hollar.di og við listaháskólana í
Kaupmannahöfn og Osló. Auk þess
hefur hann kynnt sér grafík við list-
iðnaðarskólann í Osló. Haldið í
námsferðir um Evrópu og lengst
dvalið í Flórens árið 1957.
Einar hefur áður sýnt í Lista-
mannaskálanum árið 1962, Unu-
húsi 1969, Casa Nova 1971, Norr-
æna húsinu 1975 og 1981, Gallerí
Sólon íslandus 1977, Bókasafni ísa-
fjarðar 1977, Gallerí íslensk list
1985.
Einar hlaut starfslaun ríkisins
árið 1974 og 1984 og eru verk eft-
ir hann í Listasafni Islands, Lista-
safni Reykjavíkur, Listasafni Kópa-
vogs og Sigluíjarðar. Sýningin
verður opin dag hvern frá kl. 14
til 18, fram til 4. nóvember.
Einar Þorláksson listmálari við eitt verkanna á sýningunni í Listhús-
inu við Vesturgötu.
KAVIAR
LAGERUTSALA
RYMINGARSALA
á pottaplöntum
og keramlkpottum
20% afsláttur
Nú rýmum við fyrir jólavörunum.
Allar pottaplöntur og allir
keramikpottar með 20% afslætti
þessa helgi.
IIÝTT SÍMANÚMER
prentmyndagerðar-.
ms&