Morgunblaðið - 25.10.1990, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1990
SKRIFSTOFUTÆKNI
TÖLVUSKÓLA REYKJAVÍKUR
OPNAR ÞÉR NÝJAR LEIÐIR
Á VINNUMARKAÐNUM
Með námi í skrifstofutækni nærð þú tóðum tökum á
tölvum og notkun þeirra. Þú lærir bókfærslu, stíómun
og fleiri viðskiptagreinar, rifíar upp ýmislegt í íslensku
og færð góða innsýn í viðsSdpataensku o.£
Námið tekur 3-4 mánuði og að því loknu útskrifast
þú sem skrífstofutæknin Þú getur valið um morgun-,
eftírmiðdags- eða kvöldtíma. Við bjóðum upp á afar
hagstæð greiðslukjöE Innritun er þegar hann.
Hringdu strax í síma 687590
og víð sendum þér bækling um hæl.
Prófkjör í
Reykjavík
*
eftir Birgi Isleif
Gunnarsson
Þessa dagana er hugur sjálfstæð-
ismanna í fjórum kjördæmum í rík-
um mæli bundinn við prófkjör sem
þar fara fram nú um helgina. Sjálf-
stæðisfólk á Vestfjörðum, Austurl-
andi, Suðurlandi og í Reykjavík vel-
ur frambjóðendur flokksins í næstu
þingkosningum í þessum prófkjör-
um. Úrslitin eru mikilvæg því að hér
er verið að velja það fóik sem bera
á stefnu flokksins fram til sigurs í
næstu Alþingiskosningum og vinna
síðan að því að koma stefnunni í
framkvæmd á næsta kjörtímabili.
Fyrsta prófkjörið
Eðli málsins samkvæmt verður
prófkjörið í Reykjavík það umfangs-
mesta. Atkvæðisrétt hafa allir félag-
ar í sjálfstæðisfélögunum og geta
menn skráð sig í eitthvert félag al-
veg til loka kjörfundar. Þegar þetta
er ritað eru um 10 þúsund manns á
kjörskrá, en þeim mun væntanlega
fjölga fram að lokum kjörfundar.
Sjálfstæðisflokkurinn reið á vaðið
með að taka upp prófkjör við val á
framboðslista. Þegar á árinu 1945
efndi flokkurinn til prófkjörs við val
á lista til bæjarstjórnarkosninga í
Reykjavík sem fram fóru í janúar
1946. Þetta þótti mikil nýlunda og
var djarfleg ákvörðun á sínum tíma.
Þátttaka í þessu fyrsta prófkjöri var
bundin við félaga í sjálfstæðisfélög-
unum í Reykjavík og gildir sama
reglan nú.
Opin prófkjör
gagnrýndu þessa djarflegu aðferð,
en hún reyndist vinsæl og þátttaka
var mjög góð. Slík opin prófkjör
voru síðan haldin í allmörg skipti,
bæði vegna kosninga tily borga-
rstjórnar og Alþingis.
Síðustu prófkjör sem haldin hafa
verið á vegum flokksins í Reykjavík
hafa hins vegar verið bundin við
þátttöku þeirra sem skrá sig í flokk-
inn. Rökin fyrir þeirri aðferð hafa
helst verið þau að eðlilegt sé að
flokksbundið sjálfstæðisfólk hafí þau
forréttindi fram yfir aðra að fá að
velja frambjóðendur flokksins, og
hefur það sjónarmið orðið ofan á í
annars oft heitum umræðum um
prófkjörin, gildi þeirra og prófkjörs-
aðferðir.
Mikið verk frambjóðenda
Frambjóðendur flokksins eiga
mikið verk fyrir höndum næstu
mánuði. Þeirra bíður að leiða Sjálf-
stæðisflokkinn fram til sigurs í kom-
andi kosningum. Það er verkefni
frambjóðenda flokksins að skýra
fyrir þjóðinni þá upplausn og þann
glundroða sem fylgt hefur vinstri
stjórninni. Flestum er að vísu ljóst
hvernig komið er. Gæfuleysi ríkis-
stjórnarinnar birtist meðal annars í
ótrúlega litlu fylgi meðal þjóðarinnar
í skoðanakönnunum. Þó þarf að gera
fólki betur grein fyrir samhengi
stjórnmálanna og gera mönnum ljóst
að það er stefna þessara flokka og
hugmyndafræði þeirra sem drepur í
dróma atvinnulífið og dregur úr
krafti og frumkvæði einstakling-
anna.
Birgir ísleifur Gunnarsson
„Það er verkefni fram-
bjóðenda flokksins að
skýra fyrir þjóðinni þá
upplausn og þann
glundroða sem fylgt
hefur vinstri stjórn-
• • íí
ínm.
blasa alls staðar við.
- Stöðva þarf útþenslu ríkisbáknsins
og lækka skatta.
- Samskipti við Evrópubandalagið
verður að taka föstum tökum.
- Snúa þarf að braut aukinna ríkis-
afskipta og miðstýringar og auka
fijálsræði í viðskipta- og atvinnu-
málum.
- Menntakerfið þarf að endurbæta.
Þetta eru aðeins örfá dæmi um
brýn viðfangsefni og Sjálfstæðis-
flokkurinn einn er hæfur til þess að
hafa forystu um farsæla lausn
þeirra. Prófkjörið í Reykjavík er
fyrsti liður í kosningabaráttu flokks-
ins. Ég hvet sjálfstæðisfólk til þátt-
töku því góð kjörsókn er mikill styrk-
ur í þeirri baráttu sem framundan er.
Eftir þetta fór prófkjör oft fram
við val á frambjóðendum til borgar-
stjómar, en voru þá jafnan bundin
við flokksmenn og úrslit fyrst og
fremst leiðbeinandi, þó að í raun
hafi þau ráðið_ mestu um skipan
framboðslista. Árið 1966 tók Sjálf-
stæðisflokkurinn upp þá nýlundu að
afna til opins prófkjörs fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar það ár. Margir
gardeur
STAKIR JAKKAR
einlitir, köflóttir
DÖMUBUXUR
margar gerðir,
einlitar,
köflóttar,
riflaflauel,
gallaefni
HNÉBUXUR
einlitar, köflóttar
BUXNAPILS og PILS
einlit, munstruð
BEIN PILS
62 cm og 75 cm síð
EINNIG BLÚSSUR FRÁ
SEIDEN STICKER
ÞÝSKAR PEYSUR OG
JERSEY PILS
Ctöutitv.
c
verslun, Skerjabraut 1 v/Nesveg,
Seltjarnarnesi, sími 611680
Opið daglega frá kl. 9.00-18.00,
laugardaga frá kl. 10.00-16.00
Taka þarf til hendinni
Flokkurinn þarf að geta tekið til
hendinni í þjóðfélaginu. Verkefnin
Bryndís Brynjólfsdóttir
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og tckurþátt
í prófkjöri í Reykjnvík.
Ingunn Guðmundsdóttir
Kostur fyrir
Sunnlendinga
eftirBryndísi
Brynjólfsdóttur
oglngunni
Guðmundsdóttur
Nú býður sig fram til setu á Al-
þingi fyrir Suðurlandskjördæmi
Arndís Jónsdóttir kennari á Sel-
fossi. Þar er á ferðinni dugmikil og
sterk kona. Hún hefur starfað mik-
ið að félagsmálum innan Sjálfstæð-
isflokksins, setið í nefndum á veg-
um bæjarins og nú á þessu kjör-
tímabili verið varaþingmaður. Störf
hennar hafa gefið henni þá reynslu
og þá víðsýni sem þarf til að geta
þjónað kjördæminu sem best.
Það er áríðandi að vel takist til
við uppstillingu framboðslista, svo
hann eigi möguleika þegar á hólm-
inn er komið. Framboðslisti er
hvorki sterkur né sigurstranglegur
nema á- honum sitji kona í öruggu
sæti.
Arndís sækist eftir kjöri í þriðja
sæti listans, við styðjum hana heils-
hugar og vonum að aðrir Sunnlend-
ingar sjái sér fært að gera það einn-
ig, það verður enginn svikinn af
því, hún er áhugasöm og tilbúin að
takast á við þau málefni stór og
smá sem varða kjördæmið.
Höfundar eru bæjnrfulltrúar á
Selfossi.