Morgunblaðið - 29.11.1990, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1990
5
Ljjósmynd/Amór Barkarson
Jólastemmning í Ármúlaskóla
Síðasti kennsludagur fyrir jól var í Fjölbrautaskólanum við
Ármúla í gær. Af því tilefni bauð nemendaráð skólans nemend-
um upp á jólaglögg, og jólasveinar útdeildu eplum til þeirra,
en nemendaráðið hafði skreytt skólann með jóladúkum og kerta-
ljósum. Sungin voru jólalög og nemendurnir dönsuðu í kringum
jólatré, en framundan hjá þeim eru nú lokapróf á haustönn.
Jarðhræringamar
út af Reykjanesi:
Vísbending-
ar um neð-
ansjávargos
SKJÁLFTAHRINAN sem mældist
á Reykjaneshryggnum er nú lokið
en að sögn Páls Einarssonar jarð-
eðlisfræðings stóðu hræringarnar
óvenju lengi yfir, eða í þrjár vikur.
Helstu vísbendingar um að þarna
hafi orðið 'neðansjávargos eru úr
sjávarrannsóknum sem gerðar voru
í rannsóknarskipinu Bjarna Sæ-
mundssyni, en að sögn Páls virðist
mega túlka þær á ýmsa vegu. „Það
virðist hafa gruggast upp botníagið
í sjónum í kringum Steinahól þar sem
er jarðhitasvæði. Þetta þótti rann-
sóknarmönnum vísbending um að
neðansjávargos hefði orðið en það
hefur ekki fundist neitt hraun enn-
þá,“ sagði Páll.
Hann sagði að manganið sem hefði
fundist hefði verið á eldra bergi og
væri jarðhitaummyndun sem tengist
jarðhitasvæðinu við Steinhól. Páll
sagði að svæðið sem um væri að
ræða tilheyrði virka eidgosabeltinu
sem liggur eftir endilöngu Atlants-
hafinu og kemur upp á Reykjanes-
skaganum. Gosbelti Islands sé hluti
af þessu sama virka svæði.
Framkvæmdastjórn YSÍ um fjármögnun byggingarsjóðanna:
Ekkí lengur forsendur fyrir
samningum við lífeyrissjóðina
EKKI eru lengur forsendur til þess að hvelja lífeyrissjóði til samn-
inga um skuldabréfakaup af byggingarsjóðunum, þar sem sú sam-
tvinnun réttinda og skyldna sem húsnæðislánakerfið frá 1986 byggði
á hverfur með lokun almenna lánakerfisins. Þetta kemur fram í
samþykkt framkvæmdastjórnar Vinnuveitendasambands Islands,
sem birt er í nýjasta tölublaði fréttabréfs VSÍ, Af vettvangi.
í samþykktinni segir að á grund- bréfakaup af Húsnæðisstofnun, þar
velli samkomulags aðila vinnu-
markaðarins og stjórnvalda árið
1986 hafi verið mótað nýtt lána-
kerfi húsnæðismála þar sem saman
fór fjármögnun úr lífeyrissjóðum
og forgangur sjóðsfélaga til lána.
Lífeyrissjóðirnir hafi samið við Hús-
næðisstofnun um skuldabréfakaup
og þannig tryggt félögum sínum lán
frá stofnuninni. „Hefur þorri lífeyr-
issjóða farið þessa leið og varið allt
að 55% af árlegu ráðstöfunarfé með
þessum hætti,“ segir í samþykkt-
inni.
Þá segir að síðan kerfinu var
hleypt af stokkunum 1987 hafi ekki
verið haft samráð við VSÍ um breyt-
ingar á helstu þáttum þessa nýja
kerfis. „Fyrir lá að munur á vöxtum
veittra lána og tekinna hjá Bygg-
ingarsjóði ríkisins mætti ekki fara
úr hófi en þessi munur var u.þ.b.
1,5% þegar grunnforsendur nýja
lánakerfisins voru lagðar,“ segir í
samþykktinni.
„Það er mat framkvæmdastjórn-
ar VSÍ að glæfralega hafi verið
staðið að framkvæmd og þróun
nýja húsnæðislánakerfisins, einkum
að því er varðar tregðu yfirvalda
húsnæðismála til að láta vexti af
lánum byggingarsjóðanna fylgja
vaxtaþróun frá 1986 þegar forsend-
ur lánakerfisins voru lagðar. Vax-
andi erfiðleikar Byggingarsjóðs
ríkisins hafa verið rökrétt afleiðing
þessa aðgerðaleysis og um leið ver-
ið notaðir til að byggja upp ýmis
tilbrigði svonefndra félagslegra
lausna," segir ennfremur í sam-
þykktinni.
Þá segir að meginbreytingin sé
sú, að lífeyrissjóðirnir tryggi ekki
lengur sjóðsfélögum rétt umfram
aðra með samningum um skulda-
sem allir njóti nú sama réttar án
tillits til aðildar að lífeyrissjóði og
þátttöku hans í fjármögnun kerfis-
ins. „Með hliðsjón af þessari breyttu
stöðu húsnæðismála vill fram-
kvæmdastjórn VSÍ taka fram, að
sambandið telur ekki lengur for-
sendur til þess, að hvetja lífeyris-
sjóði til samninga um skuldabréfa-
kaup af byggingarsjóðunum," segir
í samþykktinni, og ennfremur: „Við
þær aðstæður hljóta lífeyrissjóðirnir
að horfa til þess eins, hvar og hvern-
ig þeir fái ávaxtað fjármuni sjóð-
anna best. Þótt viðskipti við ríkis-
sjóð, byggingarsjóði og aðra opin-
bera aðila geti vel fallið að þessu
markmiði, eru ekki lengur forsend-
ur til þess að binda þau samskipi í
eitthvað sérstakt samningsform.
Þessi samskipti eiga að lúta lögmál-
um markaðarins eins og önnur lána-
starfsemi.“
Ekki bætt fyr-
ir fótbrot sem
hundur olli
VÁTRYGGINGAFÉLAG ís-
lands hefur hafnað bótakröfu
konu sem varð fyrir því að
hundur hljóp hana um koll svo
hún fótbrotnaði.
Eigendur hundsins höfðu
keypt ábyrgðartryggingu gegn
þeirri bótaskyldu sem á þá kynni
að falla vegna hundsins en
tryggingafélagið hafnaði kröf-
unni þar sem ekki liggi fyrir að
óhappið megi rekja til saknæmr-
ar og ólögmætrar hegðunar eig-
anda hundsins. Konan hefur
ákveðið að fara með málið fyrir
dómstóla.
Slysið varð í janúar og bar
þannig til að tvær konur voru
að viðra hunda sína í Heiðmörk.
Hundarnir voru lausir og hlupu
um. Hundur annarrar konunnar
hljóp utan í hina sem féll við,
fótbrotnaði og hefur átt lengi í
meiðslum.
Umferð um íslenskt flugstjórnar-
svæði hefur aukist um 7-8% á árinu
VEGNA stóraukinnar flugum-
ferðar um íslenskt flugstjórnar-
svæði íhugar flugmálastjóri nú
nauðsyn þess að skipuleggja flæð-
isstjórn, þar sem flugumferð er
skömmtuð inn á íslenska flug-
stjórnarsvæðið. Síðastliðin fimm
ár hefur flugumferð frá Evrópu
til Ameríku aukist um 62% og á
þessu ári hefur hún aukist um
7-8%, og að sögn Guðmundar
Matthíassonar, framkvæmda-
stjóra flugumferðarþjónustu
Flugmálastjórnar, hefur undan-
farna mánuði gætt tilhneigingar
flugsljórnarmiðstöðva í ná-
grannalöndunum að beina um-
framflugumferð sinni inn í
íslenskt flugstjórnarsvæði.
Guðmundur sagði að um 170 flug-
vélar færu að meðaltali um íslenskt
flugstjómarsvæði á dag, en fjöldinn
hefði farið upp í um 350 vélar. Hann
sagði það vera neyðarúrræði að þurfa
að gripa til flæðisstjórnar, þar sem
Flugmálastjórn hefði ætíð lagt metn-
að sinn í að flýta fyrir flugumferð
og veita henni sem besta þjónustu.
„Við höfum verið að gera ýmsar
endurbætur til að fylgjast með
tímanum, eins og til dæmis með
aukinni radarvæðingu og tölvuvæð-
ingu, og unnið hefur verið að undir-
búningi sjálvirknibúnaðar flugum-
ferðarstjórnar, sem tekinn verður i
notkun eftir tvö ár. Þá þarf að hefja
byggingu nýrrar flugstjómarmið-
stöðvar, og er nú unnið að útvegun
fjárveitinga í þá framkvæmd. Á
næstu tveimur áram eru nauðsynleg-
ar framkvæmdir fyrir samtals um
500 milljónir króna, og þá meðal
annars til að byggja flugstjórnarmið-
stöðina, en þennan kostnað fáum við
endurgreiddan sem leigu fyrir þá
þjónustu sem við veítum, “ sagdi
hann.
Alþjóðaflugsþjóriustan skilaði um
400 milljónum króna til íslands árið
1989, en um 120 íslendingar hafa
atvinnu af þessari þjónustu, og er
allur rekstur og framkvæmdir vegna
þjónustutíma greiddur af eriendu fé.
Ryðið úr Nesjavallaæð;
Vonandi sést fyrir endann
- segir Gunnai’ Kristinsson hitaveitustjórí
„ÞAÐ var mjög mikið að gera um tíma. Við náðum ekki alltaf að
anna eftirspurn; fólk þurfti að bíða einn eða í mesta lagi tvo daga,
en við náðum að hreinsa upp allt sem fyrir lá á laugardag," sagði
Gunnar Kristinsson, hitaveitustjóri í Reykjavík, í samtali við Morgun-
blaðið vegna þeirra vandræða sem fólk hefur orðið fyrir vegna
gruggs í vatni sem settist í inntakssíur húsa fyrir stuttu. „Ég vona
að ástandið sé að komast í eðlilegt horf,“ sagði Gunnar.
Hitaveitustjóri sagði hita hafa
lækkað í húsum og vatnskraft
minnkað, en fólk hefði ekki þurft að
bera neinn beinan kostnað vegna
ástandsins. Morgunblaðið veit dæmi
þess að grugg hafi farið gegnum
síur og inn í ofna, en Gunnar sagð-
ist teija ólíklegt að ofnar gætu
skemmst af þessum völdum. „Það
'eru 0,5 og 0,7 millimetra göt á síun-
um, þannig að það er þá eitthvað
fíngert sem kemst í gegn. Það er
þó ekki ólíklegt að eitthvað hafi get-
að farið inn í kerfin en við höfum
ekki fengið neinar þess háttar kvart-
anir.“ Hann sagði gruggið geta
stíflað ventla á ofnum en ekki ætti
að vera erfitt að kippa því í lag.
Umrætt grugg er ryð úr 27 km
langri pípu frá Nesjavöllum sem byij-
að var að nota í ágúst. Hitaveitu-
stjóri sagði ekki útilokað að meira
grugg losnaði úr pípunni ef mikið
frost skylli á; nefndi 1Ö gráður í því
sambandi, en sagðist ekki reikna
með að ástandið yrði eins slæmt og
um daginn þó eitthvað losnaði til
viðbótar af ryði í pípunni. „En ég
vona auðvitað að við höfum séð fyr-
ir endann á þessu,“ sagði Gunnar.