Morgunblaðið - 29.11.1990, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1990
GIMLIGIMLI
Þorsgat.i 26 2 hæö Sinu 25099 ^ Þorsgata 26 2 hæd Simi 25099 ^
HÁTÚN - LYFTUHÚS
s ee3 æ
ara œ
■iiaimi[BW aa sa i HBsa œ
linilnilil 1 lnili>!lnil
Höfum ti! sölu stórglæsilegar 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir sem afh. tilb. undir
trév. með fullfrág. lóð og sameign. Afh. í jan.-febr. 1991. Byggingaraðili: Giss-
ur og Pálmi. Teikn. og allar nánari uppl. á skrifst.
-S* 25099
Einbýli - raðhús
BOLLAGARÐAR
Fallegt ca 190 fm endaraðhús á tveimur
hæðum með góðum innb. bílsk. 4 svefn-
herb. Skemmtil. skipulag. Parket á stof-
um. Ákv. sala.
KAMBASEL
Ca 227 fm raðhús á tveimur hæðum
ásamt risi. Stórar stofur, 4 svefnherb.
Hagst. áhv. lán ca 2,5 millj. Verð: Tilboð.
SMYRLAHRAUIM - HF.
- RAÐHÚS + BÍLSK.
Ca 150 fm raðhús á tveimur hæðum. 4
svefnherb. Ákv. sala. Parket á herb.
KRÓKABYGGÐ - MOS.
- NÝTT PARHÚS
Glæsil. 116 fm parhús að mestu leyti
fullfrág. Garður mót suðri frág. Áhv. 3,3
millj. við húsnæðisstj. og 800 þús. til 5
ára. Ákv. sala. Verð 8,2 millj.
ÞINGÁS - EINB.
Glæsil. 152 fm einb. á einni hæð
ásamt 50 fm tvöf. bílsk. Húsið er
fullb. m. vönduðum innr. Glæsil.
nýstands. garður. Eign í sérfl.
5-7 herb. íbúðir
VEGHÚS - 6 HERB.
- ÁHV. 4,6 MILU.
Gfæsil. ca 140 fm 6 herb. íb. á
tveimur hæðum í nýju glæsil. fjölb-
húsi á eftirsóttum stað í Grafar-
vogi. Endaíb. mjög vel skipulögð.
Hringstigi kominn. Verð 8,3 millj.
ÁLFHOLT - HF.
- ÁHV. 4,6 MILU.
Stórgl. 120 fm íb. í gfæsil. nýju iitlu
fjölbhúsi. Afh. tilb. u. trév. að innan
með fullb. sameign. Áhv. lán við
húsnstjórn ca 4,6 miilj.
HOFSVALLAGATA
Falleg 110 fm neðri hæð ásamt
aukaherb. í kj. 33 fm bílsk. í góðu
standi. Arinn. Nýl. gler. V. 8,6 m.
4ra herb. íbúðir
HRÍSATEIGUR
Falleg 4ra herb. hæð í steyptu tvíbhúsi.
Endurn. gler og rafmagn. Eign í góðu
standi. Sérinng. Laus strax. V. 6950 þ.
KAPLASKJÓLSVEGUR
Mjög falleg 4ra herb. íb. á 3. hæð í KR-
blokkinni. Tvennar svalir. Parket. Fallegt
útsýni. Hús nýl. endurn. að utan. Áhv. 2
millj. viö veðdeild. Verð 8,2 millj.
VANTAR 4RA HERB.
- HRAUNBÆ
Höfum fjárst. kaupanda að góðri 4ra-5
herb. íb. í Hraunbæ. Ef þú ert í söluhug-
leiðingum hafðu þá vinsamlega samband
strax.
AUSTURBERG - BÍLSK.
Mjög falleg 4ra herb. íb. á 4. hæð ásamt
bílsk. Suðursv. Fallegt útsýni. Laus. Lyklar
á skrifst. Verð 6,5 millj.
KEILUGRANDI - 4RA
Góð 105 fm 4ra-5 herb. íb. á 2. hæö í
fullb. nýl. fjölbh. ásamt stæði í fullb.
bílskýli. 3 svefnh. Suðursv. Mjög ákv. sala.
VANTAR 4RA HERB.
GRAFARVOGI
Höfum traustan kaupanda að góöri
4ra-5 herb. íb. í Grafarvogi. Ef þú
ert í söluhugleiöingum þá vinsam-
lega hafðu samband.
3ja herb. íbúðir
BARMAHLÍÐ
Falleg 3ja herb. íb. í kj. Mikið endurn.
Nýtt gler. Laus um áramót. Verð 5,2 millj.
KEILUGRANDI
Glæsil. ca 90 fm 3ja-4ra herb. íb.
á tveimur hæðum ásamt stæði í
bílskýli. Parket. Suðursv. Fallegt
útsýni. Mögul. á 3 svefnherb. Áhv.
2,2 milij. hagst. lán.
FLYÐRUGRANDI
Góð 3ja herb. ib. i eftirsóttu fjölb-
húsi. 2 svefnh. Þvottah. á hæð.
Sauna i sameign. Mjög ákv. sala.
Verð 6.2-6,3 millj.
VÍÐIHVAMMUR - KÓP.
ÁHV. 2,3 M. V. 5,9 M.
Falleg 3ja-4ra herb. efri hæö með sér-
inng. í grónu hverfi í Suðurhlíðum Kóp.
Glæsil. útsýni.
HRÍSMÓAR - 3JA
Glæsil. 3ja herb. rúmg. íb. í lyftuhúsi.
Nýjar innr. Sérgeymsla og -þvhús. Áhv.
gott húsnlán.
KRUMMAHÓLAR - LAUS
Falleg 3ja herb. íb. á 3. hæð ásamt stæði
í bílskýli. Geymsla á hæð. Verð 5,6 millj.
SELÁS - BÍLSKÚR
Glæsil. 3ja herb. íb. á 2. hæö ásamt bílsk.
Tvennar svalir. Fallegt útsýni. V. 7,7 m.
VANTAR - 3JA
- ÞINGHOLTIN
Höfum traustan kaupanda að 3ja-4ra
herb. íb. í Þingholtunum. Má þarfnast
standsetn.
2ja herb. íbúðir
HVERAFOLD
Glæsil. 74,5 fm 2ja herb. íb. á neðri hæð
í tvibhúsi. Fullb. eign. Frág. garður. mjög
góð staðsetn. Áhv. hagst. húsnlán.
HRAUNBÆR - 2JA
Falleg 2ja herb. íb. á sléttri- jarðhæð.
Nýl. eldhús og danfoss. Ákv. sala. Verð
4,3 millj.
VESTURBERG - 2JA
Falleg íb. á 1. hæð 63,6 fm. Góðar innr.
Ákv. sala. Verð 4,7 millj.
ÁSBRAUT
Snotur lítil 2ja herb. íb. á 2. hæð. Ákv.
sala. Verð 3,6 millj.
JÖKLAFOLD - BÍLSK.
Glæsil. 2ja herb. íb. á 3. hæð ásamt bílsk.
í litlu fjölbhúsi. Vandaðar innr. Laus strax.
Áhv. veðdeild ca 2.300 þús. Verð 6,5 millj.
AUSTURSTRÖND -
VEÐDEILD 2,0 MILLJ.
Falleg 2ja herb. íb. í vönduðu, fullb.
fjölbhúsi ásamt stæði í bílskýli.
Stórglæsil. útsýni í norður. Áhv.
2,0 millj. veðd. Verð 5,4 millj.
HJARÐARHAGI
Mjög falleg 40 fm ósamþ. einstaklíb. í
toppstandi. Ákv. sala. Verð 2,8 millj.
FROSTAFOLD
Stórglæsil. 2ja herb. 63ja fm nettó íb. á
5. hæö í lyftuh. Allt fullfrág. innan sem
utan. Sérþvottah. Áhv. húsnmálalán ca
3,0 millj. Eign í sérfl.
VESTURBERG - LAUS
Mjög falleg 73 fm íb. á 2. hæö. Vestursv.
Eign í toppstandi. Laus strax. Lyklar á
skrifst. Húsvörður. Þvhús á hæöinni.
VANTAR 2JA HERB.
Á SÖLUSKRÁ
Vegna mikillar sölu undanfarið í 2ja
herb. íb. vantar okkur tilfinnanlega
2ja herb. íb. á söluskrá okkar.
Fjölmargir kaupendur.
Árni Stefánsson, viðskiptafr.
ptotggsssÞIiifrife
Hringvegurinn og
Hin hlið Islands
__________Bækur_______________
HaraldurSigurðsson
Ari Trausti Guðmundsson:
A ferð um hringveginn.
Reykjavík: Líf og saga, 1990. 258
bls. í stóru fjögurra blaða broti.
Ari Trausti Guðmundsson og
Hreinn Magnússon:
Hin hlið Islands.
Reykjavík: Líf og saga, 1990. 88
bls. grbr.
Ari Trausti Guðmundsson er jarð-
eðlisfræðingur og afkastamikill rit-
höfundur um sín fræði. Meðal ann-
ars hefur hann ritað kennslubók í
jarðfræði og rit um íslenskar eld-
stöðvar, sem kom út fyrir nokkrum
árum, auk útvarps- og sjónvarps-
þátta og fjölda blaðagreina.
Að þessu sinni tekst Ari Trausti
ferð á hendur um hringveginn eða
veg 1 eins og hann heitir á máli
vegamálastjómarinnar. Lagt er upp
frá Reykjavík og haldið austur og
norður um land, og er lesandanum
bent á hið helsta sem fyrir augun
ber á leiðinni. Hefst frásögnin þegar
komið er upp að Lækjarbotnum og
lesandanum sýnd Tröllabörnin, en
þau eru sérkennileg gervigígaþyrp-
ing við veginn. Þar fær lesandinn
að heyra allt um eðli þeirra og ætt-
erni. Síðan er ferðinni haldið áfram,
uns loks er staldrað við í Elliðaár-
dalnum, áður en komið er aftur í
bæinn eftir 1470 km akstur, og eru
þá ekki taldir með nokkrir smærri
útúrdúrar, krókar og vik frá vegi til
athyglisverðra fyrirbæra í grennd við
veginn. Stundum verður ráðlegast
að taka til fótanna, ef stofna á til
nánari kynna við sumar af furðum
landsins, sem blasa við ekki ýkja
langt úr leið, en oft verðum við að
láta okkur nægja frásögn höfundar-
ins eða gera aðra ferð á vit þeirra
fyrirbæra. Þannig víkur frásögninni
alla leið upp að og inn fyrir Veiði-
vötn, þegar ekið er austur Flóa og
yfir Veiðivatnahraun, upp til Kverk-
fjalla af Möðrudalsöræfum, og
Herðubreiðar af Mývatnsöræfum. Til
slíkra ferða er vænlegast að hafa
traustara farartæki en venjulegan
langferðabíl, að minn'sta kosti til
Kverkfjalla og Herðubreiðar.
Höfundurinn segir í formála bók-
arinnar, að tilgangur hennar sé „að
miðla fróðleik um valda staði eða
valin fyrirbæri, sem blasa við af þjóð-
vegi 1. Áhersla er lögð á jarðfræð-
ina, en þar að auki er eitt og annað
tínt til af sögulegum, bókmenntaleg-
um og almennum fróðleik." í bókinni
gerist þetta á þann hátt, að höfund-
urinn velur sér 75 áningarstaði á
leiðinni. Þar tekur hann lesandann
undir hönd sína, og sýnir honum þá
hulduheima sem blasa við, og jarð-
fræðingar einir sjá og kunna veruleg
skil á. Hann sýnir honum hvemig
landið mótaðist og þreyttist, hlóðst
upp og rofnaði á ný við átök elds
og ísa, bendir á fornar megineld-
stöðvar, þar sem nú sést ekki annað
eftir en lítt athyglisverðar rústir, ef
þær eru ekki algerlega horfnar af
yfirborði jarðar, huldar nýrri jarðlög-
um að meira eða minna leyti, jafnvel
sokknar í hafið. Það er ef til vill
ekki svo auðvelt fyrir okkur að trúa
því og enn erfiðara að skilja það, að
einu sinni hafi verið „hátt eldfjall,
þar sem nú eru Sundin við Reykjavík
og Kollafjörður". Þetta segja jarð-
fræðingamir okkur og við stöndum
varnarlausir gegn visku þeirra og
neyðumst til að trúa. Jarðfræði-
vísindi hafa sótt fram síðari árin og
rannsóknir aukist. Eldri hugmyndum
hefur verið hrundið og nýjar í mót-
un. Mig grunar t.a.m., að mælingar
á gjósku í rúmmetrum og rúmkíló-
metram sé ekki ýkja traustur fróð-
leikur, ekki síst ef um öskugos er
að ræða, enda ber líklega helst að
líta á slíkar tölur sem vinnutilgátur.
Tæpur helmingur bókarinnar fjall-
ar um Austurland eða svæðið milli
Jökulsár á Sólheimasandi og Jökuls-
ár á Fjöllum, enda er það svæði býsna
athyglisvert frájarðfræðilegu sjónar-
miði og hefur verið töluvert rannsak-
að hin síðari ár. Hvergi á landinu
er náttúran jafn fjölbreytt. Jöklar
mestir og atorkusamastir, fjöllin
tigulegust með tindum sínum og
strípum og gerð jarðlaga fjölbreytt-
ust.
Mér er það um megn að gera
fræðilega úttekt á frásögn Ara
Trausta. Frásögnin er hvarvetna á
léttu og lipru máli og auðsætt, að
höfundurinn hefur glöggt auga fyrir
þeim náttúmfyrirbæmm er verða á
leið hans og meðfram henni. Lýsing-
in er öll hin gleggsta og frásögnin
hófsamleg og laus við málalenging-
ar. Þó get ég ekki varist því, að mér
þykir orðið afgösun (bls. 10) herfí-
FASTeiGNASALA
VITASTÍG 13
Krummahólar. 2ja herb. íb. ca 45 fm auk bílskýlis. Mikiö endurn. Gott húsnián áhv. Verö 4,3 millj. Arahólar. 2ja horb. íb. 55 fm á 7. hæð f lyftuhúsi. Hús i toppstandi. Glæsil. fjölbýli. Verð 4,5 millj.
Drápuhlíd. 3ja herb. íb. í kj. Góð lán áhv. Verð 4,5 millj. Kaplaskjólsvegur. 4ra herb. íb. 95 fm á 1. hæð. Parket. Verð 7,5 millj.
Lyngmóar. 3ja herb. falleg
ib. 92 fm auk bílsk. Verð 7,8 millj.
Framnesvegur. 3ja herb.
íb. 57 fm i tvíbhúsi. Verð 3,5 millj.
Einarsnes. 3ja herb. ib. 53
fm í risi. Verð 3,5-3,7 millj.
Lyngás — Gbæ. 3ja herb.
ib. á jarðh. 108 fm. Ib. selst tilb.
u. trév. Nýl. húsnlán. Verð 6,5 millj.
Klapparstígur. 3ja herb.
ib. 112 fm. Fráb. útsýni. íb. skilast
tilb. u. trév. Til afh. strax.
Ljósheimar. 4ra herb. íb.
103 fm á 5. hæö. Fallegt útsýni.
Góð lán áhv. Verð 6,5 millj.
Hraunbær. 4ra-5 herb. ib.
á 3. hæð. Suðursv. Fallegt útsýni.
Verð 7,0-7,2 millj.
Melabraut. 4ra herb. sérh.
ca 100 fm auk bilsk. Frábært
útsýni. Verð 8 millj.
Granaskjól. 5 herb. sérh.
146 fm auk 30 fm bílsk. Verð 11
millj.
Logaland. Raöhús á tveim-
ur hæöum 218 fm auk bílsk.
Suöurgarður.
Hjallasel. Endaraöhús 244
fm með innb. bílsk. Mögul. á
séríb. á jarðhæö, einnig á garö-
stofu. Verð 12,5 millj.
Garðhús. Parhús á tveimur
hæðum 195 fm með innb. bílsk.
Húsið selst fullb. að utan og tilb.
u. trév. að innan. Verð 10,5 millj.
Til afh. strax.
Gunnar Gunnarsson,
lögg. fasteignasali, hs. 77410.
Svavar Jónsson hs. 657596.
Ari Trausti Guðmundsson
lega ljótt stofnanaorð. Sem betur fer
held ég að það komi ekki fyrir nema
í þetta eina skipti. Inn í frásögnina
eru fleygaðir, oftast í sérstakri um-
gjörð, kaflar úr þjóðsögum og eldri
fræðiritum, sem tengjast staðalýs-
ingunni og gefa henn líf og færa
hana nær bjástri okkar mannanna,
tengja saman land, þjóð og sögu.
Það mun þykja óbjörgulegt, að
rita svo um bók að ekkert sé fundið
að henni. Til þess skortir mig um
of þekkingu á megin viðfangsefni
bókarinnar, að úr slíku verði annað
en kák. Þó vil ég benda á fáein at-
riði. Á bls. 32 er þess getið, að liðin
séu rúmlega 980 ár frá Heklugosinu
1104. Þau eru auðvitað ekki nema
rúmlega 880. Taldir eru upp þeir sem
fyrstir hófu rannsóknir á brenni-
steinssvæðunum í Suður-Þingeyjar-
sýslu, án þess að geta þeirra Eg-
gerts og Bjarna sem einmitt hófu
þær árið 1752 (bls. 174). Sagt er frá
göngu Englendinga á Eiríksjökul og
Olafur bóndi í Kalmanstungu talinn
fylgdarmaður þeirra. Ólafur fæddist
ekki fyrr en 1865, að sögn Kristleifs
á Stóra-Kroppi. Það mun hafa verið
Stefán faðir hans sem fylgdi þeim á
íjallið (bls. 222). Á bls. 229 segir svo
frá, að Homsdalur (Hornsárdalur)
sé vestan Skessuhoms, en hann er
austan þess. Allt er þetta smávægi;
legt og sumt ef til vill prentvillur. I
sambandi við gönguna á Eiríksjökul
má geta þess til gamans, að einn
þátttakendanna í förinni var George
Webbe Dasent, sem fyrstur þýddi
Njáls sögu á ensku og átti auk þess
dijúgan þátt í útgáfu mikillar
íslensk-enskrar orðabókar, sem löng-
um er kennd við þá Cleasby og Guð-
brand Vigfússon.
í bókinni em á annað hundrað lit-
myndir og koma þar átján höfundar
og stofnanir við sögu. Langflestar
þeirra eru eftir Rafn Hafnfjörð, og
hygg ég þær vafalaust jafnbestar.
Mikill fengur er bókinni að flestum
þeirra og margt skýra þær fyrir le-
sandanum, þótt sumar séu ef til vill
fremur til skrauts en skýringar. Eitt
er víst að margar þeirra em stórfal-
legar. Auk myndanna er fjöldi upp-
drátta og skýringarmynda. Sumar
þeirra em teknar upp úr eldri bókum
eða dregnar upp með hliðsjón af
þeim af Gunnari H. Ingimundarsyni,
en aðrar em lesandanum til skilnings
á efni frásagnarinnar og em þær
eftir höfundinn. Auk þess hefur Har-
aldur Haraldsson teiknað nokkrar
smærri myndir eins og af fuglum við
kaflafyrirsagnir. Litgreining og
prentun myndanna hefur tekist vel
eins og raunar gerð bókarinnar allr-
ar.
Hin hlið íslands. Af nafninu virð-
ist helst ráðið, að bókin sé að ein-
hverjum hætti viðauki við hring-
ferðabókina. Þó er hún það í raun-
inni ekki, heldur sjálfstætt rit. Bókin
hefur að geyma rúmlega áttatíu
myndir, flestar úr fjallgöngum í ná-
grenni Reykjavíkur, um Suðuijökla
og sunnanverðan Vatnajökul. Um
verkaskiptingu höfundanna er ekkert
talað en helst virðist mér, að Hreinn
Magnússon hafi gert myndirnar en
Ari Trausti ritað stuttan texta sem
þeim fylgir og birtur er á íslensku,
ensku og þýsku. Flestar myndanna
eru prentaðar í litum. Nokkrar þeirra
em snotrar, þó að tæpast verði það
sagt um þær allar. Þær minna mig
helst á safn tjósmynda sem margir
taka heim með sér til minja úr ferða-
lagi og til að sýna kunningjunum,
án nokkurs sérstaks tilgangs eða
bakþanka. Þó em sumar klifurmynd-
irnar ekki óskemmtilegar. Þetta er
ugglaust þægilegt kver til þess að
stinga i höndina á útlendum kunn-
ingja, en um leið meinlega einhæft
til slíkra bragða.