Morgunblaðið - 29.11.1990, Page 12
augljós
MOÚGUNBLADIT) ’FÍMMTUDAGUR 29: NÓVUMBKR T«Í90
t-
ÚR ISSRÁP FRÁ LEC
ENSKIR SKAPAR A FRABÆRU VERÐI
KÆLISKAPUR 215 L
KÆLISKAPUR MEÐ FRYSTI 215 L
KÆLISKAPUR 113 L
KÆLISKAPUR MEÐ FRYSTI 113 L
GOTT VERÐ-GÖÐ KIÖR-GOÐ WÓNUSTA
HEIMIUS- OG RAFTÆKJADEILD
Andlit að utan
_________Myndlist_______________
EiríkurÞorláksson
Um þessar mundir er að ljúka
sýningu Sigrid Valtingojer í Gallerí
einn einn við Skólavörðustíg. Lista-
konan hefur undanfarin ár unnið
mest með íslenskt landslag í sinni
grafík, og því kemur efni þessarar
sýningar nokkuð úr annarri átt en
fólk á að venjast frá hennar hendi.
Listakonan hefur lýst því í við-
tölum, að hún hafi dvalið í nokkra
mánuði á síðasta ári í París og heill-
ast þar af umhverfinu, þ.e. fyrst
og fremst hinu mannlega umhverfi.
Þar sé að finna fólk úr öllum heims-
hornum, auk þess fjölda safna, sem
hafa dregið að sér listamenn sem
aðra gesti um áratuga skeið.
Andlit mannanna hafa fangað
listamenn meira en nokkuð annað
viðfangsefni allt frá upphafi tímans.
Þar er að finna einkenni hverrar
persónu fyrir sig, þau eru spegill
sálarinnar og vottur allra skap-
brigða sem mannlegt eðli hýsir.
Meira að segja kúbistamir töldu
andlitið heppilegasta efniviðinn í
tilraunir sínar með formin, og nýttu
sér þar þekkingu á list framstæðari
þjóða, þar sem andlitsgríman
gegndi mikilvægu hlutverki. Það
er ekki furða að Sigrid hafi fundið
þetta í mannmergð stórborgarinn-
ar, auk þess sem þjóðlistasöfnin þar
hafa sjálfsagt einnig orðið henni
dijúgur brannur.
í myndunum á sýningunni má
sjá ákveðinn feril í því hvemig lista-
konan hefur tekist á við verkefnið.
Fyrstar í þeim ferli era krítar-
teikningarnar, sem hún hefur unnið
á pappír. Þarna getur að líta helstu
andlitsdrættina, nef og augu, og
minna margar myndanna á afrískar
grímur eða fyrstu tilraunir Picasso
og Bra.que á sviði kúbismans um
1907. Hins vegar era krítarlitimir
nokkuð daufir á gráum pappímum,
og verka myndimar flatari en ella
þess vegna.
Þessu næst mun Sigrid hafa unn-
ið litlar grafíkmyndir, sem bera með
sér ýmsa þætti úr krítarteikningun-
um, en era sterkari í dráttum vegna
ætingartækninnar. Endanlegur
svipur þeirra mótast síðan af lífleg-
um vatnslitum, sem gefa þeim sér-
stakan blæ, og má í því sambandi
benda á „Einfari II“, „Samviskan
11“ og „Komdu nú I“. Þessar mynd-
ir eru einn besti
hluti sýningarinnar.
Út frá þessum smærri grafík-
myndum hefur listakonan að lokum
unnið stórar grafíkmyndir, sem hún
tengir sögu Islands og gefur nafn
Hrafna-Flóka. Grímur sem slíkar
Sigrid Valtingojer:
Hrafnaflóki. 1990.
eru ekki þekktar í fornsögu okkar,
ef öndvegissúlur eru undanskildar,
en þar fyrir er ekki hægt að hafna
slíkum tengslum, þar sem grímur
bera oftar en ekki með sér tákn sem
tengja þær víðara samhengi, t.d.
öndum, veiðum og loks landakönn-
un, eins og má lesa í línurnar hér.
Segja má að þessi sýning sé öll
afrakstur dvalar listakonunnar í
París. Þar sem hér er um að ræða
talsverða breytingu frá því sem hún
hefur verið að gera undanfarin ár,
verður tíminn að leiða í ljós hvort
hér er um að ræða örlítið hliðarspor
í ferli hennar eða eitthvað meira.
Viðfangsefnin nú eru ef til vill per-
sónulegri en oft áður, og aldrei að
vita nema þau hafi varanleg áhrif
á verkefnaval listakonunnar.
Sýningu Sigrid Valtingojer í Gall-
erí einn einn lýkur fimmtudaginn
29. nóvember.
Bubbi Morthens
Bók um Bubba
verslana- og þjónustumiftslöft
í hjarta Kópavogs
„viÖ erum i leiðinni . . .
. . . næg bííastæði"
Opið alla laugai'daga til kl. 16.00
HAMUBORG
ff
Allt á einum stað"
Eftirtalin fyrirtæki standa að þessari auglýsingu:
Bakhúsið • Blómahöllin • Bræðraborg • Búnaðarbanki íslands • Bylgjan hárgreiðslustofa og snyrtivöruverslun
Doja tískuverslun • Filman • Gleraugnaverslun Benedikts • Hannyrðaverslunin Mólí • íslandsbanki • Klukkan
Kópavogs Apótek • Mamma Rósa • Nóatún • Óli Prik • Ratvís • Sevilla • Skóverslun Kópavogs • Sólarland
Sportbúð Kópavogs • Sveinn Bakari • Telefaxbúðin • Tónborg • Veda bókaverslun • Verslunin Inga
Vídeómarkaðurinn • VÍS - Vátryggingafélag íslands
eftir Silju Aðal-
steinsdóttur
ÚT ER komin hjá Máli og menn-
ingu bókin Bubbi eftir Silju Aðal-
steinsdóttur og Asbjörn Morth-
ens.
Bubbi Morthens fór fyrst af al-
vöru að láta að sér kveða í íslensku
tónlistarlífi fyrir 10 árum og vakti
þá dæmafáa athygli. Margir töldu
að þar hefði verið brotið blað í ís-
lenskri dægurtónlist. Vinsældir
hans hafa ekki dvínað síðan. Bókin
varpar ljósi bæði á feril Bubba og
merkilegan þátt í íslensku menning-
arlífi. I henni segir Bubbi frá
bemsku sinni og uppvexti, mis-
heppnaðri' skólagöngu og litríkum
tíma sem farandverkamaður, frá
árunum í rokkinu en líka frá freist-
ingum dópsins, sorginni og ástinni.
í bókinni sem er 286 bls. era á
annað hundrað ljósmyndir, fjöldi
texta er birtur og sömuleiðis ér þar
að finna ítarlega plötu- og laga-
skrá. Hönnun bókarinnar annaðist
Björn Br. Bjömsson en hún er
prentuð í prentsmiðjunni Odda hf.