Morgunblaðið - 29.11.1990, Blaðsíða 13
MQR(;UNm.ABI» FIMMTlJDAQVfi NÓVEMBEIt 1990
P
Light
I
Viewer
Image
Ljjós — Almynd — Myndlíki — Skoðandi
ALMYNDIR
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
í anddyri Norræna hússins var
sl. laugardag opnuð merkileg sýn-
ing, sem nefnist „Heilmyndir"
(Hologram).
Hér er um að ræða byltingar-
kennda aðferð við töku ljósmynda
með samloðandi ljósi leysigeisl-
ans, og þótt framþróun tækninnar
komi manni töluvert á óvart nú
þegar, þá markar þetta aðeins
upphafíð, eins og svo margt í
hátækni samtímans. Minnumst
þess að saga ljósmyndarinnar er
rúmlega 150 ára og sennilega
höfum við ekki ímyndunarafl til
þess að gera okkur í hugarlund
hvemig þróunin verður næstu
áratugina og hvað þá 150 ár fram
í tímann!
Þegar mig bar að garði við
opnun sýningarinnar voru þar
örfáir gestir og minnist ég þess
ekki að hafa verið við jafn fá-
menna opnun, en vonandi verður
það til þess að þeim mun fleiri
skoða sýninguna í ró og næði og
það er aðalatriðið.
Orðabókin nefnir athöfnina
hvorutveggja „heil- sem almynd-
un“ og er það réttnefni vegna þess,
að það er sem hluturinn standi ljós-
lifandi þráðbeint frammi fyrir skoð-
andanum.
Á seinni hluta sjötta áratugarins
fóru myndlistarmenn að nota
tæknina, t.d. Bruce Nauman og
Robert Indiana í Ameríku, D. Jung
og H.M. Mielke í Þýskalandi og
C.F. Reutersward í Svíþjóð. Einnig
hefur tæknin verið notuð af um-
hverfíslistamönnum og menn hafa
notað hana ásamt speglatækni við
leikmyndir.
Stundum er tæknin nefnd
„gluggi með minni“ því að það er
eins og maður sé að horfa út um
glugga og að myndefnið sé svíf-
andi í rýminu fýrir framan skoð-
andann.
Fræðikenningin sjálf, hvernig
hægt væri að gera almynd, er
nokkuð eldri en leysitæknin. Árið
1948 uppgötvaði eðlisfræðingurin
Dennis Gabor möguleikana á að
framkalla þrívíðar myndir með að-
stoð hreins og velskipulagðs ljóss.
En fyrst þegar leysigeislatæknin
kom fram í upphafí sjötta ára-
tugarins var mögulegt að búa til
almynd. Þar með var sannað að
fræðikenning Dennis Gabors væri
rétt og voru honum veitt Nóbels-
verðlaunin í eðlisfræði árið 1971.
Orðið holografi er tekið úr grísku
og þýðir alskrift eða heilskrift og
við tæknina notast menn hvorki
við ljósmyndavél né linsur. í stað-
inn lýsir maður myndefnið með
leysigeisla, samloðandi ljósi.
Munurinn á venjulegu ljósi og
leysigeisla er að leysigeislinn er
mjög hreint og vel skipulagt ljós.
Leysigeislinn er „mónókrómatísk-
ur“ þ.e.a.s. ein Ijósbylgja, sem
numið getur alla liti og hefur eina
vegalengd (lit) og er samloðandi.
Þeim sem ekki skilur þetta skal til
nánari útlistunar bent á, að augað
nemur einungis almyndina rétt
standi maður beint fyrir framan
hana.
Til gamans má svo geta, að
kostnaðurinn við útbúnaðinn við
að gera almyndir fer eftir stærð
og fulikomnun og er á bilinu nokkr-
ir tugir þúsunda og upp í hálfa
milljón.
Það var heilmikið ævintýri að
skoða þessar myndir í anddyri
Norræna hússins og það svíkur
engan að kynnast þessari merki-
legu tækni, sem mun koma flestum
á óvart, og er þó einungis upphafið.
Maður þakkar fyrir sig.
Frásagnir af æskuástum
BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hefur sent frá sér bókina Ég elska þig.
Hún hefur að geyma níu smásögur og frásagnir eftir íslenska höf-
unda. Sögurnar eru allar samdar sérstaklega fyrir þessa útgáfu.
„Þetta eru sögur um æsku og
ástir“ segir í kynningu Forlagsins.
„Sögur sem ylja unglingum á öllum
aldri um hjartarætur, kveikja
drauma, vekja ljúfsárar minningar
og fá jafnvel suma til að roðna. Þær
lýsa fyrsta fálmi unga fólksins á
ástarbrautinni, augnaráðum, koss-
um, boðum og bönnum. Sumar sög-
urnar bera með sér blæ endurminn-
ingarinnar, og allar eru þær úrvals
skáldskapur, einlægar, ástríðufullar
og skemmtilegar."
Um ástir unglinganna skrifa þau
Guðbergur Bergsson, Guðmundur
Andri Thorsson, Magnea J. Matt-
híasdóttir, Nína Björk Árnadóttir,
Olga Guðrún Árnadóttir, Ólafur
Haukur Símonarson, Ólafur Gunn-
arsson, Sigurður A. Magnússon og
Stefanía Þorgrímsdóttir.
Ég elska þig er 152 bls. AUK
hf./Jóna Sigríður Þorleifsdóttir
hannaði kápu. Prentsmiðjan Oddi
prentaði.
Áskriftarshninn er 83033
Mjófirðingasögur III
eftir Vilhjálm komnar út
BÓKAÚTGÁFA Menningarsjóðs hefur gefið út ritið Mjófirðingasög-
ur III eftir Vilhjálm Hjálmarsson á Brekku, en fyrri bindi þeirra
komu út 1987 og 1988. Er þetta áttunda bók Vilhjálms er gerst
hefur mikilvirur höfundur á síðari árum.
Útgefandi kynnir Mjófirð-
ingabækur III þessum orðum á
kápu: „Þriðji hluti af Mjófirðinga-
sögum Vilhjálms Hjálmarssonar á
Brekku, fyrrum alþingismanns og
ráðherra, rekur enn byggðarsöguna
í átthögum höfundar eystra og
spannar bólstaði norðan fjarðar.
Lýkur með honum yfírferð sem
hófst út undir Nípu en endar á
Dalatanga. Hefur þá verið farin
boðleið um Mjóafjörð og greint frá
jörðum þar, búsetu og mannlífi.
í Mjófirðingasögum eru taldir
upp allir kunnir mannabústaðir í
Mjóafírði og eftir því sem til vannst,
allir húsráðendur eða heimilisfeður
frá því um 1700. Æviágrip eru
nærri 370 í ritinu.“
Höfundur segir í formála að Mjó-
firðingasögum III: „Sá er munur á
öðrum og þriðja hluta þessara frá-
sagna, að í hinum fyrri, sem fjallar
um Suðurbyggð og Fjarðabýli, lýk-
ur sögu byggðar að mestu á 6. tug
Friðarboðskapur
Jesú Krists
aldarinnar. Á því svæði sem hér er
sagt frá eru aftur á móti tíu heim-
ili þegar þetta er ritað, og frásögn-
in nær til „dags dató“ eins og þar
stendur."
Mjófírðingasögur III skiptast í
fjóra meginkafla: Norðurbyggja
þátt I, Þorpsbúa þátt, Norður-
byggja þátt II og Dalakálks þátt.
Myndir í bókinni eru 515 talsins,
en 980 í ritinu öllu. ítarleg nafna-
skrá fylgir þessu bindi eins og hin-
um fyrri.
Mjófírðingasögur Vilhjálms á
Brekku segja frá svipmikilli byggð
og sérstæðum persónuleikum. Ritið
er austfirsk skuggsjá og merkilegur
hluti af íslandssögu.
Mjófirðingasögur III eru 518 bls.
að stærð. Bókin er unnin í Prent-
smiðjunni Eddu, en kápu gerði Sig-
urður Örn Brynjólfsson. Kápumynd
er af Dalatanga og Akurfelli, tekin
af Jóni Snorrasyni.
Vilhjálmur Hjálmarsson
VÍSDÓMS-útgáfan gefur út í
íslenskri þýðingu handrit sem ber
titilinn Friðarboðskapur Jesú
Krists.
I kynningu útgefanda segir
m.a.„að þama sé um að ræða 1. ald-
ar handrit sem rituð voru á ara-
meisku af lærisveininum Jóhannesi,
þar sem sagt er frá andlegum lækn-
ingum Jesú Krists."
Þýðing arameiska frumtextans á
ensku var unnin af Dr. Edmond
Bordeaux Szekely en íslenska þýð-
ingu gerði Ólafur Ragnarsson með
aðstoð Óskars Ingimarssonar. ís-
lensk bókadreifíng sér um dreifingu
bókarinnar.
í formála Dr. Szekelys segir eftir-
farandi: „Rétt um tvö þúsund ár eru
liðin frá því að Mannssonurinn
kenndi mannkyninu veginn, sann-
leikann og lífið. Hann færði heil-
brigði til hinna sjúku, visku til hinna
fáfróðu og hamingju til þeirra er
þjáðust af andlegri vanlíðan. Orð
hans urðu hálf gleymd og var ekki
safnað saman fyrr en nokkrum kyn-
slóðum eftir að þau voru kunngerð.
Þau hafa verið misskilin, ranglega
Útskýrð, ótal sinnum endurskrifuð
og ótal sinnum umbreytt, samt sem
áður hafa þau þrátt fyrir allt varð-
veist í nærri tvö þúsund ár. Og þó
að orð hans eins og þau koma fram
fyrir okkur í dag í Nýja testament-
inu, hafa verið hræðilega afbökuð
og þeim misþyrmt, hafa þau þrátt
fyrir allt sigrað hálft mannkynið og
alla menningu Vesturlanda. Það er
þung ábyrgð að lýsa því yfír að
-.■Nýja testamenti líðandi stundar, sem
er undirstaða allrar kristinnar kirkju,
sé afmyndað og breytt, en engin trú-
arbrögð eru æðri sannleikanum."
BORG
Listmunir-Sýningar-Uppboð
Pósthússtrati 9, Austurstrati 101 Reykjavík
Sími: 24211, P.O.Box 121-1566
Listmunauppboð
nr. 30
Haldið í samvinnu við
Listmunauppboð Sigurðar Benediktssonar hf.
að Hótel Sögu
fimmtudaginn 29. nóvember 1990
kl. 20:30
Ath!
Símar á uppboðsstað 985-28167 og 985-28168