Morgunblaðið - 29.11.1990, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1990
Forskólanemendur spila í Hafnarborg.
Hvers vegna hljóðfæranám?
Allir foreldrar ættu að hugleiða
að hljóðfæranám getur verið áhrifa-
ríkur þáttur í þroska bams þegar
vel tekst til. I nýútkomnu afmælis-
riti Tónlistarskólans skrifar Kristín
Ólafsdóttir píanókennari athyglis-
verða grein þar sem hún einmitt
telur að velheppnað tónlistarnám
veiti nemandanum aukinn þroska
til betra lífs. Kristín kemst m.a.
þannig að orði:
„Fjöldi foreldra sendir böm sín í
hljóðfæranám. Ég segi „sendir“
vegna þess að ég tel að í fæstum
tilfellum óski bömin sjálf eftir að
fá að læsa á hljóðfæri. Á ég þá við
börn á aldrinum 6-10 ára. Velflest
fulltíða fólk hefur orðið snortið af
tónlist í einhverri mynd og vill því
gefa börnum sínum kost á að kynn-
ast töfraheimi tónanna. Mörgum
er einnig ljóst, að hljóðfæranám
getur verið stórkostlegur þáttur í
þroska barns þegar vel tekst til.
Með orðunum „þegar vel tekst til“
á ég ekki við að komið hafi í ljós
að barnið sé slíkum snilligáfum
gætt, að frægðarferill kunni að
vera framundan. Nei, ég á við allt
annað.
Ef barnið lítur á hljóðfæranámið
sem eðlilegan þátt í daglegu lífi,
er sátt við hljóðfæri sitt, kennara
sinn og þær kröfur sem hann gerir
til þess varðandi heimaæfíngar og
nýtur þar að auki jákvæðrar hvatn-
ingar og áhuga heimafyrir, já, þá
hlýtur að takast vel til.
í þessari fullyrðingu felast marg-
ir þættir. Barnið lærir að einbeita
sér og sýna þolinmæði við að yfir-
stíga hindranir sem á vegi þess
verða. Það lærir að hlusta og tjá
sig. Það lærir svo áþreifanlega að
það uppsker eins og það sáir. Þegar
best tekst til fær barnið útrás íýrir
sköpunarþörf sína og þá fyrst má
kannski segja að það komist í snert-
ingu við tónlistargyðjuna."
í lok greinar sinnar kemst Krist-
ín Ólafsdóttir að þessari niðurstöðu:
Hvort sem hljóðfæranemanda
dvelst lengur eða skemur við námið
öðlast hann alltaf einhveija þekk-
ingu og oftast aukinn þroska til
betra lífs. Ég minntist á það í upp-
hafi að flestir kæmust í snertingu
Eldmeyjan flutt í Bæjarbíói.
við tónlist, nytu hennar sem hlust-
endur. Ekkert er auðveldara en að
njóta tónlistar; svo greiðan aðgang
á þessi guðdómlega listgrein að
hjörtum okkar mannanna.
En að iðka tónlist er óneitanlega
ennþá nánari snerting við tónlistar-
gyðjuna og ólýsanleg nautn. Þá er
dýrmætt að hafa lært.
Við, sem -erum svo lánsöm að
hafa átt foreldra sem gerðu okkur
kleift og hvöttu okkur til að læra
á hljóðfæri, lítum á þessa þekkingu
sem dýrmætan fjársjóð sem aldrei
verður frá okkur tekinn.
Því segi ' ég: Foreldrar, haldið
áfram að senda börnin ykkar í hljóð-
færanám.
Hafnarfjarðar. Af þeim eru um 80
í forskóla. Starf forskólans hefur
ávallt verið mikið en aðalmarkmið
forskólans er að kenna börnunum
söng, dans, samhæfingu hugar og
handar, nótnalestur, samspil, hóp-
vinnu svo eitthvað sé nefnt af hinu
fjölmarga sem nemendurnir læra
þar.
Undanfarin ár hafa nemeridur
forskólans auk nemenda úr kór og
hljóðfæradeildum skólans sett upp
litla söngleiki s.s. eins og „Litlu
Ljót“, „Barnabas, björninn dans-
andi“ og „Eldmeyjuna" og hafa
þessi verk m.a. verið sýnd í Bæj-
arbíói.
I skólanum eru nú starfandi
Eftir nemendatónleika í Bæjarbíói 1963.
TÓNLISTARSKÓLINN í
HAFNARFIRÐI40 ÁRA
eftir Gunnar
Gunnarsson
Að upphafi
Árið 1946 stofnuðu áhugasamir
menn Tónlistarfélag Hafnarfjarðar.
Þettavoru þeir Benedikt Tómasson
skólastjóri Flensborgarskóla, Ás-
geir Júlíusson teiknari og Beinteinn
Bjamason útgerðarmaður.
Fyrir tilstilli félagsins gafst
Hafnfirðingum kostur á að hlýða á
hina bestu tónlistarmenn bæði inn-
lenda og erlenda. Tónleikar þessir
voru haldnir í Bæjarbíói og var
flygillinn, sem þá var á sviðinu,
talinn einhver hinn besti á öllu
landinu.
En Tónlistarfélagið í Hafnarfirði
lét ekki þar við sitja. 1950 stofnaði
það Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
og tók skólinn til starfa um haust-
ið. Þessir miklu eldhugar um tónlist-
arlíf í Hafnarfirði voru svo lánsam-
ir að þá var organleikari við Hafnar-
íjarðarkirkju Páll Kr. Pálsson og
var hann ráðinn fyrsti skólastjóri
við skólann. Á þessum tíma hafði
Páll engin tök á að sníða skólann
að einhverri fyrirmynd því líklegt
er að Tónlistarskóli Hafnarfjarðar
hafi verið annar skóli sinnar teg-
undar, sem stofnaður var utan
Reykjavíkur. Páll vann því frum-
herjans starf og samdi m.a. reglu-
gerð fyrir skólann, sem er líklega
sú fyrsta sem samin var fyrir slíka
stofnun, enda fór svo að þeir skólar
sem á eftir komu sóttu fyrirmynd
sína í hana. Þegar Tónlistarfélagið
hætti starfsemi sinni 1955 starfaði
skólinn sem sjálfseignarstofnun
undir stjóm skólastjórans og skóla-
nefndar sem í áttu sæti Eiríkur
Pálsson lögfræðingur, Bergur Vig-
fússon kennari og Finnbogi Jónsson
póstafgreiðslumaður og síðar Anna
Guðmundsdóttir bókavörður. Þann-
ig má segja að skólinn hafí starfað
allt til ársins 1974 er Hafnarfjarð-
arbær tók við rekstri hans.
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um þá miklu breytingu sem
orðið hefur á starfi skólans í tím-
anna rás. í upphafi vom nemend-
umir aðeins 16 og lögðu flestir
stund á píanónám. Skólinn hafði
þá aðgang að einni skólastofu.
Nú 40 áram síðar era 400 nem-
endur í skólanum sem leggja stund
á mjög fjölbreytt tónlistamám und-
ir leiðsögn 27 kennara.
Á fjöratíu áram hafa margir
komið við sögu í uppbyggingu skól-
ans. Starf Páls Kr. Pálssonar verð-
ur seint fullþakkað, en hann stýrði
skólanum um tveggja áratuga skeið
eða frá 1950-1971. Aðrir prýðilegir
stjórnendur á starfstíma skólans
hafa verið Egill Friðleifsson, Páll
Gröndal, Þorvaldur Steingrímsson
og Örn Arason. Auk þeirra hefur
skólinn einnig ávallt notið góðs af
fjölhæfum og áhugasömum kennur-
um öll þessi ár.
Gunnar Gunnarsson
Fiðlusveitin á æfingu undir stjórn Katrínar Árnadóttur fiðlukennara.
Skólalúðrasveitin á æfingu.
Afmælisvikan 26.-30.
nóvember
Fjöratíu ára afmælis skólans
verður minnst með mjög fjöl-
breyttri dagskrá í vikunni. Reyndar
má segja að byijað hafi verið að
minnast afmælisins í síðustu viku
þegar kennarar og skólastjóri skól-
ans mættu á fund Bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar og vöktu athygli
bæjarstjórnenda á þeim tímamótum
sem skólinn er nú á og þeirri starf-
semi sem í skólanum fer fram.
Kennaramir fluttu síðan verkið
Sancta Maria eftir W.A. Mozárt og
virtist þessi heimsókn falla í góðan
jarðveg meðal bæjarfulltrúa. Nú í
þessari viku fer hópur nemenda úr
Tónlistarskólanum og heimsækir
alla grunnskóla bæjarins og spilar
fyrir nemendur.
Forskólanemendurnir fara í
heimsókn á allar dagvistarstofnanir
bæjarins og fiðlu og harmónikku-
leikarar ætla að spila fyrir starfs-
fólk og viðskiptavini í þremur bönk-
um við Strandgötu. Lúðrasveit skól-
ans kemur ekki til með að sitja
auðum höndum því hún ætlar að
spila í_ ráðhúsinu og fyrir starfs-
menn ÍSAL. Þá ætla kennarar og
nemendur að leika fyrir eldri borg-
ara bæjarins á Víðistöðum, Hrafn-
istu og Sólvangi.
Afmælisvikunni lýkur síðan með
hátíðartónleikum í Hafnarborg
föstudaginn 30. nóvember kl. 20.00
og era allir núverandi og fyrrver-
andi nemendur auk velunnara skól-
ans hjartanlega velkomnir. Að tón-
leikunum loknum verður gestum
boðið að þiggja veitingar í húsnæði
skólans við Strandgötu.
Eins og áður sagði eru nú um
400 nemendur í Tónlistarskóla
Kristín Ólafsdóttir píanókennari ásamt
nemanda sínum.