Morgunblaðið - 29.11.1990, Page 38
MÖRGIÍNBLAÐIÐ' l’IMMTUDAGUR 29. NÓVÉMÖER 1990
Skátamir sem tóku þátt í göngunni að Nykurtjörn.
Morgunblaðið/Hannes
Dalvík:
Landvættir við Nykurtiörn
Dalvík. V
EFTIR þriggja stunda göngu upp
Grundargil í Svarfaðardal komu
40 skátar frá Dalvík að Nykur-
Ragnar Sverrisson formaður
Kaupmannafélags Akureyrar sagði
að ákveðið hefði verið að hafa sam-
eiginlegan opnunartíma í öllum
verslunum á Akureyri, en svo hefði
ekki verið áður. Þá verða verslanir
í bænum einnig opnar mun lengur
en áður hefur tíðkast í þessum
mánuði. Ragnar sagði það gert til
að mæta kröfum tímans um aukna
þjónustu.
tjörn en hún er umgirt þver-
hníptum hömrumi 700 m hæð
yfir sjávarmáli. Veður var stillt
Sem áður sagði verða verslanir
opnar til kl. 16 næsta laugardag,
en síðan verður opið laugardaginn
8. desember til kl. 18 og 15. des-
ember til kl. 22. Þá verður opið
fimmtudaginn 20. desember frá kl.
9 til 22 og föstudaginn 21. einnig
til 22 um kvöldið. Laugardaginn
22. desember verður opið til kl. 23
og á aðfangadag verða verslanir
opnar frá kl. 9 til 12.
og þokuslæðingur í fjöllum. Ma-
treiddar voru pylsur að hætti
víkinga og raddböndin þanin svo
undir tók í hamrasölum.
Þessi gönguferð var liður í skáta-
ferð skátafélagsins Landvætta sem
farin var dagana 16.-18. nóvember
á Grund í Svarfaðardal. Eins og
skáta er háttur var þeim ekki til
setunnar boðið heldur þreyttu næt-
urratleik, póstaleik og. á kvöldvök-
um sveif andinn fyri vötnum.
Landvættir er fjölmennt félag og
setur svip á félagslíf unglinga á
Dalvík. Þeir eiga sitt eigið skáta-
heimili, Mímisbrunn, þar sem flokk-
arnir sjö, Vofur, Svörtu ekkjurnar,
Kutar, Bleiknefjar, Trítlur, Strymp-
•ur og Njálgar kyija söng, binda
hnúta, leysa málin og skvetta úr
klaufunum.
Lokapunktur ársins er áramóta-
brenna sem brennuvargamir byij-
uðu að safna í snemma hausts og
útlit fyrir að brennur álfa blikni við
samanburðinn um áramótin næstu.
- Hannes.
Kaupmannafélagið og KEA:
Sameiginlegur opnunar-
tími ákveðinn í desember
VERSLANIR á Akureyri verða opnar á laugardaginn, 1. desember
frá kl. 10 til 16, en samstarf hefur tekist á milli Kaupmannafélags
Akureyrar og Kaupfélags Eyfirðinga um sameiginlegan opnunartima
verslana í desember.
Fjórðungssamband Norðlendinga:
Fundir um umhverfismál
haldnir í báðum kjördæmum
Fjórðungssamband Norðlend-
inga efnir til tveggja funda um
umhverfismál, sá fyrri verður
haldinn í Safnahúsinu á Sauðár-
króki á morgun, fimmtudag, en
hinn síðari á Hótel KEA á Akur-
eyri á föstudag. Á fundunum
verða kynntar tillögur nefndar
umhverfisráðherra um bætta
sorphirðu í landinu. Júlíus Sólnes
umhverfisráðherra hefur fram-
sögu á báðum fundunum, en þeir
hefjast báðir kl. 13.
Birgir Egilsson frá Hollustuvemd
ríkisins mun einnig hafa framsögu
á báðum fundum sem og Davíð
Egilsson frá Náttúruvemdarráði og
Sigurbjörg Sæmundsdóttir frá um-
hverfísráðuneyti. Þá mun Vilhjálm-
ur Grímsson tæknifræðingur kynna
lausnir sem til álita koma, bæði
tækni- og fjárhagslega, en hann
vinnur að þessum málum fyrir Suð-
umesjamenn.
Á fundinum sem ætlaður er fyrir
Norðurland vestra hafa framsögu,
Sveinn Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits,
Bjami Þór Einarsson sveitarstjóri á
Hvammstanga og Snorri Björn Sig-
urðsson bæjarstjóri á Sauðárkróki.
Heimamenn á Norðurlandi
eystra sem framsögu hafa em
Valdemar Brynjólfsson fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Eyjafjarðar, Auður Arnórsdóttir,
framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftir-
lits á Norðurlandi eystra, Guðmund-
ur Guðlaugsson yfirverkfræðingur
hjá Akureyrarbæ og Kristján Þór
Júlíusson bæjarstjóri á Dalvík.
Eftir þessa fundi mun Fjórðungs-
samband Norðlendinga leita eftir
samstarfi heimaaðila um staðarval
sorpeyðingu og staði til söfnunar
brotamálma.
(Úr fréttatilkynningu)
Ný bátahöfn tekin
NÝ BÁTAHÖFN hefur verið tekin í notkun í Grímsey, en með til-
komu hennar þurfa Grímseyingar ekki lengur að geyma báta sína
við ból úti á legu. Grímseyjarhöfn var orðin eina höfn landsins þar
sem svo var ástatt. Heildarkostnaður vegna framkvæmdanna, sem
gengið hafa vel, er um 83 milljónir króna, eða rúmum 20% lægri
en upphaflegar áætlanir frá 1988 gerðu ráð fyrir. Aðalverktaki var
ístak hf. í Reykjavík.
Bátahöfnin var formlega tekin í
notkun í fyrradag, að viðstöddum
samgönguráðherra, þingmönnum
kjördæmisins, hafnamálastjóra,
starfsmönnum Istaks og heima-
mönnum.
Hafnarmálastofnun vann að
rannsóknum og undirbúningi vegna
framkvæmdanna í nokkur ár, en
þeim lauk fyrir tveimur árum er
byggt hafði verið líkan af höfninni
í rannsóknarskála stofnunarinnar.
Nýja bátahöfnin er innan við
gömlu bryggjuna og var þar byggðu
140 metra langur gijótgarður til
að skýla höfninni. Þá var svæði
innan garðsins dýpkað með spreng-
ingum þar sem klöpp er á öllu hafn-
arsvæðinu. Byggð var 40 metra
löng trébryggja innan við garðinn
og 12 metra langri flotbryggju
komið fyrir. í þessum fyrsta áfanga
framkvæmdanna náðist að dýpka
allt nýja hafnarsvæðið, en það gef-
Fimm sækja um stöðu
leikhússljóra hjá LA
Fjallað um umsóknir á fundi leikhúsráðs í dag
FIMM sóttu um stöðu leikhússtjóra hjá Leikfélagi Akureyrar og
mun leikhúsráð fjalla um umsóknir á fundi sínum í dag, miðviku-
dag. Allir umsækjendur hafa lokið prófi í leikhúsfræðum.
Þau sem sækja um stöðuna eru
Signý Pálsdóttir, leikhúsritari hjá
Þjóðleikhúsinu, en hún hefur áður
gegnt starfí leikhússtjóra hjá Leik-
félagi Akureyrar, Hávar Siguijóns-
son, leikstjóri, María Sigurðardótt-
ir, leikari, Erlingur E. Halldórsson,
leikritaskáld, og Jakob S. Jónsson,
en hann hefur lokið prófi í leikhús-
og kvikmyndafræðum.
Sunna Borg, formaður Leikfé-
lags Akureyrar, sagði að fjallað
yrði um umsækjendur á fundi leik-
húsráðs í dag. „Ég kýs helst að það
gangi sem fyrst í gegn að ráða
nýjan leikhússtjóra, sé enga ástæðu
til að láta það bíða, því best er að
nýr leikhússtjóri komi til starfa sem
fyrst,“ sagði Sunna.
Sigurður Hróarsson, núverandi
leikhússtjóri, hefur verið ráðinn
leikhússtjóri Leikfélags Reykjavík-
ur. Sunna sagði að ætlunin væri
að Sigurður fylgdi söngleiknum
„Kysstu mig Kata“ eftir og myndi
hann því láta af störfum um mán-
aðamótin mars/apríl.
Gagnamiðlun:
IFE á 250
þúsund kr.
Hlutafé Iðnþróunarfélags Eyfirð-
inga í fyrirtækinu Gagnamiðlun hf.
er 250 þúsund krónur og heildar-
hlutafé fyrirtækisins er 5 milljónir.
í frétt í blaðinu í gær skoluðust
þessar tölur aðeins til, þannig að
útkoman varð sú að Iðnþróunarfé-
laginu var eignað allt hlutafé fyrir-
tækisins. Það leiðréttist hér með.
Tónleikar haldnir á
Laugnm í Reykjadal
AKUREYRSKAR hljómsveitir koma fram á tónleikum sem haldnir
verða á menntasetrinu Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu annað kvöld,
föstudagskvöld, en þeir hefjast kl. 21
Hljómsveitimar sem fram koma
eru Norðanpiltar, Hrafnar, Amma
Dýrunn, Skurk, 1/2 Dust, Helgi og
hljóðfæraleikararnir og Exit. Þessar
sveitir héldu velheppnaða tónleika
í Dynheimum á Ákureyri fyrir
skemmstu og vilja nú kynna ná-
grönnum sínum afurðir sínar. Dag-
skráin hefst kl. 21 og stendur yfir
í rúma þijá tíma. Miðaverði er stillt
mjög í hóf.
(Fréttatilkynning)
Kammerhijómsveit Akureyrar:
Tónleikar á Akur-
(
eyri og í Skagafirði
Kammerhljómsveit Akureyrar heldur tvenna tónleika um næstu
helgi. I Akureyrarkirkju á laugardag kl. 17 og á sunnudag fer hljóm-
sveitin í sína fyrstu tónleikaferð er hún sækir Skagfirðinga heim
og heldur tónleika í Miðgarði, Varmahlíð, kl. 16.
Kammerhljómsveitin, sem skipuð
er 30 tónlistarmönnum leikur undir
stjórn Arnar Óskarssonar, en ein-
leikari á klarinett verður Sigutjón
Halldórsson.
Á tónleikunum verður leikið úr
Vatnasvítunni eftir Hándel, sem er
á meðal vinsælustu hljómsveitar-
verka allra tíma. Einnig verður
fluttur konsert fyrir klarinett og
hljómsveit fyrir Johann Stamitz,
Pavane eftir Ravel auk „Þriggja
mynda Botticelli" eftir ítalska tón-
skáldið Respighi.
Örn Óskarsson stjórnar nú
Kammerhljómsveit Akureyrar í
fyrsta sinn, en hann stjórnaði á
þessu og síðasta ári yfir 60 tónleik-
um Fílharmoníuhljómsveitar Bajio
í Mexíkó. Akureyringurinn Siguijón
Halldórsson lýkur einleikaraprófi
frá Tónlistarskólanum í Reykjavík
næsta vor, en hann kemur nú fram
sem einleikari með Kammerhljóm-
sveit Akureyrar í fyrsta sinn.
Aðgöngumiðasala er við inn-
ganginn og hefst hálftíma fyrir tón-
leika.
í notkun í
ur möguleika á að lengja bryggjur
um allt að 80 metra síðar meir.
Vinna við grjótöflun var boðin
út 1989 og var verktaki Stefán
Guðjónsson frá Sauðárkróki, en
kostnaður við þann þátt hafnar-
gerðarinnar var á síðasta ári rúmar
12 milljónir króna. I byijun þessa
árs var boðin út vinna við að full-
gera fyrsta áfangann, þ.e. bygging
brimvarnargarðs, dýpkun og smíði
bryggju. Lægsta tilboðið kom frá
verktakafyrirtækinu ístak hf. í
Reykjavík og var gengið til samn-
inga við fyrirtækið, en tilboð þess
þótti það hagstætt að ákveðið var
að stækka verkið og ljúka allri
dýpkun í fyrirhuguðu hafnarsvæði.
Kostnaður við framkvæmdir í ár
Grímsey
er rúmar 70 milljónir króna, en
heildarkostnaður um 83 milljónir
eða rúmum 20% lægri en upphaf-
legar áætlanir 1988 gerðu ráð fyrir.
Fjármögnun hefur verið í sam-
ræmi við hafnalög, en auk þess
hafa Hafnabótasjóður og Byggða-
stofnun hlaupið undir bagga.