Morgunblaðið - 29.11.1990, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1990
FESTINGAR
boltar og rær, allar
geröir og stæröir.
9
OpiA frá 8 — 18
Laugardaga9-13
STRANDGATA 75
HAFNARFJÖRÐUR
■a 91-652965
• guarantee lor qualily
EBScholtes
F4805 ELX
Ofn
Yfir-undirhiti, blástur og
grill, fituhreinsun, svart
eöa hvítt glerútlit,
tölvuklukka meö tímastilli.
TH 483 B
Helluborð
Keramik yfirborö, svartur
eöa hvítur rammi, fjórar
hellur, þar af tvær
halogen, sjálfvirkur
hitastillir og hitaljós.
LV12 242
Uppþvottavél
12-manna, 4 kerfi, þar af
eitt sparnaöarkerfi, efri
körfu má hækka og lækka,
lágvær (42 db), svört og
hvít.
Funahöfða 19
sími 685680
Brúarframkvæmd-
ir á Suðurlandi
eftir Eggert Haukdal
Undirritaður hefur flutt svohljóð-
andi þingsályktunartillögu á - Al-
þingi:
„Alþingi ályktar að skora á ríkis-
stjórnina að hún hlutist til um að
hraða hönnun og öðrum undirbún-
ingi brúarframkvæmda á Suður-
landi í þeim tilgangi að eftirtaldar
framkvæmdir verði ákveðnar sem
hér segir við endurskoðun vega-
áætlunar í vetur:
1. Ný brú á Markarfljót verði
byggð og henni lokið á árinu 1991
vegna þeirrar miklu hættu sem
stafar af skemmdum á gömlu
brúnni frá því í sumar.
2. Ný brú á Kúðafljót verði byggð
í beinu framhaldi af framkvæmdum
við Markarfljót.
3. Brú á Hvítá hjá Bræðratungu
verði byggð samkvæmt nánari
tímaáætlun í framhaldi af verklok-
um við Kúðafljót.
4. Áform um byggingu göngu-
brúar yfir Ölfusá hjá Selfossi verði
hrint í framkvæmd árið 1991.“
Brú á Markarfljót
Ný brú á Markarfljót er á gild-
andi vegaáætlun þar sem gert er
ráð fyrir að hún verði byggð á árun-
um 1991 og 1992 og ætlað fjár-
magn til hennar þessi ár. I sumar
bilaði núverandi brú og var gert við
hana til bráðabirgða, en óvíst er
hversu lengi sú viðgerð dugar. Með
nýrri brú styttist vegalengdin um 5
km.
Þessi tillaga er fyrst og fremst
flutt til að undirstrika nauðsyn þess
að byggingu brúarinnar ásamt
tengingu verði lokið á næsta ári í
ljósi þeirra atburða er gerðust í
sumar. Ný Markarsfljótsbrú hefur
of lengi verið sett til hliðar í brúar-
framkvæmdum á Suðurlandi. Veld-
ur því m.a. að hin stöðugi niður-
skurður á fé til vegamála, en einn-
ig að ýmsir sérfræðingar og stjórn-
málamenn hafa talið hana svo
trausta að ekkert lægi á. Brúin
minnti hins vegar á sig sjálf í sum-
ar og ber að fagna því. En jafn-
framt ber að þakka að ekki hlaust
af slys. Þessi atburður vakti menn
loks til umhugsunar um að það
þyrfti að taka til hendinni.
Frá þeim tíma er brúin bilaði
hefur Vegagerðin verið að skoða
málið. Á fundi Vegagerðarinnar
með þingmönnum Suðurlands sl.
fimmtudag 8. nóvember voru niður-
stöður Vegagerðarinnar kynntar.
Segir svo í minnisblaði um Markar-
fljót:
„Samkvæmt skýrslu um ástand
brúar á Markarfljóti kemur eftirfar-
andi fram:
Niðurstöður vettvangsskoðunar.
Ástand yfirbyggingar er sæmilegt
og gefur ekki tilefni til neinna sér-
stakra ráðstafana nú. Hins vegar
eru nokkrir sökklar illa farnir og
sig brúarstöpuls í sumar bendir tii
að staurar undir brúnni séu að gefa
sig. Brúin er nú orðin 57 ára göm-
ul og það flóð sem var í ánni í sum-
ar var ekki nærri því að vera eitt
af stórflóðum sem komið hafa í
ána.“
Hversu lengi getur núverandi brú
dugað, spyr Vegagerðin.
„Niðurstöður: Yfirbygging er í
nothæfu ástandi en ástand fimm
sökkla að austan er slæmt og hefur
BREFA-
BINDIN
frá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað.
Múlalundur
SÍMI: 62 84 50
FONDURVORUR
ÆVINTÝRAHEIMUR ALLRAR FJÖLSKYLDUNNAR
®VÖLUSTEINN„
Foxafen 14, Sími 679505
sökkull einn þegar sigið um 15 sm.
Mestar líkur eru á því að einn eða
fleiri staurar hafi gefið sig í stöpli
eitt þegar hann seig. Ástand stöp-
uls tvö er mjög slæmt og sökklar
þijú til fimm eru rétt á vetur setj-
andi. Nú í haust verður að styrkja
stöpul eitt og tvö. Ef stöplar þijú,
fjögur og fimm eiga að standa und-
ir umferð meira en til næsta hausts
verður einnig að setja gijót að
þeim.“ Og síðan er undirstrikað:
Grjótvörn við stöplana er 'á engan
hátt trygging fyrir að stöplarnir
standi vegna þess að í flóðum getur
hún skolast í burtu.“
Svo mörg eru þau orð. En í lok
minnisblaðsins leggur Vegagerðin
til að byggð verði brú á Markarfljót
1991, þ.e. á næsta ári. Hafist verði
handa í mars og brúnni lokið í októ-
ber. Útboð á vegi og varnargörðum
verði hins vegar ekki fyrr en síðari
hluta árs 1991. Kostnaður 1991 er
áætlaður 140 millj. kr. Áður er fram
komið í minnisblaðinu að heildar-
kostnaður við brúna ásamt vegi og
varnargörðum sé 289 millj. Auðvit-
að vilja stjórnendur Vegagerðar rík-
isins leysa þessi mál með meiri
myndarskap, en þeir hafa yfir sér
húsbónda sem stöðugt sker niður
fjármagn í einu mesta byggðarlagi
iandsbyggðarinnar sem eru vega-
málin.
Ef þessar tillögur ná fram að
ganga verður brúin ekki tekin í
notkun fyrr en hálfu til heilu ári
eftir að henni er lokið. Það virðist
eiga að bíða í marga mánuði eftir
vegi og görðum. En þannig má
ekki standa að framkvæmdum. Það
er ekki hægt að bjóða upp á að
hafa brúna sjálfa tilbúna í október
1991 en taka hana ekki í notkun
fyrr en í fyrsta lagi á miðju sumri
1992. Það verður að hefjast handa
um vegi og varnargarða miklu fyrr
þannig að brú og vegur komist í
gagnið snemma árs 1992. Þess
LITAVER • LITAVER • LITAVER • LITAVER
SOMÆE
Á STIGAHUS
• LITAVER • LITAVER • LITAVER • LITAVER •
heim i l isverslun
me ð s tíl
LAUGAVEGI 1 3
SÍMI625870
GBC-lnnbinding
Fjórar mismunandi
gerðir af efni og tækjum
til innbindingar
B. ARNAR HF.
Skipholti 9-105 Reykjavík
Símar 624631 / 624699
Þú svalar lestrarþörf dagsins
Eggert Haukdal
„Með breytingu á vega-
áætlun fyrir 1990 sem
afgreidd var í fyrra,
voru framlög til vega-
mála skorin niður af
stjórnarliðum um tæp-
an milljarð. Samkvæmt
fregnum úr sljórnar-
herbúðum á enn að
vega í sama knérunn.“
verður að krefjast af stjórnvöldum
að mál verði leyst með þeim hætti.
Benda má á í þessu sambandi að
útboð nú eftir áramótin gætu verið
hagkvæm með tilliti til verktaka
miðað við þann hægagang sem er
á álversmálinu. Eins má minna á'•
hættuna sem vatnsveitu Vest-
mannaeyja og landbroti stafar af
ánni sem leysist með nýrri brú og
tilheyrandi varnargörðum.
Brú á Kúðafljót
Auk Markarfljóts fjallar tillaga
mín um Kúðafljót, brú á Hvítá hjá
Bræðratungu og göngubrú á Ölfusá
svo sem fram kemur í þingsályktun-
artillögunni. Ný brú á Kúðafljót er
ekki inni á núverandi vegaáætlun.
Vegagerðin gerir ráð fyrir að hún
verði byggð fyrir sunnan Skaftár-
tunguna þannig að nýr Suðurlands-
vegur á þessum kafla mundi ekki
liggja um Skaftái-tunguna eins og
hann gerir nú. Skaftártungan er
nú snjóþyngsti kaflinn á leiðinni frá
Reykjavík og austur á Firði. Sér-
staklega sker hún sig nú úr eftir
að nýr vegur var gerður yfir Mýr-
dalssand mun sunnar en gamli veg-
urinn. Nýja brúin verður því ekki
aðeins mikii samgöngubót fyrir
austurhluta. Vestur-Skaftafells-
sýslu heldur einnig fyrir alla Aust-
firði. Stytting vegna nýrrar brúar
á Kúðáfljót er í kringum 7 km.
Brú á Hvítá hjá Bræðratungu
Nýlokið er byggingu nýrrar brúar
á Tungufljót við bæinn Krók í Bisk-
upstungum. Þessi brú leysir af
hólmi gamla brú sem er nokkru
ofar við fossinn Faxa. Með þessu
Prufu-hitamælar
+ 50 til + 1000 C
í einu tæki meö elektrón-
ísku verki og Digital sýn-
ingu.
It^L
®SdÐir(lsnuigjafflr diéirD§$®irii <& ©® M.
Vesturgötu t6 - Símar 14680-132»
AkkkkMlbllikfcl