Morgunblaðið - 29.11.1990, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1990
47
Syrtlur - nýr bókaflokkur frá Máli og menningu.
Syrtlur - nýr bókaflokk-
ur frá Máli og menningu
ÚT ERU komnar hjá Máli og menningu fjórar bækur í nýjum bóka-
flokki sem hlotið hefur nafnið Syrtlur. Hér er um að ræða þýdd
skáldverk í mjög vandaðri kiljuútgáfu og er markmið forlagsins að
koma með þessum hætti á framfæri athyglisverðum erlendum bók-
menntum undanfarinna ára og áratuga, ekki síst eftir höfunda sem
hingað til hafa alltof lítið verið kynntir á íslensku.
er þó aðeins hálf sagan sögð. Nauð-
synlegt er að byggja líka brú á
Hvítá á móts við Bræðratungu, en
sú brú er ekki inni á vegaáætlun.
Með byggingu brúar á þessum stað
yrði komið á tengingu milli mið-
stöðvar tveggja stærstu hreppanna
í uppsveitum Amessýslu en saman-
lagður íbúafjöldi í þessum tveimur
hreppum er rúmlega 1100 manns.
Ekki þarf að fjölyrða um hve mikil
lyftistöng þessi tenging yrði fyrir
atvinnulíf þessara sveitarfélaga ef
það yrði eitt atvinnusvæði, en fátt
er jafnbrýnt um þessar mundir og
einmitt efling atvinnulífs í sveitum
landsins til þess að mæta sam-
drætti í framleiðslu landbúnaðaraf-
urða.
Göngubrú á Ölfusá
Göngubrú á Ölfusá á Selfossi var
upphaflega á vegaáætlun 1990.
Framkvæmdum var hins vegar
frestað vegna byggingar nýrrar
brúar á Múlakvísl sem ekki var inni
á vegaáætlun. Nauðsynlegt er hins
vegar að byggja þessa brú vegna
ört vaxandi byggðar Selfoss norðan
Ölfusár. Er hér um að ræða bæði
íbúðar- og iðnaðarhús. Á næsta ári
em 100 á.r frá byggingu fyrstu
brúar yfir Ölfusá og er því verðugt
verkefni að taka í notkun nýja
göngubrú á þeim tímamótum. Einn-
ig er haldið upp á afmæli byggðar
á Selfossi á sama ári.
Niðurskurður á vegafé
Með vegaáætlun fyrir 1989-1992
var mörkuð viðunandi stefna að því
er varðar árin 1989-1992 en með
breytingu á vegaáætlun fyrir 1990
sem afgreidd var í fyrra, vora fram-
lög til vegamála skorin niður af
stjómarliðum um tæpan milljarð.
Samkvæmt fregnum úr stjómar-
herbúðum á enn að vega i sama
knérann og skera annað eins í við-
bót af fé til vegamála samkvæmt
samþykktri vegaáætlun fyrir árið
1991. Ætli stjórnarliðið að halda
sér við þann ásetning við afgreiðslu
vegaáætlunar síðar í vetur er engin
önnur leið til að leysa jafnþýðingár-
mikil verkefni og nýja brú á Mark-
arfljót ásamt varnargörðum og veg-
tengingu nema með auknum lán-
tökum.
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokks fyrir
Suðurlandskjördæmi.
Bækumar fjórar eru:
Heimur feigrar stéttar, skáldsaga
eftir suður-afrísku skáldkonuna
Nadine Gordimer sem oft hefur verið
orðuð við Nóbelsverðlaun. Sögusviðið
er Suður-Afríka í ólgu sjötta og sjö-
unda áratugarins. Söguna segir hvít
millistéttarkona. Fyrrum eiginmaður
hennar, vanmáttugur og ráðvilltur
uppreisnarmaður, hefur fyrirfarið
sér. Konunni verður hugsað til lífs
þeirra saman og baráttu gegn að-
skilnaðarstefnunni. Ólöf Eldjárn
þýddi bókina sem er 128 bls.
Blekspegillinn er smásagnasafn
eftir argentínska rithöfundinn og
Islandsvininn Jorge Luis Borges.
Þessi mikli brellumeistari tuttugustu
aldarinnar leikur sér á mörkum
draums og veraleika og skáldskapar
og fræða. Grunntónninn í sögum
hans er seiðmagnaður og suður-
amerískur; þær era í senn fyndnar
og spennandi. Sigfús Bjartmarsson
valdi og íslenskaði sögurnar og ritar
einnig eftirmála. Bókin er 119 bls.
Undirleikarinn er skáldsaga eftir
rússnesku skáldkonuna Ninu Ber-
berovu, en verk hennar hafa verið
þýdd víða um heim undanfarin ár.
Aðalpersónand, Sonja, er fædd utan
hjónabands og flytur til Pétursborgar
með móður sinni á áram rússnesku
byltingarinnar. Hún fetar í fótspor
móðurinnar og gerist píanóleikari og
hlutskipti hennar verður að leika
undir hjá frægri söngkonu. Sonja lif-
ir sig inn í einkalíf stjömu.nnar og
þráir að leika stærra hlutverk í lífinu
en hún gerir — en allt kemur fyrir
ekki. Árni Bergmann þýddi bókina
sem er 85 bls.
Utz er skáldsaga eftir enska rit-
höfundinn Brace Chatwin sem dó
fyrir aldur fram árið 1989. Söguhetj-
an Kaspar Utz á óviðjafnanlegt safn
af Meissenpostulíni, matarílát og
skrautmuni, sem honum hefur tekist
að varðveita á tímum margvíslegra
ógna. Hann er aðalsmaður af gamla
skólanum, sem býr með postulíns-
safni sínu og þjónustustúlku í tveggja
herbergja íbúð í Prag. Sögumaður
kemur á fund hans og verður margs
vísari um merkileg örlög á umbrota-
tímum. Unnur Jökulsdóttir og Þor-
björn Magnússon þýddu bókina sem
er 117 bls.
Allar era bækurnar prentaðar í
Prentsmiðjunni Odda hf. Robert Gu-
illemetta hannaði kápur.
(Fréttatilkynning)
JARUNN 3ja ára
AFMÆLIS-
TILBOD
síðasti dagur afmælistilboðsins er í dag
HAMBORGARI
OG KÓK
ér nýja bœklinginn í ncestu matvörubúö
rjoma