Morgunblaðið - 29.11.1990, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NOVEMBER 1990
53
vanum sjálfum. Fitulagið á kjötinu
gulleitt og þunnt.
Miðlungs-kjöt (Standard) kemur
frá ungum nautgripum í lágum
gæðaflokki, með litla fitu og nær
ekkert fítuofinn í vöðva. Vegna
ungs aldurs gripsins eru braggæðin
misjöfn og er ekki hægt að treysta
því að kjötið sé meyrt.
Vinnslukjöt (commercial and
utility) í þessa flokka 5. og 6. flokk
fellur horað kjöt af eldri gripum.
Það getur verið bragðmeira en
„miðlungskjötið" en það er grófara
og seigt.
Fyrsta flokks nautakjöt er
af ungneyti
Þegar farið er yfir flokkun þessa
erlenda nautakjöts, sem neytendum
vestan hafs stendur til boða, og um
leið reynt að gæðameta það kjöt
sem neytendum stendur til boða í
hér verslunum, er ljóst að stór hluti
af okkar fyrsta flokks nautgripa-
kjöt, kallast ungneytakjöt sem
flokka má sem„miðlungs-kjöt,“ og
að einhverju leyfi „gæða-kjöt.“
Nú þegar bændur eru sjálfir farn-
ir að ræða af alvöru um innflutning
á landbúnaðarvörum, ætti það að
vera þeirra hagur að bæta kjötgæð-
in og sjá til þess að kjötmatið nái
til neytenda, vilji þeir viðhalda
markaðinum. Ef neytendur kynnast
betra kjöti innfluttu, er hætt við
íslensku framleiðslunni verði smátt
og smátt hafnað m.a vegna sveiflna
í gæðum.
Framtíð kjötframleiðslu ræðst
af aðlögunarhæfni
Draga má lærdóm af reynslu
áttunda áratugarins, en þar má að
hluta fínna skýringu á því hvers-
vegna sala á lambakjöti er jafnt og
þétt að dragast saman. Framleið-
endur eiga að hluta til þátt í þeirri
þróun sem varð. Á árunum eftir ’7o
þegar unga fólkið hafnaði feitu
lambakjöti, þá tóku framleiðendur
og seljendur lambakjöts ekki tillit
til óska neytenda um fituminna
kjöt. Framleiðendum felldu allar
kvartanir undir matvendni og kenj-
ar og jafnvel slæmt uppeldi! Reynd-
ar má heyra þessar viðbárur ennþá.
Niðurstaðan er því sú, að þeir sem
voru ungir og á mótunaraldrinum
í upphafi áttunda áratugarins og
vöndust af lambakjötsneyslu að
mestu, eru nú komnir undir fertugt
og þegar búnir að ala upp nýja
kynslóð í nýjum siðum og við aðrar
matarvenjur en áður tíðkuðust.
Breytingar á neyslumunstri fólks
eru ekki hraðfara, en þegar þær
eru orðnar fastmótaðar þá verður
þeim ekki auðveldlega breytt á ný.
Framtíð kjötframleiðslu í landinu
mun því ráðast af aðlögunarhæfni
að neytendamarkaðnum í næstu
framtíð.
M. Þorv.
Hvanneyrarkirkju
færð minningargjöf
Hvannatúni í Andakíl
EFTIR messu í Hvanneyrar-
kirkju sl. sunnudag var kveikt á
gönguljósum í kirkjugarðinnum
hjá kirkjunni. Þau eru gjöf frá
Guðrúnu Salomonsdóttur, fyrr-
verandi húsmóður á Ytri-Skelja-
brekku á Andakil.
Guðrún gefur ljósin til minningar
um eiginmann sinn Sigurð Sigurðs-
son, sem lést fyrir fjórum árum.
Þau bjuggu á Ytri-Skeljabrekku í
40 ár. Áður höfðu þau gefið rausna-
legar gjafír til kirkju, kirkjugarðs
og kvenfélagsins í heimasveitinni.
Guðrún er nú 88 ára og dvelst á
dvalarheimilinu Höfða á Akranesi,
en gat ekki verið viðstödd messuna
sökum heilsufars. Sóknarpresturinn
sr. Agnes M. Sigurðardóttir, Sveinn
Haligrímsson skólastjóri og jafn-
framt kirkjubóndi og formaður
sóknarnefndar Bjarni Vilmundar-
son færðu Guðrúnu alúðarþakkir
fyrir höfðingjalega gjöf.
Á meðfylgjandi mynd, eru safn-
aðargestir ásamt presti Hvanneyr-
arkirkju sr. Agnesi M. Sigurðar-
dóttur og eitt af gönguljósunum við
legstein eiginmanns Guðrúnar, Sig-
urðar Sigurðssonar.
- D.J.
Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson
Súkkulaðiterta með rommkremi
Notaðu AKRA
með öðru úrvals hráefni....
ogútkoman verður frábær!
Súkkulaðiterta með römmkremi
Léttþeytið 70 g AKRA smjörlíki, 90 g sykur,
90 g púðursykur og 3 egg.
Hrærið saman við 150 g hveiti, V2 tsk.
natron, 2 tsk. salt, 25 g kakó og 150 g mjólk.
Bakið við 190°C í 20 mínútur.
Rommkrem
Hrærið saman 50 g kakó, 500 g flórsykur og
350 g AKRA smjörlíki og bætið í
rommdropum eftir smekk. Skreytið kökuna.
Verði ykkur að góðu!
/300
SMJÖRLÍKISGERÐ
Akureyri
ARGUS/SlA