Morgunblaðið - 29.11.1990, Side 54

Morgunblaðið - 29.11.1990, Side 54
54 MORGUNBLÁÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1990 Nýborg;# Ármúla 23, sími 83636 Borðbúnaður og gjafavara ★ GBC-Skírteini/barmmerki fyrir: félagasamtök, ráðstefnur, starfsmenn fyrirtækja, o.m.fl. Efni og tæki fyrirliggjandi. OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 9 ■ 105 Reykjavík Símar 624631 / 624699 tlöfóar til XX fólks í öllum starfsgreinum! og Wicanders *&L Kork-o-Plast korkflísamerkin komin undirsama þak. Nú framleidd í sömu verksmiðju af J 1 1TTTTTPT ipo< 3orK iTrrr i± M M I 08 Ármúla 29, Múlatoigi, sími 38640 Þ. Þ0RGRÍMSS0N & C0 í Kaupmannahöfn FÆST í BLADASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁDHÚSTORGI ÞINGBRÉF STEFÁN FRIÐBJARNARSON Hærri skattleysismörk eða hærra skattþrep? Tvö skattþrep í staðgreiðsluumræðu árið 1987 Þann 16. marz 1987 vóru samþykkt samhljóða í efri deild Alþingis lög um staðgreiðslu opinberra gjalda. Tveim dögum síðar vóru samþykkt samhljóða í sömu þingdeild lög um tekju- skatt og eignaskatt, þ.e. lög um skattstofn og álagningarregl- ur. Lögin fólu í sér þá megin- breytingu að skattar verði inn- heimtir af tekjum jafnóðum og þær verða til sem og einföldun álagningar með afnámi frá- dráttarliða, einum föstum per- sónuafslætti, einu skattþrepi, einni skattprósentu. Hugmyndir Olafs Ragnars Grímssonar, fjármálaráðherra, sem hann hefur nýlega viðrað, standa hins vegar til þess að taka upp tvö skattþrep, þ.e. sérstakt „háskattaþrep". Þess- ar hugmyndir skutu upp kolli þegar við fyrstu umræðu stað- greiðslufrumvarpa 1987. I Frumvarp um staðgreiðslu skatta var fyrst lagt fram á Al- þingi árið 1977. Annað stað- greiðslufrumvarp leit dagsins ljós árið 1981. Staðgreiðsla skatta hafði hins vegar verið til umræðu um langt árabil áður en frumvörp þessi komu til sögunnar. Þorsteinn Pálsson, þá fjármála- ráðherra, mælir fyrir frumvarpi um staðgreiðslu opinberra gjalda í febrúarmánuði 1987. Hann flutti jafnframt þrjú fyígifrumvörp: um tekju- og eignaskatt, ‘ um gildi- stöku staðgreiðslu og tímabundin úrlausnarefni og um tekjustofna sveitarfélaga. Frumvörpin hlutu lagagildi með minniháttar breyt- ingum. Nokkrum mánuðum fyrr höfðu Alþýðusamband íslands, Vinnu- veitendasamband íslands og Vinnumálasamband samvinnufé- laganna sent ríkisstjóminni sam- eiginlegt „minnisblað" um skatta- mál, sem trúlega hefur flýtt fyrir framvindu málsins, sem var þó vel á veg komið í umfjöilun ríkis- stjórnarinnar. Stefán Benedits- son, þá þingmaður Alþýðuflokks, sagði í þingræðu 1987: „Þetta frumvarp er þess vegna fram komið að aðilar vinnumarkaðar- ins, ASÍ og VSÍ, gerðu það að skilyrði í seinustu samningum sínum að komið yrði á fót stað- greiðslukerfi skatta. Ríkisstjórnin lofaði að koma því í framkvæmd. Það er það loforð sem nú er verið að efna.“ II Meginkostir staðgreiðslukerfis- ins frá sjónarhóli skattgreiðand- Þorsteinn Pálsson, fjármála- ráðherra þegar staðgreiðslu- frumvarpið var flutt. ans séð eru þessir: Staðgreiðslan myndar ekki skuld hjá skattgreið- andanum. Hann hefur til frjálsrar ráðstöfunar það sem hann fær í launaumsiag sitt (þó ekki megi gleyma framhaldsskattheimtu í söluskatti/virðisauka, sem tekinn er í verði vöru og þjónustu). í annan stað fylgir staðgreiðslan „hagsveiflunni". Hún innheimtir meira þegar vel árar tekjulega hjá fólki - minna þegar tekjusam- dráttur segir til sín - eða fólk minnkar við sig vinnu vegna ald- urs eða veikinda. Kostir staðgreiðslunnar fyrir ríkið og sveitarfélögin eru m.a. þeir að hið opinbera fær skatttekj- ur til ráðstöfunar strax og skatt- stofninn, þ.e. tekjur skattgreið- enda, verða til. Áður skiluði skatt- arnir sér löngu eftir á, oft í minni krónum. Fækkun undanþága og frádráttarliða bætir og skattskil, dregur úr vinnuálagi á skattstof- um og gerir þeim betur kleift að sinna endurskoðun skattframtala og rannsóknum. Með þessu kerfi eykst aðhald, samanber álit nefndar sem kannaði umfang skattsvika á þessum tíma. III Margir talsmenn staðgreiðsl- unnar lögðu áherzlu á að aðeins yrði innheimtur eínn tekjuskattur (felldir niður markaðir tekjuskatt- ar), að sömu frádráttarreglur giltu um alla launarnenn (sérstak- ir frádráttarliðir felldir niður), sett yrði ákveðin skattleysismörk (m.a. til að skjalda láglaunafólk) og nýtt eitt skattþrep með sér- stökum persónuafslætti. Ólafur Ragnar Grímsson, fjár- málaráðherra, viðrar hug- myndir um tvö tekjuskattsþrep. Strax við fyrstu umræðu stað- greiðslufrumvarpanna ýjuðu tals- menn Alþýðubandalags og Sam- taka um kvennalista að því að til greina kæmi að taka upp tvö skattþrep. Ragnar Arnalds (Abl-Nv) sagði m.a.:„Að sjálfsögðu gæti vel kom- ið til álita að skatthlutföllin væru tvö, þrátt fyrir allt, en ekki eitt - og hygg ég að ekki væri neinn umtalsverður munar á innheimtu skattsins þó skatthlutföllin væru tvö.“ Sigríður Dúna Kristmundsdótt- ir (SK-Rv) sagði m.a. að skoða þyrfti vandlega, „hvort ekki sé rétt að hafa ekki aðeins eina skattprósentu heldur tvær eins og víða tíðkast... í þessu efni snýst málið í rauninni aðeins um hvort menn telja að þeir sem mestar tekjur hafa skuli greiða hlutfalls- lega meira eða minna af tekjum sínum til ríkisins en þeir sem færri krónurnar hafa.“ Jón Kristjánsson (F-Al) sagði „nauðsynlegt að gera sér sem gleggsta grein fyrir því hvaða áhrifa þetta atriði [eitt skatthlut- fall] hefur á skatta þeirra sem hæstar tekjur> hafS.“ IV Jón Baldvin Hannibalsson (A- Rv) sagði í þessari umræðu að Alþýðuflokkurinn styddi fækkun og einföldun skatta, fækkun frá- dráttarliða og undanþága og „lækkun skatthlutfalla, sérstak- lega jaðarskatts á launatekjur. í því efni er rétt að minna á að sá hluti launþega, sem vinnur langan vinnudag þar sem fyrirvinnur fjöl- skyldu eru fleiri en ein og afla hárra tekna, tiltölulega hárra tekna, sem að vísu eru í reynd ekkert nema liðlega meðaltekjur, lendir iðulega í hæsta skattþrepi. Fyrir þorra skattgreiðenda verði skatthlutfallið í sameinuðum tekjuskatti einstaklinga aðeins eitt, persónuafsláttur og barna- bætur verði hækkaðar og þar með skattfrelsismörk.“ Þorsteinn Pálsson, þá fjármála- ráðherra, mælti gegn því að hafa tvö eða fleiri skattþrep. Skjalda mætti þá lægst launuðu með ákvörðun skattleysismarka. „Eins verða menn að hafa í huga að fastur krónutölufrádráttur, per- sónuafsláttur, kemur hlutfallslega þeim að mestum notum sem lægstar hafa tekjurnar og býr þannig rí raun til stighækkandi skattþrep í þessu kerfi.“ J Eins af framansögðu sést eru hugmyndir Ólafs Ragnars Gríms- sonar, fjármálaráðherra, um tvö skattþrep, tvær skattprósentur, ekki nýjar af nál, þó þeim væri lítt fylgt eftir við setningu stað- greiðslulaga 1987 - eða á þeim tíma sem síðan er liðinn. Hug- mynd ráðherrans mun standa til 48% hátekjuskatts, nýs skatt- þreps, sem mæli 8% hærri skatt. Þeir sem gagnrýna þessar hug- myndir fjármálaráðherra benda m.a. á eftirfarandi: 1) Frá því staðgreiðslukerfi skatta var tekið upp hefur skattprósent- an verið hækkuð um rúmlega fjögur prósentustig. 2) Hátekjuþrep er skref aftur á bak frá einföldun skattkerfisins 1987. Það dregur úr vinnufram- lagi og hamlar, eins og allar skattahækkanir, gegn hagvexti, sem ekki er of mikill fyrir. 3) Skatturinn getur bitnað mjög harkalega á venjulegu launafólki, sem vinnur langan vinnudag tíma- bundið (t.d. vegna þess að það er að koma sér þaki yfir höfuðið) sem og einstökum starfsstéttum (t.d. sjómönnum). Hyggilegra er að skjalda láglaunafólk með hærri skattfrelsismörkum. 4) Reynslan af Þjóðarbókhlöðu- skatti og sérstöku gjaldi í Fram- kvæmdasjóð aldraða o.fl. eyrna- merktum sköttum sýnir ljóslega að slík skattheimta rennur fljót- lega að stærstum hluta í ríkis- hítina. Hugmyndir fjármálaráðherra um tvö skattþrep, „hátekjuskatt1', munu vera til meðferðar í ríkis- stjórninni. Stjórnarflokkunum hefur tekizt að fara í hár saman um viðfangsefni, sem hafa minna vægi út í þjóðfélaginu en þetta „kosningamál“ fjármálaráðher- rans. Stykkishólmur; Starf aldraðra er hafið Stykkishólmi. FÉLAG eldri borgara, Aftanskin, er þegar tekið til starfa og hefur nú komið með og ákveðið starfsáætlun í vetur í samstarfi við félögin í bænum. Aftanskin hefur þegar starfað í allt að 10 ár. Pálmi heitinn Frímannson sem hér var héraðs- læknir átti frumkvæðið að þessari félagsstofnun og er líklegt að spá hans og tilgangur hafi ræst. Þá er á vegum bæjarfélagsins starf fyrir aldraða bæði í dvalar- heimilinu og eins í Lionshúsinu og þetta stóreykur tómstundir eldra fólks hér í bænum sem hefur úr mörgu að velja. Þá má ekki gleyma öllu föndrinu sem í kringum þetta er og ótrúlegt hversu margt listaverkið kemur frá hinni öldruðu hendi. Þetta er svo' óspart notað til jólagjafa. - Árni. Morgunblaðið/Arni Helgason Félagslíf aldraðra í Stykkishólmi er nú hafið og er af mörgu að taka, m.a. að grípa í spil eins og þetta heiðursfólk á myndinni er að gera.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.