Morgunblaðið - 29.11.1990, Síða 66
66
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 29. NOVEMBER 1990
FRJALSAR IÞROTTIR / SPJOTKAST
,, Nemeth-spjótið
íjafnlausu
lofti og áður
- segir EinarVilhjálmsson, en hann og Svíinn Patrick Bodin eru að
semja greinargerð um spjótið, sem þeir senda alþjóða tækninefndinni
íí
„ÉG hef tekið þá stef nu að
hætta að velta mér upp úr
umræðunum um Nemeth-
spjótið lengur, því að þrátt fyr-
ir að tækninefnd alþjóða frjáls-
íþróttasambandsins hafi út-
skurðað spjótið ólögleg, eru
reglur um notkun þess íjafn
lausu lofti og áður,“ sagði Ein-
ar Vilhjálmsson. „Alþjóða
frjálsíþróttasambandið mun
taka málið fyrir í Tókýó og ef
spjótið verður samþykkt hefst
enn nýtt tímabil hjá spjótköst-
urum.“
Þess má geta að meðan engin
ákvörðun um spjótið hefur ver-
ið tekin er það undir mótshöldurum
í Grand Prix-mótunum komið, hvort
spjótin verða leyfð eða ekki, en eitt
er þó ljóst að Nemeth-spjótið verður
ekki leyft á heimsmeistaramótinu í
Tókýó í lok ágúst.
„Það er í hendi íþróttamannanna
sjálfra hvort þeir noti Nemeth-spjó-
tið eða ekki. Mér persónulega þykir
það ódýrt kveðið, að alþjóða frjáls-
íþróttasambandið geti ekki tekið
'ákvörðun um notkun spjótsins, eins
-og þegar sænska Orbit-spjótið var
bannað 1986. Þegar staðan er orðin
þannig - að formlega er ekki búið
að stöðva áhaldið, þá er það undir
mótshöldurum komið hvort að sjótið
verði leyft á ákveðnum mótum. Það
er vitað að Svíar og Finnar hafa
ekki samþykkt spjótið og Bretar
hafa ekki verið hlynntir því, en aft-
ur á móti hafa franskir og þýskir
spjótkastarar notað Nemeth-spjótið
óspart," sagði Einar.
Það er ljóst að ef Einar notar
ekki Nemeth-spjótið í þeim Grand
Prix-mótum sem þau verða leyfð,
er hann ekki samkeppnishæfur -
því fullsannað er að þeir sem nota
spjótið kasta lengra en þeir spjót-
kastara sem nota sgjót frá Sandvik,
Held eða Appalo. „Ég geri mér full-
komlega Ijóst að þessi staða getur
komið upp. Ég fer ekki í mót til
að tapa viljandi, þannig að ég mun
einnig æfa mig í _að ná valdi á
Nemeth-spjótinu. Ég er þó ekki
búinn að gera upp hug minn hvort
ég nota það eða ekki.
Eins og ég hef áður sagt þá er
það siðferðilegt mat hvers og eins
hvað þeir gera. Ég veit það fullvel
að maður getur bætt sig verulega
á mjög stuttum tíma með Nemeth-
spjótinu, en hvaða ánægja er í því
að vera að bæta sig án þess að finna
framfarir koma jafnt og þétt. Ég
hef keppt í spjótkasti fyrir
ánægjuna - og þá sérstaklega þeg-
ar maður hefur getað fylgst vel
með ferli sínum með einu og sama
áhaldinu,“ sagði Einar.
Andreas Borgström, landsliðs-
þjálfari Svía, er einn þeirra sem
hafa barist mest gegn öNemeth-
spjótinu og skorað á spjótkastara
að skrifa alþjóða tækninefndinni
bréf, þar sem þeir segja sitt álit á
spjótinu. Einar og sænski spjótkast-
arinn Patrick Bodin, sem setti
heimsmet á árinu, eru nú að semja
greinargerð sem þeir ætla að senda
til tækninefndarinnar.
Sautján Grand Prix-mót
fyrir úrslitin í Barcelona
Það verður í mörg horn að líta
næsta keppnistímabil, sem
verður eitt það lengsta sem ég
man eftir,“ segir Einar Vilhjálms-
son. „Aðalmótið verður að sjálf-
sögðu heimsmeistaramótið, sem
fer fram í Tókýó í lok ágúst og
úrslitakeppni Grand Prix, sem
verður i Barcelona í september.“
Einar sagði að alls yrðu haldin
sautján Grand Prix fyrir úrslita-
keppnina í Barcelona 20. sept-
ember og þar af væri þijú eftir
heimsmeistarakeppnina í Tókýó.
„Til að komast í úrslitakeppni
Grand Prix verð ég að ná góðum
árangri í fímm stigamótum, en
fyrsta þeirra verður í San Jose í
Bandaríkjunum 25. maí. Ég hef
mikinn hug á að ná takmarkinu
í byrjun keppnistímabils - tryggja
mér góða stöðu snemma, þannig
að ég geti undirbúið mig sem
best fyrir heimsmeistaramótið í
Tókýó, án þess að vera að ham-
ast við að keppa út um allt,“ sagði
Einar.
Fyrir utan að taka þátt í Grand
Prix hefur Einari verið boðið á
þtjú geysilega öflug mót; í
Cardiff, Malmö og Koblens. „Ég
veit að Carl Lewis og Ben Jo-
hnson koma til með að keppa í
Malmö,“ sagði Einar.
Mótalistinn yfir Grand Prix-stigamótin,
er þannig: Sanjose 25. maí. Bratislava
5. júní, Moskva 9. júnf, Ríó de Janeiro
18. júní, Helsinki 26. júní, Stokkhólmur
2. júlí, Osló 6. júlí, Lausanne 10. júlí,
London 12. júlí, Nice 14. júlí, Róm 17.
júlí, New York 28. júlí. Monte Carlo 3.
ágúst, Zúrich 9. ágúst. Heimsníeistara-
keppnin í Tókýó verður 24. ágýst til 1.
september, en síðan koma þijú Grand
. Prix-mót; Köln 7. september, Berlín 9.
september og f Brússel 12. september.
Úrslitakeppni stigamótanna fer fram í
Barcelona 20. september.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLEIKIR I DANMORKU
Einar Sigurðsson, einn af ungu
leikmönnunum í landsliðinu.
ff
Höldum uppbygg-
ingunni áfram“
- segirÞorbergurAðalsteinsson, landsliðsþjálfari
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik tekur þátt í fjögurra
liða móti í Danmörku um helg-
ina. Leikið verður gegn Frökk-
um á morgun, Dönum á laugar-
dag og Bandaríkjamönnum á
sunnudag. „Við höldum upp-
byggingunni áfram og reynum
að bæta það, sem misfórst
KNATTSPYRNA
UEFA sektar KSÍ
Knattspymusamband íslands hefur verið sektað af Knattspymusam-
bandi Evrópu, UEFA, um 5.000 svissneska franka, eða um 215 þús-
und íslenskar krónur, vegna fjögurra gulra spjalda í Evropuleiknum gegn
Spánveijum í Sevilla 10. október.
Atli Éðvaldsson, Sigurður Jónsson, Kristján Jónsson og Sævar Jónsson
fengu allir að líta rauða spjaldið í umræddum leik og þykir það of mikið
í Evrópuleik. Sævar fékk gula spjaldið fyrir að sparka gosdós upp í áhorf-
endastúku, en dósinni var kastað til hans er hann var að taka aukaspyrnu
út við hliðarlínu. Sævar vildi koma dósinni til síns heima með áðurnefndri
aðferð, sem reyndar er ekki viðurkennd af UEFA.
Þetta er í fyrsta sinn sem KSÍ fær sekt fyrir gul spjöld leikmanna.
gegn Tékkum,“ sagði Þorberg-
ur Aðalsteinsson, landsliðs-
þjáifari.
Ísland mætti Frakklandi síðast á
HM í Tékkóslóvakíu og tapaði
stórt. „Frakkarnir ætla að byggja
á sama liði ,á Olympíuleikunum
1992 og verða því örugglega erfið-
ir,“ sagði Iandsliðsþjálfarinn.
Um leikinn gegn heimamönnum,
sem verður í beinni útsendingu sjón-
varps í Danmörku, sagði Þorbergur
að spennandi yrði að sjá hvar
íslenska liðið stæði gagnvart Dön-
um, „hvort við höldum áfram að
bæta okkur. Fyrstu tveir leikirnir
verða því sérstaklega áhugaverðir,
en það þarf líka að halda haus gegn
Bandaríkjamönnum, sem geta bitið
frá sér.“
Birgir Sigurðsson, sem var
hvorki með gegn Tékkum né
Bandaríkjamönnum vegna meiðsla,
leikur á mótinu, en eftirtaldir leik-
menn skipa landsliðshópinn:
Markverðir: Guðmundur Hrafnkelsson,
FH, Bergsveinn Bergsveinsson, FH og
Hrafn Margeirsson Víkingi.
Hornamenn: Jakob Sigurðsson, Val, Konr-
áð Olavson, KR, Bjarki Sigurðsson, Víkingi
og Valdimar Grímsson, Val.
Línumenn: Birgir Sigurðsson, Víkingi og
Geir Sveinsson, Granollers.
Leikstjórnendur: Guðjón Ámason, FH og
Jón Kristjánsson, Val
Skyttur: Sigurður Bjamason, Stjörnunni,
Héðinn Gilsson, Dússeldorf, Júlíus Jónas-
son, Asnieres og Einar Sigurðsson, Selfossi
Unglingaliðið gegn Dönum
Unglingaliðið, sem undirbýr sig
fyrir HM í Grikklandi í september
á næsta áci, leikur þijá leiki gegn
Dönum á sama tíma og skipa það
eftirtaldir leikmenn;
Markverðir: Axel Stefánsson, KA og
Hallgrímur Jónasson.ÍR.
Aðrir leikmenn: Finnur Jóhannsson, Val,
Patrekur Jóhannesson.Stjörnunni, Jón B.
Ellingsen, HK, Friðleifur Friðleifsson,
Gróttu, Sveinberg Gíslason, Haukum,
Gunnar Andrésson, Fram, Óskar Sigurðs-
son, Haukum, Björgvin Þór Rúnarsson,
Víkingi, Magnús Sigurðsson, Stjörnunni,
Jóhann Ö. Ásgeirsson, ÍR, Róbert Þ. Rafns-
son. ÍR orr Jason Kr. Ólafsson, Fram
Einar Vilhjálmsson.
URSLIT
Knattspyrna
16-liða úrslit UEFA-bikarkeppninnar -
fyrri leikir:
Moskva, Sovétríkin:
Torpedo Moskva - Mónakó........2:1
Tichkov (19.), Savichev (44.) - Passi (56.)
10.000
Kaupmannahöfn, Danmörk:
Bröndby - Bayer Leverkusen.....3:0
Frank 2 (6., 66.), Christensen (60.) 23.000
V7n, Austurríki:
Admira Wacker - Bologna........3:0
Gretschnig 2 (31., 55.), Muller (36.) 8.000
Brussel, Bcigía:
Anderlecht - Borussia Dortmund....1:0
Marc Van der Linden (75.) 18.000
Köln, V-Þýskalandi:
Köln - Atalanta................1:1
Progna (50. - sjálfsm.) - Bordin (55.)
24.000.
Mílanó, Ítalía:
Inter Milanó - Partizan Belgrad...3:0
Lothar Mattháus (32.), Andrea Mandorlini
(49.), Alessandro Bianchi (70.) 65.000.
Róm, Ítaiía:
AS Róma - Bordeaux.............5:0
Rudi Völler 3 (10., 45. - vítasp., 50.), Manu-
el Gerolin 2 (60., 75.) 50.000.
Amsterdam, Holland:
Vitesse Arnhem - Sporting Lissbon.0:2
- Carlos Xavier 2 (23., 36.) 10.000.
Handknattleikur
FH - Víkingur 12:12
Íþróttahús FH í Kaplakrika, íslandsmótið í
handknattleik - 1. deild kvenna, miðviku-
daginn 28. nóvember 1990.
Mörk FH: Hildur Harðardóttir 3/2, Rut
Baldursdóttir 3/2, Björg Gilsdóttir 2, María
Sigurðardóttir 2, Amdís Aradóttir 1, Helga
Lea Egilsdóttir 1.
Mörk Víkings: Andrea Atladóttir 3, Heiða
Erlingsdóttir 3, Inga Lára Þórisdóttir 3/2,
Svava Sigurðardóttir 2, Erna Aðalsteins-
dóttir 1.
Tilþrifalítið jafntefli
FH og Víkingur skildu jöfn í til-
þrifalitlum leik í gærkvöldi. Bæði
lið áttu í erfiðleikum með sóknarleik-
inn og varð leikurinn fyrir bragðið
■■■■■I óskemmtilegur á að
Hanrta Katrín horfa. FH var einu
Friðriksen marki yfir í leikhléi,
skriíar 6:5 og náði þriggja
marka forskoti
snemma í síðari hálfleik. Víkingsstúlk-
um tókst að vinna þann mun upp, en
FH náði aftur yfirhöndinni þar til stutt
var til leiksloka.
2. KARLA:
UBK-ÍH..................... 24:28
HK-UMFA......................27:17
1. DEILD KVENNA:
Keflavík-ÍR..................23:16