Morgunblaðið - 18.12.1990, Side 80
80
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990.
félk í
fréttum
UTGAFA
Upplyfting lyftir sér upp
Upplyfting hefur ekki verið iðin
við plötuútgáfu þó svetin sé
komin á annan tuginn í aldri. Fyrir
stuttu kom þó frá henni platan Ein-
mana, sem Steinar hf. gefur út.
Upplyftingu skipa nú Sigrún Eva
Aronsdóttir söngkona, Sigurður
Dagbjartsson .gítarleikari, Birgir
Birgisson hljómborðsleikari, Kristj-
án B. Snorrason harmonikku- og
bassaleikari og Már Elísson
trommuleikari. Þau kynntu plötuna
nýju í veitingastaðnum Bandito fyr-
ir stuttu og léku á als oddi.
Nú þegar áramót
nálgast setjum við
gula nellikku í barminn
og
tryggjum okkur miða
á áramótadansleik
Hótels Borgar
með hljómsveitinni
Rauða myllan í París
Marquee í London
Hótel Borg í Reykjavík
Þrír skemmtistaðir sem
staðist hafa tímans tönn
úéí-
''r
Forsala aöfifönírumiöa hefst í das:.
B 0 R G I N
ríYfííapi
-.......!
LEIKHUS
Söngvaseiður æfður
af kappi
Meðal þeirra þriggja verka sem
frumsýnd verða rétt eftir
opnun stóra sviðs Þjóðleikhússins
um miðjan mars á næsta ári er
Söngvaseiður (Sound og Music) eft-
ir Rodgers og Hammerstein í leik-
stjórn Benedikts Árnasonar. Æf-
ingar standa nú yfir að Lindargötu
7 og að undanförnu hafa þar hljóm-
að söngvarnir úr Söngvaseiði. Æf-
ingar eru það langt komnar að
nýlega var rennt í gegn um verkið
við píanóundirleik.
Þessi sívinsæli söngleikur, sem
nefndur hefur verið Söngvaseiður á
íslensku, hefur aldrei verið fluttur
hér á landi. Hann er byggður á
ævisögu söngelsícu , nunnunnar
Maríu er réði sig sem barnfóstru
til.Trappfjölskyldunnar í Austurríki
árið 1938.
Með aðalhlutverkin fara Margrét
Pétursdóttir sem leikur Maríu, Jó-
hann Sigurðarson sem leikur von
Trapp kaftein, Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir sem leikur eistu dóttur-
ina og börnin sex sem leika systk-
ini hennar eru: Halldór Vésteinn
Sveinsson, Sigríður Ósk Kristjáns-
dóttir, Gizzur Páll Gizzurarson,
Álfrún Örnólfsdóttir, Heiða Dögg
Arsenauth og Signý Leifsdóttir. I
öðrum veigamiklum hlutverkum
erum: Ragnheiður Steindórsdóttir,
Örn Árnason, Helga E. Jónsdóttir,
Bryndís Pétursdóttir, Hilmar Jóns-
son, Hákon Waage, Anna Kristín
Arngrímsdóttir, Olöf Sverrisdóttir,
Margrét Guðmundsdóttir, Erlingur
Gíslason, Baldvin Halldórsson og
Jón Símon Gunnarsson. Til vara í
barnahlutverkum eru: Ólafur Egils-
son, Oddný Arnardóttir og Dagrún
Leifsdóttir. Auk þess leikur um 20
manna kór og 16 manna hljómsveit.
Þýðandi söngvaseiðs er Flosi Ól-
afsson, tónlistinni stjórnar Agnes
Löve, dansahöfundur er Ingibjörg
Jónsdóttir, sýningarstjóri Johanna
Norðfjörð og aðstoðarmaður leik-
stjóra er Þórunn Magnea Magnús-
dóttir.
Frá æfingu á Söngvaseið. Aðalhlutverkin leika: Margrét Pétursdótt-
ir (María), Jóhann Sigurðarson (von Trapp kafteinn), Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir (elsta dóttirin) og yngri systkinin leika: Halldór Vé-
steinn Sveinsson, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, Gizzur Páll Gizzurar-
son, Álfrún Örnólfsdóttir, Heiða Dögg Arsenauth og Signý leifsdóttir.
Morgnnblaðið/Ólafur Bemódusson
Ein af þeim greinum sem keppt var í var skólatöskuburður.
S^AGASTROND
„Flipp“-íþróttadag-
urískólanum
Skagaströnd.
FLIPP“-íþróttadagur var haldinn
í Höfðaskóla 7. desember sl.
Markmið dagsins var að gefa öllum
nemendum skólans kost á að
spreyta sig, ekki síst þeim sem
ekki ná að skara fram úr í hinum
venjulegu íþróttagreinum.
Állir nemendur skólans gengu í
skrúðgöngu ásamt kennurum
sínum frá skólanum að félagsheim-
ilinu. Höfðu krakkarnir gert spjöld
og borða með hvatningarorðum fyr-
ir sinn bekk og settu þeir mikinn
svip á skrúðgönguna. í félagsheim-
ilinu var svo keppt í ýmsum grein-
um en meðal þeirra voru: Sipp,
skólatöskuburður eftir þrautabraut,
pokahlaup og að koma blýanti í
flöskustút.
Um kvöldið lauk síðan „flipp“-
íþróttadeginum með diskóteki í
skólanum þar sem flutt voru
skemmtiatriði og verðlaun dagsins
voru afhent.
- Ó.B.