Morgunblaðið - 29.01.1991, Blaðsíða 47
, íeei hatoái. ,en írjOAQUKiiíÞi fliaAjfi>iunaoM
---TJIOKGUNBIAÐIÐ* ÞRlfMUBAGtíKr 29: JANUA-R 'lilíflr - -
Sigurður Siguijónsson í hlutverki sínu í Draumur á Jónsmessu-
nótt.
Draumur á Jónsmessunótt:
Spaugstofan dansar í upp-
færslu Islenska dansflokksins
FJÓRIR Spaugstofumenn taka þátt í sýningxi Islenska dansflokks-
ins á Draumi á Jónsmessunótt sem nú er verið að sýna í Borgar-
leikhúsinu.
„Það eru tvær leiknar senur í
þessari uppfærslu og við erum
fjórir félagamir sem leikum þar
eins og herforingjar," sagði Sig-
urður Siguijónsson einn Spaug-
stofumanna.
„Þetta er algjörlega ný reynsla
fyrir okkur félagana. Það reynir
dálítið á danshæfileika okkar, og
þá sérstaklega mína, því ég þarf
að dansa pínulítið, og það gengur
alveg glymrandi vel. Reyndar hef-
ur fólk séð að undanfömu hve lið-
tækur skautadansari Örn er og
ég held hann eigi eftir að láta
mikið að sér kveða á næstunni á
því sviði,“ sagði Sigurður.
Hann sagði þetta létta og
skemmtilega sýningu fyrir alla
fjölskylduna. Alls taka 40 manns
þátt í sýningunni og þar af em
11 börn úr Listdansskólanum.
Höfundur dansa er Grey Veredon
en tónlistin er eftir Mendelson.
Sex sýningar em fyrirhugaðar og
verður næsta sýning á sunnu-
dagskvöldið.
KFUM og KFUK, æsku- og
fræðsludeild Þjóðkirkjunnar:
*
Nýtt unglingastarf í As-
kirkju og Breiðholtskirkju
UNGLINGUM 14 til 20 ára er nú boðið upp á nýjan vettvang þar
sem þeir geta tjáð sig og tilfinningar sínar. „Ten Sing“ er alþjóð-
legt heiti á söng- og leiklistarstarfi unglinga. Hér á landi er það
KFUM og KFUK sem stendur á bak við þetta starf í samvinnu við
Æskulýðssamband kirkjunnar í
Fræðsludeild þjóðkirkjunnar.
Tveir „Ten Sing“-hópar eru nú
þegar starfandi, annar í Áskirkju
og hinn í Breiðholtskirkju. Af því
tilefni kemur 8 manna hópur frá
Noregi til þess að starfa með ungl-
ingunum við að skapa söng- og leik-
listarstarf eftir þeirra höfði.
Hópurinn sem gengur undir
nafninu „Ten Sing Team Norge“
mun dvelja hér á landi í mánuð og
vinna með hópunum í Breiðholts-
kirkju og Áskirkju, fara í skóla-
heimsóknir, eiga samverukvöld með
unglingunum og halda námskeið í
Skálholti. Námskeiðin enda á því
að hóparnir fara hvor í sína kirkju
og halda tónleika. Tónleikarnir sem
em öllum opnir verða sunnudags-
kvöldið 3. febmar og 17. febrúar í
Áskirkju. Tónleikarnir hefjast kl.
20.30.
Kynningarkvöld í
Breiðholtskirkju
Miðvikudagskvöldið 30. janúar
1991 kl. 20.00 verður „Ten Sing“-
starfið í Breiðholtskirkju kynnt.
Allir unglingar á aldrinum 14 til
20 ára eru velkomnir. Á kynningar-
kvöldinu kemur fram hópur ungs
Reykjavíkurprófastsdæmum og
fólks frá Noregi sem hefur tekið
þátt í „Ten Sing“-starfinu þar.
(Úr fréttatilkynningu)
♦ -------
Umferð-
arslys
UMFERÐARSLYS urðu við
Vogaafleggjara og á veginum út
á Vestmannaeyjaflugvöll á laug-
ardagsmorguninn.
Ekið var á gangandi vegfaranda
skammt austan við Vogaafleggjara
um klukkan hálf fjögur á laugar-
dagsmorguninn. Maðurinn sem ekið
var á slasaðist mikið og var hann
fluttur á Borgarspítalann í Reykja-
vík. Málið er að sögn lögreglunnar
í Keflavík í rannsókn.
Fólksbifreið fór út af flugvallar-
veginum í Vestmannaeyjum í
beygju skammt sunnan við Dala-
búið um klukkan sex á laugardags-
morguninn. Tvennt var í bíinum,
. ökumaður og farþegi, og slasaðist
ökumaðurinn á höfði. Farþeginn
skrámaðist. Bleyta var á veginum
þegar atvikið átti sér stað.
Starfsemi Norræna hússins:
Tungumálaráðunautur
ráðinn til þriggja ára
Blómlegt menningarstarf og aukin samvinna við „systurhúsin“
stad, forstjóri Norðuriandahússins í Færeyjum, sögðu frá því helsta
sem um yrði að vera á árinu.
NORRÆNA húsið hefur fengið
heimiid fyrir tveimur nýjum
stöðum. Tungumálaráðunautur
verður ráðinn í sumar og fjölgað
verður um einn á skrifstofu húss-
ins.
Tungumálaráðunauturinn mun
fyrst og fremst aðstoða kennara
sem kenna dönsku, sænsku og
norsku í skólum. Norræna ráð-
herranefndin hefur veitt fé til stöð-
unnar til þriggja ára.
Norræna húsið hefur einnig
fengið styrk frá ráðherranefndinni
til að halda tvö námskeið í íslensku
fyrir Norðurlandabúa. Næsta sum-
ar er fyrirhugað að halda námskeið
fyrir byijendur og lengra komna.
Ekkert þátttökugjald verður á þessí
námskeið en þátttakendur þurfa að
koma sér til íslands.
Eldhúsið í Norræna húsinu hefur
verið endumýjuð og nýju af-
greiðsluborði komið fyrir í veitinga-
sölunni. Einnig hefur dagblöðum,
sem þar eru, verið fjölgað.
Lars Áke Engblom, forstöðumað-
ur Norræna hússins, segir að mjög
aukið samstarf verði við „systur-
húsin“ í Færeyjum, á Álandseyjum
og í Grænlandi. „Þetta er okkar
leið til að mæta niðurskurði á fé
til norrænnar samvinnu. Við höfum
samstarf um ýmsar sýningar og
fleira og þannig er hægt að halda
kostnaði í lágmarki," sagði Lars
Áke Engblom. Hann sagði að á síð-
asta ári hefðu um 100 þúsund
manns komið í Norræna húsið.
Dagskrá í Norræna húsinu á ár-
inu verður frá öllum Norðurlöndun-
um. Leiksýning frá Færeyjum fyrir
böm, önnur frá Noregi fyrir full-
orðna ásamt bókakynningu þaðan
og í mars verður sænsk og dönsk
bókakynning og finnsk kvikmynda-
og menningarvika verður um miðj-
an mars. Myndlistarsýningar verða
haldnar og ætlunin er að hafa norr-
ænar kvikmyndavikur í samvinnu
við Háskólabíó.
Hér á landi er staddur Jan Klov-
stad, forstjóri Norðurlandahússins
í Færeyjum. Hann kynnti starfsem-
ina fyrir blaðamönnum og sagði
samstarfið við Norræna húsið hér
á landi mikilvægt, bæði fyrir íslend-
inga og Færeyinga.