Morgunblaðið - 29.01.1991, Blaðsíða 31
Dagvistir:
Starfsemi á Iða-
velli hefst eftir
endurbætur í mars
VIÐGERÐ á leikskólanum Iðavelli er nú að ljúka, en reiknað er
með að starfsemi hefjist í húsinu í byrjun mars. Næsta verkefni
er bygging nýrrar dagvistar sem annað hvort mun rísa við Helga-
magrastræti eða Þórunnarstræti á móts við lögreglustöð, þá er
einnig farið að huga að byggingu dagvistar í hinu nýja Giljahverfi.
Gagngerar endurbætur voru
gerðar á leikskólanum Iðavelli,
lagt nýtt gólf, veggir einangraðir
og gluggar endurnýjaðir, auk þess
sem þakið var lagað og einangrun
þess aukin. Kostnaður við fram-
kvæmdirnar er rúmar fjórar millj-
ónir króna.
Sigriður M. Jóhannsdóttir dag-
vistarfulltrúi sagði að nýr for-
stöðumaður, Áslaug Magnúsdótt-
ir, tæki til starfa 15. febrúar næst-
komandi, en annað starfsfólk ætti
eftir að ráða, þannig að starfsemi
gæti eflaust ekki hafist fyrr en í
byrjun mars.
Sigríður sagði að verið væri að
skoða hvar staðsetja ætti næstu
dagvist sem byggð verður á Akur-
eyri, en tveir staðir koma einkum
til greina, á lóð við Helgamagra-
stræti þar sem nú er starfræktur
gæsluvöllur eða við Þórunnarstæti
á móts við lögreglustöð. Þá liggur
einnig fyrir að huga að byggingu
nýrrar dagvistar í Giljahverfi og
sagði Sigríður að æskilegast væri
að hefja slíkar byggingar um leið
og hverfi byggjast upp.
Um 330 börn eru á biðlista eft-
ir plássi á dagvistum, flest þeirra
eru fædd árin 1988 og 1989.
Sigríður sagði að ævinlega vantaði
fóstrur til starfa í bænum, en það
væri vandamál sem verið hefði við
lýði til margra ára.
Bæjarstjórn:
Fyrri umræða um
fj árhagsáætlun
FJÁRHAGSÁÆTLUN bæjar-
sjóðs Akureyrar og bæjarstofn-
ana fyrir yfirstandandi ár verður
tekin til fyrri umræðu á fundi
bæjarstjórnar Akureyrar í dag,
þriðjudag.
Áætlað er að reksturinn á árinu
nemi einum milljarði, 387 milljónum
króna, gert er ráð fyrir röskum 428
milljónum króna til eignabreytinga
og þá er einnig gert ráð fyrir að
tekjur bæjarins á þessu ári verði
svipaðar og á hinu fyrra, þar sem
um er að ræða sömu álagningu
útsvars, aðstöðugjalda og fast-
eignaskatta og þá var.
Fjárhagsáætlanir veitustofnana
verða einnig teknar til fyrri umræðu
á fundinum, en gert er ráð fyrir
að heildartekjur þeirra verði um 850
milljónir á þessu ári.
Síðari umræða um ijárhagsáætl-
un verður 19. febrúar næstkom-
andi.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þráinn Lárusson veitingamaður og eigandi Uppans ætlar að opna nýjan veitinga- og skemmtistað í
Nýja bíói í byrjun mars. Salurinn er um 300 fermetrar að stærð og verður í upprunalegu horfi, þannig
að gamlir bíógestir geta leitað uppi uppáhaldssætin sín í bíóinu.
Nýr dansstaður opnaður í Nýja bíói:
Finn til mikillar ábyrgðar og veit
að miklar kröfur eru gerðar til mín
- segir Þráinn Lárusson veitingamaður
„ÉG ÆTLA að opna fyrri partinn í mars,“ sagði Þráinn Lárusson
veitingamaður og eigandi Uppans í gær, er gengið var frá samn-
ingi um leigu hans á sal Nýja bíós, en þar ætlar hann að reka
veitinga- og skemmtistað. Salurinn er um 300 fermetrar að stærð
og er fyrirhugað að reka þar margs konar starfsemi. Þráinn hef-
ur rekið Uppann í nokkur ár, en hann er á efri hæð bíóhússins,
þá bætti hann við Bíóbarnum á neðri hæðinni og loks á síðasta
ári opnaði hann Stjánabar.
„Salurinn er í mjög góðu lagi,
honum hefur verið vel við haldið.
Við munum hafa hann í uppruna-
legu horfi, gerum auðvitað nokkr-
ar breytingar og framkvæmdir eru
þegar hafnar, enda verður staður-
inn opnaður í byijun mars,“ sagði
Þráinn. Búið er að panta öflugt
hljómkerfi sem sett verður upp í
salnum, en einnig er ætlunin að
bjóða upp á lifandi tónlist. Þá verð-
ur keyptur 300 tomma myndvarpi
sem nýtist meðal annars fyrir ráð-
stefnur."
„Ég finn til mikillar ábyrgðar
að hafa fengið þennan sal og veit
að miklar kröfur verða gerðar til
mín. Það má segja að þessi salur
sé sá eini sem er virkilega góður
fyrir tónleikahald hér í bænum.
Þetta verður skemmtistaður með
lifandi tónlist og/eða diskóteki,
tónleikasalur, leikhús og það verð-
ur nýtt nánast undir-alla þá menn-
ingarviðburði sem völ er á,“ sagði
Þráinn.
Ilann sagði að langþráður
draumur sinn væri að rætast, en
hann hefði fyrst fengið hugmynd
að rekstri skemmtistaðar í Nýja
bíói fyrir um þremur árum. Hann
sagði að með tilkomu skemmti-
staðarins yrði rýmra um gesti þá
sem sótt hefðu Uppann. „Það hef-
ur skort pláss hérna, aðsóknin
hefur verið mjög góð og því oft
þröng á þingi, en þegar nýi salur-
inn verður kominn í gagnið þá
verður þar breyting á.“
Ólafsfjörður:
Göngin vekja athygli
ÖlafsfirOi.
í BLÍÐVIÐRINU sem verið hefur undanfarna daga á Norðurlandi
hefur straumur ferðafólks til Ólafsfjarðar aukist mikið. Greinilegt
er að jarðgöngin í gegnum Ólafsfjarðarmúla vekja forvitni og um
síðustu helgi var látlaus straumur ferðafólks um göngin til Ólafsfjarð- *
ar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Rúður brotnar í miðbænum
Allmikil ölvun var í miðbæ Akureyrar um helgina, einkum aðfaranótt laugardags, en þá voru fímm rúður
brotnar þar. í gær var verið að setja nýjar rúður í Landsbanka íslands, en þar höfðu nokkrar rúður verið
brotnar. Panta þurfti rúður frá Reykjavík og kosta þær á milli 60 og 70 þúsund krónur.
Um miðjan dag á sunnudag var
bíll við bíl í göngunum og virðist
fólk af Eyjafjarðarsvæðinu hafa
notað góða veðrið og farið sunnu-
dagsrúntinn sinn út í Ólafsfjörð.
Göngin hafa verið opin síðan fyr-
ir jól og hafa þegar sannað ágæti
sitt. Vegurinn til Olafsfjarðar hefur
nánast alltaf verið opinn síðan
'göngin voru tekin í notkun og er
það mikil breyting frá því sem áður
var. Dálítið hefur verið um það að
grýlukerti hafi myndast í göngun-
um og borið hefur á leka í klæðn-
ingu. Þau vandamál ættu þó að
verða úr sögunni þegar hurðir verða
settar fyrir göngin í næsta mánuði.
Næsta sumar verður svo verkinu
endanlega lokið.
SB
íslenskir innflytjendur athugið!
Coucíjáíonc®
tfine JToobsí yg
Fyrirtækið framleiðir margar tegundir eftirrétta. Þeir eru í flestum til-
fellum hringlaga eins og tertur og skerast niður í sneiðar.
Varan ofhendist frosin og þarf að geymast þannig. Salan hér heima
fyrir er að stærstum hluta til mötuneyta og veitingastaða, en einnig
til verslana.
Við leitum að fyrirtæki ó íslandi til að starfa sem umboðsmenn okkar
og hafa þar af leiðandi aðgang að frystigeymslum og einnig þekkingu
ó markaðnum.
Þeir, sem hafa óhuga, vinsamlega heimsækið okkur ó ISM-sýningunni
í Köln dagana 3. til 7. febrúar. Sýningarsvæði okkar er í Hall 5 -Stand
K4A, þar sem hægt verður að sjá og bragða á vörunni.
Touchstone - 9 - Kinwarton Farnt Road
Arden Forest Industrial Estate
Alcester
Warwickshire B49 SEH
Sími 789-400644
Fai 709-400657