Morgunblaðið - 29.01.1991, Blaðsíða 21
MORGUNBLADIÐ ^fiffijyPAfiUfi.gQ. J^NÚAR 1991
3h
íran
Varnar-
girðingar
Saudí-
Arabía 7,
Jubail i
Áættað streymi:
Tvær milljónir tunna
af olíu ó dag.
Olíubrákin fer um 24 km ó
dag, en straumar bera hana
að ströndum írans.
Sameinuðu arabisku
O Sjóeimingarstöðvar íurstadeemin
km
Oc
300
urinn væri um 50 kílómetrar að
lengd og rúmir 15 á breidd. Kváðu
þeir litla hreyfingu á olíubrákinni
og sögðu hana mjakast tæpa fimm
kílómetra á sólarhring til suðurs í
átt til Saudi-Arabíu. Sögðu þeir
hinir sömu að á sunnudag hefði
brákin borist um 30 kílómetra á
sólarhring.
Fjölskrúðugt dýralíf er að finna
við norðanverðan Persaflóa og
segja náttúrufræðingar sýnt að það
tjón sem olían hefur valdið verði
seint að fuilu bætt. Grunnsævi er
í norðanverðum Persaflóa og þykir
fullvíst að fiskimið á þeim slóðum
hafi orðið fyrir óbætanlegu tjóni
sem og kjörlendi ýmissa fágætra
fuglategunda. Sérfræðingur sem
starfar á vegum Alþjóða náttúru-
verndarsjóðsins sagði að gera mætti
ráð fyrir því að 200 ár liðu þar til
allur vatnsmassinn í Persaflóa hefði
endurnýjað sig. Talsmaður samtaka
Grænfriðunga nefndi að höfrungar,
háhyrningar, sjófuglar og sækýr,
sem þegar eru í útrýmingarhættu,
væru þeir stofnar sem orðið hefðu
verst úti.
Talið er að allt að ellefu milljón-
um olíufata hafi verið dælt í sjóinn
og sé það rétt er olíumengunin
líkast til sú mesta í sögunni. Til
samanburðar má geta þess að
275.000 olíuföt fóru í sjóinn í Ex-
xon Valdez-slysinu í Kanada árið
1989.
Á mánudag komu fulltrúar fjög-
urra bandarískra mengunarvarna-
stofnana til Saudi-Arabíu og hundr-
uð starfsmanna saudi-arabískra
olíufyrirtækja bjuggu sig í gærdag
undir að hefja hreinsunarstarfið.
Yfirvöld í Saudi-Arabíu höfðu þegar
komið upp mengunarvarnagirðing-
um við orkuver og vatnshreinstöðv-
ar við ströndina sem sjá landsmönn-
um og hermönnum bandamanna í
landinu fyrir drykkjarvatni. Til svip-
aðra aðgerða hefur þegar verið
gripið í Bahrain og Qatar. Þá var
í gær fluttur hreinsibúnaður frá
Bretlandi til Saudi-Arabíu. Tals-
menn samtaka Grænfriðunga
hvöttu til þess að skipulagðar yrðu
alþjóðlegar björgunaraðgerðir en
Michael Heseltine, umhverfisráð-
herra Bretlands, lýsti yfir því að
ekki kæmi til greina að koma á
vopnahléi í Persaflóastyijöldinni í
því skyni.
Ottí við hryðjuverk og
óeirðir í Frakklandi
Miðjarðarhafsbúar hamstra matvæli þrátt fyrir sefandi orð yfirvalda
Perpignan. Frá Margréti E. Ólafsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞÓTT mannlíf virðist í fljótu bragði vera með sama hætti hér í
Perpignan og áður en stríðið braust út við Persaflóa má greina
ýmsar breytingar. Öryggisverðir taka á móti viðskiptavinum stór-
markaða og biðja þá vinsamlegast um að opna töskur af ótta við
hryðjuverk. Kaffihúsum er lokað fyrr á kvöldin vegna þess að við-
skiptavinirnir kjósa heldur að sitja heima. Aðsókn að kvikmyndahús-
um hefur dregist saman og mótmælaganga friðarsinna er orðin að
föstum viðburði á laugardagseftirmiðdögum. Sömu sögu er að segja
um aðrar borgir og bæi landsins.
Þegar Dufour ofursti lýsti því
yfir í sjónvarpsþættinum „Ciel mon
mardi“ 10. janúar sl., að ef stríðið
brytist út væri tæknilegur mögu-
leiki á því að líbýskar orrustuþotur
hæfu skothríð á Miðjarðarhafs-
strönd Frakklands, greip um sig
hræðsla hjá íbúum svæðisins. Dag-
inn eftir streymdu þeir í stórmark-
aði og á næstu dögum hurfu þaðan
mánaðarbirgðir af sykri, hveiti, olíu
og pasta. Sama gerðist um allt land
þegar fréttir af þessari birgðasöfn-
un Miðjarðarhafsbúanna bárust út.
Aðallega var það fólk af þeirri kyn-
slóð sem man eftir matvælaskorti
síðustu heimsstyijaldar sem fann
hjá sér þörf fyrir að gera slíkar
ráðstafanir. Fullyrðingar opinberra
aðila um að ótti væri ástæðulaus,
og matvælaskortur ekki yfirvof-
andi, virtust lítil áhrif hafa því
næst bárust fregnir af að sala á
frystikistum og -skápum hefði
skyndilega tekið kipp.
500 sprengjuhótanir á dag
Annar ótti, og það öllu raunveru-
legri, er hræðsla við hryðjuverka-
starfsemi. Pierro Joxe innanríkis-
ráðherra sagði í viðtali á útvarps-
stöðinni France Inter fyrir helgi að
fjöldi upphringinga um sprengju-
hótanir hefði þrefaldast frá því
stríðið hófst og væru nú 500 á dag
á öllu landinu. „Fyrsta sprengjan“
sprakk aðfaranótt laugardagsins
26. janúar á dagblaðinu Liberation,
svo notað sé orðalag ritstjórans
Serge July. En enginn vafi virðist
leika á því að hún tengist Persflóa-
stríðinu.
Yfiivöld hafa einnig áhyggjur
af samskiptum innfæddra og inn-
flytjenda frá Norður-Afríku, enda
ýmis teikn á lofti um að ekki þurfi
mikið til að óeirðir þeirra í millum
gætu blossað upp. Þar má nefna
upplausn í samtökunum SOS-Rac-
isme, heiftarfullar skoðanir sem
heyrst hafa á útvarpsstöðvum
ýmissa félaga, átök milli nemenda
í háskólum í París, árekstra milli
verslunareigenda í innflytjenda-
hverfum eins og Belleville og Berb-
és í París og skyndilega aukningu
í sölu vopna og skotfæra á Miðjarð-
arhafssvæðinu, en þar er hlutfall
innflytjenda af heildaíbúarfjölda
það hæsta í landinu utan Parísar.
Kennarar gæti hlutleysis
Grunn- og menntaskólar eru
meðal þeirra staða sem hótað hefur
verið sprengjum, en það er ekki
einungis þess vegna sem óviðkom-
andi aðilum er bannaður að þeim
aðgangur nú eftir að stríðið hófst.
Stjórnmálamenn, blaðamenn og
aðrir þeir sem komið gætu af stað
deilum sem leitt gætu til átaka
milli nemenda eru vinsamlegast
beðnir að halda sig í fjarlægð. Og
kennarar hafa ströng fyrirmæli um
að gæta hlutleysis í samræðum við
nemendur um mál er varða ástand-
ið við Persaflóa og í Norður-Afríku.
Og fólk heldur sig fjarri almenn-
ingsstöðum eins og kvikmyndahús-
um, stórverslunum, leikhúsum og
flugvöllum. Þeir einu sem geta víst
hrósað uppgangi í öllu þessu eru
fyrirtæki sem sjá um öryggisgæslu.
Þau anna varla eftirspurn þessa
dagana.
,11
ff
Mannleysur^
ngósna við víglínuna
Bandamenn nota „mannleysur" e&a mannlausar, fjarstýr&ar
flugvélar, til þess að fljúga undir ratsjórgeisla og njósna um
ib\
stöóu irakskra herja.
Drægni: 160 km
Hraöi: 740 km/klst.
Fallhlíf og
úr
follinu við lendingu.
Innrauðar myndavélar og
venjulegor sjónvarpsvélor
sendo myndir jofnharóan
til stjórnstöðvarinnar.
m. Mannleysan" er knúin
þotuhreyfli og fylgir fyrir-
fromókveðinni leið.
Ódýr
matarkaup
pr. kg.
/i dilkaskrokkar, sagaðir ...369
/, dilkalrampartar, sagaðir 379
Dilkasaltkiöt ........399
Dilkalæri ...599
Kindabjúgu 399
Svið .........249
Unghænur 179
Núatúns pizza .339
Reykt medisterpylsa 499
Hamborgari m/brauði, pr. stk ... 89
Saltað hrossakjöt ...299
Trippabjúgu .327
Úrvals
norölenskur
þorramatur
NQATÚN
NÓATÚN117 HAMRABORG KÓP. ÞVERHOLTI 6 MOS.
® 17261 “2? 43888 ® 666656
ROFABÆ 39 LAUGAVEGI 116 FURUGRUND 3 KÓP.
® 671200 © 23456 St 42062