Morgunblaðið - 29.01.1991, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 29.01.1991, Blaðsíða 29
MÖRGCNUIjVÐIÐ WSœPnÍámtmÍF ÞRIÐJUDAGUR 29. JANUAR 1991 29 - EB—PUNKTAR Kristófer Már Kristinsson Brussel ísland og Evrópska efnahagssvæðið ÞAÐ verður ekki undan því kvart- að að ekki fari fram líflegar um- ræður um tengsl Islands við Evr- ópubandalagið í fjölmiðlum á ís- landi þessa dagana. Hitt er svo annað mál hvort þessi umræða er uppbyggileg eða í samræmi við aðstæður um þessar mundir. Það virðist oft sem því sé gleymt að hvorki liafa íslendingar sótt um aðild að EB né hefur þeim verið boðin aðild. Islendingar eru hins vegar í samfloti með öðrum EFTA-þjóðum, auk Lieehtenstein, að freista samninga við EB um nánari samskipti á öllum sviðum. Með þeim samningum vilja EFTA-ríkin tryggja þegnrétt sinn í Evrópu og þátttöku að svo miklu leyti sem fært er í þeirri merki- legu pólitísku og efnahagslegu þróun sem á sér stað innan EB. Þessir samningar eiga ekkert skylt við aðildarsamninga að EB. Það er þess vegna tilgangslítið að velta því fyrir sér í sambandi við EES-samningana hvað Islandi stæði til boða ef það sækti um aðild að EB. Forsendur samninga um aðild og forsendur EES-samn- ingana eru ósambærilegar. Að stórum hluta eru samningarn- ir um EES-viðskiptasamningar, þeir eru teknir af beggja hálfu sem slíkir. Samningarnir eru þess vegna reikn- ingsdæmi þar sem gallar eru vegnir upp á móti kostum af hvorum aðila fyrir sig auk þess sem EFTA-þjóðun- um gengur illa að koma saman sam- eiginlegri reikningsformúlu. Hins vegar spillir það ekki fyrir samning- um að þær þjóðir sem að þeim standa eiga sér langar hefðir í samskiptum á öllum sviðum, þær líta á sig sem bandamenn og lítillar tortryggni gætir þeirra í milli. Það breytir samt sem áður engu um það að hvor um sig vill tryggja hagsmuni sína sem best en til allrar hamingju fara þeir oftar saman en ekki. íslendingar náðu á sínum tima sérlega hagstæðum samningum við EB um aðgang íslenskra sjávaraf- urða inn á EB-markaði. Það vill gleymast að ekki er verið að semja við sama bandalag nú og 1972, ekki er einungis að ríkin eru tólf í stað sex heldur hafa bæst í hópinn ríki sem hafa mikilla hagsmuna að gæta í sjávarútvegi og eru ekki tilbúin til að sýna íslenskum sjónarmiðum sama skilning og ríkin sex áður. Afstaða þessara ríkja í EES-viðræð- unum segir hins vegar ekkert um afstöðu þeirra í hugsanlegum aðild- ai-viðræðum Islendinga, þess vegna ber að rugla þessu ekki saman. Það verður ekkert fullyrt um afstöðu EB í aðildarviðræðum annað en það að bandalagið mun aldrei gera samn- inga við aðildarríki sem fælu í sér landauðn eða ævarandi fátækt og kreppu fyrir viðkomandi ríki. Slíkt stríðir gegn öllum grundvallarvið- horfum bandalagsins. Það virðist þess vegna skynsam- legt að láta áhyggjur um áhrif aðild- ar að EB á íslandi bíða síns tíma. Ef Islendingar sækja um aðild og Evrópubandalagið samþykkir að fara í samningaviðræður vegna hennar þá er það vegna þess að það viðurkennir sérstöðu íslands sem er því vel kunn. Það er ljóst að samn- ingarnir um EES eru komnir á loka- stig. Ekki endilega í þeim skilningi að viðræðuefnin séu öll afgreidd heldur er tíminn að renna út. Stefnt er að því að samningamenn setji upphafsstafi sína undir samninginn fyrir apríllok. Þetta verður að gerast ef einhver möguleiki á að vera á því að undirrita samninginn öðruhvoru megin við sumarleyfi. Þá ætti tlminn fram að áramótum 1992-1993 að duga til að báðir aðilar geti staðfest hann og EES tekið gildi 1. janúar 1993. Flest efnisatriði samningsins eru afgreidd og eftir standa á sama hátt og í byijun óleyst pólitísk vandamál. í viðræðum síðasta miss- eri hefur þó tekist samkomulag um umfang þessara vandamála og hvert beri að stefna í lausn þeirra. I raun- inni vantar ekkert annað en pólitísk- an vilja til að ganga frá samningum og ýmislegt bendir til þess að farið sé að bóla á honum. Það gildir það sama um EB og EFTA og góða granna, líkurnar á því að bandalögin leiti ólíkra lausna á viðfangsefnum eða tefli fram mjög ólíkum hags- munum eru litlar. Ef hins vegar ein- stök aðildarríki ætla að ástunda orð- hengilshátt og sparðatíning á loka- sprettinum er sennilegast að Evr- ópska efnahagssvæðið verði eitthvað allt annað en stefnt var að í byrjun. Þá geta EFTA-ríkin í rauninni ekki öðrum um kennt en sjálfum sér. Mikið veltur á þvi að EFTA-ríkin hafi pólitískan þroska til að greina á milli þess sem mögulegt er og hins sem fyrirfram er óaðgengilegt fyrir EB. Þess verður ekki krafist af EB að það bindi hendur sínar nú í upp- hafi tveggja ráðstefna um breytta stjórnarhætti bandalagsins og gjald- miðilseiningu. EFTA-ríkin koma til með að hafa allt um það að segja hvaða reglur eigi að gilda á EES en þau verða að öllum líkindum að treysta á eigin greind og fortölur til 3 að hafa umtalsverð, áhrif á þær breytingar sem þau annað hvort hafna eða samþykkja. Það fullveldi sem lagður er um- talsverður tími í að veija á íslandi virðist ganga út á að veija rétt til sjálfstortímingar og ákvarðana sem eru í blóra við almenna skynsemi. Það hlýtur að vera skynsamlegt að haga málum sínum sem hluti af þeirri viðskiptaheild sem við lifum og hrærumst í. Það felst ekkert sjálf- stæði í einangrun, þjóðrembu og þvergirðingshætti. Það er ekkert athugavert við að taka ákvarðanir ’ sem varða sameiginlega hagsmuni með öðrum þjóðum, það er skynsam- legt. Brjálæðislega góðar plötur, diskar og kass. PHIL COLLINS Serious Hits Live Do You Remember, In The Air Tonighl, Against All Odds, One More Night, Another Day In Paradise, You Can't Hurry Love, Groovy Klnd Of Love og flr. KENNY ROGERS Very Best Of Öll lögin voru endurunnin frá grunni, Ruby, Dont Take Your Love To Town, Coward Of The County, Love Is Strange, You Decorated My Live, Island In The Stream, The Gambler o.fl. MADONNA Immaculate Collection Allt ný "REMIX": Like A Virgin, Borderline, Into The Groove, Live To Tell, Like A Prayer,- öll hennar bestu lög ásamt tveim nýjum: Rescue Me og topplagiö Justify My Love N.K.O.T.B. NEW KIDS ON THE BLOCK No More Games Step By Step, Hangin' Tough, Cover Girl, Right Stuff, Please Don't Go Girl. Allt nýjar hörkugó&ar "REMIX" útgáfur, má bjóða þér upp í dans? CURE Mixed Up Close To You, Lullaby, Lovesong, Hot, Hot, Hot, Why Can't I Be You, The Caterpillar og fleiri. Allt breyttar - ferskar útgáfur Austurstræti 22 Glæsibæ Laugavegi 24 Strandgötu 37 Hfj ■sími 28319 •sími33528 • sími 18670 • sími 53762 PHIL COLLI3NTS Þar sem músíkin fæst! 15% afsláttur RIGHTEOUS BROTHERS Very Best Of Unchained Melody, You've Lost That Loving Feeling, The White Cliffs Of Dover, Ebb Tide og fleiri sígræn lög. ELTON JOHN Very Best Of Crocodile Rock, Goodbye Yellow Brick Road, Candle In The Wind, Lucy In The Sky With Diamonds, Don't Go Breaking My Heart, Bennie And The Jets, Song For A Guy. LED ZEPPELIN Remasters Lögin eru öll endurhljóðblönduð af Jimmy Page: Stairway To Heaven, Whole Lotta Love, Immigrant Song, D'yer Mak'er, Good Times Bad Times, Black Dog og 17 önnur lög. LADDI Bestu vinir aðal Þú verður tannlæknir, Austurstræti, Jón spæjó, I vesturbænum, James Bond, og 12 önnur lög PLACIDO DOMINGO Greatest Love Songs Perhaps Love, Yesterday, Bésame Mucho, Autumn Leaves, Blue Moon, Maria Póstkröfusími IK Álfabakka 14 Mjódd ■ sími 74848 Laugavegi 91 • sími 29290 hljómplötuverslanir Grænt númer: 99-11620 Rauðarárstígur 16 ■ sími 628316

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.