Morgunblaðið - 29.01.1991, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 29.01.1991, Blaðsíða 40
fclk í fréttum (()(!! JjA'JHAU .Gk flUOAOUWJUlí CUöAJÖMUOíJOh MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1991 COSPER Ha, ha, ha, í skoðanakönnuninni er enginn sem álítur skrif- stofuna ofmannaða. Skundað í Skálholt Leiðtoganámskeið á vegum ÆSKR, Æskulýðssambands kirkjunnar í Reykjavíkurprófasts- dæmi, var haldið um miðjan janúar í Skálholtsskóla. Voru þátttakend- ur á milli 40 og 50, allt ungt fólk, sem starfar eða hyggst starfa að æskulýðsmálum í söfnuðum Reykjavíkurprófastsdæmis og Garðabæ. Um þessar mundir eru starfandi æskulýðsfélög í 13 söfnuðum og hefur þeim stöðugt farið fjölgandi. Félögin þurfa á hæfum leiðbein- endum og leiðtogum að halda og þess vegna eru haldin námskeið af þessu tagi. A námskeiðinu var biblíu- fræðsla, þar sem Ritningin var kynnt og útskýrð. Gerðu það þrír sóknar- og safnaðarprestar, Gylfi Jónsson, Jón Hróbjartsson og Tómas Sveinsson, en þeir voru jafn framt í undirbúningsnefnd. Hauk- ur Haraldsson frá Stjómunarfélagi Islands fræddi þátttakendur um það hvernig efla mætti æskulýðs- starfið. Þótti fræðsla hans vera lif- andi og skemmtileg. Komu fram margar hugmyndir, hvernig takast mætti betur í æskulýðsstarfinu. Helgihald var mikið og beðnar kvöld- og morgunbæmr, auk messu, og sungið lengi fram eftir. Þátttakendur voru sammála um að námskeiðið hefði tekist vel. Skemmti fólk sér vel saman á milli þess sem það fræddist þótt fræðslan hafi verið skemmtileg. Eins og venjulega í Skálholti, þá kórónaði maturinn hjá Möggu og Rúnu vel heppnað námskeið, sérs- taklega einn fermetri af rjómatertu í kirkjukaffinu. Framkvæmdastjóri ÆSKR er Ragnheiður Sverrisdótt- ir og hefur hún aðsetur í Laug- ameskirkju. -pþ. Morgunblaðið/Pjetur Þorsteinsson Hópurinn myndaði hring í kring um altarið I Skálholtskirkju í kvöld- og morgunbænum. Á inn- felidu myndinni má sjá nokkra þátttakendur draga miða úr skírnarfontinum en hver þátttakandi skrifaði nafn sitt aftan á miða sem settur var í skírnarfontinn. Átti síðan að biðja fyrir viðkom- andi nafni, sem dreginn var. æskuSðss^rf FJAQÐAQTI&KAJ4 Bæjarhrauni 20, Hafnarfirði ÖRFÁIR ÚTSÖLUDAGAR EFTIR „HOT FUDGE BROWNIE“ * jr Is á brúnköku Velkomin á Hard Rock Cafe, sími 689888 Útsala Mikil verðlækkun Elísubúðin, Skipholti 5. 1 u 07$^= / ▼-ekkibaraheppni 4. leikvika - 26. jan. 1991 Röðin : 1XX-1X1 -211-111 HVERVANN? 1.650.708- kr. 12 réttir: O raðir komu fram og fær hver: O - kr. 11 réttir: 15 raðir komu fram og fær hver: 19.053 - kr. 10 réttir: 307 raðir komu fram og fær hver: 903 - kr. Þrefaldur pottur - næst í Pennavinir 21 árs þýsk stúlka með áhuga á tónlist, íþróttum, kvikmyndum, bókmenntum o.m.fl.: Valentina Biittgenbach, Tennhofer Weg 23, D-7012 Fellbach-Oeftingen, Germany. Frá Ghana skrifar 22 ára stúlka með áhuga á tónlist, dansi, matar- gerð, ferðalögum o.fl.: Ama Mansah, c/o Mr. T.A. Walters, P. O. Box 1367, Tema, Ghana. Fjórtán ára bandarísk stúlka með áhuga á körfubolta, kórsöng, ýmiss konar tónlist, o.fl: Sarah Kroeger, 10922 West Bradley Road, Milwaukee, Wisconsin 53224, U.S.A Nítján ára indverskur háskóla- nemi með áhuga á íþróttum, ferða- lögum, tónlist o.fl.: Umesh Saraf, Bhalchandra Niwas, Vishnu Nagar, Naupada, Thane-400 602, India. Bandarísk kona 37 ára með áhuga á ljósmyndun, tónlist, hann- yrðum. Er organisti við sóknar- kirkju sína: Elizabeth A. Peed, P. O. Box 323, Indiana, 47670 U. S. A.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.