Morgunblaðið - 29.01.1991, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.01.1991, Blaðsíða 18
fiL Víkurbergið með Miröndu í togi skammt utan við Grindavík síðdegis á laugardag. Morgunblaðið/Kristján Jónsson Norska skipið Miranda sökk eftir óhapp í innsiglingnmii við Grindavík: Sökk þrátt fyrir ítrek- aðar bi örQfuiiartilraunir firindavík. Grindavík. NORSKA mjölflutningaskipið Miranda, sem var lestað um 1.400- 1.500 tonnum af loðnumjöli, tók niðri i innsiglingunni i Grindavík- urhöfn iaust eftir hádegið sl. laugardag. Leki kom að skipinu og þrátt fyrir ítrekaðar björgunartilraunir sökk J)að vestur af Sandgerði um klukkan sex á sunnudagsmorgun. Ahöfn skipsins var bjargað heilli á húfi. Miranda, sem er skráð í Háuga- sundi, er um 1.276 brúttórúmlestir að stærð og var því sem næst full- fermd af ósekkjuðu loðnumjöli frá Fiskimjöli og lýsi í Grindavík. Lyftist á öldu og skall á botninn Skipið var á leið út úr Grindavík- urhöfn þegar óhappið varð. Talið er að skipstjórinn hafí beygt of snemma úr ósnum og skipið lenti út úr svokallaðri rennu sem er í innsiglingunni. Nokkur kvika var í ósnum og Miranda lyftist á öldu og skall síðan niður í botninn með þeim afleiðingum að gat kom á vélarrúm skipsins. Mikill leki kom strax að því og skipstjórinn drap á vélunum þegar hann var kominn 3-4 mílur út fyrir innsiglinguna. Innsiglingin í Grindavíkurhöfn er talin með þeim erfiðari á landinu og ókunnugum hætt við að lenda í óhöppum sem þessum. Að sögn Bjarna Þórarinssonar hafnarstjóra afþakkaði skipstjórinn aðstoð hans við að sigla skipinu út úr höfninni og fékk leiðbeiningar á korti frá Bjama. Bjarni sagði að Miranda hefði elt hafnsögubátinn inn þegar henni var siglt til Grindavíkur við svipaðar aðstæður og voru nú og gengið vel. „Hitt er svo að aðstæð- ur eru alltaf erfiðar ókunnugum hér í Grindavíkurhöfn," sagði Bjarni. Reynir "Jóhannsson skipstjóri á Víkurbergi GK 1 sagði við Morgun- blaðið að ósk hefði komið frá um- boðsmanni skipsins um aðstoð og hann fór á skipi sínu út. Reynir sagði að þá þegar, milli kl. 4 og 5 síðdegis, hefði Miranda verið farin að síga að aftan og vélar skipsins stöðvaðar. Skipið rak hratt að landi og því hefði verið komið tógi á milli skipanna til að varna því að Miröndu ræki á land. Reynir kvaðst hafa lagt af stað til Hafnarfjarðar með Miröndu í togi en þar sem stýri skipsins hefði verið fast á bakborða var allur dráttur mjög erfiður því að átakið var alltaf á hlið. Tógið slitnaði og því var sett- ur stálvír á milli skipanna sem reyndar tvíslitnaði en hélt í þriðja sinn. Gæzluþyrlan send með dælu Strax voru gerðar ráðstafanir til að koma dælu um borð í Miröndu og þyrla landhelgisgæslunnar, TF- Sýn, var fengin til verksins. í sömu ferð fóru tveir pólskir skipveijar frá borði og með þyrlunni til Reykjavíkur. Þá voru eftir um borð ijórir skipveijar, allir Norðmenn. Björgunarsveitin Þorbjöm var í við- bragðsstöðu en ekki var talin þörf á aðstoð hennar framan af degi. Um kvöldmatarleytið var síðan óskað eftir aðstoð Hábergs GK 299 og Sveinn ísaksson skipstjóri brá skjótt við og ræsti út áhöfn sína. Aðstoðar var óskað þar sem Víkur- berg hafði ekki meiri vír um borð og einnig höfðu skipveijar lent í erfiðleikum með dælumar þannig að tveir slökkviliðsmenn frá bruna- vörnum Suðumesja fóm með. Einnig fór björgunarskip björgun- arsveitarinnar Þorbjamar í Grinda- vík, Oddur V. Gíslason, með. Þegar Háberg og Oddur náðu síðan Mir- öndu og Víkurbergi vom þau stödd rétt suðaustan við Reykjanesvita. Fréttaritari Morgunblaðsins var um borð í Hábergi. Strax sást að Miranda var nokkuð sigin að aftan en menn sögðu að ef ekki kæmist sjór í lestarnar mundi hún fljóta. Dælurnar urðu fyrir hnjaski Oddur V. Gíslason selflutfi slökkviliðsmennina til að athuga dælurnar og einnig var farið með rafstöð yfir í Miröndu þar sem ekk- ert rafmagn var um borð og menn frá björgunarsveitinni sem vom með í för fóm yfir í Miröndu. Þá strax komu tveir skipverjar yfir í Háberg og skömmu seinna einn til viðbótar. Þeir voru allir þreyttir að sjá og þeir sögðu við komuna í Háberg að farmurinn væri farinn að veltast í lest skipsins. Skipstjór- inn var eftir ásamt björgunarsveit- armönnum og slökkviliðsmönnun- um sem reyndu án árangurs að koma dælunum í lag. Talið var að -þær hefðu orðið fyrir hnjaski í flutningunum fyrr um daginn. Eft- ir það var fljótlega ljóst að hveiju stefndi. Mikil slagsíða kom skyndi- lega á Miröndu á bakborða og um kl. 22 yfirgaf Gunnar Alvestad, skipstjóri skipið síðastur manna og kom yfir í Háberg. Vönlaust að bjarga skipinu „Það er vonlaust að bjarga skip- inu,“ sagði Gunnar við Morgun- blaðið, þegar hann kom yfir í Há- berg, „það sekkur áreiðanlega.“ Hann kvaðst hafa fengið góðar leiðbeiningar um hvemig ætti að sigla út úr Grindavíkurhöfn og ekki talið þörf á að fá hafnsögu- mann um borð í skip sitt. Hann staðfesti að skipið hefði tekið niðri í innsiglingunni og lekinn sem kom að skipinu hefði verið of mikill fyr- ir dælurnar og síðan hefði ekki verið hægt að nota dæluna sem þyrlan kom með. Síðan komst sjór inn í lestamar og þá var frekari barátta vonlaus. Lagðist skyndilega á hliðina og hvolfdi Loft var lævi blandið í brú Há- bergs þar sem menn fylgdust með Miröndu sem háði vonlausa baráttu við Ægi konung. Skipið seig alltaf neðar og neðar og laust eftir mið- nætti lagðist það skyndilega á hlið- ina og hvolfdi þegar skipin vom stödd rúmlega 3 mílur út af Staf- nesi. Skipveijar á Víkurbergi vom tilbúnir með logsuðutæki og brenndu vírinn milli skipanna í sundur. Miranda maraði í hálfu kafi næstu 6 klukkustundirnar og sökk um 5 mílu vestur af Sand- gerði eftir að hafa rekið norður fyrir skagann. Skipið - sökk á 64°Ó3’36” n.br. og 22°56’37” v.l. og lagðist í suð-austur þegar það sökk. Háberg hélt til Grindavíkur með skipveijana og kom þangað um klukkan 3. Þar beið þeirra góður viðgjömingur í húsi björgunarsveit- arinnar og þeir fóm síðan til Reykjavíkur og dvöldu á hóteli það sem eftir lifði nætur. Skipveijarnir báðu Morgunblaðið um að koma á framfæri þökkum til allra sem stóðu að björgun þeirra og sérstök- um þökkum til áhafnanna á Há- bergi og Víkurbergi. FÓ IFIutningaskipið Miranda tekur niðri i innslglingunnl vlð Grinda- vík eftir hádegi á laugardag. Oddur V. Gíslason athafnar sig við skipshlið á Hábergi. Hann reyndist nyög lipur og flýtti mjog fyrir aðgerðum. Morgunblaðið/Frímann Ólafsson TF-Sýn lenti á knattspyrnuvellinum í Grindavík til að flytja dæl- ur yfir í Miröndu Norðmennirnir úr áhöfn Miröndu í góðu yfirlæti í borðsal Há- bergs. Talið f.v.: Gunnar Alvestad skipstjóri, Káre Fausa stýrimað- ur, Asbjorn Skarpnes háseti og Erling Bogen vélsíjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.