Morgunblaðið - 29.01.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.01.1991, Blaðsíða 2
8 - ;ei>! jfAöHAi. cs 8UDaœji,gijm aiaAjavíUOHOM 2 MÖRGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDÁGÚR 29. JÁNÚAR 1991 Tveir menn voru hand- teknir við landabruggun Vitorðsmaður þeirra leyndist undir sæng heima hjá sér LÖGREGLAN í Reykjavík upplýsti bruggmál um helgina, lagði hald á tæki til bruggunar og hellti niður um 400 lítrum af landa. Tveir menn unnu við landaframleiðsluna í bílskúr, sem þeir höfðu leigt. Rannsóknardeild lögreglunnar hafði spurnir af því að bruggáð væri í bílskúr í austurborginni. Síðdegis á föstudag héldu lögreglu- menn á staðinn og komu þá að tveimur'mönnum, sem voru að sjóða lög í bílskúrnum, þar sem voru 400 lítrar af landa og bruggtæki. Annar Evrópuflug sækir um flugrekstr- arleyfi þeirra hefur komið við sögu lögregl- unnar í bruggmálum og hinn þekkti lögreglan iíka, þó ekki hafí hann verið viðriðinn bruggmál áður. Annar mannanna var með meira af landa á brúsum heima hjá sér, en sambýliskona hans hafði pata af handtökunni og hellti drykknum niður. Á heimili þeirra fundust einn- ig kolasíur, sem notaðar voru til að hreinsa grugg úr leginum. í ijós kom að eigandi bflskúrsins býr úti á landi, en hafði leigt ungum manni bílskúrinn. Sá framleigði mönnunum tveimur skúrinn og hafði vitneskju um framleiðsluna þar. Leiguna fékk hann greidda í landa. Lögreglan fór heim til hans á föstudagskvöld, en fékk þau svör að hann væri ekki heima. Á laugar- dagsmorgun var gerð önnur tilraun til að hitta manninn, en aftur fékk lögreglan þau svör að hann væri ekki heima. í þetta sinn tók hún það ekki trúaniegt, þar sem bifreið mannsins stóð fyrir utan og hreyf- ing hafði sést í herbergisglugga hans þegar lögreglan kom að hús- inu. Lögi'eglumennirnir fengu með eftirgangsmunum að litast um í íbúðinni. í herbergi mannsins virtist enginn vera, en lögreglumaður tók eftir hreyfingu á sænginni í rúminu og lyfti henni upp. Þar leyndist maðurinn undir og var hann fluttur á lögreglustöðina. Mennirnir þrír hafa verið látnir lausir, enda málið fullupplýst. Bruggaramir segjast hafa lagt þrisvar í' og því framleitt 1.200- 1.500 lítra af landa. Þeir höfðu stundað þessa iðju í 2-3 mánuði. Morgunblaðið/Sverrir Pétur Sveinsson, rannsóknarlögreglumaður, við bruggtækin sem lagt var hald á um helgina. EVROPUFLUG hf. hefur sótt um leyfi til flugrekstrar, og er um- sóknin nú til meðferðar í sam- gönguráðunéytinu. Fjallað var um umsóknina í flugráði í siðustu viku, og að sögn Leifs Magnús- sonar, formanns flugráðs, fékk hún jákvæða umsögn þar. Evrópuflug er í eigu Gunnars Þorvaldssonar flugstjóra og Birkis Baldvinssonar, sem báðir hafa stundað viðskipti með flugvélar. Gunnar sagði í samtali við Morgun- blaðið að sótt hefði verið um leyfi til reksturs einnar farþegaflugvélar, en ekki hefði verið gengið frá nein- um samningum varðandi notkun þennar. „Þá er tímasetningin núna mjög erfið vegna stríðsins í Persa- flóa og ástandsins í Austur-Evrópu, en ef menn hafa hins vegar á ann- að borð fengið flugrekstrarleyfi, þá hafa þeir auðvitað ákveðna mögu- leika sem þeir annars hafa ekki,“ sagði hann. Atlantsflug fékk sólar- landaflug Samvinnuferða FERÐASKRIFSTOFAN Samvinnuferðir/Landsýn hefur samið við Atlantsflug hf. um leiguflug til nokkurra staða á Spáni, Rimini á Italíu og Dublin á Irlandi fyrir ferðaskrifstofuna í sumar. Er þarna um 10-11 þúsund sæti að ræða. Helgi Jóhannsson forstjóri Samvinnu- ferða segir Atlantsflug hafa boðið betur en Flugleiðir hf. sem einn- ig buðu í sólarflugið. Samvinnuferðir hafa einnig samið við Flugleið- ir um Ieiguflug til Vínarborgar, Kanada og Norðuriandanna, auk 8-9.000 sæta í áætlunarferðum til Evrópu, og segir Helgi að Flugleið- ir séu ennþá stærsti viðskiptaaðili Samvinnuferða. Helgi Jóhannsson sagði að það hefði ráðið úrslitum um hvoru til- boðanna var tekið, að Atlantsflug hefði boðið lægra verð en Flugleið- ir og morgunflug. Helgi sagði ekki enn fullljóst hvaða áhrif þessi samn- ingur hefði á verðskrá Samvinnu- ferða en félagið myndi taka þátt í þjóðarsáttinni svo um munaði. Þegar Helgi var spurður hvort Greitt tímakaup á 3. ársfjórðungi 1990: Kaupmáttur rýrnaði um 6% frá sama tímabili árið áður GREITT tímakaup landverka- fólks í Alþýðusambandi Islands hækkaði að meðaltali um 6% frá þriðja ársfjórðungi 1989 til sama tíma árið 1990. Kaupmáttur minnkaði hins vegar um 6% mið- að við hækkun framfærsluvísi- tölu á sama timabili, en hún hækkaði um 13%. Kaupmáttar- rýrnun þessi átti sér stað á árinu 1989, en kaupmáttur var óbreytt- ur á tímabilinu frá fyrsta árs- fjórðúngi 1990 til þriðja ársfjórð- ungs 1990. Kemur þetta fram í fréttatilkynningu frá Kjararann- sóknarnefnd. Ef litið er á breytingu mánaðar- tekna, þ.e. heildarlauna með yfír- vinnu, frá þriðja ársfjórðungi 1989 til sama tíma árið 1990, þá hafa þær hækkað um 6%, og kaupmáttur heildartekna því einnig minnkað um rúm 6%. Meginástæða fyrir þessu er að meðalvinnutími styttist um hálfa klukkustund á viku að meðal- tali á sama tímabili, en á fyrstu þremur ársfjórðungum ársins 1990 hefur vínnutími verið að styttast miðað við árið áður og hefur það ekki gerst síðan árið 1988. Tíma- kaup hækkaði að meðaltali um 6,5% frá þriðja ársfjórðungi 1989 til sama tímabils 1990, og var rýmun kaupmáttar að meðaltali 5,9% á tímabilinu. Greitt tímakaup hækkaði um 0,6% og meðaltímakaup um 1,0% á milli annars og þriðja ársfjórðungs 1990 samkvæmt almennu úrtaki Kjararannsóknamefndar, en um 1,8% og 1,7% samkvæmt pöruðu úrtaki, en það byggist á því að út- reikningur launahækkana miðist einungis við laun þeirra einstakl- inga, sem koma fyrir á tveimur ársfjórðungum í röð hjá sama vinnuveitanda. Mismunur þessara aðferða felst einkum í því að orlofs- uppbót og sérstök launauppbót hef- ur meira vægi í paraða úrtakinu. Samvinnuferðir væm með þessum samningi að ýta undir samkeppni við Flugleiðir, sagði hann að sam- keppni væri að sjálfsögðu af hinu góða en þarna hefði stjóm Sam- vinnuferða metið að tilboð Atlants- flugs væri hagstæðara. Og ef á annað borð væri leitað tilboða yrðu menn að vera samkvæmir sjálfum sér og taka því hagstæðasta. Halldór Sigurðsson forstjóri Atl- antsflugs sagði að hann teldi þenn- an samning vera mikla traustsyfír- lýsingu við félagið. Um væri að ræða 10-11 þúsund sæti íleiguflugi og sagði Halldór að samningsupp- hæðin væri hátt í 300 milljónir króna. Aðspurður sagði Halldór að samningur hefði í raun legið fyrir fyrir rúmri viku og síðan þá hefði engu verið breytt í honum. Flogið verður með Boeing 727-200 sem tekur 173 farþega í sæti. Búið er að ráða þijár áhafnir á vélina og em flestir í þeim fyrrver- andi starfsmenn Amarflugs. Halldór sagði að upphaflega hefði ekki verið á áætlunum Atl- antsflugs að fara út í sjálfstætt leiguflug heldur framleigja flugvél- ar til flugfélaga erlendis. En þegar Amarflug hætti rekstri í haust hefði félagið farið að skoða þá möguleika sem þá voru fyrir hendi. Fljótlega upp úr því hefði félagið boðið ís- landsferðir í Sviss, Þýskalandi og Hollandi og sú sala hefði gengið mjög vel. I sumar verður flogið til Islands frá Hamborg, Köln og Múnchen og notuð til þess sama flugvélin og verður í fömm fyrir Samvinnuferðir. „Við lítum á þetta sem eitt verk, sem endist fram á haustið, og þá munum við setjast niður og skoða hvert framhaldið verður," sagði Halldór Sigurðsson. Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, sagði að félagið hefði verið búið að gera ráðstafanir til að geta sinnt sólarlandafluginu fyr- ir Samvinnuferðir-Landsýn með því að leigja flugvél að hluta til á mesta annatímanum, en þeim áformum yrði nú eitthvað breytt. „Fyrirtæki ráða því sjálf hvar þau telja trygg- ast að bera niður, en við teljum að það verð sem við höfum verið að bjóða upp á sé fyllilega samkeppnis- fært á markaðinum, og við munum fljúga sólarlandaflug fyrir aðra. Þetta em auðvitað viðskipti sem við hefðum viljað eiga við Samvinnu- ferðir-Landsýn, en við munum eftir sem áður halda okkar striki,“ sagði hann. Beðið með ákvörðun um bætur til loðnuflotans: Þijú skip til leitar um helgina ÞRJU loðnuskip fóru umlielgina til loðnuleitar út af Vestfjörðum og auk þess er Árni Friðriksson, rannsóknarskip Hafrannsóknar- stofnunar, við rannsóknir fyrir norðan landið. Enn hefur engin loðna fundist sem gefi vonir um veiðar og á fundi með loðnusjómönnum í gærkvöldi sagði Halldór Ágrímsson, sjávarútvegsráðherra, að þótt ekki væri ástæða til að gefa upp alla von væri útlitið ekki bjart. Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræðingur, sagði á fundinum, að þrátt fyrir endurteknar mælingar fyrir austan landið, væri niðurstaðan sú sama og í haust. Hafði hann engar ákveðnar skýringar á loðnu- brestinum. Á fundinum, sem boðað var til af Farmanna- og fiskimannasam- bandi Islands og Sjómannasam- bandi íslands, sagði ráðherra að: loðnuflotanum yrði bættur skaðinn en ekki hefði verið tekin ákvörðun um framkvæmdina. Sagði Halldór það hugmynd ráðuneytisins að afla- magn Hagræðingarsjóðs fyrstu 8 mánuði ársins, gengi til flotans auk þess sem veiðiheimildir á rækju verði auknar um 5.000 tonn, sem fari til loðnuskipanna. Er þar um að ræða 14 þús. þorskígildi. Halldór sagði ekki einfalt að reikna út hvernig skipta ætti heim- ildum á milli skipa. „Við viljum ekki ákveða neitt frekar í málinu fyrr en álit þing- flokka um lagabreytingarnar liggja fyrir og hvernig málið lítur út um eða upp úr næstu mánaðamótum. Ráðherra sagði það sína skoðun að ekki ætti að banna framsal afla- heimildanna sem úthlutað yrði. Morgunblaðið/Ámi Sæberp; Farmanna- og fiskimannasambandið og Sjómannasambandið boðuðu sjávarútvegsráðherra og fiskifræðinga til fundar í gær. Jón B. Jónas- son, Helgi Laxdal, Halldór Ásgrímsson og Óskar Vigfússon ræða stöðu mála.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.