Morgunblaðið - 09.04.1991, Qupperneq 4
5 4
‘'1'Mdí&'jjNÍLlÐH^ÞRÍBÍupÁgtfR^:: APrÍL-iWi -
Aðalfundur íslandsbanka hf.:
Höfum g'oldið fyrir fag-
lega forystu í vaxtamálum
— sagði Brynjólfur Bjarnason, fráfarandi formaður bankaráðs
Gylfi Ingvarsson yfirtrúnaðarmaður hjá ISAL afhendir Guðmundi
Árna Stefánssyni, bæjarstjóra í Hafnarfirði, mótmælin.
Hækkun fasteignagjalda:
Alversmenn mótmæla
NÁLÆGT 400 starfsmenn ís-
lenska álféiagsins hafa skrifað
undir undirskriftalista til að mót-
mæla hækkun fasteignagjalda og
annarra þjónustugjalda sveitarfé-
laga að undanförnu. Alls búa
starfsmennirnir í 12 sveitarfélög-
um, á höfuðborgarsvæðinu og í
nágrenni þess og átti að afhenda
listana viðkomandi bæjar- og
sveitarstjórnum í gær.
Á mótmælalistanum segir að
starfsmenn íslenska álfélagsins vilji
VEÐUR
mótmæla þeim hækkunum fast-
eignagjalda og annarra þjónustu-
gjalda sem lagðar hafi verið á laun-
þega undanfama mánuði.
„Itrekað hefur launþegahreyfingin
farið fram á það að þessar hækkan-
ir verði dregnar til baka en þið ekki
orðið við því. Við skorum því enn á
ykkur, réttkjörna fulltrúa okkar, að
draga þessar hækkanir til baka og
halda ykkur við gerða þjóðarsátt,"
segir í mótmælayfirlýsingunni.
BRYNJÖLFUR Bjarnason, fráfarandi formaður bankaráðs íslands-
banka, lýsti því yfir á aðalfundi bankans í gær að ekki færi milli
mála að umræður um vaxtamál og árásir á íslandsbanka hefðu
skaðað bankann. Hann hefði greinilega goldið þess að hafa fag-
lega forystu í bankaheiminum í vaxtamálum því vegna pólitískrar
íhlutunar væru ríkisviðskiptabankarnir meira eða minna lamaðir
í þessum efnum. „Islandsbanki lítur svo á að honum beri skylda
til að gæta bæði hagsmuna skuldara og innstæðueigenda. Hann
getur ekki leyft sér að horfa einhliða á vaxtamálin."
Brynjólfur lagði áherslu á að
íslandsbanki hefði hvorki leyfi né
efni til að stunda pólitískt ábyrgð-
arleysi. „Hvorki viðskiptavinir
okkar né hluthafar geta sætt sig
við slíkt. í þessum efnum þykir
mér forsætisráðherra hafa gengið
svo langt í óábyrgum málflutningi
að til vansæmdar er. Til að afla
stundarvinsælda hefur hann gripið
VEÐURHORFUR I DAG, 9. APRIL
YFIRLIT í GÆR: Um 500 km norðaustur af landinu er 978 mb lægð
á hreyfingu norður en 1.022 mb hæð er yfir Norður-Grænlandi.
Um 900 km suðvestur í hafi er 976 mb lægð á hreyfingu norðaustur.
SPÁ: Norðaustanátt, hvassviðri við suðurströndina, en stinnings-
kaldi eða allhvasst í öðrum landshlutum. Víða slydda eða rigning
á Suður- og Suðausturlandi, snjókoma norðaustanlands og með
norðurströndinni. Víðast þurrt á Vesturlandi. Hiti nálægt frost-
marki norðanlands, en 2-5 stiga hiti syðra.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Norðan- og norðaustanátt. Él norðan-
lands og austan, en þurrt og víða léttskýjað om sunnan- og vestan-
vert landið. Fremur svalt f veðri, en þó frostlaust sunnanlands yfir
daginn.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Austlæg átt. Rigning^syðst á landinu,
slydda austanlands og snjókoma með norðurströndinni. Þurrt að
kalla á Vesturlandi. Heldur hlýnandi veöur og hiti víðast yfir frostmarki.
y, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
■\ 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , 5 Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
: / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri +3 alskýjað Reykjavík 1 léttskýjað
Bergen 5 haglél
Helsinki 10 þokumóða
Kaupmannahöfn vantar
Narssarssuaq 1 léttskýjað
Nuuk ■i-8 snjókoma
Ósló 7 skýjað
Stokkhólmur 11 skýjað
Þórshöfn vantar
Algarve 17 skýjað
Amsterdam 11 skýjað
Barcelona 16 skýjað
Berlín 11 skýjað
Chicago 18 alskýjað
Feneyjar 17 heiðskírt
Frankfurt 13 skýjað
Glasgow 8 skúrir
Hamborg vantar
Las Palmas vantar
London 14 skýjað
Los Angeles 13 þokumóða
Lúxemborg 9 skúrír
Madrfd 18 skýjað
Malaga 20 léttskýjað
Mallorca 19 skýjað
Montreal 5 þokumóða
NewYork 21 hálfskýjað
Orlando 21 skýjað
París 13 skýjað
Róm 18 léttskýjað
Vín 10 skúrir
Washington 17 léttskýjað
Winnipeg 3 skýjað
til ásakana af ýmsum toga og
meðal annars haldið því fram að
íslandsbanki hafi hækkað vexti í
nóvembermánuði af því að hann
væri svo illa staddur. Þá hefur
ekki linnt stöðugum ádeilum á
bfinkana fyrir of háa raunvexti,
þótt öllum sé ljóst að það er ríkis-
valdið sjálft sem veldur raunvaxta-
stiginu í landinu. Blekkingarleik-
urinn hefur meðal annars gengið
svo langt að á sama tíma og ríkis-
stjóm samþykkir bréf til Seðla-
banka þar sem honum er falið að
beita öllum tiltækum ráðum' til
þess að lækka raunvexti hjá bönk-
uw, þá samþykkir sama ríkisstjóm
að hækka raunvexti af spariskírt-
einum ríkissjóðs. Sú vaxtahækkun
var reyndar kölluð markaðsleg
fínstilling."
Hagræðing í rekstrinum
Fram kom í ræðu Brynjólfs að
vegna hagræðingar í rekstrinum
hefur bankinn sparað vemlegt
húsnæði. Þannig hefur hann nú
þegar selt 9 fasteignir sem bank-
amir fjórir nýttu áður. Söluverð
þessara eigna nemur alls tæplega
300 milljónum króna. Bankinn er
enn með í sölu nokkrar eignir og
áætlar að söluverðmæti þeirra sé
um 50 milljónir króna og þannig
er fyrirsjáanlegt að bankinn muni
losa fasteignir samtals að verð-
mæti 350 milljónir. Sem dæmi um
spamað í húsnæði nefndi Brynjólf-
ur að höfuðstöðvar bankans nýta
nú 30% minna húsrými en höfuð-
stöðvar gömlu bankanna höfðu
áður til afnota. Þar sparast um
1.500 fermetrar í skrifstofuhús-
næði. í heild er áætlað að bankinn
noti nú um 3.000 fermetrum
minna húsnæði en bankarnir fjórir
gerðu áður.
Starfsmönnum bankans hefur
einnig fækkað talsvert. í upphafí
árs 1989 voru stöðugildi í bönkun-
um fjórum alls 894 talsins en í
janúarmánuði 1991 voru sambæri-
Ieg stöðugildi í Islandsbanka um
805. Hafði starfsmönnum því
fækkað um 10%. Áætlað er að
stöðugildum í bankanum fækki
áfram á þessu ári og að í lok þess
hafi stöðugildum fækkað um
120-130 eða um 15%.
Sainkeppnisstaða
íslandsbanka
Þá vék Brynjólfur að samkeppn-
isstöðu íslandsbanka og benti sér
staklega á tvo þætti sem þörfnuð-
ust endurskoðunar. „Það fyrra
sem ég nefni er, að íslandsbanki
er eina innlánsstofnunin, sem
greiðir eigendum sínum arð. Eins
og kunnugt er hafa ríkisviðskipta-
bankar aldrei greitt eigendum
sínum arð og einnig er það svo,
að sparisjóðirnir í landinu greiða
engan arð. Það skiptir að sjálf-
sögðu nokkru máli þegar bornir
eru saman rekstrarreikningar
þessara banka eða þegar stjóm-
endur þeirra taka ákvarðanir um
vexti eða gjaldskrá, hvort þeir
þurfa að reikna með að greiða arð
af sínu eigin fé eða ekki. 10% arð-
ur í íslandsbanka þýðir tæplega
300 milljónir króna greiðslu af
hagnaði ársins." Kvaðst hann telja
að sömu lögmál ættu að gilda um
alla keppinauta á fjármagnsmark-
aðnum.
Brynjólfur benti í öðru lagi á
þá staðreynd að helstu keppni-
nautar Islandsbanka, ríkisvið-
skiptabankarnir nytu ríkisábyrgð-
ar á skuldbindingum sínum. Hann
sagði að með nýjum alþjóðlegum
reglum um eiginfjárhlutfail banka
kynni sú staða að koma upp að
ríkisviðskiptabankamir gætu ekki
nema að litlu leyti nýtt sér ríkis-
ábyrgð á erlendum lánamörkuð-
um. „Svo kann að fara að það
lækki á engan hátt lántökukostnað
íslendinga erlendis að hafa ríkis-
viðskiptabanka. í ljósi þessa og
með tilliti til þess hve mikilvægt
það er að hafa starfsskilyrði aðila
fjármagnsmarkaðarins sem jöfn-
ust tel ég mikilvægt að á báðum
þessum málum verði tekið á næst-
unni, ríkisábyrgðinni annars vegar
og arðgreiðslum hins vegar. Ein-
faldasta leiðin í þessum efnum er
auðvitað sú að gera ríkisbankana
að hlutafélögum og sparisjóðina
einnig og að afnema ríkisábyrgð
á skuldbindingum ríkisviðskipta-
bankanna.“
Sörli frá Sauðár-
króki fallinn
STÓÐHESTURINN Sörli 653
frá Sauðárkróki er fallinn 27
vetra.
Sörli var fæddur 1964 hjá
Sveini Guðmundssyni á Sauðár-
króki undan Feng 457 frá Eiríks-
stöðum og Síðu 2794 frá Sauðár-
k.róki.
’ Á á landsmótinu 1970 á Skóg-
arhólum stóð Sörli efstur \ flokki
stóðhesta 6 vetra og eldri og á
næsta landsmóti, 1974 á Vind-
heimamelum, var Sörli sýndur
með afkvæmum aðeins 10 vetra
gamall og hlaut hann þá þegar
fyrstu verðlaun. Aftur mætti
Sörli til leiks á Skógarhólum
1978, þá aftur með afkvæmum.
Keppti hann þá eftir nýju kerfi
til heiðursverðlauna og varð
fyrstur stóðhesta til að hljóta
slíka nafnbót eftir þeim reglum.
Tvö afkvæmi hans á mótinu
vöktu sérstaka athygli, þeir
Náttfari 776 frá Ytradalsgerði,
sem efstur stóð i flokki stóðhesta
6 vetra og eldri, og Hlynur frá
Bringu, sem sigraði í B-flokki
gæðinga.
Eftir mótið keypti Sigurbjörn
Eiríksson á Stóra Hofi Sörla af
Sveini og var hann notaður á
Stóra Hofi fram að næsta lands-
móti er Hrossaræktarsamband
Skagfirðinga keypti hestinn. Var
Sörli í eigu sambandsins til
dauðadags.
Sörli verður heygður á Úlfs-
stöðum við hlið ömmu sinnar
Ragnarsbrunku 2719, sem er
ættmóðir hrossa Sveins á Sauð-
árkróki.
VK