Morgunblaðið - 09.04.1991, Side 7

Morgunblaðið - 09.04.1991, Side 7
7 MORPIJHBLAÐIÐ ÞRÍÐJUDAGUR 9. APRÍL K'99CL Láttu að þér kveða -með Sjátfstæðisfbkknum Alda frelsis og mannúðar fer um heiminn. Sósíalismi og ríkisforsjá eru alls staðar á undanhaldi. Múrarnir í Evrópu eru að falla og eitt af öðru kjósa lönd álfunnar að ganga veg lýðræðis. Sjálfstæðisflokkurinn þarf ekki að leyna fortíð sinni. í meira en 60 ár hefur hann verið trúr hugsjónum lýðræðis og frelsis. Nú vildu allir Lilju kveðið hafa. Á nýafstöðnum landsfundi flokksins, lang stærstu stjórnmálasamkomu á íslandi, var af hreinskilni skipst á skoðunum og stefna mörkuð til næstu ára. Sjálfstæðismenn gengu samhentir af fundinum staðráðnir í að hafa forystu um að leiða íslensku þjóðina til betri lífskjara og blómlegrar menningar. Nú stendur yfir almenn félagasöfnun Sjálfstæðis- félaganna um land allt. Gakktu til liðs við öflugustu stjórnmálahreyfingu þjóðarinnar og taktu þátt í að móta þjóðfélagið, þína eigin framtíð og þinna. Hafðu samband við skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1 í Reykjavík, í síma 82900 eða sjálfstæðisfélag í þinni heimabyggð. Slástu í hópinn! FRELSI OG MANNÚÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.