Morgunblaðið - 09.04.1991, Page 7
7
MORPIJHBLAÐIÐ ÞRÍÐJUDAGUR 9. APRÍL K'99CL
Láttu að þér kveða
-með Sjátfstæðisfbkknum
Alda frelsis og mannúðar fer um heiminn. Sósíalismi og
ríkisforsjá eru alls staðar á undanhaldi. Múrarnir í Evrópu
eru að falla og eitt af öðru kjósa lönd álfunnar að ganga veg
lýðræðis.
Sjálfstæðisflokkurinn þarf ekki að leyna fortíð sinni.
í meira en 60 ár hefur hann verið trúr hugsjónum lýðræðis
og frelsis. Nú vildu allir Lilju kveðið hafa.
Á nýafstöðnum landsfundi flokksins, lang stærstu
stjórnmálasamkomu á íslandi, var af hreinskilni skipst á
skoðunum og stefna mörkuð til næstu ára.
Sjálfstæðismenn gengu samhentir af fundinum staðráðnir í
að hafa forystu um að leiða íslensku þjóðina til betri
lífskjara og blómlegrar menningar.
Nú stendur yfir almenn félagasöfnun Sjálfstæðis-
félaganna um land allt. Gakktu til liðs við öflugustu
stjórnmálahreyfingu þjóðarinnar og taktu þátt í að móta
þjóðfélagið, þína eigin framtíð og þinna.
Hafðu samband við skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í
Valhöll, Háaleitisbraut 1 í Reykjavík, í síma 82900 eða
sjálfstæðisfélag í þinni heimabyggð.
Slástu í hópinn!
FRELSI OG
MANNÚÐ