Morgunblaðið - 09.04.1991, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1991
P 8 1 0 0
LASERPRENTARAR
Fyrirferðalitlir,
afkastamiklir.
10 blöð á mínútu.
Einstaklega lítill
rekstrarkostnaður.
SKRIFSTOFUVELAR sund hf
NÝBÝLAVEGI16 - SÍMI 641222
-iœkni og |ijónu»ta á traustum grunni
GJOF
sem gleður....
BUXNAPRESSA
Hvítar - svartar - brúnar.
Verð kr. 9.400 stgr.
Elnar Farestvelt&Co.hl.
Borgartúni 28, simi 622901.
Leið 4 stoppar við dymar
T/:/'7:/'7:7'7
RAFORKAN
þarí ekki
að vera
staðbundin
EG1900X
Rafstöðin frá HONDA er
hentug fyrir vertaka, við
byggingar sumarbústaða
og við almennar húsbygg-
ingar. Hún gefur frá sér
220V straum.
Hlutverk sjúkrahúsa íReykjavík
eftir Sigurð Guð-
mundsson ogÞórð
Harðarson
Á undanfömum árum hefur tölu-
vert verið rætt um stóru sjúkrahús-
in þijú í Reykjavík, rekstur þeirra
og framtíðarskipulag, a.m.k. í hópi
þeirra er starfa að heilbrigðismál-
um. Minna hefur verið fjallað um
hlutverk stærri sjúkrahúsa sem
menntastofnana og tengsl þeirra
við háskólann, en slík umræða er
eigi að síður ein af forsendum þess
að unnt sé að móta hugmyndir um
framtíð sjúkrahúsanna í Reykjavík
og taka afstöðu til þeirra.
Núverandi skipan
Sjúkrahúsin þijú í Reykjavík,
Borgarspítali, Landakotsspítali og
Landspítali, hafa nú á að skipa um
1.500-1.600 rúmum og um 5.000-
6.000 starfsmönnum og er Land-
spítali þar sýnu stærstur. Öll sinna
þau bráðaþjónustu og veita öll sér-
fræðilega þjónustu á helstu sviðum
lyf- og skurðlækninga. Talsverð
verkaskipting ríkir þó þeirra í mill-
um. Sem dæmi má nefna augndeild
á Landakoti, slysadeild, háls-, nef-
og eyrnadeiid og heila- og tauga-
skurðdeild á Borgarspítala, og
kvennadeild og hjartaskurðlækn-
ingar á Landspítala. Rekstrarkostn-
aður sjúkrahúsanna er um 10 millj-
arðar króna á ári en sú tala verður
e.t.v. raunsærri þegar þess er getið
að hún er nokkru lægri en ársvelta
einnar stærstu verslanakeðju lands-
ins.
Hlutverk sjúkrahúsa
Flestir eru sammála um að
sjúkrahús eigi að sinna sjúkum.
Færri gera sér grein fyrir að hlut-
verk stærri sjúkrahúsa þarf að að
vera víðtækara og er í meginatrið-
um þríþætt.
a. Þjónusta við almenning. Með-
ferð og umönnun sjúkra er tvímæla-
laust það hlutverk sjúkrahúsa sem
mest er að umfangi. Þjónusta þessi
er margbreytileg og keppt er að
því að hún sé sú „besta“ sem unnt
er að veita hveiju sinni. Hafa verð-
ur þó í huga að þessu marki verður
aldrei náð með öllu, enda fara kröf-
ur til þjónustunnar, bæði varðandi
umfang, fjöibreytni og tæknilega
þróun, einungis vaxandi. Líklega
má fullyrða að þessum hluta hlut-
verks sjúkrahúsa sé almennt dável
sinnt en framþróun og gæði hafa
hins vegar alls staðar reynst vera
mjög tengd áherslu sjúkrahúsa á
kennslu og vísindastörf. Þau sjúkra-
hús'í nágrannalöndum okkar beggja
vegna Atlantshafsins sem mestrar
virðingar njóta leggja öll þunga
áherslu á þessi atriði.
b. Kennsla og menntun heilbrigð-
isstétta. Vegna hlutfallslegrar
stærðar höfuðborgarsvæðisins og
fjölda heilbrigðisstofnana miðað við
önnur byggð ból landsins fer mennt-
un heilbrigðisstétta að mestu leyti
fram þar. Dagleg störf og skipu-
lagning sjúkrahúsa í Reykjavík
verða að taka mið af þessu og þurfa
tillögur um framtíðarskipulag
sjúkrahúsa að lúta að því.
c. Vísinda- og þróunarstörf eru
e.t.v. sá þáttur heilbrigðiskerfis
okkar sem einna minnstur sómi
hefur verið sýndur að því er fjárveit-
ingar varðar. Eigi að síður hefur
vaxandi þróttur verið í vísindastörf-
um undanfarin ár innan íslensks
heilbrigðiskerfis við erfiðar aðstæð-
ur. Ekki þarf að minna á að þrótt-
mikið kennslu- og vísindastarf er
eitt þeirra atriða sem dregur áhuga -
samt og hæfileikaríkt fólk til starfa
og leiðir því beint og óbeint til
Þórður Harðarson
Ur flokki greina
háskólamanna þar
sem reifuð eru þjóð-
mál nú þegar kosn-
ingar fara í hönd.
bættrar þjónustu við heilbrigða og
sjúka.
Háskólasjúkrahús
Miðstöðvar kennslu og rann-
sókna í heilbrigðisvísindum í ná-
grannalöndum okkar bæði austan
hafs og vestan er á háskólasjúkra-
húsum, sjúkrahúsum sem reist eru
beinlínis í þeim tilgangi að sinna
kennslu og rannsóknum. Þau eru
nátengd stjórn viðkomandi háskóla;
allt læknalið og hluti annars klín-
ísks starfsliðs gegnir jafnframt
föstum kennarastöðum við skólann
og er það ráðið með tilliti til kennslu
og rannsóknaskyldu ekki síður en
þjónustustarfa. Fellur þar saman
fræðilegt og fagiegt stjórnskipulag
háskóladeildar og sjúkrahúss, enda
leggja slík sjúkrahús jafna áherslu
á alla þætti hins þríeina hlutverks.
Kostnaður við rekstur slíkra sjúkra-
húsa er óhjákvæmilega meiri en við
rekstur annarra, og á Bretlandseyj-
um þykir eðlilegt að rekstrarkostn-
aður háskólasjúkrahúsa sé um 25%
hærri en annarra sjúkrahúsa. Á
íslandi er eiginlegt háskólasjúkra-
hús ekki til, enda hefur stjórnkerfi
Sigurður Guðmundsson
sjúkrahúsanna verið háð pólitískri
fremur en faglegri forsjá sem hefur
að mestu leyti tekið mið af þjón-
ustuhlutverki þeirra. Með þetta í
huga er brýnt að breyta einu sjúkra-
húsanna í Reykjavík í eiginlegt
háskólasjúkrahús, enda er menntun
og endurmenntun heilbrigðisstétta,
rannsóknir og þróun grundvöllur
frarritíðarskipunar heilbrigðismála
hérlendis sem annars staðar.
Rekstur sjúkrahúsa
Helsta áhyggjuefni manna á
rekstri sjúkrahúsa er sá_ kostnaður
sem af honum hlýst. Áður hefur
verið minnst á að velta stóru sjúkra-
húsanna þriggja er síst meiri en
velta stórs verslunarfyrirtækis.
Ljóst er að heilbrigðisþjónusta kost-
ar fé og mun gera það áfram, a.m.k.
á meðan gerðar eru jafnmiklar kröf-
ur til gæða hennar og gerðar eru
hérlendis. Einnig verður að hafa í
huga að kröfur þessar munu fátt
gera annað en að aukast, bæði um
aukinn óhindraðan aðgang og til
sífellt vaxandi tækni við meðferð
einstakra vandamála. Skorður á
slíkan aðgang og að dýrri „há-
tækni“ eru siðferðilega erfiðar og
óvíst hvort íslendingar séu tilbúnir
til að taka afstöðu til slíkra tak-
markana á þessu st’igi. Sparnaður
er afstætt hugtak og er óvíst að
unnt sé að reka sjúkrahúsin ódýrar
en nú er gert svo nemi meiru en
fáeinum prósentum. Hafa verður í
huga að um 70% rekstrarkostnaðar
sjúkrahúsa er vegna launa starfs-
fólks og þyrfti því að beita veruleg-
um uppsögnum og skerðingu á
þjónustu svo að marktækum sparn-
aði yrði náð. Miðað við óbreyttar
og jafnvel vaxandi kröfur til þjón-
ustunnar er ólíklegt að af slíku
verði. Rekstur sjúkrahúsa er að því
leyti ólíkur verksmiðjurekstri að
afköst standa í beinu hlutfalli við
kostnað og auknum afköstum (sem
oftast verða ekki mæld með reglu-
stiku fjármála) hefur fylgt aukinn
rekstrarhalli. Markmið okkar verð-
ur að vera að veita betri þjónustu
fyrir það fjármagn sem til reiðu er
nú fremur en að reyna að veita
sömu þjónustu fyrir minna fé.
Ýmis atriði hafa verið nefnd er
lúta að hagræðingu. Má þar nefna
styttingu legutíma en til þess.að
svo megi verða þarf að bæta þá
þjónustu sem sjúkum er veitt í
heimahúsum, þ.e. heimilishjálp og
heimahjúkrun. Stunda má ýmis
smærri viðvik, aðgerðir og rann-
sóknir, í auknum mæli utan sjúkra-
húsa og er þegar allmikil þróun í
þá átt. Tilraunir eru gerðar með
dagdeildir og svonefndar fimm
daga deildir. Hafa verður þó í huga
að þessar ráðstafanir draga líklega
úr kostnaði við heilbrigðisþjón-
ustuna í heild en óvíst er hvort
rekstrarkostaaður sjúkrahúsanna
sjálfra minnki verulega þar sem þau
sitja eftir með þyngri og dýrari
sjúklinga. Að lokuiri hefur verið
horft mjög á möguleika á sparnaði
sem fengist við aukna samvinnu
og jafnvel samruna sjúkrahúsanna,
og verður nánar ijallað um þær
hugmyndir í síðari grein.
Niðurlag
Fjallað hefur verið um hlutverk
stórra sjúkrahúsa sem kennslu- og
vísindastofnana og rík áhersla lögð
á nauðsyn þess að eiginlegu háskól-
asjúkrahúsi verði komið á fót hér-
lendis. Ennfremur voru nokkur at-
riði nefnd sem lúta að hagræðingu
í rekstri sjúkrahúsa, en hugmynd-
um um samvinnu og jafnvel samr-
una sjúkrahúsa í hagræðingarskyni
verða gerð nánari skil síðar.
Sigurður er dósent í
lyflæknisfræði, Borgnrspítnln, og
Þórður prófessor í lyflæknisfræði,
Landspítala.
Leggjum niður lífeyrissjóðina!
eftir Jón H. Karlsson
Þeir sem hafa leitt hugann að
skipan lífeyrissjóðakerfís á íslandi
hafa margir komið auga á hversu
meingallað það er.
Hugmyndir hafa komið fram um
einn lífeyrissjóð fyrir alla lands-
menn, til að einfalda kerfið og
minnka báknið. Þessi hugmynd hef-
ir nokkuð til síns máls, þ.e. báknið
myndi minnka með því að draga
saman húsnæðiskost og starfslið.
Hugmyndina tel ég þó ekki í takt
við tímann.
Með tilkomu allra þeirra fjárfest-
ingasjóða er bjóða verðtryggingu
og raunávöxtun, sem og með til-
komu fijálsa lífeyrissjóðsins er eng-
in þörf lengur fyrir hina lögskipuðu
lífeyrissjóði, sem skuldbinda fólk til
að greiða stóran hluta launa sinna
í iðgjöld en skila félagsmönnum sín-
um rýrum lífeyri á ævikvöldinu.
Miklu meiri ávöxtun fengist af
iðgjaldi hvers og eins launamanns
væri það ávaxtað á fijálsan hátt.
Svo mikill er munurinn hveijum og
Wordnámskeið • Macintosh
©
Word er fjölhæfasta ritvinnsluforritiö fyrir Macintosh!
12 klst námskeiö fyrlr byrjendur og lengra komna!
*o
VATNAGÖRÐUM 24, RVlK., SÍMI 689900
*
Tölvu- og verkfræöiþjónustan
Grensásvegi 16 - flmm ár (forystu
rg?
&
„Báknið sem fylgir líf-
eyrissjóðunum með öll-
um þeim gífurlega
kostnaði, pólitísku völd-
um og óhagræði sem
því fylgir, hyrfi af sjón-
arsviðinu, öllum til
hagsbóta.“
einum launþega í hag að lækka
má lífeyrissjóðsiðgjaldið stórlega
frá núverandi hlutfalli af launum.
Samt nyti launþeginn betri ávöxt-
unar og því meiri ráðstöfunarfjár
þegar að elliárunum kemur.
Nú greiða launþegar að lágmarki
4% af tekjum sínum og atvinnurek-
endur 6% í lífeyrissjóðinn, eða sam-
tals 10%.
Mér segir svo hugur, að flestir
eða allir launþegar myndu heldur
kjósa að 7% iðgjald yrði greitt mán-
aðarlega inn á persónulegan reikn-
ing þeirra hjá „öruggu“ verðbréfa-
fyrirtæki eða fijálsum lífeyrissjóði.
Þannig gætu þeir verið öruggir um
að þessi hluti launa þeirra kæmi
þeim einum og þeirra erfingjum til
góða að lokinni starfsævi, verð- •
tryggt og með góðri raunávöxtun.
Hvað finnst atvinnurekendum og
launþegum um þessa hugmynd?
Atvinnurekendur spara 3% iðgjald
Jón H. Karlsson
(50% af núverandi framlagi) og
launþegar fá 3% til viðbótar (í stað
4% verður þeirra hlutur 7% eða 75%
hærri).
Báknið sem fylgir lífeyrissjóðun-
um með öllum þeim gífurlega kostn-
aði, pólitísku völdum og óhagræði
sem því fylgir, hyrfi af sjónarsvið-
inu, öllum til hagsbóta.
Reykjavík 22. mars 1991.
Höfundur er viðskiptafræðingur
og framkvæmdastjóri
Teppabúðarinnar hf.