Morgunblaðið - 09.04.1991, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRIL 1991
21
Ragnhildur Eggertsdóttir'
„Til að tryggja það
verður að setja þarfir
barnanna fremst í for-
gangsröðina, ekki að-
eins með fögrum orðum
heldur með gjörðum.
Það vill Kvennalistinn
gera, en til að geta
framkvæmt það verður
Kvennalistinn að kom-
ast í ríkisstjórn og til
þess að við getum farið
öflugar í stjórn þurfum
við stuðning kjósenda.
Veljum því V, kjósum
Kvennalistann. “
og sveigjanlegri vinnutíma foreldra
og með því að uppfylla þau sjálf-
sögðu réttindi barna og unglinga
að leikskólar standi tii boða öllum
börnum á leikskólaaldri og nemend-
ur grunnskóla fái lengri og sam-
felldari skóladag. Að ógleymdum
þeim sjáifsögðu mannréttindum að
dagvinnulaun hvers einstaklings
dugi fyrir framfærslu.
Þetta er svo dýrt
Nú hugsar ef til vili einhver sem
svo, en fleiri leikskólar og lengri
skóladagur, þetta er svo dýrt, hvar
á að taka peningana? Því ér þá til
að svara að það hefur nú hingað
til ekki vafist fyrir þeim sem pen-
ingavaldið hafa að finna peninga
fyrir því sem efst hefur verið á
óskalistum þeirra í það og það
sinnið. Undirrituð hefur því engar
áhyggjur af því að kvennalistakon-
ur finni ekki peninga fyrir sínum
óskaverkefnum.
Hitt er aftur á móti stóralvarlegt
áhyggjumál að með því að sinna
ekki öryggi og umönnun barna og
unglinga eins og okkur ber skylda
til verða afleiðingarnar alltof oft
þær að við stöndum frammi fyrir
því að reyna á einhvern hátt að
bæta skaðann þegar hann er skeð-
ur. Þetta er dýrt og því miður ekki
aðeins í peningum heldur kostar það
oft heilu fjölskyldurnar óhamingju
og sársauka sem engir peningar fá
nokkru sinni bætt. Börnin eru það
dýrmætasta sem við eigum, þjóðfé-
lag sem bregst ekki ábyrgð sinni
og skyldum við þau verður aldrei
fátækt. Til að tryggja það verður
að setja þarfir barnanna fremst í
forgangsröðina, ekki aðeins með
fögrum orðum heldur með gjörðum.
Það vill Kvennalistinn gera, en til
að geta framkvæmt það verður
Kvennalistinn að komast í ríkis-
stjórn og til þess að við getum far-
ið öflugar í stjórn þurfum við stuðn-
ing kjósenda. Veljum því V, kjósum
Kvennalistann.
Höfundur er verslunarkona og
skipar 3. sæti á frambodslista
Kvennalistans í
Reykjancskjördæmi.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar:
Nýtt húsnæði tekið í notkun
FÉLAGSMÁLASTOFNUN Reykjavíkurborgar hefur tekið nýtt
húsnæði, að Skógarhlíð 6, í notkun fyrir unglingadeild og
hverfaskrifstofu.
I þessu nýja húsnæði mun
starfsemi unglingadeildar og
hverfaskrifstofu fjölskyldudeild-
ar fyrir mið- og vesturbæ félags-
málastofnunar flytjast undir
sama þak.
Húsnæðið að Skógarhlíð 6 var
keypt af Sölufélagi garðyrkju-
manna í nóvember í fyrra fyrir
19,9 milljónir króna. Síðan þá
hefur verið unnið að endurnýjun
þess þannig að það félli að þörf-
um félagsmálaskrifstofu
Reykjavíkur. Breytingar þessar
kostuðu 12,5 milljón króna.
Hlutur Reykjavíkurborgar í
húsnæðinu er á fyrstu hæð og
er gengið inn af bílastæði að
norðanverðu um tvo innganga,
annars vegar að unglingadeild-
inni en hins vegar að hverfáskrif-
stofunni. Grunnflötur húsnæðis-
ins er um 600 fermetrar
Morgunblaðið/KGA
Hið nýja húsnæði félagsmálastofnunar að Skógarhlíð 6.
-
-
iÍSÍil
SiiaSfSI
t m
Amerísk gæði, öryggi og þægindi eru aðalsmerki Jeep Cherokee. Þetta er bíll sem
uppfyllir ströngustu kröfur um góða aksturseiginleika; ljúfur og lipur sem fólksbfll
innanbæjar, viljugur, kröftugur og áreiðanlegur utfinbæjar, í vegleysum eða ófærð.
Jeep hófu fyrstir framleiðslu á jeppum, fyrir fimmtíu árum, og í dag leiða þeir lest
allra þeirra sem fylgdu í kjölfarið. Það er óhætt að treysta leiðtoganum.
JEEP CHEROKEE, ÁRGERÐ 1991, FRÁ KR. 2.327.000,-
4.0 lítra, 6 cyl. vél, 190hestöfl
Fjögurra þrepa sjálfskipting eða fimm gíra með yfirgír.
Seiect-trac millikassi með sjálfskiptingunni.
Læst mismunadrif að aftan.
Styrkt fjöðrun og höggdeyfar.
Rafdrifnar rúður.
Samlæsing hurða með fjarstýringu.
o.m.fl.
JOFUR HF.
NÝBÝLAVEGI 2 S 42600
.